Frjáls verslun - 01.04.2000, Blaðsíða 38
VIÐTAL
Ætlum að stækka á
annan hátt en áður
Fyrirtækið. stefnir að því að
stækka en á annan hátt en áður.
Eg er þeirrar skoðunar, og hef
verið um hríð, að innri stækkun fyrir-
tækjanna með fleira fólki og auknum
verkefnum sé liðin tíð. Þessi þróun
átti sér stað á níunda og tíunda ára-
tugnum og leiddi til þess að fyrirtæk-
in stækkuðu mikið og starfsemi
þeirra þynntist um leið því að fókus-
inn var orðinn svo víður. Þetta gerði
litlum og kvikum fyrirtækjum kleift
að standa sig betur en þau stóru á af-
mörkuðum sviðum vegna þess að
þessi litlu gátu einbeitt sér að dýptinni. Þess
vegna held ég að framtíðin felist í safni systur-
fyrirtækja fremur en að móðurfyrirtækið
þenjist út. Núna er þetta frekar spurning
um fókus og dýpt en breidd. Þess vegna
verður EJS væntanlega klasi fyrirtækja í
framtíðinni. Yið munum ekki bæta við okk-
ur nýjum verkefnum heldur stofna frekar
fyrirtæki í kringum þau verkefni sem við
höfum áhuga á. EJS verður áfram þjón-
ustuaðili því að það gerir EJS best en
það er ekki þar með sagt að dótt-
urfyrirtækin verði á sama sviði,“
segir Olgeir Kristjónsson, for-
stjóri EJS hf.
Samsteypan EJS Upplýs-
ingatæknifyrirtækið EJS hef-
ur tekið miklum breytingum
síðustu árin. Þannig hefur
fyrirtækið til að mynda
Olgeir Kristjónsson, forstjóri
EJS. „Forsenda þess að jyrir-
tæki gangi vel er að það
stœkki. Það eraugljóst mál að
við viljum ekki bara stofna
jyrirtæki heldur hugsanlega
líka kauþa fyrirtæki. Við
erum alltafað reyna að marka
okkur sérstöðu. Samkeþpnin
gengur út á það að vera öðru-
vísi og finna nýtt erindi til að
eiga við viðskiþtavinina. “
komið sér upp vottuðu gæðakerfi
9001 og er það einstakt, að mati 01-
geirs, „því að enginn keppinautanna
hefur enn lagt í það stórvirki. Það var
gert til þess að reyna eins og frekast
var kostur að bæta þjónustuna, vinna
skipulega og formlega því að við-
fangsefnin eru mjög flókin," segir
hann. En það eru ekki bara gæða-
málin sem hafa verið í endurskoðun
heldur líka starfsemi og uppbygging
fyrirtækisins. Móðurfyrirtækið, EJS,
er nú alhliða upplýsingatæknifyrir-
tæki sem selur vélbúnað og hugbún-
að, þjónustar hvorutveggja og smíðar hugbúnað
að auki. Við þetta starfa um 180 starfsmenn.
Fyrirtækið hefur meðvitað verið að breytast
frá því að vera tölvusali yfir í það að vera
þjónustufyrirtæki með nokkur systurfyrir-
tæki. Mannaflinn og skipulag fyrirtækisins
endurspegla þetta.
Innan vébanda EJS starfa alls
um 250 manns að hugbúnað-
argerð og þjónustu í upp-
% lýsingatækni, þar af
starfa nærri 120 af
180 starfsmönn-
um móðurfyrir-
tækisins við þjón-
ustu og hugbún-
aðargerð. Systur-
fýrirtækin eru
Þar má
fyrst nefna EJS
International,
sem selur hug-
búnað á er-
lendan mark-
Innri stækkun EJS er libin tíb, segir
Olgeir Kristjónsson, forstjóri fyrirtæk-
isins. EJS á nú þegarþrjú systurfyrir-
tæki og segist Olgeir Kristjónsson for-
stjóri hafa augun oþin fyrirþví ab
EJS kauþi eba stofni fleiri fyrirtæki
og hasli sér hugsanlega völl erlendis.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndin Geir Ólafsson.
38