Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1997, Page 49

Frjáls verslun - 01.05.1997, Page 49
að skipta út eldra gleri að nota K glerið þótt skiptin komi smátt og smátt og eftir hendinni. FJÖLBREYTT FRAMLEIÐSLA Glerborg býður upp á fjölbreytt úrval af gleri. Auk venjulegs einfalds glers má nefna einangrunargler, öryggisgler, eldvarnargler og byggingarhluta úr gleri á borð við gler- hurðir og glerklæðningar. Þá framleiðir fyrir- tækið tvöfalt gler, sem er límt saman með plasti í ýmsum litum, svo hægt er að velja litinn í stíl við umhverfið en plastið myndar óregluleg form milli glerjanna og hefur mik- ið skreytigildi. Dótturfyrirtækið Gler og speglar framleiðir spegla, borðplötur og hillur og býður upp á hvers konar slípun og sandblástur. Hægt er að sandblása í glerið alls konar mynstur og skreyting- ar en sandblásna glerið hefur mikið verið notað í hurðir, hillur og handrið. En glerið frá Glerborg hefur ekki einungis hitaeinangrandi gildi heldur framleiðir fyrirtækið gler, sem hefur reynst notadrjúgt sem hljóðeinangrun. Hér er um að ræða sérstaka gerð af tvöföldu gleri þar sem límt er saman venjulegt gler og samlímt öryggisgler. Á milli er sett þykkt plastefni sem dregur mjög úr hávaða. Þegar er komin góð reynsla á glerið og hljóðeingngrunargildi þess, meðal annars þar sem það hefur verið sett í íbúðir við Miklubraut. Víðar er þó þörf á hljóðeinangrun og þar myndi þessi tegund glers nýt- ast fráþærlega vel. Stofndagur Glerborgar er 23. júní árið 1972. Aðalhvatamað- ur að stofnun fyrirtækisins og fyrsti forstjóri var Jón Bjarni Krist- 'a sjávarafurða er frá Glerborg. Glerið er vandlega fægt áður en það er sett saman. HITUNARKOSTNAÐ insson, en hann lést árið 1975. Þá tók sonur hans, Anton Bjarna- son, við stjórn fyrirtækisins og hefur gegnt því starfi síðan. Gler- borg hf. er að Dalshrauni 5 í Hafnarfirði og hefur verið þar frá upphafi. Húsrýmið hefur þó stækkað mikið á þessum 25 árum eða úr 220 í 1800 fermetra. Starfsmenn eru 17 talsins en fjöldi umboðsmanna er um allt land og tryggja þeir góða þjónustu við viðskiptavini. BESTA AFMÆLISGJÖFIN Anton Bjarnason segir að eins og allir viti hafi erfiðleikar ver- ið i byggingariðnaði undanfarin ár en nú sé hann að rísa úr öskustónni. „Besta afmælisgjöfin, sem Glerborg getur fengið á aldarfjórungs afmælinu, er að bjart er fram undan í þessari iðn- grein, jafnt hvað snertir byggingu atvinnuhúsnæðis sem og íbúð- arhúsnæðis." Unnið við samlímingu glersins. 49

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.