Frjáls verslun - 01.04.2000, Blaðsíða 86
ARKITEKTÚR
Sólin lokuð úti
Eftir Vigdísi Stefánsdéttur Myndir: Geir Ólafeson
Sólin er að öllu jöfriu vinsæl hjá íslendingum - nema á
skrifstofunni. Sterk vorsólin veldur því að óþolandi heitt er
inni við, það glampar á tölvuskjái og fólk finnur til óþæg-
inda. Einfalt ráð til úrbóta er að nota gluggafilmu sem
límd er innan á rúðuna. Árvík hf hefur selt og sett upp
slíkar filmur í aldaríjórðung og segir Arni Arnason,
framkvæmdastjóri Árvikur, að ótrúlegur munur verði
á vinnuumhverfi þar sem slík filma sé sett upp.
Dregið úr hita og glampa „Filman sem Árvík hf sel-
ur er frá hinu heimsþekkta fyrirtæki 3M í Bandarikj-
unum,“ segir Árni. „Um er að ræða nokkrar tegundir,
en algengast er að velja filmu sem dregur úr hitanum
frá sólinni og útfjólubláum geislum hennar. Við kom-
um á staðinn, metum aðstæður og sjáum hvers konar
filma hentar best.“
Nýjasta gluggafilman dregur verulega úr hita, um rúmlega
70% ef um tvöfalt gler er að ræða og á sama hátt heldur hún inni
hita ef kalt er úti þar sem einfalt gler er. Hún dregur úr glampa
um allt að 80-90% og birtan verður mun þægilegri inni við. „Fólk
finnur fljótt að það er síður þreytt eftir daginn þegar búið er að
setja filmu í gluggann," segirÁrni, „og einnig hversu þægilegra
hitastigið er inni við og hve auðveldara er að stjórna því. Við-
skiptavinir okkar hafa mælt hita í herbergjum hjá sér með og án
filmu og fundið af eigin raun hversu mikill munurinn er og
keypt síðan filmu á alla skrifstofuna í framhaldi af því.“ Filman
endist í 12-15 ár efúr aðstæðum en Árni segir þó að ending hér
á landi sé að líkindum meiri því sólin sé ekki eins sterk hér og
víða erlendis.
Heldur rúðunni saman „Víða erlendis er gerð krafa til þess að
öryggisfilma sé á gleri á almenningsstöðum til að koma í veg
íyrir að slys hljótist af ef glerið brotnar. Sólarfilman heldur líka
útljólubláum geislum sólarinnar úti og kemur þannig í
veg fyrir skemmdir á því sem inni er. Fyrir verslun-
areigendur er upphitun dýrra muna, t.d. úr leðri,
mikið vandamál. Sólarfilman leysir þennan
vanda og ef hún er einnig öryggisfilma kemur
hún í veg fýrir innbrot og þjófnað úr gluggan-
um.“
Gluggatjöldin goð Ff loka á sólarljósið og hit-
ann úti frá skrifstofunni til að mynda góða vinnu-
aðstöðu er einnig hægt að nota glugga-
tjöld. Hjá Sólargluggatjöldum í Borg-
artúni fást margar gerðir
gluggatjalda. T.d. sólar-
filma í rúlluglugga-
tjaldaformi, Strim-
lagluggatjöld,
sem eru lóðrétt
gluggatjöld og
Helgi Snorrason, sölustjóri Arvíkur, og Arni Arnason, framkvœmdastjóri Arvíkur
hf. Arvík, sem er í Armúla, selur gluggafilmur afýmsum gerðum frá hinu þekkta
fyrirtœki 3M. Filmursem loka úti birtu ogglamþa frá sólinni og einnigfilmursem
halda rúðu saman þótt hún sé mölbrotin.
fást í 2 efnisbreiddum, 89 mm og 127 mm, úr venjulegum efn-
um eða myrkvunarefnum og í mörgum litum, og síðast en ekki
síst rimlagluggatjöld úr tré og áli en þau hafa notið vaxandi vin-
sælda.
Sólarfilman stendur fyrir sínu „Sólarfilman heldur sínum hlut
vel, en hún er að því leyti þægileg að mjög auðvelt er að setja
hana upp og taka niður, hún er til í ýmsum útgáfum eftir því
hvaða árangri fólk leitar að og er mjög endingargóð. Rúllu-
gluggatjöldin eru einnig alltaf vinsæl enda fást þau í mjög mörg-
um litum og efnistegundum," segir Edwin Árnason, fram-
kvæmdastjóri Sólargluggatjalda.
Strimlagluggatjöldin eru klassísk og hentug á skrifstofúr
vegna þess hversu vel er hægt að stýra birtunni með þeim og
einnig vegna þess hversu einfalt er að halda þeim hreinum.
„Upp á síðkastið hefur vegur sérsmíðaðra rimlagluggatjalda
úr áli og/eða tré farið aftur vaxandi, enda þykja þau falleg og
setja stíl á húsnæðið. Sólargluggafjöld bjóða upp á fjörtíu og
átta liti í 25 mm álrimlagluggatjöldum, átta í 50 mm álrim-
lagluggatjöldum og einnig 8 liti í trérimlagluggatjöld-
unum þannig að hægt er að velja tjöld í stíl við hús-
gögn eða aðrar innréttingar sem fýrir eru. Rimla-
gluggatjöld eru einmitt mjög hentug því auðvelt er
að stjórna birtunni sem inn kemur á milli rimlanna,"
segir Edwin. „Margir nota líka hefðbundin
taugluggatjöld ásamt rimlagluggatjöldum eða rúllu-
gluggatjöldum til að fá hlýlegra og fyllra útlit.“ 30
Edwin Arnason er framkvœmdastjóri
Sólargluggatjalda við Borgartún
29. Hann segir rimlagluggatjöld úr
tré og áli njóta vaxandi vinsœlda.
Bœði vegna útlits þeirra og þess
hve auðvelt sé að stjórna birtu-
magninu sem hleyþt er í gegn.