Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1997, Síða 53

Frjáls verslun - 01.05.1997, Síða 53
Bjarni hefur sérhæfða menntun á sviði jarðfræði og námaverk- fræði. Hann lærði í Svíþjóð, hefur unnið hjá Orkustofnun og Jarðborunum, ekið ferðamönnum og hefur vélstjóraréttindi. ur. Kunnugir segja að hann sé „alvörugefinn sprelligosi" og vísa með þessari nafngift til þess að Bjarni sé glaður þeg- ar það eigi við en al- vörugefinn að eðlisfari. Hann tók þó ekki mikinn þátt í félags- starfi Mývetninga en mætti vel á margar samkomur og kynntist því sveitalífinu harla vel. Hann er mikill úti- vistarmaður og stundar gönguferðir og náttúru- skoðun. Það áhugamál hentar afskaplega vel í náttúruparadísinni Mý- vatnssveit sem er einn fegursti staður á Is- landi. Bjarni átti um tíma vélsleða sem hent- ar vel til ferðalaga á Mý- vatnsöræfum. Hann hefur alltaf haft mikinn áhuga á ferðalögum og á unga aldri, þ.e. 17 og 18 ára, fóru hann og Björg saman á puttanum um 17 Evrópulönd. Bjarni á heiðurinn af því að hafa kom- ið „Bláa lóninu" í Mývatnssveit á kortið. Það er affallslón með heitu vatni frá bor- holum Kísiliðjunnar og minnir um margt á samnefnt manngert náttúrufyr- irbæri á Reykjanesi. Bjarni hvatti til bað- ferða í lónið en böð í því höfðu fram til þess tíma lítt verið stunduð. Þar er nú al- gengt að sjá ferðamenn af ýmsum þjóð- ernum og báðum kynjum striplast í öll- um veðrum. Auk þessa var hann félagi í Baðfélagi Mývatnssveitar sem beitti sér fyrir náttúrulegum gufuböðum og reisti í því skyni lítið hús yfir sprungu nokkra þar sem gestir geta sveist í heitum guf- um. Bjarni kynnti sér vel umhverfið og náttúruna og síðastliðið sumar var hann leiðsögumaður í gönguferð frá Jökulsár- gljúfrum til Mývatns urn Hlíðarhaga. Sú ferð þótti takast vel en þess má til gam- ans geta að meðal þátttakenda var Guð- mundur Bjarnason, umhverfis- og land- búnaðarráðherra. VINIR OG KUNNINGJAR Ekki er vitað til þess að Bjarni hafi tekið virkan þátt í pólitísku starfi þó að Guðmundur Bjarnason sé meðal góðra kunningja hans. Það er einnig Stein- grímur J. Sigfússon, gamall skólabróðir hans úr jarðfræðinni í Háskólanum. Meðal góðra kunningja Bjarna fyrir norðan má nefna Sigurð Rúnar Ragnars- son, hinn orðhvata fyrrum sveitarstjóra Mývetninga, en þeir unnu töluvert mik- ið saman þann tíma sem Bjarni dvaldi fyrir norðan. Ásgeir nokkur Bjarnason var góður vinur Bjarna á skólaárunum og þeir brölluðu margt saman. Ásgeir var af sumum talinn ofviti og lauk aldrei hefðbundnu námi og hefur ekki farið troðnar slóðir. Sigfús Bjarnason plöntu- erfðafræðingur, sem er búsettur í Dan- mörku, er mikill vinur Bjarna til margra ára. Miklir vinir Bjarna og nánir eru Ragnheiður Olafsdóttir, umhverfisverk- fræðingur í Svíþjóð, og Sigurbjörg Sverrisdóttir sem starfar hjá Vinnueftir- litinu, en þau kynntust í jarðfræðinni. Bjarni og Björg deildu íbúð á háskólaár- unum með Ragnheiði og frænda Bjarg- ar, Þorgeiri Sigurðssyni tungumálaverk- fræðingi. Af öðrum nánum vinum Bjarna er helst nefndur Skúli, bróðir hans, sem er þremur árum eldri. Þeir bræður hafa alltaf verið mjög sam- rýmdir og innan fjölskyld- unnar ríkir mikil sam- heldni og samgangur. Bjarni er mikill ís- lenskumaður, dáir kjarn- yrtan texta og litríkan og hefur gaman af lausavís- um og kveðskap. Það er fullyrt að hann sé sjálfur hagmæltur en því hefur hann ekki flíkað að ráði en Skúl,i bróðir hans, hefur kastað fram vísum. HANDLAGINN FJÖLFRÆÐ- INGUR Bjarni hefur ekki, svo vitað sé, verið virkur í fé- lagsmálum í hefðbundn- um skilningi orðsins. Hann hefur aldrei verið í hefðbundnum karlaklúbb- um eða stjórnmálasam- tökum og stundaði ekki keppnisíþróttir þó að hann hafi gegnum starfið haldið sér í góðu formi. Hann er þó félagi í ýmsum félögum eins og Alþjóðasamtökum bergverk- fræðinga (ISRM), Alþjóða jarðgangafé- laginu (ITA), Alþjóða jarðhitaráðinu (GRC), Alþjóðasamtökunr olíuverk- fræðinga (SPE), Verkfræðingafélagi Svíþjóðar (CIF), Jarðtæknifélagi ís- lands, Jarðfræðafélagi Islands og fleiri samtökum sem tengjast hans fagi og starfi. Bjarni er maður sem fer sínar eigin leiðir, grúskar í mörgu og er mjög forvit- inn að eðlisfari og það svo að sumir kalla hann ijölfræðing. Hann ólst upp við að bjarga sér sjálfur og er, eins og faðir hans, mjög handlaginn. Bjarni smíðar og innréttar heimili sitt sjálfur í tóm- stundum sínurn og gerir við bíla, sem hann á, og lagfærir flest sem aflaga fer á heimilinu. Þannig segja þeir, sem þekkja hann vel, að hann sé alltaf að vinna, ef ekki fyrir aðra, þá fyrir sjálfan sig. Þannig sýnir nærmyndin af Bjarna Bjarnasyni síötulan og sjálfbjarga fram- kvæmdamann, fjölfróðan grúskara og röggsaman stjórnanda. B3 53

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.