Frjáls verslun - 01.04.2000, Blaðsíða 22
Skynet Telematics.com minniríraun á,flugumferðarstjóm“á jörbu niðri
fyrir ökumenn. I þjónustuverum fyrirtœkisins er hægt ab fylgjast með bíl-
um og veita þeim margs konar þjónustu, eins og að segja þeim til vegar
og veita þeim fjölbreyttar upplýsingar um fyrirtœki tgrenndinni.
innanlands, en hef haldið mig mest við erlend fyrirtæki undanfar-
in þrjú ár. Skynet Telematic.com er eitt þeirra og það hefur verið
uppáhaldsdæmi mitt lengi. Eg hef þá stefnu að kaupa mjög
snemma i ferli fyrirtækja - á meðan gengi bréfa í þeim er lágt - og
aðeins í fyrirtækjum sem stefna á markað eða eru á markaði. Eg
er fremur lengi að taka ákvarðanir um fjfirfestingar og afla mér
mikið af upplýsingum um fyrirtæki til að geta myndað mér skoð-
un á þeim. Finnist mér þau árennileg til langs tíma kaupi ég í
þeim. Eg er ekki viðkvæmur fyrir sveiflum á gengi bréla frá degi
til dags sem stjórnast oft fremur af einhvers konar sálfræði og
tískufyrirbrigðum en raunverulegri getu fyrirtækjanna. Það dug-
ar mér að vita að fyrirtæki séu líkleg til að skila vexti og hagnaði
vegna góðrar vöru og góðrar stjórnunar. Til langs tíma litið getur
gengi hlutabréfa ekki fylgt öðru en hagnaði - á endanum er það
hagnaðurinn sem hefur mest að segja.“
urinn samanstendur í raun af því sem
kallað er „maðurinn á götunni" þar
sem flestir eru með fremur lágar upp-
hæðir. Við höfum hlutverkaskipti.
Varðandi tengingu við markaðinn er-
lendis telst ég víst forsprakkinn. Eg er
svo heppinn að hafa öðlast traust sam-
bönd við ráðgjafa og fjárfesta erlendis
og búa að reynslu minni frá árunum í
Svíþjóð við að markaðssetja hugbúnað
á alþjóðlegum vettvangi og öðlast við
það alþjóðlega markaðshugsun. Eg átt-
aði mig raunar ekki á því fyrr en síðar að
það er veganesti mitt í samskiptum við
erlenda aðila. Eg hef sömuleiðis notið
þess styrks sem fylgir því að vera með
hóp á bak við sig. Við höfum t.d. átt þess kost að kaupa bréf beint
af Skynet Telematics.com á sérstökum kjörum gegn þvi að
skuldbinda okkur til að eiga bréfin í eitt ár. Það má þó fyrr selja
bréfin til fjárfesta utan Bandaríkjanna. Hins vegar stendur ekki til
að selja þessi bréf á næstunni. Við höfúm fengið þau á góðum
kjörum og teljum að þau eigi eftir að hækka mikið.“
Hvers konar fjárfestir? Valþór segist ekki vera fjárfestir sem sitji
fyrir framan skjáinn og kaupi og selji frá degi til dags heldur sé
grunnurinn að viðskiptum hans þau sambönd sem hann hafi ytra.
„Eg telst kmgtímafjfirfestir og er alls ekki í daglegum viðskiptum
með hlutabréf, eins og svo margir. Eg á í nokkrum fyrirtækjum
Með því að ýta á einn hnapp er hœgt að láta þjónustuverin vita verði
viðkomandi fýrir aðkasti þjófa og árásarmanna í stórborgum.
Gengi bréfanna tekið dýfu niður Skynet
Telematics.com hefur ekki farið varhluta
af lækkandi gengi hlutabréfa í tækni- og
fiarskiptafyrirtækjum undanfarna þrjá
mánuði. Gengi bréfa í Skynet Telemat-
ics.com hefur lækkað skarpt að undan-
förnu, það komst í 7,0 sem hæst í febrú-
ar en er núna í kringum 2,0 á OTC:BB
markaðnum, sem er mjög lágt gengi.
íslenski hópurinn hefur keypt sinn hlut
á mismunandi tfrnum á gengi frá 1,06
til 3,5 af fyrirtækinu sjálfú gegn því skil-
yrði að eiga bréfin í eitt ár en mega þó
selja þau utan Norður-Ameríku. Þeir
sem hafa keypt bréf beint af markaðn-
um (á Netinu eða verðbréfastofum) geta selt þau hvenær sem er.
Islensku hluthafarnir telja að gengi bréfanna eigi efdr að hækka
úr þessu og að kauptækifæri séu fyrir hendi.
En hvers vegna þessi lækkun ef möguleikar fyrirtækisins eru svo
miklir?
„Eg tel að þetta sé lækkun til skamms tíma og stafi m.a af
ónógri vitneskju markaðarins um hvað sé framundan hjá fyrir-
tækinu. Sjálfur trúi ég á viðskiptahugmynd fyrirtækisins og er
þess fullviss að bréfin eigi efdr að hækka verulega í verði á
næstu þremur árum. Hvort það gengur eftír kemur bara í ljós.
Menn mega aldrei gleyma því að það er ekki á vísan að róa í
fjárfestingum og hlutabréfakaupum fylgir ævinlega áhætta.
Skynet Telematics var stofnað fyrir rúmum þremur árum og
skuldar ekki neitt - en það er stefna sem Tom Wilmot rekur.
Tom á 40% hlut í fyrirtækinu og hefur kosið að fara örugga leið
í ljármögnun á meðan verið sé að byggja það upp og tekjur
þess litlar, eins og verið hefur undanfarin tvö ár. Flestir hlut-
hafa eru frá Bretlandi, Sviss, Noregi og Islandi. Sömuleiðis vill
hann sjá hlutina komna á rekspöl áður en hann ræðir mikið um
þá opinberlega. Fyrirtækið stefnir inn á American Exchange
markaðinn (AMEX) innan skamms og þá eykst upplýsinga-
skylda þess verulega. Eg tel að það þurfi fremur litia hreyfingu
til að fara yfir í hagnað. Skamp búnaðurinn kom ekki til sög-
unnar fyrr en í október sl. þannig að árið 2000 verður fyrsta
heila árið sem viðskiptahugmynd fyrirtækisins fær notið sín,
þ.e. að hafa tekjur af þjónustu við bíla með Skamp búnað. Tekj-
ur Skynet Telematics verða fyrst og fremst af þjónustu þjón-
ustuveranna en ekki sölu tækisins. I raun myndi borga sig fyr-
Þetta erSkamp tœkið sem Skynet Telematics.com set-
urí bifreiðar og er lykillinn að þjónstu jyrirtœkisins mð
ökumenn.
22