Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2000, Blaðsíða 34

Frjáls verslun - 01.04.2000, Blaðsíða 34
ÚTFLUTNINGUR ímynd X18 X18 byggir ímynd sína á því að vera öðruvísi, að vera íslenskt fyrirtæki og því hefur fyrirtækið tengt nafn sitt við Reykjavík í vörumerki sínu eins og sjá má í skónum og á öllum stöndum fyrirtækisins. „Við erum öðruvfsi.“ fyrir marga stóra aðila, framleiddu t.d. töluvert fyrir Skechers í Bandan'kjunum og tóku þátt í uppbyggingu á Diesel Footwear skómerkinu. Eigandi Skechers, Robert Greenberg, byggði upp LA Gear svo að úr varð stórveldi. Leiðindi innan fyrirtæk- isins leiddu hins vegar til þess að hann fór út með sitt helsta fólk og stofnaði Skechers. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Killick Datta, var meðal þeirra sem fylgdu honum í nýja fyrir- tækið. „Þar komum við inn í dæmið. Við urðum dreifingaraðilar fyrir Skechers á Islandi og þátttakendur í framleiðslu og hönnun hjá Skechers frá upphafi. A þeim sjö árum sem Skechers hefur starfað hefur það stækkað úr engu í 500 millj- ón dollara fyrirtæki og nú er það komið á Wall Street," segir Oskar. Killick Datta, forstjóri Skechers, gerði „licency" samn- ing við Diesel móðurfyrirtækið og stofnaði síðan Diesel- footwear. Þar sem hann hafði sjálfur litla reynslu af skógerð hafði hann samband við sjö aðila, þar á meðal Oskar, til að byggja fyrirtækið upp. Þannig komu íslendingar að Diesel og vegna þessara sambanda hefur X18 notið töluverðrar aðstoð- ar ffá Skechers og Diesel. „Eftir að Killick hvarf frá Skechers tók yfirmaður Skechers í Englandi við starfi hans. Eftir að hafa verið í því starfi í tvö ár kom hann til mín og sagðist telja að X18 yrði næsta stórvirki í faginu. Hann spurði hvað mér fyndist um að hann segði upp og tæki við X18 fyrir Bretland. Þessi spurning kom mér í opna skjöldu en þetta var hans ákvörðun og í dag erum við með skó í ellefu hundruð verslunum í Englandi, eitt hundrað í London, þar af tuttugu á Oxford Street.“ ímyndin tengd Reykjavík X18 byggir ímynd sína á þvi að vera öðruvísi, að vera íslenskt fyrirtæki, og því hefur fyr- irtækið tengt nafii sitt við Reykjavík í vörumerki sínu eins og sjá má í skón- um og á öllum stöndum fyrirtækisins. „Við erum öðruvísi. Við erum ekki neitt annað fyrirtæki. Við erum X18, einstæð. Island er í tísku, Reykjavík er í tísku. Allt tengist þetta,“ útskýrir Osk- ar. „Mörg önnur fyrirtæki, t.d. Benetton, leggja áherslu á að þau séu alþjóðleg, allir litir, allar gerðir, bæði kynin. Við leggjum mikla áherslu á að þetta sé íslenskt. Við höldum að það sé öðruvísi." Utlitið á skóm X18 er afar sérstakt, fram- úrstefnulegt að mörgu leyti þó að stór hluti af skónum sé venjulegir tískuskór fyrir ungt fólk á öllum aldri. Oskar notar orðið „aggressífur" um sól- ann „Genetic", gaddaskóna sem fyrirtækið hefur einka- leyfi á og framleiðir í áberandi litum. Þetta eru þeir skór fyr- irtækisins sem seljast mest. Hann bendir um leið á að fyrirtæk- ið framleiði fjöldann allan af „sætum og penum skóm“, það beri bara mest á gaddaskónum og þannig eigi það að vera. X18 sé byggt upp með sama hætti og erlend skófyrirtæki, sem slá í gegn með einum sóla. „Þetta þurfa öll skófyrirtæki að hafa til að geta náð langt," segir hann. Hjá X18 er brautryðjandinn sól- inn „Genetic". „Við erum með nokkra áberandi skó, þar sem við tökum ákveðna áhættu varðandi það hvort þeir seljast eða ekki, og þessir skór ryðja brautina en við viljum byggja fleiri stoðir und- ir fyrirtækið. Við getum ekki verið með bara eina tegund af skóm þó að það myndi kannski gefa okkur mestan gróða því að þeir geta farið úr tísku. Stóra uppbyggingin er að selja skó út á vörumerkið X18. Það er okkar takmark. Þessir skór verða lifandi næstu fimm til sex árin vegna þess að við erum ein með þá í heiminum. Fólk vill ekki eftirmynd, það vill upprunalega „Stóra uppbyggingin er að selja skó út á vörumerkið X18. Það er okk- ar takmark," segir ÓskarAxel Óskarsson framkvœmdastjóri. 34
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.