Morgunblaðið - 09.03.2001, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 11
Aðalfundur
Þormóðs ramma - Sæbergs hf.
Aðalfundur Þormóðs ramma - Sæbergs hf. verður haldinn á
Hótel Læk, Siglufirði, föstudaginn 16. mars nk. og hefst
hann kl. 16.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 12. gr. samþykkta
félagsins.
2. Heimild félagsins til að eiga eigin hluti.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur stjórnar til aðalfundar.
„Aðalfundur Þormóðs ramma – Sæbergs hf., haldinn á Siglufirði
föstudaginn 16. mars 2001, samþykkir að greiddur verði 7% arður á
nafnverð hlutafjár vegna ársins 2000,- en vísar að öðru leyti til ársreiknings
um meðferð taps. Samþykki aðalfundur tillöguna verða viðskipti með bréfin
án arðs frá og með 17. mars 2001.”
„Aðalfundur Þormóðs ramma – Sæbergs hf., haldinn á Siglufirði
föstudaginn 16. mars 2001, samþykkir heimild til þess að félagið eigi eigin
bréf allt að 10% af nafnverði hlutafjár.“
BÚNAÐARÞINGSFULLTRÚAR
samþykktu við fyrri umræðu á
þinginu í gær þá ályktun allsherj-
arnefndar að aðild að Evrópusam-
bandinu kæmi ekki til greina heldur
bæri að tryggja hagsmuni Íslands
með öðrum hætti. Ályktunin var
samþykkt samhljóða án nokkurar
umræðu og fór því ekki til síðari
umræðu á þinginu líkt og algengt er
með mörg stærri mál á þessum vett-
vangi. Ágúst Sigurðsson frá Geita-
skarði, fulltrúi í allsherjarnefnd,
mælti fyrir ályktuninni og í máli
hans kom fram að bændur hefðu
væntingar til starfs nefndar sem
landbúnaðarráðuneytið fyrirhugaði
að skipa til að fjalla um kosti og
galla aðildar að Evrópusambandinu
fyrir íslenskan landbúnað. Munu
Bændasamtökin eiga aðild að þeirri
nefnd. Ágúst sagðist reyndar sakna
meiri umræðu um ályktunina og tók
sem dæmi að 17 ræður hefðu verið
fluttar um sölu ríkisjarða í fyrri um-
ræðu en engin ræða um Evrópu-
málin.
Að mati Búnaðarþings er mikil
óvissa um marga þætti í starfi og
framtíðarstefnumótun Evrópusam-
bandsins, ESB. Jafnframt sé ljóst
að aðild að ESB myndi hafa veruleg
áhrif á starfsumhverfi íslensks land-
búnaðar, að því er fram kemur í
ályktuninni.
„Ætla má að bændur og ekki síð-
ur afurðastöðvar hérlendis mundu
lenda í miklum erfiðleikum á sam-
eiginlegum Evrópumarkaði. Mjög
líklegt er að mikill samdráttur verði
í flestum greinum íslensks landbún-
aðar, störfum muni fækka og tekjur
bænda lækka, gangi Ísland í Evr-
ópusambandið. Reynsla finnsks
landbúnaðar eftir inngöngu Finn-
lands í Evrópusambandið staðfestir
ofangreinda ályktun,“ segir m.a. í
ályktuninni.
Einnig segir að mikil óvissa ríki
um ýmsa aðra þætti í starfsemi
ESB. Nefndir eru til sögunnar erf-
iðleikar í fiskveiðum og veiðistjórn-
un, þar sem endurskoðun er fyr-
irhuguð, alvarleg vandamál hafi
komið upp varðandi búfjársjúkdóma
og matvælaöryggi og mikil óvissa
ríki í gjaldeyrissamstarfi sambands-
ins. Þá segir í ályktuninni að misvís-
andi hugmyndir séu uppi um breyt-
ingar á landbúnaðarstefnu sam-
bandsins og margt sé óljóst varð-
andi stækkun ESB til austurs.
Ágúst Sigurðsson sagði við Morg-
unblaðið að bændur virtust almennt
ekki telja Evrópusambandsaðild
tímabæra. Umræða væri mikil í
samfélaginu og en það væri ekki á
færi allra að setja sig inn í Evrópu-
málin. Ágúst vonaðist til þess að við
störf fyrirhugaðrar nefndar land-
búnaðarráðuneytisins yrðu viðhöfð
vönduð og fagleg vinnubrögð.
„Við vonumst til þess að þegar
nefndin skilar áliti, hvenær sem það
verður, þá liggi fyrir kostir og gallar
á Evrópusambandsaðild. Á það má
benda að við erum með á annan tug
búgreinafélaga í landinu og hags-
munirnar eru alls ekki þeir sömu,“
sagði Ágúst og benti á að í hans að-
algrein, ferðaþjónustu, væri unnið
að mestu í samevrópsku umhverfi.
Ályktun um Evrópumál samþykkt samhljóða og án umræðu á Búnaðarþingi
Aðild kemur ekki til greina
Morgunblaðið/Golli
Frá umræðum á Búnaðarþingi sem nú er haldið 6. til 9. mars á Hótel Sögu.
BÚNAÐARÞING samþykkti
þá ályktun kjaranefndar í gær,
sem kom frá sunnlenskum
þingfulltrúum, að stjórn
Bændasamtakanna kannaði
möguleika á að leysa húsnæð-
isvanda bænda sem þurfa að
dvelja á höfuðborgarsvæðinu í
skamman tíma.
Ályktunin var samþykkt við
fyrri umræðu og kom þar fram
mikil ánægja með málið. Brýn
þörf væri á slíku húsnæði fyrir
bændur af landsbyggðinni, og
fjölskyldur þeirra, sem þyrftu
að gera sér ferð til höfuðborg-
arsvæðisins vegna t.d. heil-
brigðisþjónustu eða einkaer-
inda. Vísað var til góðrar
reynslu stéttarfélaga á lands-
byggðinni sem fjárfest hefðu í
íbúðum á höfuðborgarsvæðinu
fyrir sína félagsmenn.
Í máli eins þingfulltrúa kom
fram að Hótel Saga dugir ekki
fyrir bændur þegar þeir þurfa
að dvelja ásamt fjölskyldum
sínum dögum eða vikum saman
í borginni vegna ýmissa erinda.
Vissulega fá bændur afslátt af
gistingu á Sögu eina og eina
nótt en það dugir skammt. Auk
þess var lagt til að hótelið yrði
selt til að fjármagna kaup á
íbúðum fyrir bændur. Fram
kom að ein íbúð myndi ekki
duga, heldur þyrfti jafnvel heilt
raðhús að koma til.
Annar þingfulltrúi lýsti yfir
ánægju sinni með ályktunina
en taldi skynsamlegra að
Bændasamtökin leigðu íbúðir
sem þessar frekar en að kaupa
þær. Kom hann með þá hug-
mynd að Bændasamtökin létu
gera könnun á viðhorfi félags-
manna sinna til málsins þannig
að þörfin á íbúðum sem þessum
yrði metin.
Bænda-
íbúðir á
höfuð-
borgar-
svæðinu
Búnaðarþing 2001
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi samþykkt frá stjórn
Innheimtumiðstöðvar gjalda skv.
11. gr. höfundalaga (IHM) sem
samþykkt var á fundi samtakanna
8. mars 2001:
„Í tilefni af umfjöllun í fjölmiðl-
um og víðar um reglugerð mennta-
málaráðuneytisins um innheimtu
höfundaréttargjalda, sem ráðuneyt-
ið setti nýlega á grundvelli 5. mgr.
11. gr. höfundalaga, þar sem stór
orð hafa fallið í garð höfunda og
annarra rétthafa, vill stjórn IHM
taka fram eftirfarandi:
Upptaka hefðbundinna höfundar-
verka til einkanota eingöngu hefur
verið lögmæt hér á landi skv. 1.
mgr. 11. gr. höfundalaga. Frá árinu
1985 hefur verið greitt sérstakt
höfundaréttargjald af auðum hljóð-
og myndböndum, svo og af tækjum
til upptöku á hljóð- og myndbönd,
til þess að bæta höfundum, flytj-
endum og öðrum rétthöfum upp
tekjutap vegna slíkrar upptöku á
efni þeirra.
Á síðasta ári voru þau laga-
ákvæði, þar sem kveðið er á um
umrædd höfundaréttargjöld (IHM-
gjöld), aðlöguð að hinni nýju staf-
rænu („digital“) tækni með það fyr-
ir augum að höfundar og aðrir rétt-
hafar fengju áfram sanngjarnt
endurgjald fyrir það að afrita má
verk þeirra til einkanota. Í því
sambandi er rétt að taka fram að
efni, sem áður var tekið upp á
hljóðbönd, hefur í sífellt meira
mæli verið tekið upp á tölvudiska
án þess að höfundar eða aðrir rétt-
hafar hafi fengið endurgjald fyrir
þau not.
Í raun réttri var gjaldið, sem
greitt hefur verið af hverri hljóð-
kassettu, kr. 35, fært yfir á tölvu-
diska með fyrrgreindri reglugerð.
Þótt not diskanna séu fjölbreyttari
en kassettanna rúma þeir mun
meira efni, auk þess sem upptakan
er mun fullkomnari. Því er það álit
þeirra höfunda og annarra rétthafa,
sem hlut eiga að máli, að þetta end-
urgjald sé síst of hátt, sér í lagi
með tilliti til þess að gengið var út
frá því að þeir aðilar, sem flytja inn
tölvudiska til upptöku á öðru efni
en hér um ræðir, fengju höfunda-
réttargjöldin endurgreidd.
Nú hefur komið í ljós, samkvæmt
ábendingum frá innflytjendum og
öðrum hagsmunaaðilum, að slík
endurgreiðsla er illframkvæman-
leg. Í ljósi þess getur stjórn IHM
fallist á að gjald það, sem lagt
verður á geisladiska, verði lækkað
frá því, sem upphaflega var ákveð-
ið, eins og heimilt er skv. 5. mgr.
11. gr. höfundalaga. Samtök höf-
unda og annarra rétthafa telja hins
vegar að með þeirri lækkun gjald-
anna, sem nú hefur verið ákveðin,
sé gengið lengra en þau hefðu kos-
ið. Ennfremur lýsa þau vonbrigðum
sínum með að fallið skuli hafa verið
frá gjaldi af tölvum með innbyggð-
um geisladiskabrennurum.
Að gefnu tilefni er vakin athygli
á því að IHM-gjöld skv. 11. gr. höf-
undalaga skiptast á milli allra rétt-
hafa að efni, sem afrita má til
einkanota, t.d. tónskálda, söngvara,
hljóðfæraleikara, hljómplötufram-
leiðenda, leikara, sviðsleikstjóra,
kvikmyndaleikstjóra, kvikmynda-
framleiðenda, kvikmyndagerðar-
manna, rithöfunda, leikmynda- og
búningahönnuða, myndlistarmanna
og blaðamanna, allt eftir því hvort
verið er að taka upp hljóð, mynd
eða mynd ásamt hljóði. Gjöldin
renna ekki einvörðungu til inn-
lendra rétthafa. Samsvarandi gjöld
hafa verið tekin upp í mörgum ríkj-
um Evrópu. Ennfremur liggur fyrir
að innan skamms mun taka gildi á
Evrópska efnahagssvæðinu ný til-
skipun um höfundarétt í upplýs-
ingasamfélaginu, þar sem kveðið
verður á um það að stafræn upp-
taka hefðbundinna höfundarverka
til einkanota verði heimil gegn því
að höfundar og aðrir rétthafar
þessa efnis fái sanngjarnt endur-
gjald fyrir heimild til slíkrar upp-
töku.
Að lokum lýsir stjórn IHM undr-
un sinni á viðhorfi Samtaka ís-
lenskra hugbúnaðarframleiðenda til
þessa máls, ekki síst í ljósi þeirrar
ríku höfundaréttarverndar sem
tölvuforrit njóta. Slík forrit má t.d.
ekki afrita til einkanota, eins og
flest önnur höfundarverk og því
væri órökrétt að höfundar þeirra
fengju hlutdeild í umræddum IHM-
gjöldum. Höfundaréttur er for-
senda framfara og þróunar, jafnt á
hugbúnaðarsviði sem öðrum svið-
um, þar sem slíkrar réttarverndar
nýtur við. Af þeirri ástæðu væri
nær að rétthafar innan IHM og
hugbúnaðarframleiðendur tækju
höndum saman í baráttunni fyrir
bættum rétti til handa höfundum
og öðrum rétthöfum.“
Aðild að IHM eiga eftirtalin
félög og samtök: RÍ, Rithöfunda-
samband Íslands, f.h. rithöfunda,
handritshöfunda og þýðenda, með
sameiginlegri kröfugerð og fyrir-
svari með Hagþenki, SÍK, Sam-
band íslenskra kvikmyndaframleið-
enda, f.h. kvikmyndaframleiðenda,
FÍL, Félag íslenskra leikara, f.h.
leikara, listdansara og listdansahöf-
unda, STEF, Samband tónskálda
og eigenda flutningsréttar, SKL,
Samtök kvikmyndaleikstjóra, f.h.
kvikmyndaleikstjóra, FÍH, Félag
íslenskra hljómlistarmanna vegna
tónflytjendadeildar, Sambands
flytjenda og hljómplötuframleið-
enda, f.h. hljóðfæraleikara, söngv-
ara og hljómsveitarstjóra, SHF,
Samband hljómplötuframleiðenda,
f.h. hljómplötuframleiðenda, FK,
Félag kvikmyndagerðarmanna, f.h.
kvikmyndagerðarmanna annarra
en kvikmyndaleikstjóra, Myndstef,
f.h. myndhöfunda og leikmynda- og
búningahönnuða, BÍ, Blaðamanna-
félag Íslands, f.h. fréttamanna og
dagskrárgerðarmanna, og FLÍ,
Félag leikstjóra á Íslandi, f.h.
sviðsleikstjóra.
Upptaka höfundarverka
til einkanota lögmæt