Morgunblaðið - 11.01.2001, Page 22
LANDIÐ
22 FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Sauðárkróki - Í fallegri brekku milli
lóðar sjúkrahúss og heilsugæslu-
stöðvar á Sauðárkróki annars vegar
og Hlíðarhverfis hins vegar var í
haust lögð önnur gatan af tveimur
þar sem áætlað er að rísi íbúðir fyrir
eldri borgara. Samkvæmt tillögu
skipulagsarkitekts munu göturnar
verða nefndar Forsæti og Hásæti og
er það sú síðarnefnda sem lögð var í
haust.
Rátt fyrir hátíðir reis fyrri hluti af
fyrsta parhúsi við Hásæti en bygg-
ingarfélag eldri borgara á Sauðár-
króki, Búhöldur, fékk á síðasta ári
úthlutað fimm lóðum undir parhús
við þessa götu. Að sögn Þórðar Eyj-
ólfssonar, stjórnarmanns í Búhöld-
um, var gengið til samninga við fyr-
irtækið Farhús í Búðardal en það
fyrirtæki framleiðir húsin, flytur þau
í einingum og reisir á áfangastað, en
síðan eru það heimamenn á Sauðár-
króki sem annast nokkra þætti í end-
anlegum frágangi húsanna svo sem
pípulagnir o.fl.
Þórður sagði að öllum íbúðunum
nema tveimur, sem eru einstaklings-
íbúðir, fylgdi bílageymsla en um er
að ræða 3ja herbergja rúmgóðar
íbúðir alls tæplega 80 fm og er kostn-
aðarverð áætlað 8,5 milljónir. Ein-
staklingsíbúðirnar tvær kostuðu hins
vegar 7,3 milljónir og eru þá íbúð-
irnar tilbúnar til afhendingar en eftir
er frágangur lóðar og umhverfis.
Frágangur til fyrirmyndar
Kári Þorsteinsson byggingar-
meistari, sem einnig á sæti í stjórn
Búhölda, var mjög ánægður með all-
an frágang húsanna og sagði
einangrun, styrkleika og frágang all-
an frá Farhúsum til fyrirmyndar.
Þeir Þórður og Kári sögðu að næsti
húshluti kæmi fyrri hluta janúar-
mánaðar en síðan væru tímasetning-
ar húsanna 15. mars, 30. maí og svo í
ágúst og október en þá væri uppfyllt-
ur samningur um fyrsta áfanga. Þeir
félagar sögðu mikinn áhuga fyrir
þessum húsum og hefðu mjög margir
komið og skoðað þau og lýst áhuga á
að kaupa sig inn í þessar bygging-
arframkvæmdir. Þannig væru nú
þeim húsum ráðstafað sem samið
hefði verið um og gerðu þeir ráð fyrir
ef allt færi samkvæmt áætlun myndi
haldið áfram á sömu braut.
Þórður og Kári töldu að þessar
framkvæmdir hefðu ekki gengið eins
vel og raun varð á ef ekki hefði komið
til aðstoð Árna Gunnarssonar vara-
þingmanns, sem var stjórn félagsins
mjög innan handar við stofnun bygg-
ingarfélagsins, undirbúning allan og
aðstoðaði við fjármögnun fram-
kvæmdanna.
Miklar framkvæmd-
ir á vegum félagsins
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Björgvin Guðmundsson, Kári Þorsteinsson, Margrét Pétursdóttir og
Þórður Eyjólfsson en þau Björgvin og Margrét voru að veita íbúðinni
viðtöku fyrir hönd móður Margrétar.
Eldri borgarar á Sauðárkróki
Húsavík - Skömmu fyrir kvöldmat
í fyrrakvöld kviknaði í dekki á
tengivagni á vöruflutningabíl sem
var ekið um Norðausturveg, rétt
norðan við Laxamýri á leið til
Húsavíkur.
Að sögn lögreglunnar á Húsavík
losnaði dekkið frá vagninum og
nuddaðist við hann með þeim af-
leiðingum að eldur kviknaði í dekk-
inu. Bílstjórinn varð var við eldinn
en ók bílnum áfram þar til dekkið
losnaði af og rúllaði logandi undan
tengivagninum. Bílstjórinn slökkti
eldinn með handslökkvitæki en um
hálftíma síðar blossaði hann upp á
ný og var þá Slökkvilið Húsavíkur
kallað á staðinn.
Nokkrar skemmdir urðu á tengi-
vagninum en þær hefðu líklega
orðið mun meiri ef dekkið hefði
ekki losnað frá.
Logandi dekk undir
tengivagni
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Einar Jónsson hugar að skemmdum á tengivagninum.
VIÐURKENNINGAR hafa verið
veittar í ljósmyndasamkeppni inn-
an Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri, en hún fjallaði um vinnu-
umhverfi starfsfólks. Keppnin var
liður í störfum nefndar um endur-
skoðun húsnæðis sjúkrahússins og
bárust hátt í 700 myndir. Yfirskrift
keppninnar var: „Að fortíð skal
hyggja er framtíð skal byggja“.
Hver deild fékk einnota mynda-
vélar og voru starfsmenn hvattir
til að taka myndir af því sem þeir
teldu best og verst í vinnuumhverfi
sínu.
Þóra Rósa Hallgrímsdóttir á
öldrunardeild Kristnesspítala
hlaut fyrstu verðlaun í flokknum
Til eftirbreytni, en myndina tók
hún á Kristnesi og sýnir hún að-
stöðu sem bæði er gagnleg og gjöf-
ul fyrir þá sem leita sér betri
heilsu.
Þóra E. Bragadóttir á lyflækn-
ingadeild 1 fékk önnur verðlaun
fyrir mynd sem hún tók í setustofu
deildarinnar, þar sem leitast er við
að skapa heimilislegar aðstæður.
Guðrún Ásmundsdóttir og Þor-
björg Á. Árnadóttir á handlækn-
ingadeild hlutu fyrstu verðlaun í
flokknum Vítin til að varast. Sú
mynd er tekin í einni af stofum
deildarinnar og sýnir vart boðleg-
ar aðstæður eins og segir í umsögn
um myndina. Hún þykir leiðbein-
andi um það hvernig fyrirkomulag
á ekki að vera.
Anna Lilja Filipsdóttir á bækl-
unardeild fékk önnur verðlaun í
þessum flokki, en mynd hennar var
tekin á gangi deildarinnar og sýnir
skort á geymslurými. Í umsögn
kemur fram að mikið megi læra
um hönnun húsnæðis í framtíðinni
af þessari mynd.
Hans Petersen hf. og Pedro-
myndir ehf. styrktu þetta verkefni,
lögðu m.a. til keppnisgögn.
Góð þátttaka í ljósmyndasamkeppni starfsfólks FSA
Hátt
í 700
myndir
bárust
Morgunblaðið/Kristján
Þóra Ester Bragadóttir, Anna Lilja Pilipsdóttir, Guðrún Ásmundsdóttir
og Þorbjörg Árnadóttir með viðurkenningar sínar í ljósmyndasam-
keppni Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Á myndina vantar Rósu
Þóru Hallgrímsdóttur.
BJÖRN Bjarnason menntamálaráð-
herra og Þorsteinn Gunnarsson,
rektor Háskólans á Akureyri, hafa
undirritað samning um kennslu til
fyrsta háskólaprófs og meistara-
prófs en þetta er í fyrsta sinn sem
slíkur samningur er undirritaður.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
hafði áður staðfest samninginn fyrir
hönd ríkissjóðs. Þá rituðu þeir
Björn og Þorsteinn einnig undir yf-
irlýsingu um rannsóknar-, þróunar-
og nýsköpunarverkefni við háskól-
ann.
Menntamálaráðherra kynnti efni
samningsins á fundi í háskólanum,
en hann er til þriggja ára og tekur
til fjárveitinga til reksturs Háskól-
ans á Akureyri vegna kennslu. Með
samningnum er mörkuð skýr um-
gjörð um samskipti yfirvalda
menntamála og Háskólans á Akur-
eyri. Samkvæmt samningnum er
gert ráð fyrir að nemendum sem
stunda fullt nám við háskólann fjölgi
að hámarki úr 550 í ár í 750 árið
2003.
Samningurinn byggist á reglum
um fjárveitingar til háskóla en sam-
kvæmt þeim greiðir ríkissjóður
hverjum háskóla sem semur við
menntamálaráðuneytið árlegt nem-
endaframlag vegna sérhvers nem-
anda sem stundar fullt nám til við-
urkenndra námsloka. Fullt nám er
30 einingar á námsári. Nemenda-
framlagi er ætlað að standa undir
öllum venjulegum kostnaði vegna
kennsluþáttarins í rekstri skólans,
m.a. kennslu, þjónustu, búnaði og
annarri aðstöðu sem nemendum og
starfsmönnum skólans er látin í té
vegna náms og kennslu.
Byggðaframlag greitt
í fyrsta sinn
Fjárlög ársins 2001 byggjast á
áætlun Háskólans á Akureyri um
nemendafjölda og dreifingu kostn-
aðar við nám. Framlag ríkisins á
þessu ári er áætlað 251 milljón
króna. Leggur ríkissjóður til 53
milljónir króna á fyrsta ári samn-
ingsins umfram það sem reikni-
reglur vegna kennslu og mats á
umsvifum rannsókna gera ráð fyr-
ir. Það er ætlað til uppbyggingar á
háskóla- og vísindaumhverfi, sem
hefur að markmiði að laða til sín
nemendur. Að auki mun ríkissjóð-
ur greiða háskólanum 35 milljónir
króna á ári á samningstímanum,
vegna þess að hann er utan höf-
uðborgarsvæðisins og sagði Björn
þetta vera í fyrsta skipti sem sér-
stakt byggðaframlag er greitt.
Þorsteinn Gunnarsson rektor
kvaðst fagna samningnum, en skýr
markmið hans gerðu háskólanum
kleift að þróast áfram af meiri dýpt
og bjóða upp á meiri fjölbreytni en
áður. Sagði hann að meistarapróf-
snám yrði til að byrja með boðið við
kennaradeild og heilbrigðisdeild en
aðrar deildir háskólans myndu síðar
fylgja í kjölfarið.
Unnið að því að
fjölga nemendum
Á samningstímanum mun Háskól-
inn á Akureyri gera tillögu að nán-
ari útfærslu á hinu lögbundna hlut-
verki, sem felur m.a. í sér markmið
til nokkurra ára og árleg markmið,
ásamt því að gera tillögu um mæli-
kvarða á starfsemi sína í samræmi
við samþykkt ríkisstjórnarinnar um
árangursstjórnun í ríkisrekstri. Há-
skólinn mun á samningstímanum
vinna sérstaklega að því að fjölga
nemendum, nýta upplýsingatækni
við nám og byggja upp háskólanám
sem tekur mið af þörfum lands-
byggðar fyrir háskólamenntað fólk
auk þess að stunda rannsóknir í
þágu atvinnulífs í landinu.
Kennslusamningur milli menntamálaráðuneytis og
Háskólans á Akureyri
Heildarframlag árs-
ins um 340 milljónir
Morgunblaðið/Kristján
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, og Björn Bjarna-
son menntamálaráðherra undirrituðu kennslusamninginn.
Stefnt að því að
fjölga nemend-
um um 200 á
tveimur árum
ÞINGMENNIRNIR Einar
Már Sigurðsson, Kristján Möll-
er og Svanfríður Jónasdóttir
verða með fund í Lárusarhúsi á
Akureyri kl. 20 fimmtudags-
kvöldið 11. janúar. Á föstudags-
morgun, hinn 12. janúar, verða
þau í Ólafsfirði, fara í fyrirtæki
og verða síðan með hádegis-
fund í Glaumbæ kl. 12.
Síðdegis á föstudag fara þau
um Dalvík og verða með fund á
Kaffi menningu kl. 17.
Þingmenn
Samfylking-
ar í Eyjafirði