Morgunblaðið - 11.01.2001, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 41
GERHARD Schröder,kanslari Þýskalands,sætti í gær harðri gagn-rýni þýskra fjölmiðla eftir
afsögn tveggja ráðherra sem urðu
fyrstu ráðherrarnir í Evrópu til að
segja af sér vegna kúariðufársins í
álfunni. Framganga kanslarans í
málinu var sögð til marks um að
hann stæði illa í stykkinu þegar taka
þyrfti á erfiðum vandamálum.
„Ráðherrabrjálæði“ sagði í flenni-
fyrirsögn á forsíðu dagblaðsins Bild
eftir að Andrea Fischer heilbrigðis-
ráðherra og Karl-Heinz Funke land-
búnaðarráðherra tilkynntu afsögn
sína í fyrradag. Martin S. Lambeck,
einn af dálkahöfundum blaðsins,
spáði því að Schröder ætti mjög erf-
itt ár fyrir höndum og kúariðumálið
benti til þess að hann hefði misst tök-
in á stjórn landsins.
Sjö af sautján ráðherrum
farnir
Með afsögnunum í fyrradag hafa
sjö af ráðherrum Schröders látið af
embætti og þykir mörgum Þjóðverj-
um það áhyggjuefni enda hafa þýsk
stjórnmál yfirleitt einkennst af mikl-
um stöðugleika. Dagblaðið Tages-
spiegel birti mynd sem tekin var af
17 manna stjórn Jafnaðarmanna-
flokks Schröders og Græningja þeg-
ar hún tók við völdunum í október
1988 en sjömenningarnir, sem hafa
látið af embætti, höfðu verið máðir
út. Nokkrir ráðherranna tíu, sem
voru enn á myndinni, eiga undir
högg að sækja vegna persónulegra
og pólitískra vandamála.
Joschka Fischer hefur til að
mynda neyðst til að biðjast afsökun-
ar á því að hafa barið lögreglumann
árið 1973 þegar hann tók þátt í götu-
óeirðum róttækra vinstrimanna og
Hans Eichel fjármálaráðherra hefur
varist ásökunum fjölmiðla um að
hann hafi notað flugvélar stjórnar-
innar til að ferðast í einkaerindum.
Þýsku blöðin sögðu það mikið
áhyggjuefni að Schröder hefði hvað
eftir annað látið hjá líða að taka póli-
tískt frumkvæði. Hann hefði hneigst
til að halda of lengi í óverjandi ráð-
herra og losa sig síðan við þá þegar
kröfurnar um afsögn þeirra væru
orðnar of háværar til að hann gæti
streist á móti.
Frankfurter Allgemeine Zeitung
sagði að breytingar á stjórninni
væru orðnar svo tíðar að engu væri
líkara en ráðherrarnir væru aðeins
„gestir“. „Staða stjórnarinnar, sem
náði sér svo vel á strik á síðasta ári,
er svo sannarlega orðin veik.“
Torveldar Schröder að
styrkja stjórnina
Þingkosningar eiga að fara fram í
Rheinland-Pfalz og Baden-Württ-
emberg í mars og líklegt þykir að
flokkur Schröders verði þá fyrir
svipuðum skakkaföllum og á árinu
1999 þegar hann tapaði kosningum í
nokkrum sambandslöndum. Því ári
var lýst sem martröð fyrir Schröder.
Síðustu afsagnirnar gætu einnig
dregið úr möguleikum Schröders til
að fá nýja menn til liðs við stjórnina í
stað veikra ráðherra – svo sem Walt-
er Riester vinnumálaráðherra sem
Schröders. Hann viðurkenndi í
fyrradag að hann hefði átt að bregð-
ast fyrr við grunsemdum um að kjöt
og beinamjöl væri notað í nautgripa-
fóður, en vísindamenn telja að slíkt
fóður hafi valdið kúariðusýkingum.
Schröder sagður hafa
óskað eftir afsögnunum
Kanslarinn varði ráðherrana tvo
áður en þeir sögðu af sér en margir
fréttaskýrendur telja að hann hafi
fengið þá til að láta af embætti vegna
kúariðufársins þótt hvorugur ráð-
herranna hafi viðurkennt það.
Schröder samþykkti afsagnar-
beiðni ráðherranna strax í stuttri yf-
irlýsingu. Fréttaskýrendurnir telja
skjót viðbrögð hans benda til þess að
hann hafi haft frumkvæði að afsögn-
unum, svo og það að ráðherrar úr
báðum stjórnarflokkunum skuli hafa
sagt af sér samtímis. Talið er að
kanslarinn hafi ekki viljað raska
valdajafnvæginu milli jafnaðar-
manna og græningja í stjórninni.
Þýskir embættismenn og bændur
héldu því fram í mörg ár eftir að kúa-
riðan kom upp í Bretlandi að engin
hætta væri á því að sjúkdómurinn
bærist til Þýskalands vegna þess að
þar væri ekki notast við kjöt og
beinamjöl í nautgripafóður. Tíu
þýskar kýr hafa hins vegar greinst
með sjúkdóminn frá því í nóvember
og embættismenn segja að sýking-
arnar stafi af því að dýraafurðum
hafi verið blandað í fóður. Hefur
þetta orðið til þess að sala á nauta-
kjöti í Þýskalandi hefur minnkað um
tæpan helming og málið er því mikið
áfall fyrir bændur. Um 250.000
manns hafa atvinnu af nautakjöts-
framleiðslunni.
Vísindamenn telja að kúariða
tengist heilarýrnunarsjúkdómi í
mönnum, Creutzfeldt-Jakob (CJD).
Um 80 manns, aðallega Bretar, hafa
dáið af völdum sjúkdómsins.
„Algjört stjórnleysi“
Einn af þingmönnum Jafnaðar-
mannaflokksins viðurkenndi að
framganga stjórnarinnar í kúariðu-
málinu síðustu vikur einkenndist af
„algjöru stjórnleysi“. Embættis-
menn landbúnaðar- og umhverfis-
ráðuneytanna lögðu fram tillögur
um umbætur á þýskum landbúnaði á
fimmtudaginn var til að fyrirbyggja
kúariðusýkingar. Þeir lögðu meðal
annars til að fjárfest yrði fyrir 500
milljónir marka, andvirði 20 millj-
arða króna, í lífrænum landbúnaði.
Funke lýsti því hins vegar yfir að
hann styddi ekki þessar hugmyndir
og lagði fram nýjar tillögur þar sem
ekki var gert ráð fyrir fjárfestingum
í lífrænum landbúnaði. Þýska stjórn-
in tilkynnti síðan á mánudaginn var
að allar þessar tillögur yrðu lagðar
til hliðar og samin yrði ný áætlun um
landbúnaðarúrbætur.
Þýskt dagblað skýrði frá því um
helgina að virtur prófessor í dýra-
fræði hefði skýrt Funke frá því í
byrjun liðins árs að þýsk kýr hefði
greinst með riðuna fyrir rúmum ára-
tug. Ráðherrann staðhæfði þó að
Þýskaland væri laust við sjúkdóm-
inn þar til að skýrt var frá fyrsta
riðutilvikinu í landinu í nóvember.
hefur sætt gagnrýni fyrir breytingar
á lífeyriskerfinu – til að styrkja stöðu
hennar fyrir næstu kosningar til
þýska þingsins haustið 2002.
„Schröder kann nú að hafa misst
af tækifærinu til að losa sig við valta
ráðherra með markvissum hætti,“
sagði blaðið Süddeutsche Zeitung.
„Brotthvarf heilbrigðisráðherrans
kann að koma af stað stjórnlausri
keðjuverkun.“
Fischer kúventi tvisvar
Ráðherrar samsteypustjórnarinn-
ar hafa deilt í nokkrar vikur um
hvernig taka eigi á kúariðumálinu og
Andrea Fischer viðurkenndi þegar
hún sagði af sér að það hefði skaðað
stjórnina.
„Ég verð að viðurkenna að stjórn-
in hefur glatað trausti almennings á
að hún geti leyst kúariðuvandann,“
sagði hún.
Fischer er í Græningjaflokknum
og hefur verið gagnrýnd fyrir að kú-
venda tvisvar í kúariðumálinu fyrir
jól. Hún sagði fyrst að engin hætta
stafaði af unnu nautakjöti í þýskum
pylsum en tók fram að sjálf myndi
hún ekki kaupa slíkar pylsur. Hún
lýsti því síðan yfir að pylsurnar yrðu
bannaðar og teknar af markaði en
viðurkenndi seinna að hún hefði ekki
lagalegt vald til að setja slíkt bann.
Fischer kvaðst sjá eftir mistökum
sínum en sagði að „landbúnaðar-
verksmiðjur“ ættu sök á kúariðu-
vandanum. „Fjárhagslegir hags-
munir hafa verið settir ofar
hagsmunum neytenda. Þar að auki
hafa neytendur verið tregir til að
kaupa góð matvæli sem eru dýrari.“
Fischer kvaðst vona að vandinn
leiddi til breyttra viðhorfa til neyt-
endaverndar. Stjórnarandstaðan
hafði einnig sakað hana um vanhæfni
vegna tilrauna hennar til að koma á
umbótum í heilbrigðiskerfinu en hún
virtist hafa staðið þær ásakanir af
sér áður en hún lét af embætti.
Meirihlutinn hafnaði stefnu
landbúnaðarráðherrans
Karl-Heinz Funke, sem er jafnað-
armaður, hefur hins vegar varið iðn-
væðinguna í landbúnaðinum og sú
afstaða hans er í andstöðu við nýja
stefnu Schröders, sem hefur gagn-
rýnt þýska landbúnaðariðnaðinn að
undanförnu og hvatt til umhverfis-
vænni aðferða.
Funke er sjálfur bóndi og hélt því
lengi fram að engin hætta væri á
kúariðusýkingum í Þýskalandi.
Hann kvaðst hafa sagt af sér sem
landbúnaðarráðherra vegna þess að
afstaða hans nyti ekki nægilegs
stuðnings meðal ráðherranna. „Ég
hef neyðst til að viðurkenna að sú
landbúnaðarstefna sem ég aðhyllist
nýtur ekki lengur meirihlutastuðn-
ings í samsteypustjórninni,“ sagði
hann. „Ég vil greiða fyrir því að
hægt verði að byrja upp á nýtt eins
og margir virðast telja nauðsynlegt.“
Funke hafði verið sakaður um að
setja hagsmuni landbúnaðariðnaðar-
ins ofar hagsmunum neytendanna.
Hann var í fyrstu andvígur banni við
því að kjöt og beinamjöl yrði notað í
dýrafóður en Evrópusambandið
setti síðar slíkt bann með stuðningi
Tveir ráðherrar í stjórn Þýskalands segja
af sér vegna kúariðumálsins
Framganga Schröders
gagnrýnd í fjölmiðlunum
Þýsk stjórnvöld héldu því lengi fram
að engin hætta væri á kúariðu í
Þýskalandi en það reyndist rangt og
tveir ráðherrar hafa nú sagt af sér
vegna málsins. Bogi Þór Arason segir
að jafnvel flokksbræður Gerhards
Schröders kanslara hafi viðurkennt
að framganga stjórnarinnar í kúariðu-
málinu hafi einkennst af „algjöru
stjórnleysi“. Andrea Fischer Karl-Heinz Funke
ekki með þeim hætti að það væru
settar inn í hann nákvæmar fjár-
hæðir og hvað ætti nákvæmlega að
greiða út, heldur lá ljóst fyrir að það
var sett fram ákveðið svigrúm til
þess að löggjafinn gæti brugðist við
með réttum hætti og það erum við
að gera,“ sagði Halldór.
Skv. upplýsingum Geirs H.
Haarde nemur kostnaður ríkissjóðs
vegna uppgjörs við öryrkja á árun-
um 1997 og 1998, þ.e. fyrir breyt-
ingu sem gerð var á almannatrygg-
ingalögunum 1998, um 430
milljónum kr. að viðbættum vöxtum
og allt að 250 millj. kr. vegna tíma-
bilsins frá janúar 1999 til jafnlengd-
ar í ár, að viðbættum 5,5% vöxtum.
Þá er áætlað að árlegur kostnaðar-
auki ríkisins vegna breytinganna í
framtíðinni verði um 100 millj. kr. og
er talið að um 19% öryrkja fái aukn-
ar tekjutryggingagreiðslur með
þessari breytingu.
Hæstiréttur lagði
pólitískar línur
Forsætisráðherra sagðist vera
pólitískt sáttur við að unnið hefði
verið jafn hratt og raun bæri vitni
innan ríkisstjórnarinnar við að
svara svo mörgum spurningum sem
dómur Hæstaréttar varpaði fram.
Hins vegar sagðist hann ekki vera
sáttur við að það væri hlutverk dóm-
stóla að leggja pólitískar línur en
það hefði Hæstiréttur einmitt í
þessu tilfelli gert.
Davíð benti einnig á að í dómi
Hæstaréttar væri sérstaklega tekið
fram að öðru máli gegndi um mál-
efni aldraðra. „Ég veit ekki hvers
vegna dómurinn leggur lykkju á leið
sína til að segja það en hann gerir
það,“ sagði hann. Forsætisráðherra
sagði að ríkisstjórnin myndi taka
sínar ákvarðanir burt séð frá þess-
ari setningu í dóminum.
Halldór var spurður í samtali við
Morgunblaðið hvort ekki hefði kom-
ið til álita að ganga lengra í breyt-
ingum sem ríkisstjórnin hefur
ákveðið og taka m.a. tillit til aldr-
aðra. „Þegar við fórum að vinna úr
niðurstöðum lögfræðinganna kom í
ljós að þegar komið er upp fyrir frí-
tekjumark hjóna, þá geta eigin
tekjur bótaþegans orðið fyrir mikilli
skerðingu, vegna þess að það er ein-
göngu verið að tala um að tryggja
ákveðinn grunn. Við brugðumst við
því með því að draga úr henni. Það
má segja að það hafi ekki verið
nauðsynlegt vegna dómsins. Hvort
það eigi að draga meira úr því í
framtíðinni er hins vegar álitamál
og það er álitamál hvort það eigi að
breyta tekjutengingum frekar. Við
teljum mikilvægast af öllu að koma
til móts við þá sem minnst mega sín
og það er hlutverk þeirrar nefndar
sem nú er að störfum. Það á bæði við
um öryrkja og aldraða,“ sagði hann.
Aðspurður hvort þetta mál hefði
skaðað ríkisstjórnina sagðist Davíð
ekki vera í vafa um að ríkisstjórnin
hefði skaðast tímabundið vegna
málsins.
Halldór sagði að þetta mál hefði
verið erfitt við að eiga og skaðað rík-
isstjórnina, „vegna þess að við höf-
um unnið í málinu mjög lengi án
þess að geta sagt mikið um það. Á
sama tíma hefur verið mikil umræða
í þjóðfélaginu, sem er að hluta til
byggð á misskilningi, án þess að við
gætum brugðist þar við. Það skaðar
alltaf þegar aðeins önnur hliðin
kemur fram,“ sagði hann.
fulltrúar Öryrkjabandalagsins,
aldraðra og fulltrúar vinnumarkað-
arins kæmu að þessari vinnu.
Um hvað eiga stjórnmálin
að snúast?
Halldór Ásgrímsson sagði að ráð-
herrar ríkisstjórnarinnar hefðu ver-
ið sammála um að undirbúa þyrfti
málið mjög vel. Hann benti á að
kveðið væri á um það í stjórnar-
skránni að þau réttindi sem um ræð-
ir skyldu ákvörðuð með lögum.
„Hitt er svo annað mál að auðvitað
ber að tryggja borgurunum ákveðin
lágmarksréttindi. Þessi dómur
fjallar um það að borgararnir skuli
hafa ákveðin lágmarksréttindi án
tillits til hjúskaparstöðu og um það
er fjallað í málinu að tryggja þessum
borgurum ákveðin réttindi og það er
talið að það hafi verið of langt geng-
ið í því að skerða tekjur vegna tekna
maka. Það er alveg ljóst að allt jöfn-
unarkerfi landsmanna byggir á því
að taka tillit til tekna, eigna, til
tekna maka og til fjölskyldunnar al-
mennt. Þetta er algjört grundvall-
aratriði í stjórnmálum. Þess vegna
er það nauðsynlegt þegar við kom-
um að svona flóknu máli að við skilj-
um þann dóm sem er felldur með
réttum hætti og við tökum ákvarð-
anir sem byggja á því að auka þessi
réttindi sem þar er fjallað um, án
þess að skerða möguleika sam-
félagsins til samfélagslegrar jöfnun-
ar, því viðstjórnmálamenn höfum
litið á það sem okkar aðalhlutverk
að jafna kjör borgaranna og taka til-
lit til aðstæðna í landinu. Auðvitað
eru viss takmörk fyrir því, en þetta
er algjört grundvallaratriði. Það má
segja að ef við höfum ekki þau rétt-
indi sem stjórnmálamenn og aðilar
sem stöndum að löggjöf í landinu,
má spyrja: Um hvað eiga stjórnmál-
in að snúast og hvað á að fjalla um
þar? Ég fullyrði að út frá öllu þessu
þá er þetta eitt alflóknasta mál sem
ég hef komið að á mínum stjórn-
málaferli og það hefur margar hlið-
ar. Það lá alveg fyrir í upphafi að við
myndum að sjálfsögðu fara að þess-
um dómi og auðvitað standa lög-
fræðingar frammi fyrir álitaefnum
þegar slíkur dómur er túlkaður. Ég
geri mér það ljóst með sama hætti
að dómarar standa frammi fyrir
álitaefnum þegar þeir kveða upp
sína úrskurði, en þessi dómur var
a að þeim
tar heim-
ir öryrkj-
ur eru á
mánuði,
um dómi,
stefnt né
m tilgangi
fðu, held-
öryrkjar
ilistekjur,
dómi.
ð sérstak-
hafa verið
gar með
m yfirlýs-
erið í rík-
garreglur.
hefur þar
r einasti,
m það eru
Davíð.
munu
gunum
jargar að
00 á land-
ar myndu
agreiðslur
Heildar-
áætlaður
á að hún
ti sátt um
vinnu við
Greindi
samþykkt
arfundi í
illögu, að
hafin er á
nni í sér-
ð og hún
mur mán-
t að kom-
minnstar
vilja að
Morgunblaðið/Ásdís
lbrigðisráðherra, Davíð Oddsson forsætisráð-
urstöðu ríkisstjórnarinnar um greiðslu tekju-
í Ráðherrabústaðnum í gær.
1.400
fá leið-
á bótum
ar
hafa
gna
nda-
erra
rkja
ur.
Á mbl.is á Netinu er einnig
hægt að lesa skýrslu starfs-
hópsins frumvarp um breyt-
ingar á lögum um almanna-
tryggingar, útreikninga
Þjóðhagsstofnunar um áhrif
breytinganna og fréttir um
dóm Hæstaréttar auk hæsta-
réttardómsins sjálfs. Hægt er
að nálgast þetta efni á frétta-
síðum mbl.is með því að smella
á hnapp sem er að finna efst í
hægri dálki undir yfirskrift-
inni: Öryrkjadeilan.
Skýrslan og
frumvarpið
á mbl.is
ttar í máli Öryrkjabandalagsins gegn TR