Frjáls verslun - 01.05.1997, Page 31
í staðinn fá Samskip einkarétt á að
nota leiðangurinn og leiðangurs-
menn í auglýsingum fyrir fyrirtækið.
En hver er tilgangurinn og hvernig
kemur það skipaútgerð til góða að
styrkja ijallgöngumenn?
„Það var þrennt sem við vildum
gera. I fyrsta lagi styrkja þetta metn-
aðarfulla framtak, koma jákvæðum
skilaboðum til ungs fólks og leggja
okkar af mörkum til jákvæðra hluta.
Við erurn afskaplega ánægð með ár-
angurinn," sagði Olafur Olafsson, for-
stjóri Samskipa.
Olafur sagðist ekki hafa verið sér-
lega áhugasamur fyrst en það var Jan
Davidssen, fatahönnuður, kunningi
hans hjá Foldu á Akureyri, sem benti
honum á að þetta væri verkefni sem
vert væri að styðja. Jan hannaði fatn-
aðinn á Everestfarana.
„Hann sagði orðrétt að Islendingar
væru svo seinir að taka við sér að
strákarnir yrðu komnir upp áður en
menn áttuðu sig á því hvað þetta væri
merkilegt.“
Olafur sannfærðist þegar hann
hitti fjallgöngukappana og sá einbeit-
ingu þeirra og yfirvegun. Olafur er
sjálfur fyrrverandi ijallamaður sem
hefur klifið mörg fjöll á Islandi og
stundað göngur í Frakklandi og Bret-
landi.
„Það hæsta sem ég komst var á
Mont Blanc en ég hef fyrir löngu
hengt mína mannbrodda á snaga.“
Mont Blanc er 4.807 metra hátt eða
um helmingur af hæð Everest.
ALLT FYRIR ÍMYNDINA
„Þetta snýst fyrst og fremst um
ímynd,“ sagði Helgi Helgason, fram-
kvæmdastjóri auglýsingastofunnar
Gott fólk, sem sér um auglýsingar
fyrir Samskip.
„ímynd ljallgöngumanns sem nær
á toppinn, nær settu marki með vand-
legum undirbúningi, þrautseigju og
skipulagi er svo skýr að ekki þarf að
útskýra fyrir neinum. Þetta var auk
þess einstakt tækifæri og sjálfsagt að
nýta sér það.“
Það voru Samskip sem tóku
ákvörðunina um að styrkja leiðangur-
inn eftir nokkra yfirlegu og funda-
höld en fyrirtækið hefur áður styrkt
ýmis verkefni, sbr. Samskipadeildina
í knattspyrnu.
Helgi sagði að í þessum efiium
gætti vaxandi skilnings, bæði meðal
veitenda og þiggjenda, á nauðsyn
þess að nýta styrkféð vel í auglýsinga-
skyni. Þannig væri hinn eiginlegi
styrkur aðeins í líkingu við Ijárfest-
ingu en síðan þyrfti aukið Ijármagn til
þess að nýta þessa fjárfestingu.
Reikna mætti með að annað eins færi
í auglýsingar til þess að nýta styrkinn
og vekja athygli á tengslum fyrirtæk-
isins.
„Mikil og vaxandi umijöllun fjöl-
miðla hvetur fyrirtæki til styrkveit-
inga af þessu tagi. Það má segja að
þetta sé einn auglýsingamiðill í við-
bót og fyrirtæki séu óðum að læra að
nýta sér hann.“
Ólafur hjá Samskipum sagðist
telja líklegt að þegar öll kurl kæmu
til grafar myndi fyrirtækið kosta til
þessa verkefiiis rúmum fimm millj-
ónum. Samskip birtu reglulega sjón-
varpsauglýsingar meðan á leið-
angrinum stóð sem byggðust á
myndefni af vettvangi og fleiri munu
fylgja í kjölfarið nú þegar leiðangrin-
um er lokið. Margir hafa velt því fyr-
ir sér hvort Samskip hafi tekið ein-
hverja áhættu með þessari styrkveit-
ingu og vísa þá til þess hvort tæki-
færið hefði orðið eins gott ef leiðang-
urinn hefði ekki komist alla leið.
Helgi sagði að þeir einu, sem
hefðu tekið raunverulega áhættu,
hefðu verið ijallgöngumennirnir
sjálfir. Samskip hefðu alltaf getað
nýtt sér verkefnið með einum eða
öðru hætti til að styrkja ímynd sína,
hvernig sem útkoman hefði orðið.
„Niðurstaðan varð svo eins og
happdrættisvinningur og gríðarlega
jákvæð fyrir alla aðila.“
ÁÐUR Á TOPPINN
Ríkissjóður Islands auglýsti lengi
vel sparnað í formi ríldsskuldabréfa
með kvikmynd af einbeittum íjall-
göngumanni sem með þrautseigju
og hörku kemst á toppinn. Þrír ís-
lendingar, Ólafur Örn Haraldsson,
Haraldur Ólafsson og Ingþór Bjarna-
son gengu þvert yfir Grænlandsjök-
ul fyrir fáum árum og nutu við það
atbeina margra styrktaraðila sem
var að góðu getið í sjónvarpsþáttum
og bókinni Hvíti risinn sem gerð var
um leiðangurinn. Þremenningarnir,
Ólafur Ólafsson, forstjóri Samskipa,
hefur hefur klifið Mont Blanc.
FV-myndir: Geir Olafsson.
Þjóðin tók á móti köppunum sem
þjóðhetjum.
Everestfararnir. Fjallgöngumenn hafa
sterka ímynd í heimi auglýsinga.
sem sigruðu Everest, vöktu einnig
mikla athygli fyrir tveimur árum
þegar þeir klifu Cho Oyu sem er ná-
lægt Everest og slógu þar margra
ára gamalt hæðarmet Helga Bene-
diktssonar ijallagarps. Einnig þar
komu margir styrktaraðilar við sögu
og margir þeir sömu og studdu þá á
Everest. 35
31