Morgunblaðið - 09.03.2001, Blaðsíða 24
VIÐSKIPTI
24 FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
REKSTUR Sparisjóðs Reykjavíkur
og nágrennis gekk vel á síðasta ári
og nam hagnaður fyrir skatta
1.150,2 milljónum en 813,4 milljón-
um þegar tekið hefur verið tillit til
skatts.
Er þetta um 512 milljóna króna
meiri hagnaður en árið áður og
meiri hagnaður en áður hefur
þekkst hjá SPRON. Þess ber þó að
geta að bókfærður gengishagnaður
vegna helmings bréfa SPRON í
Kaupþingi nemur um 900 milljónum
króna en á móti vegur talsvert tap
af öðrum markaðsbréfum bankans.
Hinn helmingur bréfanna í Kaup-
þingi er færður á kaupverði í fjár-
festingarbók bankans.
Enn verulegur gengis-
hagnaður óinnleystur
Í tilkynningu SPRON til Verð-
bréfaþingsins segir að hefðbundin
starfsemi hafi gengið mjög vel og að
viðskiptavinum hafi fjölgað mikið.
„Það sem einkum skapar þann
mikla hagnað sem áður er getið er
gengishagnaður af hlutabréfaeign í
Kaupþingi en helmingur hlutabréfa-
eignar SPRON í félaginu hefur ver-
ið færður til markaðsvirðis. Á
SPRON því enn óinnleystan veru-
legan hagnað af þessari hlutabréfa-
eign.“
Heildartekjur SPRON hækkuðu
um 52,7% milli ára og voru 5.044,6
milljónir.
Hreinar vaxtatekjur hækkuðu um
23,9% á árinu og námu 1.111,3 millj-
ónum en voru 897,1 milljónir á
árinu 1999.
Útlán SPRON ásamt markaðs-
skuldabréfum námu 26.142,2 millj-
ónum. í árslok 2000 og höfðu þá
aukist um 3.838,3 milljónir eða um
17,2%. Heildarinnlán SPRON
ásamt lántöku námu í lok ársins
26.076,0 millj.kr., en þau jukust um
22,7% eða 4.819,7 millj.kr. Heildar-
innlán SPRON námu í árslok 2000
18.489,7 millj.kr., en voru í árslok
1999 16.987,7 millj.kr. Aukning inn-
lána nemur því um 1.502,0 millj.kr.,
eða um 8,8%. Lántaka í lok ársins
var 7.586,3 millj.kr., og hafði aukist
um 3.317,6 millj.kr. milli ára, eða
um 77,7%. Eiginfjárhlutfall SPRON
samkvæmt CAD-reglum var 10,0% í
árslok 2000. Hlutfallið árið áður var
10,6%, en lágmarkshlutfall sam-
kvæmt reglunum er 8,0%.
Guðmundur Hauksson, spari-
sjóðsstjóri, segir að uppgjörið end-
urspegli þokkalega afkomu spari-
sjóðsins. „Rekstur í öllum hefð-
bundnum greinum bankareksturs
gekk mjög vel í fyrra. Þetta er enn
eitt árið þar sem SPRON stækkar
mjög hratt, efnahagsreikningurinn
stækkar til að mynda um 25% á
milli áranna 1999 og 2000. Þessi
vöxtur hefur hins vegar verið á
mjög traustum grunni og við erum
mjög sáttir við það.“
Viðskiptavinum fjölgar
Guðmundur segir að vöxtinn
megi fyrst og fremst rekja til fjölg-
unar einstaklinga í viðskiptum og til
aukinnar þjónustu við þá og með-
alstór fyrirtæki. Þá hafi SPRON
verið að víkka út starfsemina, til
dæmis hafi veltukort SPRON verið
að koma mjög vel út. „Við höfum
einnig verið að færa okkur aðeins
meira yfir í verðbréfaþjónustu og
erum með eignastýringu fyrir okkar
viðskiptavini. Allir þessir nýju þætt-
ir hafa verið að koma mjög vel út.“
Guðmundur segir að hann hafi
fengið heimild stjórnar til þess
hugsanlega að selja þann helming
af bréfum í Kaupþingi sem nú hafi
verið færður til markaðsvirðis í
veltubók bankans, þ.e.a.s. ef viðun-
andi tilboð fæst en SPRON eigi
20,1% í Kaupþingi. Hinn hlutinn sé
færður á kaupvirði í fjárfestingar-
bók bankans. „Ég tek hins vegar
fram að það hefur ekki verið tekin
nein ákvörðun um að selja bréfin í
Kaupþingi þó ég hafi heimild til
þess. Við höfum staðið á bak við
Kaupþing mjög lengi og höfum átt
mikið og mjög gott samstarf við
félagið og tekið þátt í uppbyggingu
þess.“
Aðspurður um gengishagnað
vegna færslu bréfa Kaupþings í
veltubók segir Guðmundur að hann
hafi numið liðlega 900 milljónum
króna. Aftur á móti hafi SPRON,
eins og aðrir, fengið á sig skell
vegna hækkandi vaxta á skulda-
bréfum og lækkandi hlutabréfa-
verðs en bankinn sé með talsverða
stöðu í slíkum verðbréfum. „Fyrir
vikið urðum við fyrir umtalsverðu
gengistapi í verðbréfaeign og það
rýrir talsvert gengishagnaðinn af
bréfunum í Kaupþingi.
Aðspurður um hækkun launa og
launatengdra gjalda um 23% segir
Guðmundur að starfsmönnum hafi
fjölgað nokkuð og það sé megin-
skýringin. „Mikil gróska einkennir
okkar rekstur, jafnt í fyrra sem árið
á undan og það er mjög ánægjulegt
að geta haldið slíkum vexti á sama
tíma og afkoman er góð.“
Mikil aukn-
ing í umsvif-
um SPRON
# !
6
$%
4
7
9: ;<
! #
$!!
!$
!!
&' &'
!$#
$#!
%&
$*)%
)#)&
"(&
))*+
)%(
)$#
$**!$
)!&)
)%,#-
!
" #
" #
!
!$ !$%%
HRAÐFRYSTISTÖÐ Þórshafnar
hf. tapaði 364 milljónum króna á síð-
asta ári, sem er þrefalt tap ársins á
undan.
Við samanburð milli ára verður
þó að hafa í huga að félagið samein-
aðist Skála ehf. í lok mars í fyrra
undir nafni Hraðfrystistöðvar Þórs-
hafnar hf. og miðaðist sameiningin
við upphaf ársins.
Ársreikningurinn inniheldur því
sameinað félag allt árið 2000.
Í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að meginorsakir taps hafi ver-
ið óhagstæð gengisþróun, en geng-
istap nam rúmum 168 milljónum
króna, hækkun vaxta, hátt olíuverð
og slæm afkoma rækjuveiða á
Flæmingjagrunni.
Eigið fé Hraðfrystistöðvar Þórs-
hafnar er neikvætt um 30 milljónir
króna og hefur stjórn félagsins sam-
þykkt að nýta sér heimild frá síð-
asta aðalfundi þess til aukningar
hlutafjár um allt að 80 milljónir
króna að nafnverði.
Gert er ráð fyrir
rekstrarbata á þessu ári
Samkvæmt því sem fram kemur í
fréttatilkynningu frá félaginu hefur
þegar verið gripið til ráðstafana til
að bæta rekstur þess. Starfsmönn-
um í yfirstjórn og stoðdeildum hefur
fækkað og ákveðið hefur verið að
selja togarann Stakfell.
Þá var rekstri nótaveiðiskipsins
Neptúnusar hætt á árinu og er ætl-
unin að selja skipið.
Sérstök niðurfærsla að fjárhæð
167 milljónir króna var gerð í
rekstrarreikningi félagsins til að
færa bókfært verð niður í áætlað
söluverð. Samkvæmt fyrirliggjandi
áætlunum fyrir árið 2001 telur
félagið að gera megi ráð fyrir veru-
legum rekstrarbata á árinu, en þó
er reiknað með að félagið verði rek-
ið með halla.
Hluthöfum í Hraðfrystistöð Þórs-
hafnar fækkaði úr 262 í 200 á síð-
asta ári.
Í lok ársins átti Samherji hf.
stærstan hlut, 27,6%, Olíufélagið hf.
átti 12,9% og Sjóvá–Almennar hf.
10,5%.Félagið hefur óskað eftir því
við Verðbréfaþing Íslands hf. að
hlutabréf þess verði tekin af skrá
þingsins.
Í tilkynningu frá félaginu segir að
ástæða þessa sé meðal annars sú að
félagið uppfylli ekki lengur öll skil-
yrði til skráningar á aðallista og að
lítil viðskipti hafi verið með bréfin
síðustu misseri.
Hraðfrystistöð Þórshafnar með neikvætt eigið fé
# !
>& ' ( $)
?
8 '1
4 1
8
9<
!
$
"!#
"
!$
"
! &$
"!
$!
"!
"$
$
)%+*
(!%
$"&
%
'&+
)
##
**
&"&
$$%+
'"&
))+
!
" #
" #
" #
!
!$ !$%%
!
364 milljóna kr. tap
GENGI bréfa í spænska útgerðar-
og fiskvinnslufyrirtækinu Pescanova
hækkaði um hátt í helming á verð-
bréfamarkaðinum í Madrid í janúar
og febrúar í ár en Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna keypti 5% hlut í Pesc-
anova í mars og apríl í fyrra. Ljóst er
að SH hefur hagnast verulega á
kaupum í félaginu.
Gengishagnaðurinn mun meiri en
rekstrarhagnaður síðasta árs
Við lokun markaðarins í Madrid á
miðvikudag var gengi Pescanova
18,39 evrur á hlut en hæst fór gengið
í 22,4 evrur á hlut í lok febrúar. Að
sögn Gunnars Svavarssonar, fram-
kvæmdastjóra SH, er eignarhluti
SH í Pescanova bókfærður á kaup-
verði en kaupverðið var á bilinu 11,5
til 12 evrur.
Gengi Pescanova í kauphöllinni í
Madrid var 18,39 evrur á hlut við lok
markaðarins á miðvikudag og sé
miðað við að meðalkaupverð SH hafi
verið 11,75 nemur áætlaður gengis-
hagnaður SH af hlutabréfaeigninni í
Pescanova um 266 milljónum og
markaðsvirði eignarhlutarins er því
um 735 milljónir króna en er vænt-
anlega skráður á um það bil 470
milljónir í bókum SH. Til saman-
burðar má nefna að hagnaður Sölu-
miðstöðvarinnar eftir skatta fyrir
síðasta ár nam 152 milljónum króna
þannig að ófærður gengishagnaður
af bréfum SH í Pescanova er 75%
meiri en hagnaður alls ársins í fyrra.
Hugsað sem skammtímafjárfesting
Nú nýverið birti Pescanova upp-
gjör fyrir síðasta ár og jókst hagn-
aður félagsins um 75% milli ára og
nam 12,9 milljónum evra, jafngildi
ríflega eins milljarðs króna. Velta
Pescanova jókst um 57% á milli ára
og nam 57,8 milljörðum íslenskra
króna. Sérfræðingar segja að hækk-
un á gengi bréfa Pescanova stafi
fyrst og fremst af vaxandi eftirspurn
eftir fiski og fiskafurðum vegna
sjúkdóma sem upp hafi komið í kjöt-
framleiðslu.
Gunnar Svavarsson segir ljóst að
rekstur Pescanova hafi batnað mjög
mikið í fyrra og veltan aukist veru-
lega. Pescanova hafi síðan gefið út
jöfnunarbréf og þá hafi viðskipti með
bréfin aukist á markaði. Þegar hann
erspurður um hvort SH hyggist
halda eignarhluta sínum í Pescanova
segir Gunnar að bréfin hafi upphaf-
lega verið keypt sem skammtíma-
fjárfesting. Í sjálfu sér hafi sú stefna
ekki breyst af hálfu SH en aftur á
móti beri að nefna að hinir eigendur
Pescanova hafi verið mjög ánægðir
með að fá SH inn sem hluthafa.
Eignarhluti SH í spænska útgerðar-
og fiskvinnslufyrirtækinu Pescanova
Gengishagn-
aðurinn um
265 milljónir
HAGNAÐUR af rekstri Líftrygg-
ingafélags Íslands hf., Lífís, nam
58 milljónum króna á árinu 2000,
samanborið við 66 milljóna króna
hagnað árið 1999. Bókfærð iðgjöld
námu 425 milljónum króna, sem er
53,4% hækkun frá fyrra ári.
Eigin iðgjöld námu 378 millj-
ónum króna, sem er tæplega 57%
hækkun frá fyrra ári. Bókfærðar
líftryggingabætur hækkuðu veru-
lega á milli ára og námu 88 millj-
ónum króna á móti 45 milljónum
króna árið 1999. Eigin líftrygg-
ingabætur námu 74 milljónum
króna, sem er 57% hækkun frá
árinu 1999 þegar þær námu 47
milljónum króna.
Fjárfestingartekjur Lífís námu
93 milljónum króna á móti 95
milljónum króna á árinu 1999.
Heildareignir Lífís námu 1.347
milljónum króna í lok ársins 2000
á móti 1.178 milljónum króna í lok
árs 1999. Eigið fé í lok árs 2000
var 518 milljónir króna á móti 460
milljónum króna árið áður, sem er
12,6% hækkun á milli ára.
Í tilkynningu frá Lífís segir að
veruleg aukning hafi orðið í sölu
trygginga Lífís á árinu 2000, eink-
um sjúkdómatrygginga og söfnun-
arlíftrygginga. Greinilegt sé að
markaður fyrir líftryggingar og
tengdar tryggingar sé mun opnari
en var fyrir nokkrum árum.
„Áfram hefur verið góð aukning í
sölu trygginga og með hagstæðari
þróun bótagreiðslna ætti afkoma
þessa árs að geta orðið betri en
var á árinu 2000,“ segir í tilkynn-
ingunni.
Hagnaður
Lífís 58
milljónir
króna