Morgunblaðið - 11.01.2001, Side 53
UMRÆÐAN
HÁSKÓLASTÚDENTAR eru á
öllum aldri og eru ólíkur hópur
manna. Ef það er eitthvað sem flest-
ir stúdentar eiga sameiginlegt þá er
það það að þeir eru ýmist í þann
mund að flytja að heiman og stofna
eigið heimili eða hafa nú þegar flust
að heiman og stofnað fjölskyldur. Í
ljósi þess er merkilegt hversu margt
í háskólasamfélaginu er óhagstætt
þeim stúdentum sem eiga börn. Oft-
ast er litið til dagvistunarmála þegar
málefni foreldra í Háskólanum eru
rædd.
Dagvistunarplássum þarf að
fjölga og Vaka vill tryggja það að
börn stúdenta eigi kost á tryggri
vist.
En þrátt fyrir að dagvistunarmál
séu ein af grundvallarforsendum
þess að foreldrar geti stundað nám
fer því fjarri að dagvistunarmál ein
og sér geri það að verkum að jafn-
rétti foreldra til náms sé tryggt.
Núverandi meirihluti Stúdenta-
ráðs undir forystu Röskvu hefur al-
gjörlega brugðist barnafólki í Há-
skólanum. Í þau 10 ár sem Röskva
hefur verið með meirihluta í Stúd-
entaráði hefur lítið sem ekkert gerst
í málefnum þeirra stúdenta sem
jafnframt eru foreldrar. Við sem er-
um foreldrar viljum snúa þessari
þróun við.
Stundaskrár sem
henta foreldrum
Þess eru dæmi að stundaskrár
nemenda séu þannig að þær henti
illa þeim sem eru með börn á leik-
skólum. Foreldrar eiga erfitt með að
sækja kennslustundir þegar þeim
lýkur ekki fyrr en klukkan 18 eins og
dæmi eru um, en leikskólum er yf-
irleitt lokað klukkan 17. Jafnrétti til
náms snýst um fleira en það að
tryggja stúdentum möguleika til
náms óháð efnahag. Það þarf einnig
að búa svo um hnútana að stúdentar
komist í kennslustundir og geti sinnt
námi sínu sem skyldi. Vaka vill
tryggja það að við gerð stundarskráa
verði hagsmunir foreldra einnig
hafðir í huga.
Þá skiptir ekki minna máli að við
foreldrar getum séð hvernig stunda-
skrá og próftöflur verða við skrán-
ingu í tiltekin fög. Þetta ætti ekki að
vera flókið í framkvæmd, en gera
mætti þann fyrirvara til að koma til
móts við Háskólann að mögulegt
væri að gera breytingar ef það reyn-
ist nauðsynlegt.
Próftöflur tilbúnar
við skráningu
Próftöflur skipta alla stúdenta
verulegu máli, enda getur óhagstæð
próftafla haft mikil áhrif á gengi
stúdenta í prófum. Í síðustu prófum
Háskólans komu upp mörg vanda-
mál, meðal annars í viðskiptafræði-
deild þar sem nemendur lentu meðal
annars í því að þurfa að taka tvö próf
sama dag. Þessu fékkst ekki breytt
þrátt fyrir að Vaka hefði ályktað um
málið í Stúdentaráði og komið fram
mótmælum til prófstjóra.
Desember er sá mánuður þar sem
foreldrar þurfa einna mestan tíma til
þess að sinna málefnum fjölskyld-
unnar, meðal annars við undirbúning
jólahalds. Það er því afar slæmt að
prófum skuli oft ekki ljúka fyrr en
21. desember. Vaka vill að próf hefj-
ist viku fyrr, og sömuleiðis haustönn-
in, þannig að stúdentar verði komnir
í jólaleyfi í kringum 15. desember.
Þetta yrði vitaskuld öllum stúdent-
um ánægjuefni og myndi auk þess
auðvelda foreldrum próf og jólaund-
irbúning mjög. Í grunn- og fram-
haldsskólum hefst kennsla í lok
ágúst og ekki væri óeðlilegt ef mál-
um yrði eins háttað í Háskóla Ís-
lands.
Vaka leggur áherslu
á málefni foreldra
Stór fjöldi stúdenta á börn en allt-
of lítið hefur verið gert til þess að
koma til móts við þarfir þessara
stúdenta. Breytingar þær sem hér
eru lagðar til og Vaka ætlar að
leggja áherslu á ættu ekki að hafa í
för með sér kostnað.
Nýverið féll dómur Hæstaréttur
varðandi skerðingu bóta öryrkja
vegna tekna maka þeirra. Vaka hef-
ur lengi bent á óréttmæti þess að
námslán stúdenta skerðist vegna
tekna maka og lítur Vaka svo á að
dómurinn hljóti að hafa fordæmis-
gildi í baráttunni gegn skerðingu
námslána sem stafa af tekjum maka.
Þessi stefna í lánamálum stúdenta
er gott dæmi um það hve óhagstætt
nám er fjölskyldufólki.
Vaka er fjölskylduvæn fylking
sem gerir sér grein fyrir því að
margir stúdentar eru foreldrar. Við
sem erum foreldrar vitum af eigin
raun að Vaka hefur góða og raun-
sæja stefnu í fjölskyldumálum. Þessi
stefna Vöku í fjölskyldumálum gerir
það að verkum að við teljum Vöku
best til þess fallna að sinna hags-
munabaráttu allra stúdenta, líka
þeirra sem eru foreldrar.
Hafa foreldrar í Há-
skólanum gleymst?
Haraldur
Daði Ragnarsson
Ingibjörg
Lind Karlsdóttir
Hulda Birna
Baldursdóttir
Nemar
Merkilegt er, segja Har-
aldur Daði Ragnarsson,
Hulda Birna Bald-
ursdóttir og Ingibjörg
Lind Karlsdóttir,
hversu margt í háskóla-
samfélaginu er óhag-
stætt þeim stúdentum
sem eiga börn.
Höfundar sitja í Stúdentaráði fyrir
Vöku, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, og eru foreldrar.
MENNINGARMÁL
Í einkasölu vönduð mikið endurn. flott 100 fm íb. á 3. h. m. auka-
herb. í kj. í góðu fjölb. Nýl. eldhús, baðherb., gólfefni (að hluta) o.fl.
Glæsil. útsýni. Áhv. ca 4 m. V. 11,5 m.
Mjög falleg 101 fm íb. á 3. h. í nýstands. fjölb. Sameign nýstands.
Íb. í toppst. að innan. Skipti mögul. á 2-3ja herb. íb. V. 12 m. 1977
Valhöll fasteignasala,
Síðumúla 27, sími 588 4477
Blöndubakki
aukaherb. - útsýni
Álfheimar - falleg íbúð
LIÐ-A-MÓT
FRÁ
Miklu sterkara fyrir liða-
mótin og líka miklu ódýrara
APÓTEKIN
Ö
fl
u
g
t
ví
ta
m
ín
–
D
re
if
in
g
J
H
V
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 53