Morgunblaðið - 09.03.2001, Page 28
ÞAÐ skína norðurljós á uppgang
nýja hagkerfisins í Evrópu.
Evrópa er að flestu leyti um eitt
eða tvö ár á eftir Bandaríkjunum.
Framleiðsla eykst ekki jafnhratt.
Frumkvöðlar láta ekki jafnmikið til
sín taka. Fjárfesting í hátækni er
enn ekki orðin jafnmikil og í Banda-
ríkjunum.
En í Evrópu eru menn nú stað-
ráðnari en nokkru sinni í að gera bet-
ur. Í Lissabon í fyrra hétu leiðtogar
ESB því að skapa kröftugasta þekk-
ingarefnahagslíf í heimi áður en ára-
tugur yrði liðinn. Þeir vilja fara fram
úr Bandaríkjunum. Eigi það að tak-
ast verða þeir að taka sér árangur
þeirra til fyrirmyndar.
Ekki leikur vafi á því að í Evrópu
er það löndunum í norðri sem geng-
ur best. Og á meðal þeirra skara Sví-
þjóð og Finnland fram úr, sem
leiðtogatvíeyki nýja hagkerfisins í
Evrópu. Það er ekki bara Ericsson
og Nokia, heldur einnig netnotkun,
farsímaútbreiðsla og almenn þekk-
ing sem gerir að verkum að þessi tvö
lönd skara fram úr. Hvers vegna
hafa þessi tvö lönd tekið forystuna?
Lykilinn er að finna í upphafi og um
miðbik tíunda áratugarins, þegar
erfiðleikar steðjuðu að í sænsku og
finnsku efnahagslífi. Í Svíþjóð
sprungu kaupsýslublöðrur „þriðju
leiðar“-stefnunnar frá níunda ára-
tugnum, og í Finnlandi hrundu við-
skiptin við Sovétríkin.
Nauðsynlegt reyndist að hugsa
efnahagsstefnuna upp á nýtt alveg
frá rótum. Það varð einnig greinileg
stefnubreyting. Árið 1992 ákvað Sví-
þjóð og síðan Finnland að auka frels-
ið á símamarkaðnum meira en nokk-
urn tíma hafði verið reynt nokkurs
staðar í Evrópu. Einu ári eftir að
stafrænu GSM-símarnir komu fram
(þeir sem virka í hnattrænu fjar-
skiptakerfi), sköpuðu þeir heimsins
opnasta samkeppnismarkað á sviði
háþróaðrar samskiptatækni.
Þetta skipti sköpum fyrir framtíð-
ina. Önnur lönd fóru sér hægar við
afnám reglugerða og þróuðust hæg-
ar. Um leið gengu Svíþjóð og Finn-
land í Evrópusambandið. Áratuga
andleg einangrun þokaði fyrir þeim
nýju möguleikum sem fylgdu póli-
tískum og efnahagslegum samruna
við Evrópu. Og allt fór þetta saman
með stöðugri eflingu Netsins og nýju
fjarskiptabyltingarinnar.
Þessir þrír þættir réðu úrslitum,
þótt síðari skref væru einnig mik-
ilvæg. Til dæmis var reynt að gera
einkatölvueign almenna. En það var
samspil atburða og aðgerða í upphafi
og um miðbik tíunda áratugarins
sem gerðu að verkum að Svíþjóð og
Finnland skáru sig úr. Engin önnur
ríki í Vestur-Evrópu þurftu að
breytast jafnmikið á tíunda áratugn-
um. Og opnari huga fylgdu ný tæki-
færi. Saman skera þau sig úr, en það
er þó mikill munur á.
Skattbyrðin í Finnlandi er nokkuð
fyrir ofan meðaltalið í ESB, en Svíar
eru fremstir í heiminum hvað skatt-
byrði varðar, og fara 52% í skatt. Það
blasir við hver niðurstaðan er. Hag-
vöxtur í Finnlandi á seinni hluta tí-
unda áratugarins var næstum því
tveim prósentum meiri en í Svíþjóð.
Lexíurnar fyrir framtíðina eru því
augljósar. Skapa þarf opna markaði
þar sem samkeppni er mikil, sam-
þætta yfir gömul ríkjalandamæri,
gera grein fyrir því hvaða hagur
fylgir breytingum og nýrri tækni,
koma á skattakerfi sem ýtir undir
frumkvæði og fjárfesta í menntun,
því það er framtíðin sem skilar
manni fram á veg.
Þetta eru þær lexíur sem Norð-
urlöndin geta kennt þeim sem vilja
ná árangri í nýja hagkerfinu í fram-
tíðinni.
Nýja hagkerfið kemur
til Evrópu að norðan
© European Viewpoint.
Carl Bildt var forsætisráðherra Sví-
þjóðar 1991–1994 og er sérlegur
sendifulltrúi Kofis Annans, fram-
kvæmdastjóra SÞ, í fyrrverandi
Júgóslavíu.
Aukið frelsi, opinn
markaður og inn-
gangan í Evrópusam-
bandið urðu til að
rjúfa áratuga langa
andlega einangrun.
eftir Carl Bildt
Reuters
Auglýsing frá finnska fyrirtækinu Nokia á fjarskiptasýningu í Kína.
ERLENT
28 FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÍRSKI lýðveldisherinn, IRA, hóf í
gær viðræður að nýju við afvopnunar-
nefnd Norður-Írlands og forsætisráð-
herrar Bretlands og Írlands komu
saman til að freista þess að bjarga
friðarsamningnum frá 1998.
IRA gaf út yfirlýsingu um að við-
ræðurnar yrðu hafnar að nýju en tók
fram að breska stjórnin yrði að
standa við skuldbindingar sínar í frið-
arsamningnum með því að koma lög-
gæslumálum Norður-Írlands í viðun-
andi horf, eyðileggja varðturna
breska hersins og fækka breskum
hermönnum í héraðinu.
Írski lýðveldisherinn sleit afvopn-
unarviðræðunum í sumar og sakaði
þá bresku stjórnina um að hafa svikið
loforð um að stofna lögreglusveitir,
sem kaþólikkar gætu sætt sig við, og
draga úr viðbúnaði hersins.
Talsmaður afvopnunarnefndarinn-
ar staðfestu að viðræðurnar væru
hafnar.
Blair og Ahern reyna að
bjarga heimastjórninni
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, og Bertie Ahern, forsætis-
ráðherra Írlands, ræddu við norður-
írska stjórnmálamenn í Hillsborough-
kastala, nálægt Belfast, til að reyna
að bjarga friðarsamningnum og
tryggja að heimastjórn flokka mót-
mælenda og kaþólikka héldi velli.
Sinn Fein, stjórnmálaflokkur Írska
lýðveldishersins, sagði að yfirlýsing
IRA skapaði „svigrúm“ til að leysa
deilurnar um afvopnun skæruliða-
hreyfingarinnar.
Stærsti flokkur mótmælenda,
UUP, tók hins vegar yfirlýsingu IRA
fálega og sagði að hún nægði ekki til
að draga úr spennunni milli flokka
mótmælenda og kaþólikka.
UUP hefur hótað að ganga úr
heimastjórn Norður-Írlands nema
IRA afhendi öll vopn sín og virði öll
önnur ákvæði friðarsamningsins.
Reynt að bjarga friðarsamningnum á Norður-Írlandi
IRA fellst á viðræður við
afvopnunarnefndina
Reuters
Tony Blair og Bertie Ahern heilsast fyrir viðræður sínar í Hillsbor-
ough-kastala á Norður-Írlandi í gær.
Belfast. Reuters.
HAFT var eftir Vojislav Kostunica
Júgóslavíuforseta í gær að tengsl
sambandsríkisins við Atlantshafs-
bandalagið hefðu þróast svo hratt að
hann útilokaði ekki að Júgóslavía
yrði aðili að frið-
arsamstarfi
NATO, Partner-
ship for Peace.
Júgóslavneski
forsetinn sagði í
viðtali við breska
dagblaðið The
Times að stjórn-
völd í Belgrad
hefðu snúið við
blaðinu í sam-
skiptunum við NATO, tæpum tveim
árum eftir að bandalagið gerði loft-
árásir á Júgóslavíu vegna átakanna í
Kosovo.
Úrlausnarefnin erfiðari
en hann bjóst við
Kostunica viðurkenndi að vanda-
málin, sem hann hefði þurft að takast
á við, væru miklu erfiðari úrlausnar
en hann hefði búist við þegar hann
sigraði Slobodan Milosevic í forseta-
kosningunum í sepember. Hann
nefndi árásir albanskra skæruliða í
Suður-Serbíu, hótanir Svartfellinga
um að ganga úr sambandsríkinu, auk
fjölmargra efnahagslegra og félags-
legra vandamála, m.a. 40% atvinnu-
leysi og 800.000 flóttamenn.
Við þetta bætist tjónið af völdum
árása NATO sem talið er nema and-
virði 2.600 milljarða króna.
Kostunica sagði að velvilji NATO í
garð nýju stjórnarinnar í Júgóslavíu
væri eitt af því sem honum hefði
komið mest á óvart. Hann sagði að til
greina kæmi að Júgóslavía semdi um
aðild að friðarsamstarfi NATO.
„Friðarsamstarfið er ekki meðal for-
gangsmála okkar, en við útilokum
það ekki og höfum rætt það.“
NATO kom samstarfinu á til að
styrkja tengslin við fyrrverandi
kommúnistaríki í Evrópu en því
fylgir ekki full aðild að bandalaginu.
Kostunica ánægður með tengslin við
Atlantshafsbandalagið
Útilokar ekki
aðild að friðar-
samstarfi NATO
London. Reuters.
Vojislav
Kostunica
JAPANSKIR jarðfræðingar vara
við því að Machu-Picchu, fjallaborg-
in sem fornþjóðin Inkar reisti í yfir
2.500 metra hæð yfir sjávarmáli í
Andesfjöllunum, eigi á hættu að
verða eyðileggingu að bráð vegna
skriðufalla. Javier Lambarri, yf-
irmaður menningarstofnunar í
Cuszco, borgar sem er í 80 km fjar-
lægð frá Machu-Picchu, hafnaði því
hins vegar í gær að slíkt ætti við rök
að styðjast. „Skriðuföll eru vanda-
mál á sumum svæðum, sem er eðli-
legt. Þau verða ár hvert þegar mikið
rignir. Við vitum að það er misgengi
sem liggur þvert á borgina og gæti
valdið vandræðum,“ sagði Lambarri
en bætti við að ekkert benti til þess
að um bráða hættu væri að ræða nú.
Veldi Inka hrundi til grunna á 16.
öld þegar Spánverjar lögðu ríki
þeirra undir sig. Rústir Machu-Machu-Picchu, fjallaborgin sem Inkar reistu í Andesfjöllum. Fornleifafræðingur fann rústir hennar árið 1911.
Machu-Picchu í
bráðri hættu?
Lima, París. AP, AFP.
Picchu voru enduruppgötvaðar af
fornleifafræðingi 1911. Þær eru í
ótrúlega góðu ásigkomulagi og eru
helsta aðdráttarafl ferðamanna í
Perú. Rústirnar voru lýstar heims-
menningarverðmæti af Menningar-
málastofnun Sameinuðu þjóðanna
1983.
Í grein sem birtast mun í breska
vikuritinu New Scientist á morgun
kemur fram að niðurstöður mæl-
inga fræðimanna við Kyoto-háskól-
ann í Japan sýni fram á að aftari
hluti hæðarinnar sem rústirnar
standa á færist til um 1 cm á mán-
uði. „Þetta er mikill hraði og þetta
er undanfari skriðuhlaups,“ segir
Kyoji Sassa, fræðimaður við Kyoto-
háskólann. „Það er ekki mögulegt
að segja til um hvenær jarðhrunið
verður. Seinni hluti rannsóknar
okkar mun beinast að því.“