Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1997, Síða 37

Frjáls verslun - 01.05.1997, Síða 37
Chandrika Gunnarsson, eigandi Austur-Indíaíjelagsins við Hverfisgötuna, er 33 ára og alin upp á Indlandi. Hún er með masterspróf í hagfræði frá bandarískum háskóla. Hún, ásamt eiginmanni sínum, keypti veitingahúsið árið 1994, tók matseðilinn í gegn og réð til sín færan matreiðslumann frá Indlandi. að leiðrétta þann misskilning að ind- verskur matur væri alltaf svo ógnar- lega kryddaður. Chandrika telur að í upphafi hafi verið mun erfiðara að fást við það orð sem fór af staðnum. Það hafi þurft að senda fólki skýr skilaboð um að staðurinn væri breyttur og mat- urinn allt annar. „Það var meiriháttar barátta sem við áttum í við að kenna fólki út á hvað indversk matargerð gengur,” segir hún og bendir til dæmis á að Islend- ingar tengi indverska matargerð gjarnan við karrí en það sé ekki rétt því að ekkert sé til í Indlandi sem bragðist eins og þetta íslenska karrí. „Manni getur þótt indverskur matur góður þó að manni þyki íslenskt karrí vont. Þetta var ein hindrunin. Það var margt sem vann gegn því að rekstur- inn tækist,” segir Chandrika. ,Að auki var ég útlendingur að tala útlenda tungu og bera fram útlendan mat. Fólk þurfti að kunna að meta ekta indverska matargerð, sem borin var fram af Indverjum, elduð af Ind- verjum með kryddi frá Indlandi í framandi umhverfi í heimalandinu. Þetta höfðar til margra en hentar ekki fyrir aðra. Margir hugsa: Við erum á íslandi. Við viljum að þú talir ís- lensku,” segirhún. TEKST EÐA TEKST EKKI Chandrika segir að auðvitað hafi það verið mikið stökk fyrir sig að kynnast ís- lenskri menningu og svo sé enn þann dag í dag. Hún sé nú að kynna sína menningu á íslandi gegnum veitinga- staðinn til að reyna að fá hana sam- þykkta í þessu mjög svo ólíka menning- arsamfélagi. Þetta segir hún að sé mjög áhugavert verkefni. Fólk komi inn á veitingastaðinn og gefi sér eitt tækifæri í þessari hörðu samkeppni sem ríki. „Annaðhvort tekst þetta eða ekki. Fólk á kost á 125 veitingastöðum í Reykjavík og líkurnar á að það komi inn til okkar eru ekkert mjög miklar. Við erum eini indverski veitingastað- urinn en það þýðir þó ekki að við séum ekki í samkeppni við hina stað- ina. Þvert á móti. Við erum í beinni samkeppni við þá. Þegar fólk fer út að borða flettir það gulu síðunum eða fer eftir ráðleggingum annarra. Það, sem skiptir máli, er hvað fólk hefur sagt um staðinn,” segir hún. STARFSFÓLKIÐ ER ÞJÁLFAÐ „Þetta gerir það að verkum að við verðum að skera okkur úr. Við nálg- umst viðskiptin á allt annan hátt en hinir staðirnir og erum einstæð hvað það varðar. Auðvitað er alltaf hægt að skapa andrúmsloft í samræmi við þann mat sem er á boðstólum og það höfum við gert. Maturinn, þjónustan og andrúmsloftið hafa mikið að segja. Þjónustan er númer eitt, tvö og þrjú hjá okkur,“ segir hún. „Það er hægt að fara á góðan veit- ingastað með afbragðsgóðan mat og góða þjónustu en það verður mjög formleg þjónusta. Eg held að það sé ekki hægt að finna marga staði með hágæða matreiðslu og jafn alúðlega þjónustu við viðskiptavinina fyrir þetta milliverð sem er hjá okkur,” segir hún og bætir við að starfsfólkið sé þjálfað í heilan mánuð þannig að það viti ná- kvæmlega hvernig það eigi að koma fram við viðskiptavinina og geti veitt allar upplýsingar. 53 37

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.