Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1997, Side 52

Frjáls verslun - 01.05.1997, Side 52
fræði frá skólanum 1986 en slíkt próf liggur miðja vegu milli meistaragráðu og doktorsprófs í sænsku menntakerfi. Luleá er mjög norðarlega í Svíþjóð og þar er náttúrufegurð mikil sem hentaði jarðfræðingi og náttúruunnanda vel. Reyndar er Luleá á um það bil sömu breiddargráðu og Mývatn Eftir að prófinu lauk starfaði Bjarni sem rannsóknaverkfræðingur við tækniháskólann og bar bæði vísinda- lega og fjárhagslega ábyrgð á berg- spennurannsóknum á vegum skólans og hannaði og smíðaði búnað til mæl- inga. I þessu starfi tók hann þátt í fjöl- da verkefna og framkvæmdi meðal ann- ars mælingar fyrir sænsku kjarnorkuúr- gangsnefndina og samskonar nefndir í Finnlandi, Kanada og Bandaríkjunum. I framhaldinu stofnaði Bjarni svo sína eigin verkfræðistofu, Renco AB, í Svíþjóð (Rock Engineering Consultants Ltd.) og starfaði að margskonar verk- efnum og var m.a. ráðgjafi sænsku kjarnorkuúrgangsnefndarinnar um berggeymslur Fyrirtækið gekk vel en hjónin vildu koma heim aftur. Bjarni seldi því Renco AB til SGAB, þau flutti heim og Bjarni fór að vinna hjá Jarðborunum hf. sem tæknistjóri og staðgengill framkvæmda- stjóra. Þau hafa reyndar enn tengsl við Svíþjóð því Bogi, sonur þeirra, er þar á snjóbrettamenntaskóla og mun vera eini Islendingurinn sem hefur valið sér þessháttar menntaveg. BORAÐ í HVALFIRÐI Bjarni var vel liðinn í starfi sínu hjá Jarðborunum. Hann átti frumkvæði því að að útvega Jarðborunum verkefni er- lendis og var potturinn og pannan í stóru verkefhi á Azoreyjum sem varð fyrirtækinu ákaflega happadrjúgt. Þannig nýtti hann vel reynslu sína og sambönd frá Svíþjóð í starfi fyrir fyrir- tækið. Verkefni Jarðboranna fela í sér bor- anir víða um land og í Ijósi framvindu mála er það sérkennileg tilviljun að síð- asta verkefni Bjarna hjá Jarðborunum var að hafa umsjón með borun í Hval- firði þar sem boraðar voru tilraunaholur vegna væntanlegra jarðganga undir Hvalfjörð. Það var síðan árið 1995 sem Bjarni réðst að Kísiliðjunni sem forstjóri og fluttist norður í Mývatnssveit með fjöl- 52 NÆRMYND skyldu sína. Hann hafði þá um nokkurt skeið verið búsettur að Hrauntungu 23 í Kópavogi í sérlega glæsilegu einbýlis- húsi sem sumir kalla „Kastalann". Hús- ið teiknaði Högna Sigurðardóttir arki- tekt og er það vel þekkt meðal áhuga- manna um arkitektúr. Bjarni á mörg handtök við endurbætur þar innanhúss en húsið hefur verið leigt meðan fjöl- skyldan hefur búið fyrir norðan og starf- inu á Grundartanga fylgir einnig bústað- ur. Bjarni er stjórnarformaður í Melmi ehf. sem er félag sem stendur fyrir um- fangsmikilli gullleit á Islandi og hefur borað t.d. í Þormóðsdal, rétt við Reykja- vík. Það voru þeir Bjarni og Hallgrímur Jónasson, forstjóri Iðntæknistofnunar, sem unnu saman að því að endurvekja gullleitina og afla til hennar erlends áhættufjár. Kísiliðjan á 80% í Melmi en Iðntæknistofnun 20% en aðilar frá Svf- þjóð, Kanada, Bretlandi ogÁstralíu koma að verkinu. Á þessu ári er reiknað með að leitin kosti 180 til 200 milljónir króna. LÍFIÐ í MÝVATNSSVEIT Bjarna er svo lýst að hann sé vinnu- samur og duglegur, allt að því ofvirkur. Hann hefur náð góðu sambandi við starfsmenn Kísiliðjunnar og nýtur vin- sælda meðal þeirra. Hann er laginn við að virkja áhuga þeirra á starfsemi verk- BJARNI Nafn: Bjarni Bjarnason. Starf: Forstjóri Járnblendifélagsins. Aldur: 41 árs Fæddur: 4. júní 1956 i Reykjavík. Fjölskylduhagir: Kvæntur Björgu Árnadóttur blaðamanni og ritlistarkennara og eiga þau tvo syni og eina dóttur. Foreldrar: Bjarni Júlíusson vélamaöur og Guðrún Helga Kristinsdóttir. Menntun: Vélstjóraréttindi, 2. stigs, BS í jarðfræði frá HÍ og licentiatpróf í námaverk- fræði frá Tækniháskólanum í Luleá í Svíþjóð. Áhugamál: Jarðfræði, náttúruskoðun og úti- vist af ýmsu tagi. Stjórnandi: Vinnusamur, hefur góða yfirsýn, óformlegur og leggur áherslu á gott sam- band við starfsfólkið. smiðjunnar í jákvæðum skilningi. Hjá Kísiliðjunni hefur þeirri stefnu- breytingu verið komið á undir stjórn Bjarna að takast á við deilur um tilvistar- rétt verksmiðjunnar með tæknilegum og vfsindalegum rökum fremur en pólit- ískum. En Bjarni hefur mikinn áhuga á umhverfismálum. Þegar málefni Kísiliðjunnar voru í umræðunni lagði hann ávallt áherslu á að vinna málin í kyrrþey en blandaði sér lítt í fjöliniðlaumræður. Það er almennt álitið að hann hafi leyst það verkefni all- vel sem marka megi af því að meiri frið- ur ríki nú um starfsemi Kísiliðjunnar en hafði gert um langt skeið áður en hann réðst þar til starfa. Sömuleiðis hefur Bjarni sjálfur forð- ast sviðsljósið þótt það hafi beinst að fyr- irtækinu og finnst lítt til þess koma að standa í kjastljósi ljölmiðla. Á því kann að verða breyting nú þegar hann tekur við rekstri eins af stærri fyrirtækjum landsins. Sumir segja reyndar að í þessu felist veikleiki Bjarna sem stjórnanda, nefni- lega í því að hann sé oft afundinn við þá sem hann hefur ekki þolinmæði gagn- vart og finnst ekki vera nógu fljótir að skilja hvað hann meinar. Þessu fylgir til- hneiging til að halda upplýsingum fyrir sig og dreifa þeim ekki nógu mikið til starfsmanna. Þannig virki hann stund- um of sjálfstæður og líkt því að hann treysti engum nema sjálfum sér. Ekki er hægt að segja að reynt hafi mikið á Bjarna sem stjórnanda í fjár- málalegum ólgusjó. Kísiliðjan er vel rek- ið og öflugt fyrirtæki með geysilega sterka eiginfjárstöðu sem á þó afkomu sína fyrst og fremst undir utanaðkom- andi áhrifum eins og markaðsverði í heiminum og sveiflum þess. Þess vegna verður afkoma fyrirtækisins á hveijum tíma meira háð ytri aðstæðum en innri stjórn og markaðsstarfi. Þannig má segja að starfsemi Járnblendiverksmiðj- unnar sé lík Kísiliðjunni því bæði fyrir- tækin reiða sig á aðstæður á heims- markaði. BAÐFÉLAGIÐ I félagslegum skilningi er Bjarni mannblendinn og létt yfir honum í dag- legri umgengni. Hann er glaðlyndur og léttur í viðmóti, allvel að sér á ýmsum sviðum og hefur skoðun á mörgum hlutum, enda fjiilfróður og vel menntað-

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.