Morgunblaðið - 09.03.2001, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 09.03.2001, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 65 DAGBÓK Aldrei meira úrval af nýjum brúðarkjólum Allir fylgihlutir, undirföt o.fl. Ítölsk föt fyrir herra FATALEIGA GARÐABÆJAR sími 565 6680 Opið virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-14. Ný sending af drögtum frá tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680. STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake FISKAR Afmælisbarn dagsins: Þú ert hrókur alls fagnaðar, sem er gott að sínu leyti, en þú þarft að taka sjálfum þér tak og venja þig af vingulshætti. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Gættu þess að gaumgæfa smáatriðin ekki síður en þau stærri.Hlutir fara úrskeiðis ef einhver smáatriði eru óljós eða hafa ekki verið könnuð. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú ættir að ná takmarki þínu, þar sem þú leggur svo hart að þér. En mundu að kapp er bezt með forsjá og þú átt að forðast að stíga ofan á tærnar á einhverjum í leiðinni. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú hefur vanrækt heimili þitt og verður nú að brjóta í blað. Það er enginn sem getur bjargað þessum hlutum nema þú svo þú skalt bara hefjast handa tafarlaust. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Fylgztu vel með mataræðinu; borðaðu sem næst þeim mörk- um, sem þú þarft og hugaðu að samsetningu fæðunnar. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þér hefur láðst að fylgja mál- um þínum nægilega vel eftir og sýpur nú seyðið af því. Eina ráðið er að vinna betur í fram- tíðinni, því stríðinu er ekki lok- ið þótt ein orrusta tapist. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú verður fyrir alls konar áhrifum frá vinnufélögum þín- um, sem allir vilja fá þig á sitt band. Farðu varlega því ekki er sjálfgefið að aðrir hafi þína hagsmuni að leiðarljósi. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Það er eitt og annað sem svíf- ur í lausu lofti hjá þér svo þú þarft að ná betri tökum á hlut- unum. En þú þarft ekki að ör- vænta, því með þolinmæðinni hefst það. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Betur sjá augu en auga og það getur stundum verið nauðsyn- legt að ráðfæra sig við aðra til þess að sjá málin frá sem flest- um hliðum. Það sparar vinnu. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Láttu ekki darga þig í ein- hvern dilkinn í deilum sam- sarfsmanna þinna. Þær koma þér ekki við og þú óhreinkar þig bara á því að blanda þér í þessi leiðindamál. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Nú er rétti tíminn til að draga saman niðurstöður þeirra rannsókna sem þú hefur stundað. En gefðu þér góðan tíma því mikið ríður á að fram- setning þín sé ljós. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Láttu ekki aðra taka of mikið frá þér. Það er mikil kúnst að kunna að verja sjálfan sig fyr- ir annarra ásókn og nausðyn- legt til að halda heilsunni. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Gættu þess að orða gagnrýni þína þannig að hún sé upp- byggjandi og særi ekki að ástæðulausu. Það má vel koma réttum boðum áleiðis án þess. Árnað heilla HEILI mannsins er fljótur að búa til vanabrautir, sem eru eins og árfarvegir sem hugsunin rennur eftir. Þetta þekkja bæði bridsspilarar og skákmenn mæta vel –„teórían“ verður inngróin og erfitt getur reynst að bregða út af henni. Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ KDG ♥ Á654 ♦ 832 ♣ 973 Suður ♠ Á9743 ♥ 10 ♦ Á54 ♣ ÁK86 Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 spaði Pass 2 spaðar Pass 3 lauf Pass 4 spaðar Allir pass Útspil: Hjartadrottning. Hvernig á suður að spila? Allir spilarar hafa sína Þjórsá fyrir spil af þessum toga – það þarf að vinna úr laufinu og trompa það fjórða ef þörf er á. Ósjálfrátt verð- ur til eftirfarandi áætlun: Drepa á hjartaás, taka lauf- ás, spila einu sinni trompi og laufi að kóng. Ef ekkert óvænt gerist er þriðja lauf- inu spilað. Samningurinn er þá í húsi ef laufið fellur 3-3, en annars má trompa lauf í borði með hámanni. Oftast er það í lagi, en ekki þegar vestur liggur á eftir með tíuna fjórðu: Norður ♠ KDG ♥ Á654 ♦ 832 ♣ 973 Vestur Austur ♠ 10862 ♠ 5 ♥ DG9 ♥ K8732 ♦ K10 ♦ DG976 ♣ DG42 ♣ 105 Suður ♠ Á9743 ♥ 10 ♦ Á54 ♣ ÁK86 Þótt þessi spilamennska sé rökrétt og í sjálfu sér ekki slæm, er önnur betri til. En til að rata hana þarf að beina hugsuninni úr stórfljótinu yfir í vatnsminni á, og slíkt er ekki auðvelt: Hjarta er trompað í öðrum slag. Næst eru hliðarslagirnir teknir – ÁK í laufi og tígulás. Svo kemur spaði á kóng og hjarta stungið með níu. Aft- ur spaði á blindan og hjarta trompað í þriðja sinn, nú með ásnum. Tíu slagir með „öfugum blindum“. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Staðan kom upp á Cappelle la Grande skákmótinu í Frakklandi sem lauk fyrir skömmu. Joost Berkvens (2.383) hafði svart gegn Laurent Large (2.209). 20. ... Hxc3! 21. Rc6 Hvítur yrði manni undir eftir 21. Hxc3 Bxd4+ 22. Rxd4 Dxd4+ 21. ... Dc5+ 22. Kh1 Hxc1 23. Rxd8 Hxf1+ 24. Dxf1 Bxf3 25. gxf3 Dd5 og hvítur gafst upp enda á ridd- ari hans enga undan- komuleið. Seinni hluti Íslandsmóts skák- félaga hefst í kvöld, 9. mars, kl. 20:00 í húsa- kynnum Taflfélagsins Hellis, Þönglabakka 1. Staðan í efstu deild að fjórum umferðum loknum er þessi: 1. TR-a 24 vinningar af 42 mögulegum 2. Hell- ir-a 22½ 3. SA 21 v. 4. SH 16 v. 5. TR-b 15½ v. 6. Hellir-b 13 v. 7. TG 9 v. 8. TK 7 v. Þessari mestu skákhátíð íslenskra skák- manna verður fram haldið 10. mars og lýkur þá um kvöldið. Áhorfendur eru vel- komnir. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. 50 ÁRA afmæli. Guð-mundur Gunnars- son, framkvæmdastjóri Stiklu, verður fimmtugur sunnudaginn 11. mars n.k. Hann og eiginkona hans Guðrún Jónasdóttir taka á móti gestum kl. 17-20 á af- mælisdaginn í veislusalnum Turninum, Fjarðargötu 13- 15, Hafnarfirði." 100 ÁRA afmæli.Stefán Sigurðs- son kennari frá Reyðará, fyrrverandi skólastjóri í Reykholti, Biskupstungum, verður hundrað ára mið- vikudaginn 14. mars nk. Hann tekur á móti gestum á afmælisdaginn á heimili sínu að Hveramörk 4, Hvera- gerði. LJÓÐABROT Íslenzkt ástarljóð Litla fagra ljúfa vina, lífstrú mín er bundin þér. Sjáðu hvernig sólin brosir sigurglöð við mér og þér. Allt sem ég um ævi mína unnið hef í ljóði og tón verður hismi, ef hjartað, vina, hefur gleymt að elska Frón. Í augunum þínum unaðsbláu, augunum sem ljóma bezt, sé ég landið, litla vina, landið sem ég elska mest. Litla fagra ljúfa vina, landið fer að kalla á þig. Mundu þá að þú ert landið, og þá hefur þú elskað mig. Vilhjálmur frá Skáholti .... þú skalt elska hann og virða, í blíðu og stríðu, á fótboltaleiktíð- inni, á kappakst- ursvertíðinni og í gegn- um allt golfið. Og ef fáum þá rík- isstjórn sem við eigum skilið, þá skal ég hundur heita. Hey, mamma. Nú máttu fara og setja ástarbréfin í póstkassann. COSPER Með morgunkaffinu FRÉTTIR OPNUÐ hefur verið ný hár- og snyrtistofa á Laugavegi 39 og ber stofan heitið Fólk og fiðrildi. Eigandi er Lene A. Nilsen, norskur hár- greiðslu- og förðunarmeistari. Lene kom til Íslands fyrir einu ári og hefur unnið hér síðan. Á stofu sinni býður hún upp á alla þjónustu er viðkemur hári og förðun. Stofan er opin mánudaga til föstu- daga kl. 10–19, fimmtudaga kl. 10–21 og laugardaga kl. 10–18. MorgunblaðiðÁsdís Lene A. Nilsen á stofu sinni Fólk og fiðrildi. Hár- og snyrtistofa opnuð á Laugavegi ANNAÐ fræðsluerindið af þremur á vegum Félags eldri borgara í Reykjavík verður flutt laugardaginn 10. mars kl. 13.30. Svala Thorlacius hrl. talar um erfðamál, Elín Guðjónsdóttir, Sigrún Þórarinsdóttir og Sigrún Ingvars- dóttir, félagsráðgjafar hjá Félags- þjónustu Reykjavíkur, ræða um al- gengustu erfðamál sem berast félagsþjónustunni. Eftir flutning gefst tími til fyrirspurna og nánari skýringa. Fræðslufundurinn verður haldinn í Ásgarði, Glæsibæ, félagsheimili Félags eldri borgara, og hefst kl. 13.30. Aðgangseyrir er 300 kr. og er kaffi innifalið. Allir eru velkomnir. Rætt um erfðamál hjá eldri borgurum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.