Frjáls verslun - 01.05.1997, Síða 38
□ að hafa margir reynt að út-
skýra persónuleika, lifsskoð-
anir og eðli Warren Buffetts
en það er ekki nokkur leið að lýsa
þessum einstaka persónuleika með
orðum, nema þá e.Lv. með hans eigin
orðum,” segir höfundur nýútkominn-
ar bókar, „Warren Buffett talar,” sem
hefur að geyma allskyns spakmæli,
gamansemi og fróðleik sem sóttur er í
gagnabanka þessa fræga bandaríska
fjárfestis.
Buffett, sem nú er á sjötugsaldri,
tókst að auðgast svo á fjárfestingum
sínum að hann er orðinn heimsfrægur
í dag og veit ekki aura sinna tal. Ofáir
hafa leitað ráða hjá honum um það
hvernig eigi að fara að því að gerast
ríkur en hann hefur þó ekki síður
margt til málanna að leggja varðandi
lífið, ástina og leitina að hamingjunni.
I bókinni er að finna hnyttin tilmæli
um lífið, vináttuna, Jjölskylduna, vinn-
una, fyrirtækjaTekstur, fjárfestingar
og hvað við getum lagt til þjóðfélags-
ins haft eftir Buffett.
Um lífið segir hann td.: „Eg reyni
ekki að stökkva yfir tveggja metra háa
hindrun. Eg leita að eins metra hárri
hindrun sem ég get klofað yfir.” Úm
hamingjuna segir hann: „Þegar ég fer
á skrifstofuna mína á morgnana líður
mér eins og ég sé að fara í einka-
kapellu páfans til að mála.”
Höfundur bókarinnar, Janet C.
Lowe, stiklar á stóru varðandi upp-
vaxtarár Buffetts í Omaha Nebraska
og segir frá þvi hvernig hann stikaði
upp lista Forbes yfir 400 ríkustu
Bandaríkjamennina og endaði í núver-
andi starfi sínu sem stjórnarformaður
Berkshire Hathaway. Hún lætur hann
þó að mestu sjálfan um að tala en af og
til fylgja umsagnir samstarfsmanna,
gagnrýnenda, vina og ættingja Buff-
etts með textanum sem gefa lesand-
anum þannig betri innsýn í líf hans og
þankagang. „Það sem gerir pabba
ánægðan er að slæpast um húsið,
lesa, spila bridds og tala við okkur.
Hann er eins venjulegur og pabbar
gerash” er m.a. haft eftir dóttur Buff-
etts.
Bókin er meira um það hvernig
eigi að gerast ríkur en um þá ríku,
leiðir til að hagnast fremur en hagnað-
inn sjálfan og jafnvægi fremur en sjálft
takmarkið. „Að vissu marki gera pen-
TEXTI: INGIBJÖRG ÓÐINSDÓTTIR MYND: GEIR ÓLAFSSON
'
Nýútkomin bók um
fjármálasnillinginn
Warren Buffett:
BUFFETT
TALAR
Fróóleikur, gamansemi
og sþakmœli kaþþans.
ingar þér stundum kleift að hrærast í
áhugaverðara umhverfi en þeir breyta
engu um það hversu mörgum þykir
vænt um þig eða hversu heilsuhraust-
ur þú ert,” er m.a. haft eftir Buffett.
UM LÍFH)
„Hugmyndir mínar um mat og
mataræði voru fullmótaðar mjög
snemma í kjölfar vel heppnaðrar af-
mælisveislu þegar ég varð 5 ára. Þá
fengum við pylsur, hamborgara, gos-
drykki, poppkorn og ís.”
„Eg drekk úr fimm kókflöskum á
dag. Það gera 750 kaloríur. Eg myndi
missa 35 kíló á ári ef ég hefði ekki
drukkið allt þetta kók. Hugsið ykkur,
það hefur bjargað lífi mínu.”
„Ef synda á 100 metrana eins hratt
og hægt er er betra að fylgja sjávarföll-
unum en að einbeita sér að réttum
hreyfingum.”
„Það tekur 20 ár að byggja upp
orðstír og fimm mínútur að eyðileggja
hann. Ef þú hugsar um það gerir þú
hlutina öðruvísi.”
„Ekki ljúga undir neinum kringum-
stæðum. Þú kemur ekki til með að
flækjast í neitt ef þú hreinlega útskýr-
ir hlutina eins og þú sérð þá.”
„Vaninn er of léttvægur til þess að
við verðum hans vör, allt þar til of
þungbært verður að láta af honum.”
„Ég vissi alltaf að ég ætti eftir að
verða ríkur. Ég minnist þess ekki að
hafa efast um það eina mínútu.”
„Fyrirætlanir um að setjast í helgan
stein? U.þ.b. 5 -10 árum eftir að ég
dey.”
„Einhver situr í skugganum í dag
af því að einhver gróðursetti þar tré
fyrir langalöngu.”
UM VINNUNA
„Mér hefur oft fundist að hægt
væri að læra meira af mistökum ann-
arra en sigrum. Það tíðkast í við-
skiptaskólum að Jjalla um viðskipta-
sigra. Félagi minn, Charles Munger,
segist einungis vilja vita hvar hann
muni deyja - þá ætlar hann aldrei að
fara þangað.”
„Ég sækist ekki eftir peningum. Ég
sækist eftir skemmtuninni við að afla
þeirra og horfa á þá margfaldast.”
„Ég hef miklu meira gaman af að-
ferðinni en árangrinum þótt ég hafi
lært að lifa við árangurinn líka.”
„Það, sem ekki er þess virði að
gera, er ekki þess virði að gera vel.”
„Ef þér tekst það sem þú ætlar þér
í fyrstu tilraun hættu þá að reyna.”
38