Morgunblaðið - 09.03.2001, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 09.03.2001, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 29 SÖNGSVEITIN Drangey heiðrar minningu Eyþórs Stefánssonar tón- skálds í Félagsheimilinu Drangey, Stakkahlíð 17, sunnudaginn 11. mars kl. 20. Stjórnandi er Snæbjörg Snæ- bjarnardóttir og píanóleikari Ólaf- ur Vignir Albertsson. Sölvi Sveinsson mun flytja erindi um tónskáldið. Einsöngvarar eru Ingibjörg Guðjónsdóttir og Frið- björn G. Jónsson og söngsveitin syngur kórsöng. Söngsveitin Drangey. Aldarminning Eyþórs Stefánssonar Sinfóníuhljómsveit Norð- urlands heldur tónleika í Glerárkirkju næstkom- andi sunnudag og hefjast þeir kl. 16. Einleikari á tónleikunum er Einar Jó- hannesson klarínettuleik- ari. Þrjú verk eru á efnis- skránni og eru þau tónlist tveggja alda, annarsvegar þeirrar 18. og hins vegar þeirrar 20. Verkin frá tuttugustu öldinni eiga það sameiginlegt að þar eru tónskáldin að taka fyrir tónlist fyrri alda og vinna verk sín út frá henni. Fyrsta verkið á tónleikunum er Renesans svíta eftir tuttugustu aldar tónskáldið Francis Chagrin, sem fæddur var í Rúmeníu en bjó stærstan hluta ævi sinnar í Bret- landi. Verkið er samið í anda end- urreisnartímabilsins en litað tón- um tuttugustu aldar. Þá er horfið um stund aftur til 18. aldar og leikinn Klarínettu- konsert í A-dúr eftir W.A. Mozart. Klarínett kom fyrst fram á sjón- arsviðið upp úr aldamótunum 1700. Mozart hreifst mjög af þessu hljóðfæri og tjáningar- möguleikum þess og lét það njóta sín í tónsmíðum sínum. Konsert- inn þykir mjög fagur og áhrifa- mikill en hann er eitt af síðustu verkum Mozarts. Tónleikunum lýkur síðan með verki frá tuttugustu öld. Það er Pulcinella-svítan, eitt vin- sælasta verk Ígors Strav- inskís. Stravinskí byggir það á verkum 18. aldar tónskáldsins Giovanni Pergolesi. Þannig gefur hann tónlist Pergolesis nýtt líf en þykur um leið sýna snilli sína í skrifum fyrir hljómsveit þar sem hann nýtir möguleika hvers hljóðfæris fyrir sig. Þannig er hinn vel þekkti Klar- ínettukonsert Mozarts rammaður inn með tveimur tuttugustu aldar tónverkum sem þó eru tónlist fyrri alda, hvort á sinn hátt. Að venju er hljómsveitin skipuð hljóðfæraleikurum sem flestir eru starfandi tónlistarmenn á Norð- urlandi, allt frá Sauðárkróki aust- ur til Vopnafjarðar. Einnig koma til leiks í þetta sinn tónlistarmenn frá Ísafirði, Reyðarfirði, Hvolsvelli og Reykja- vík. Sinfóníuhljómsveitin flytur nú fjórðu efnisskrána á áttunda starfsári sínu, en síðasta efnisskrá starfsársins verður flutt hinn 13. maí nk. í samvinnu við Kirkju- listaviku í Akureyrarkirkju. Tónleikarnir í Glerárkirkju eru undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar sem er aðalstjórn- andi hljómsveitarinnar. Miðasala verður við innganginn og er aðgangseyrir kr. 1.500 en frítt fyrir 20 ára og yngri. Tónlist tveggja alda á Akureyri Einar Jóhannesson ALMENNA bókafélagið, sem er sjálfstætt bókaforlag sem heyrir und- ir Eddu – miðlun og útgáfu, hefur tek- ið til starfa. Á útgáfulista forlagsins er að finna skáld- verk, ævisögur, fræðibækur og handbækur af ýmsu tagi. Al- menna bókafélag- ið hefur að leiðar- ljósi að stuðla að útgáfu á vönduð- um og traustum verkum, frum- sömdum sem þýddum, sem finna hljómgrunn hjá lesendum er kjósa að njóta viður- kenndra fagurbókmennta og að- gengilegra og fræðandi bóka um ólík svið mannlífsins, segir í frétt frá Eddu. Einnig segir: „Almenna bókafélag- ið stendur á gömlum merg. Það mark- aði djúp spor í bókaútgáfu á Íslandi á síðari hluta 20. aldar og gaf út bækur ýmissa helstu rithöfunda þjóðarinnar. Einnig stóð Almenna bókafélagið fyr- ir öflugri og metnaðarfullri útgáfu á þýddum verkum, jafnt skáldskap sem fræðiritum. Um miðjan tíunda ára- tuginn hallaði mjög undan fæti hjá Al- menna bókafélaginu og festi Vaka- Helgafell þá kaup á nafni félagsins og bókaklúbbum þess. Útgáfustarfsemi undir merkjum AB lá niðri frá þeim tíma og fram á árið 2000 er út kom bókin Þjóðsögur við þjóðveginn eftir Jón R. Hjálmarsson.“ Bjarni Þorsteinsson hefur verið ráðinn útgáfustjóri Almenna bóka- félagsins. Bjarni lauk cand.mag.-prófi í dönsku og hugvísindalegri upplýs- ingafræði frá Kaupmannahafnarhá- skóla og hefur undanfarinn áratug starfað við bókaútgáfu, framan af sem ritstjóri hjá Almenna bókafélaginu hf. en síðan sem aðalritstjóri hjá Vöku- Helgafelli. Almenna bókafélagið tekur til starfa Leggur áherslu á út- gáfu fagurbókmennta Bjarni Þorsteinsson DANSARINN Dirk Schaumbacher dansar hér nakinn í reipi á æfingu fyrir sýningu á verkinu Veislan. Verkið er sett á svið af dansflokki í Trafo-leikhúsinu í Búdapest. Reipdans AP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.