Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2000, Blaðsíða 33

Frjáls verslun - 01.04.2000, Blaðsíða 33
ÚTFLUTNINGUR X18 The Fashion Group virðist á sigurbraut með skó sína. Nýr risasamningur er að baki og framtíðin lofar góðu. í ár er gert ráð fyrir veltu upp á 430 milljónir og er stefnt að þvi að ná veltunni upp í 1.080 milljónir króna á næsta ári. Strax árið 2002 verður veltan 1.450 milljónir og þannig vindur ævin- týrið skjótt upp á sig. Kúrsinn er settur á 1,9 milljarða árið 2003 og 8,5 milljarða árið 2006. Það er ekki langt þangað til, aðeins sex ár, og fram undan mikil vinna. Skórnir virðast heldur bet- ur ætla að gera garðinn frægan næstu árin og færa íslending- um digra sjóði þegar komið er vel fram á fyrsta áratug nýrrar aldar ef allt gengur samkvæmt áætlun. Það fer ekki mikið íyr- ir skó- og markaðssetningarfyrirtækinu X18 sem er til húsa uppi á loftí í nýbyggingu útí á Granda í Reykjavík en það er einmitt þar sem þessir athyglisverðu hlutír eru að gerast. Stórstíg veltuaukning Það er ekki á hverjum degi sem íslensk íyrirtæki gera sölusamning upp á 100 milljón dollara, eða 7,3 milljarða íslenskra króna, við bandarísk dreifingaríyrirtæki en það gerðist nýlega hjá X18 The Fashion Group. Fyrirtækið gekk frá tíu ára samn- ingi við dreifingarfýrirtækið New York Transit og tryggir hann sölu til Bandaríkj- anna tyrir tjórar milljónir dollara, eða um 280 milljónir króna á þessu ári. Það er því engin furða að fyrirtækið geri áætlanir um stórstíga veltuaukningu á næstu árum. Samningurinn er langstærstí sölusamning- ur sem X18 hefur gert. Bandaríska fyrir- tækið kaupir ákveðið magn af skóm og er álagning X18 gefin upp í samningnum. Fyr- irtækið opnar líka bankaábyrgðir sem X18 framselur með tíð og tíma. Þessi samningur tryggir bestu viðskiptakjör við verksmiðjur í Austurlöndum fjær þar sem skórnir eru framleiddir. New York Transit mun dreifa skóm X18 í fjöldann allan af skó- og tísku- verslunum í Bandaríkjunum og Kanda, með- sjálft heldur fá til þess fólk með sérþekkingu. Það verður því spennandi að fýlgjast með X18 á næstu árum. Höfundur Puffins Saga X18 Reykjavík er formlega aðeins tveggja ára gömul en í rauninni er hún miklu lengri. Oskar Axel Oskarsson og bróðir hans, Adolf Oskarsson, eru fimmti ættliðurinn í einni helstu skóíjölskyldu landsins sem hefur rek- ið skóverslanir bæði í Vestmannaeyjum og Reykjavík. Oskar má segja að sé alinn upp í Skóverslun Axels Ó. Lárussonar í Vestmannaeyjum þar tíl faðir hans keypti verslunina Víf á Laugavegi 11 í Reykjavík og rak hana í eitt ár sem Axel Ó eða þar til Óskar tók við rekstrinum. En Óskar hefur komið víðar við og ruddi meðal annars brautina fýrir Puffins skóna sem all- ir þekkja. Sú framleiðsla kom tíl nánast fyrir tilviljun. „Skóverksmiðjan Iðunn á Akureyri, sem var í miklum erfiðleikum með að halda uppi framleiðslu, hafði frétt af því að ég hefði látíð búa tíl nokkur skómódel og þeir höfðu samband við mig. Þeir fengu mig til að búa til eina tegund en það voru fýrstu Puffins skórnir. Þetta var árið 1982 og upp frá því fóru Puffins skórnir að seljast mjög vel,“ segir Óskar. Iðunn framleiddi Puffins skóna í mörg ár. Óskar keyptí á tímabili helminginn af fram- leiðslunni og seldi í verslun sinni og til ann- arra en þegar verksmiðjan lokaði var fram- leiðslan flutt til Portúgal og var ætlunin að fara í markaðssetningu erlendis. Upp úr miðjum níunda áratugnum urðu hins vegar gríðarlegir erfiðleikar í íslensku efnahags- lífi. Óskar segir ástæðuna í rauninni þá að bankakerfið hafi okrað á viðskiptavinum sínum, svo óhagstæða vextí hafi fýrirtækin fengið. „Þó að rekstur skóbúðarinnar hafi gengið mjög vel þá fengum við á okkur hvert gjaldþrotíð á fætur öðru frá við- skiptavinum okkar,“ segir Óskar „og það endaði með því að ég varð að draga sam- an seglin og stokka allt upp á nýtt“ feltutölur X18 irin 1998-2006 I ( 998:70 milljónir I999:125 milljónir 2000:430 milljónir* 2001:1.080 milljónir* 2002:1.450 milljónir* \ 2003:1.970 milljónir* 2004:2,6 milljarðar* ( 2005:4,3 milljarðar* 2006:8,5 milljarðar* * Áætlun braul með skóna al annars Macy’s, Bloomingdales og Nordstrom. Gert er ráð týrir að stöðugildum X18 í Reykjavík fjölgi úr 14 í 40 á næstu þremur árum. Stefiit er að því að gera sérleyfissamninga um reksturinn í 100 verslunum víðs vegar um heiminn á næstu fimm árum og er fýrsta verslun- in í Kringlunni. Fyrirtækið stefnir einnig að því að vera með fatnað undir X18 merkinu, ilmvötn og töskur, en mun ekki standa að þeirri framleiðslu „Genetic“-sólinn er að slá ígegn. SkórX18 seljast vel í Bretlandi og nú hefurstefnan verið sett á Bandaríkjamarkað. Markmiðið er að selja skó, fatnað, snyrtivörur og töskur út á merkið í framtíðinni. Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur. Myndin Geir Ólatsson. Aðstoð að utan Mikil erfiðisvinna var framundan. Árið 1998 stofnuðu bræðurnir X18 ásamt Magnúsi Guð- mundssyni og Pétri Björnssyni hjá Útgerðarfélaginu Sögu og hefur sam- starfið við þá verið afskaplega gott enda Pétur verið virkur þátttakandi í rekstri týrirtækisins sem stjórnarfor- maður þess. í millitíðinni höfðu bræð- urnir safriað gríðarlegri reynslu og góðum samböndum erlendis. Þeir höfðu látíð framleiða víða um heim 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.