Morgunblaðið - 11.01.2001, Side 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isÓvænt úrslit á
Seltjarnarnesi/C6
Indónesar sendir heim
frá Indlandsmótinu/C1
8 SÍÐUR
Viðskiptablað
Morgunblaðsins
Sérblað um viðskipti/atvinnulíf
8 SÍÐUR
Sérblöð í dag
ELSTI skúmur sem vitað er um
fannst í janúar í fyrra í SV-
Frakklandi. Skúmurinn, sem var
merktur á Íslandi hinn 7. ágúst
1963, hafði þá verið dauður í um
mánuð. Þetta þýðir að skúmurinn
var 36 ára og fimm mánaða þegar
hann fannst. Hann er í senn elsti
skúmur sem vitað er um í heim-
inum og elsti merkti íslenski fugl-
inn sem hefur endurheimst frá því
fuglamerkingar hófust á Íslandi
árið 1921. Fyrra aldursmet átti
a.m.k. 35 ára gamall lundi. Elsti
skúmur landsins sem áður var vit-
að um var 32 ára gamall. Þetta er
meðal þess sem kemur fram á
heimasíðu Náttúrufræðistofnunar.
Skúmurinn fannst í Seignosse-
Le-Penon, í Landes í SV-Frakk-
landi.
Það var Bretinn R. F. Dickens
sem merkti fuglinn við Fagurhóls-
mýri á Öræfum. Dickens kom
margoft hingað til lands á sjöunda
áratugnum með hópa af breskum
menntaskólanemum. Meðal þess
sem nemendurnir fengust við voru
fuglamerkingar.
Skúmar eru
miklir flakkarar
Ævar Petersen, fuglafræðingur
og forstöðumaður Reykjavíkurset-
urs Náttúrufræðistofnunar, segir
að þrátt fyrir að elsti skúmurinn
sem vitað er um hafi komið við á
Íslandi þýði það að sjálfsögðu ekki
að skúmar verði hvergi eldri.
Merkingar á skúmum hafi einfald-
lega verið umfangsmeiri hér á
landi en víðast hvar annars stað-
ar. Með merkingunum hafi skap-
ast mikil þekking, ekki bara um
aldur skúma heldur einnig um
ferðalög þeirra en skúmarnir eru
miklir flakkarar. Til dæmis fara
þeir héðan á haustin og fljúga til
S-Evrópu. Þaðan fara þeir til S-
Ameríku.
Þegar vorar halda þeir upp með
meginlandi N-Ameríku og fljúga
loks frá Nýfundnalandi aftur til
Íslands. „Skúmar verða kyn-
þroska nokkurra ára gamlir en
áður en þeir fara að verpa flakka
þeir víða. Skúmar sem merktir
hafa verið hér á landi hafa meðal
annars fundist í Þýskalandi og
Ungverjalandi, við Svalbarða og
austur við Kaspíahaf. Eini merkti
íslenski fuglinn sem hefur fundist
í Ísrael var skúmur,“ segir Ævar.
Elsti skúmur sem vitað er um var merktur á Íslandi
36 ára skúmur bætir aldursmet
Morgunblaðið/Rax
Skúmsungar bak við stein skammt frá Kvískerjum í Austur-Skaftafellssýslu, en þar hefur Hálfdán Björnsson
stundað umfangsmiklar merkingar á skúmum.
HOLLUSTUVERND ríkisins hefur
gefið út starfsleyfi til handa Salar
Islandica ehf. sem áformar sjókvía-
eldi á laxi í Berufirði á Austurlandi.
Sambærilegt leyfi var gefið út á dög-
unum vegna eldis í Mjóafirði. Leyfið
er veitt til ársins 2007 og er háð
ströngum skilyrðum um aðbúnað í
laxeldisstöðinni og eftirlit með öllu
eldinu frá seiðum til slátrunar. Um-
hverfisráðherra og Skipulagsstofn-
un höfðu áður gefið út þá úrskurði að
laxeldi á þessum stöðum fyrir austan
væri ekki háð mati á umhverfisáhrif-
um, og hafa þær ákvarðanir verið
gagnrýndar af laxveiðimönnum og
talsmanni Norður-Atlantshafssjóðs-
ins.
Líkt og Sæsilfur ehf. í Mjóafirði
áformar Salar Islandica laxeldi í
Berufirði með ársframleiðslu upp á 8
þúsund tonn að hámarki og eru leyf-
in miðuð við það. Bíða þessi fyrirtæki
nú eftir rekstrarleyfi frá stjórnvöld-
um til að geta hafið starfsemi form-
lega, annaðhvort frá veiðimálastjóra
eða landbúnaðarráðherra, allt eftir
því hvort miðað verður við ný lög
sem í smíðum eru í landbúnaðar-
ráðuneytinu.
Samkvæmt starfsleyfunum er
Hollustuvernd heimilt að endur-
skoða þau og þurfa laxeldisstöðvarn-
ar að gefa stofnuninni árlega skýrslu
um ýmis atriði í starfseminni. Leyfin
eru veitt með þeim skilyrðum að fyr-
irtækin hafi tryggt sér rétt til að
staðsetja eldiskvíar innan þeirra
marka sem þau hafa markað sér, frá
landeigendum, sveitarstjórnum og
hafnayfirvöldum. Sæsilfursmenn
ætla sér að slátra laxinum á Nes-
kaupstað en slátrun á Berufjarðar-
laxinum á að fara fram á Djúpavogi.
Áður en starfsemin hefst þurfa
fyrirtækin að láta vinna viðbragðs-
áætlun um varnir gegn vá, m.a.
vegna hafíss, veðurs og annarra
náttúruhamfara og vegna meng-
unaróhappa. Ef í ljós koma óæskileg
og skaðleg mengunaráhrif vegna
stöðvanna er þeim skylt að mæta til
fundar með Hollustuvernd og Heil-
brigðiseftirliti Austurlands þar sem
leitað verður leiða til úrbóta. Í fram-
haldi af slíkum umræðum skal
starfsleyfi endurskoðað ef þörf er á.
Árlega þurfa laxeldisfyrirtækin,
fyrst árið 2002, að funda með þessum
aðilum til að gera grein fyrir niður-
stöðum eigin eftirlits og kynna -
árangur í mengunar- og umhverfis-
málum.
Sjókvíaeldi Salar Islandica í Berufirði
Hollustuvernd ríkisins
gefur út starfsleyfi
Skeljungur vill
breyta eldsneyt-
isverði daglega
ÞAÐ verklag sem olíufélögin hafa
fylgt hér á landi að endurskoða
eldsneytisverð einu sinni í mánuði
er úrelt að sögn Kristins Björns-
sonar, forstjóra Skeljungs. Hann
sagði að alls staðar í Evrópu væri
verðinu breytt daglega í takt við
þróun heimsmarkaðsverðs og því
væri eðlilegt að olíufélögin hér
gerðu slíkt hið sama.
Kristinn sagði Olíufélagið og -
OLÍS, sem væru tengd eignabönd-
um og hefðu um 65% markaðshlut-
deild, væru ekki reiðubúin til þess
að breyta núverandi fyrirkomulagi.
Aðspurður sagði hann að Skeljung-
ur, sem hefur um 35% markaðs-
hlutdeild, gæti ekki gert það upp á
sitt eindæmi vegna þess að það
myndi skapa ójafnvægi á markaðn-
um.
Að sögn Kristins myndi það ekki
hafa í för með sér mikinn kostnað
fyrir olíufélögin að breyta eldsneyt-
isverði daglega. Hann sagði að það
myndi hins vegar draga úr tor-
tryggni neytenda gagnvart olíu-
félögunum, því oft væru þau gagn-
rýnd fyrir að vera fljót að hækka
verð en sein að lækka það.
Morgunblaðið/Golli
SELUR hefur gert sig heimakom-
inn í Reykjavíkurhöfn síðustu
daga. Við Daníelsslipp hefur sjó-
inn lagt og þar hefur selurinn
flatmagað í miklum makindum í
stillunum síðustu daga. Gunnar
Richter, verkstjóri hjá Daníels-
slipp segir starfsmenn þar hafa
orðið vara við selinn milli jóla og
nýárs. Hann hefur fundið sér
vakir á ísnum og stungið sér upp
og niður um þær. Veðurstofan
spáir nú hlýindum og því er lík-
lega nokkuð í það að selurinn
finni sér aftur ís í Reykjavíkur-
höfn til að kúra á.
Selur í slippnum
RANNSÓKNARLÖGREGLAN á
Akureyri hefur upplýst bílstuld í
Reykjavík sl. mánudagsmorgun. Þá
tóku þrír piltar bíl ófrjálsri hendi í
Grafarvogi og héldu norður til Ak-
ureyrar. Þegar til Akureyrar kom
sneri einn piltanna, sá eini sem hafði
ökuréttindi, til síns heima með flugi.
Hinir piltarnir tveir hittu fyrir
kunningja sinn á Akureyri og sam-
an héldu þeir þrír á stolna bílnum til
Siglufjarðar, hittu þar fyrir tvær
ungar stúlkur og saman hélt allur
hópurinn til Akureyrar á ný. Ung-
mennin lentu í vandræðum með bíl-
inn í sumarhúsahverfi austan Ak-
ureyrar en þar brutust þau svo inn í
sumarhús og sváfu þar um nóttina.
Lögreglan á Akureyri fékk upp-
lýsingar um mannaferðir á svæðinu
og handtók ungmennin morguninn
eftir. Skemmdir á sumarhúsinu
voru óverulegar og telst málið upp-
lýst. Ungmennin eru 15–17 ára.
Tekin réttindalaus
á stolnum bíl
LÖGREGLAN í Reykjavík handtók
í gær þrjá menn grunaða um þjófnað
á bíl og innbrot. Mennirnir voru
stöðvaðir laust eftir klukkan fjögur á
Skothúsvegi á bíl sem hafði verið
stolið á mánudaginn úr bílskúr.
Að sögn lögreglu er óvenjulegt að
stolinn bíll sé notaður svona lengi.
Stolnir bílar finnist yfirleitt yfirgefn-
ir skömmu eftir að þeim er stolið.
Bíræfnir
bílþjófar
♦ ♦ ♦