Morgunblaðið - 11.01.2001, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.01.2001, Blaðsíða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ JÓHANN Sigurjónsson, bæj- arstjóri í Mosfellsbæ, segir að bæjarráð muni í dag, á 500. fundi ráðsins, fjalla um bréf Jóns S. Ólasonar, sem hyggst leggja fram stjórn- sýslukæru vegna lóðaúthlut- ana í bænum. Í bréfinu óskar Jón eftir rökstuðningi og upplýsingum um á hvaða lagaheimild bæjarstjórn hafi byggt þá ákvörðun sína að úthluta lóðum eingöngu til þeirra sem voru búsettir í bænum en úthlutunarreglum var breytt í þá átt eftir að umsóknarfrestur rann út. Bæjarráð fjallar um málið í dag Jóhann bæjarstjóri sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær ekki treysta sér til að segja fyrir hvernig bæjarráð mundi taka á málinu en gera ráð fyrir að það tæki afstöðu til bréfs Jóns. Eins og fram kom í frétt Morgunblaðsins í gær hefur bæjarráð þegar samþykkt bókun vegna óskar annars manns um endurúthlutun lóðanna þar sem fram kemur að vegna mikils fjölda um- sókna hafi verið óhjákvæmi- legt að setja ákveðnar við- miðunar- og verklagsreglur þar sem ljóst hafi verið að ekki væri unnt að verða við öllum umsóknum sem full- nægðu þeim lágmarksskil- yrðum sem kveðið hafi verið á um í auglýstum reglum. Jón S. Ólason telur að bæj- arstjórn hafi við meðferð málsins brotið gegn leiðbein- ingarskyldu og jafnræðis- reglu stjórnsýslulaganna og hefur krafist rökstuðnings og upplýsinga um hvaða laga- heimildir bæjarstjórn hafi stuðst við. Jóhann sagði að bæjar- stjórn hefði ekki sett málið í neinn farveg til að afla lögfræðiálits vegna málsins. „Í bókun bæjarráðs kemur fram hvað menn höfðu til við- miðunar í þessu. Í þetta sinn var þessi háttur viðhafður í ljósi þess fjölda umsókna sem barst,“ sagði Jóhann. „Það má benda á að í sjálfu sér var þetta gert fyrir opnum tjöld- um og fulltrúi sýslumanns var viðstaddur þegar dráttur fór fram með þessum for- merkjum.“ Jóhann sagði að í fram- haldi af því að kvartað væri undan því að eingöngu Mos- fellingar fengju nú lóðirnar 40 í Höfðahverfi væri rétt að hafa í huga að haustið 1998 og sumarið 1999 hefði bærinn einnig úthlutað lóðum og þá fór tæpur helmingur þeirra til utanbæjarmanna. „Þannig að í sjálfu sér má segja að að- stæðurnar og eftirspurnin hafi leitt til þess að þessar leiðir voru farnar nú. En það er ljóst að sveitarfélög hafa í gegnum tíðina látið sína íbúa hafa ákveðinn forgang varð- andi lóðaúthlutanir. Það má kannski segja að það sé ágætt að það fáist niðurstaða um hvort það sé heimilt,“ sagði Jóhann. Jón S. Ólason krefst þess aðallega að úthlutun bæjar- stjórnar frá 27. desember sl. verði ógilt og úthlutað verði að nýju samkvæmt upphaf- legum reglum en til vara krefst hann þess að fá end- urgreiddar þær um það bil 25 þúsund krónur, sem hann lagði út vegna greiðslumats og annarra gagna sem fylgja þurftu umsókn. Lágmarksskilyrði Um afstöðu bæjarins til þeirrar kröfu ítrekaði bæjar- stjórinn að margir utanbæj- armenn hefðu fengið lóðir í bænum og þegar upphaflegu reglurnar voru settar hefði að sjálfsögðu ekkert legið fyrir um hve margar um- sóknir mundu berast. Þær reglur sem auglýstar voru hafi verið lágmarksskilyrði fyrir því að umsóknir yrðu teknar gildar en síðan hefði sveitarstjórnin sett upp þetta vinnuferli til að vinsa úr um- sóknum og ákveða hvernig standa skyldi að úthlutun. Álitamálið væri hvort sveit- arstjórn væri heimilt að búa sér til vinnureglur af þessu tagi við afgreiðslu mála. „Það er spurning hvort það sé al- mennt álit löggjafans að sveitarfélögum sé óheimilt að setja sér reglur af þessu tagi. Það er ljóst að sveitarfélög hafa sett ýmsar viðmiðanir og hafa úthlutað beint til ein- staklinga. Við settum upp viðmiðunarreglur og verk- lagsreglur og opinberuðum þær og létum draga úr um- sóknum á grundvelli þeirra. Það er það sem skapar þessi viðbrögð og spurningin er hvort viðbrögðin hefðu orðið önnur ef við hefðum ekki gert það með þessum hætti,“ sagði Jóhann. Í bréfi Jóns S. Ólasonar er óskað eftir rökstuddu svari bæjarstjórnarinnar fyrir 15. janúar og Jóhann kvaðst gera ráð fyrir að á grundvelli umfjöllunar bæjarráðs um málið í dag kæmi í ljós hvort menn treystu sér til að skila rökstuddu svari fyrir þann tíma eða hvort menn teldu að málið kallaði yfirleitt á frek- ari rökstuðning en þann sem fram kemur í fyrrgreindri bókun ráðsins vegna erindis frá öðrum umsækjanda. Stjórnsýslukæra vegna lóðaúthlutana í Mosfellsbæ Bæjarráð fjallar um málið í dag Mosfellsbær EKKERT á að vera því til fyrirstöðu að unnt sé að hefja framkvæmdir innan skamms við að reyna að koma í veg fyrir áframhaldandi mengun Elliðaánna, og í fjárhagsáætl- un Reykjavíkurborgar fyrir árið 2001 er beinlínis gert ráð fyrir því, að sögn Hrannars B. Arnarssonar. En eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær bendir ný skýrsla gatnamála- stjórans í Reykjavík til þess að á nokkrum stöðum komi skólpmengað ofanvatn út í Elliðaárnar. „Við í starfshópnum um laxa- og silungaár í Reykjavík sáum þessa skýrslu gatna- málastjóra í lok desember 2000 og lögðum til að það yrði unnið eftir henni og fram- kvæmdum lokið samkvæmt henni á árinu 2003,“ sagði Hrannar. Tímamótaplagg „Skýrslan er tímamótap- lagg því hér er í raun og veru í fyrsta skipti verið að benda á raunhæfar leiðir til þess að losa Elliðaárnar við það sem hefur verið hvað óþægilegast út frá umhverfislegu sjónar- miði í ánum, þ.e.a.s. þessi opnu göturæsi. Við erum þess vegna himinlifandi yfir því að nú sé loksins hægt að taka á þessu áratuga vandamáli, sem þarna hefur legið ósnert. Í skýrslunni eru lagðar fram heilsteyptar tillögur um allar þessar lausnir sem ætti að vera hægt að framkvæma fyrir á bilinu 130-140 milljónir króna, sem er auðvitað vel framkvæmanlegt á einhverj- um tíma. Í fjárhagsáætlun ársins er gert ráð fyrir því að það sé hægt að hefjast handa strax á þessu ári, við fyrstu ræsin, og síðan vonum við að farið verði að tillögum nefnd- arinnar og þetta verk klárað á næstu þremur árum. Og það eru sem sagt tillögur starfs- hópsins í laxamálunum að eft- ir þessari skýrslu verði unnið og það mál klárað á næstu þremur árum. Við í umhverfis- og heil- brigðisnefnd höfum sent skýrsluna út til fjölmargra að- ila, sem koma að málefnum Elliðaánna, og höfum óskað eftir umsögnum þeirra og til- lögum um hvernig þeir vildu sjá verkefnunum forgangs- raðað. Þær niðurstöður munu koma til nefndarinnar í lok þessa mánaðar og þá verður hægt að byrja,“ sagði Hrann- ar. Hrannar B. Arnarsson segir Ofanvatnsskýrslu gatnamálastjóra vera tímamótaplagg Hreinsun Elliðaánna mun hefjast innan skamms Elliðaár Morgunblaðið/Golli Iðnaðar- og verkamenn vinna nú við viðbyggingu Háskólans í Reykjavík. ÞÓTT vetur sé genginn í garð er unnið af krafti við 4000 fermetra, fimm hæða nýbyggingu Háskólans í Reykjavík við Listabraut. Ráðgert er að taka bygg- inguna í notkun 1. september nk. og tvöfaldast þá kennslu- rými skólans. Nú eru þar um 650 nemendur og stunda nám í tölvunarfræðum og viðskiptafræðum. MBA-nám í rafrænum viðskiptum hefst á næstunni. Núverandi hús- næði skólans var ætlað fyrir 500 nemendur. Ormar Þór Guðmundsson og Örnólfur Hall, arkitektar hjá Arkitektastofunni, teikna viðbygginguna eins og upp- haflega skólahúsið. Í nýju byggingunni verða kennslusalir, þar af einn sem rúmar yfir 300 nemendur og þrír salir fyrir 50–100 nem- endur. Þá verða skrifstofur fyrir kennara og starfsfólk í nýbyggingunni en mötu- neyti, bókasafn og skóla- skrifstofan í eldra skólahús- inu. Jafnframt verður bílastæðum á lóðinni fjölgað. Byggja nýtt há- skólahús Kringla Morgunblaðið/Golli FRAMKVÆMDIR í tengslum við væntanleg mislæg gatnamót á mótum Reykjanesbrautar, Breið- holtsbrautar og Nýbýlaveg- ar setja nú mikinn svip á umhverfið þar. Fram á næsta haust verður ekið um bráða- birgðagatnamót, sem nú er verið að vinna við en verk- takafyrirtækið Háfell tók að sér gerð þeirra fyrir um 50 milljónir króna. Umfangsmiklar fram- kvæmdir við mislæg gatna- mót á svæðinu munu standa fram á árið 2002 en kostnaður við þær er áætl- aður 857 milljónir. Gatna- gerð um hávetur Breiðholt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.