Frjáls verslun - 01.04.2000, Blaðsíða 68
Glæsihús rísa
Götumynd Borgartúnsins hefur
talsvert breyst upp á síðkastið og
á eftir að breytast enn meir á næst-
unni. Svo mikið að gárungarnir hafa á
orði að þar sé að verða til nýtt Manhatt-
an íslands. Þegar ekið er upp götuna
frá Skúlagötunni, sem raunar hefur
gjörbreyst líka, og komið austur íyrir
Höfða, blasir við hið nýja hús, Höfða-
borg. Glæsileg bygging og verðugur
fulltrúi nýrra tíma hjá ríkisstofnunum
þar sem lögð er áhersla á að leigja en ekki kaupa húsnæði og
láta öðrum eftir reksturinn. Byggingafélagið Eykt byggði og
rekur húsið sem er um 9.000 fm að grunnfleti með ijölda bíla-
stæða fyrir starfsfólk. Þarna munu nokkrir aðilar verða til húsa
Hvert glæsihúsið aföðru rís nú í Borg-
artúninu. Nýtísku byggingarsem svo
sannarlega eru ekki ferkantaðar og í
beinni línu við götuna, eins og hið
gamla skipulag hljóðaði upp á.
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur Myndir. Geir Ólafsson
s.s. Ríkissáttasemjari, yfirskattanefnd,
Löggildingarstofa, Barnaverndarstofa,
LÍN og íbúðalánasjóður.
Flytur FBA í Borgartúnið? Á lóðinni nr.
19, heíur ekki verið byggt en FBA hugð-
ist byggja þar glæsilegt hús, sem Teikni-
stofan Ármúla 6 teiknaði. Við samein-
ingu íslandsbanka og FBA breyttust for-
sendur svo nú er óráðið hvað verður en
þó er víst að húsið verður byggt.
Við austurhlið Höfðaborgarinnar er gamla Vöruflutningamið-
stöðin þar sem Eykt hefur nú starfsemi sína.
Reyndar aðeins í hluta hússins því hluti þess j /V
var rifinn til að rýma fyrir Höfðaborginni.
Hluti hinnar nýju götumyndar Borgartúns. Hér sést yfir Höfba, þá kemur hús Fjarhitunar vid Borgartún 17, Borgartún 19, sem ekki hefur
verið enn byggt, en líkan afþví blasir við á bak við nýju Höfðaborgina. Lengst til hægri er Borgartún 23, hús Hegra hf. Mynd: ONNO
68