Morgunblaðið - 09.03.2001, Page 39

Morgunblaðið - 09.03.2001, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 39 LAUNATEKJUR fyrir um204 milljarða króna verðaforskráðar á skattframtaleinstaklinga, en þessa dag- ana er verið að ljúka dreifingu á því. Á skattframtalinu verður að finna upplýsingar um laun frá um 300 launagreiðendum, upplýsingar um bætur og lífeyri, upplýsingar um fasteignir og verðmæti þeirra, upp- lýsingar um námsskuldir og upplýs- ingar um ökutæki. Indriði H. Þorláksson ríkisskatt- stjóri sagði á blaðamannafundi í gær að Ísland væri í fremstu röð þjóða í rafrænum skattskilum. Árið 1999 skiluðu um 20 þúsund framteljendur framtali í gegnum Netið. Í fyrra bár- ust skattyfirvöldum um 70 þúsund framtöl með þessum hætti, um 40 þúsund frá einstaklingum og 30 þús- und frá endurskoðendum og bókur- um. Indriði kvaðst vonast eftir að í ár skiluðu 100 þúsund framteljendur framtali á Netinu sem er yfir 50% allra framtala. Hann sagðist ekki vita um neitt land í heiminum sem væri komið lengra á þessari braut. Ekki hægt að fá fram- lengdan frest nema með rafrænum skilum Skilafrestur framtala hefur yfir- leitt verið 10. febrúar, en er nú seinna á ferðinni. Indriði sagði að ástæðan væri sú að skattyfirvöld hefðu lagt áherslu á að fá sem mestar upplýs- ingar til að forskrá á framtölin og undirbúa vel þær breytingar sem verið væri að gera. Einnig væru mjög stór hluti af þessum forskráðu upp- lýsingum ekki tiltækur fyrr en aðeins væri liðið á árið. Í framtíðinni yrði skilafrestur skattframtala því í mars eða apríl. Það myndi hins vegar ekki hafa áhrif á álagningu, en henni yrði lokið í lok júlí líkt og verið hefði. Almennur skilafrestur framtelj- enda sem skila skriflegu framtali er 26. mars. Að þessu sinni geta þeir sem skila skriflegu framtali ekki fengið framlengingu á skilafresti, en tekið verður tillit til óviðráðanlegra ástæðna. Þeir sem hyggjast skila framtali á Netinu fá frest til 2. apríl og geta þeir sótt um lengri frest. Skilafrestur lögaðila er 31. maí. Upplýsingar um laun, bætur, fasteignir, bíla og náms- skuldir forskráðar Í fyrra voru tekin nokkur skref í forskráningu á framtölin. Þá voru færðar inn bætur og lífeyrir frá um 67 þúsund framteljendum, samtals um 42 milljarðar. Allar tekjur um 25 þúsund einstaklinga voru forskráðar. Að þessu sinni bætast við upplýs- ingar um laun frá um 300 launagreið- endum, en þeir greiddu á síðasta ári samtals 152 milljarða í laun. Þetta eru 56% þeirra launa sem talin voru fram til skatts á síðasta framtali. Skattyfirvöld óskuðu eftir upplýsing- um um laun frá 100 stærstu fyrir- tækjum landsins og sagði Indriði að þau hefðu flest skilað þeim. Nokkur fyrirtæki hefðu ekki getað skilað af tæknilegum ástæðum, t.d. vegna breytinga á tölvukerfum. Samtals eru forskráð að þessu sinni 204 millj- arða launatekjur, en auk hreinna launa er þar átt við upplýsingar um bætur frá Tryggingastofnun, lífeyr- issjóðum, bílastyrki og fleira. Á framtalinu er einnig að finna upplýsingar um 108 þúsund fasteign- ir, en verðmæti þeirra er samtals 777 milljarðar. Ekki eru forskráðar upplýsingar um fasteignir frá þeim sem eru í atvinnurekstri og sagðist Indriði gera ráð fyrir að þegar framteljendur hefðu gert grein fyr- ir þeim yrði verðmæti fasteigna komið yfir 900 milljarða. Auk þess verða námslánaskuldir um 30 þúsund lánþega forskráðar. Þá er á framtalinu að finna upplýs- ingar um 115 þúsund ökutæki, en framteljendur verða sjálfir að skrá verðmæti þeirra. Indriði sagði að skattayfirvöld hefðu lagt mikla áherslu á að fá réttar upplýsingar frá launagreið- endum og öðrum sem veita skatt- inum upplýsingar. Gerðar hefðu verið nákvæmar prófanir til að reyna að tryggja gæði upplýsing- anna. Ef framteljendur teldu að forskráðar upplýsingar væru rang- ar ættu þeir að leiðrétta þær. Upplýsingar um íbúðalán forskráðar að ári Indriði sagði að skattyfirvöld myndu halda áfram að forskrá meira af upplýsingum. Næstu skref yrðu þau að fá fleiri launagreið- endur til að skila upplýsingum til skattyfirvalda. Öruggt væri að á næsta ári myndu upplýsingar frá Íbúðalánasjóði verða forskráðar og stefnt væri að því að fá einnig upp- lýsingar á skattframtalið um íbú- ðalán frá lífeyrissjóðum og fjármálastofnunum. Hann sagði mikinn ávinning af þessu vegna þess að lánaupplýsingar, sem kall- að væri eftir vegna greiðslu vaxta- bóta, væru meðal flóknustu upplýs- inga sem hinn almenni framteljandi þyrfti að standa skil á. Indriði sagði einnig áformað að eftir eitt ár yrði að finna á framtalinu upplýsingar um verð ökutækja og um arð og söluhagnað. Indriði sagði að verulegt hagræði væri af forskráningu. Þetta kallaði að vísu á meiri forvinnu, en fram- talið yrði einfaldara fyrir framtelj- endur og eins fælist í þessu nokkur vinnusparnaður fyrir skattyfirvöld. Indriði sagði að rafræn skattskil væru einnig stöðugt að aukast. Nú skiluðu um 85% lögaðila framtölum á rafrænu formi. Lögaðilar gætu núna einnig skilað ársreikningum á rafrænu formi. Unnið væri að stöðluðu framtali í rafrænu formi fyrir einstaklinga í rekstri. Enn- fremur væri unnið að því að gera aðilum kleift að skila virðisauka- skattsskýrslu á rafrænu formi. Stefnt væri að því að slík skil yrðu möguleg 15. apríl nk.. Ef það tækist ekki yrði opnað fyrir þennan mögu- leika í júní. Í kjölfarið yrði boðið upp á þann möguleika að skila stað- greiðslu og tryggingagjaldi á raf- rænu formi. Hægt að reikna út skattinn á Netinu Meðal nýjunga á skattframtalinu að þessu sinni er að framteljendur sem telja fram á Netinu geta látið reikna út hvað þeir þurfa að greiða mikið í skatt á árinu. Sé þetta gert kemur fram hvort viðkomandi á rétt á endurgreiðslum frá skattin- um eða hvort viðkomandi þarf að greiða meiri skatt og þá hvenær. Sá fyrirvari er þó á að ekki er tekið til- lit til þess hvort viðkomandi skuld- ar t.d. barnsmeðlög eða bifreiða- gjöld, en skuldajafnað er vegna slíkra skulda. Indriði sagði að eitt af því sem ávinnist með rafrænum skattskil- um væri minni pappírsnotkun. Þetta væri að nokkru leyti þegar komið fram, en á næsta ári ætti að nást mun meiri pappírssparnaður. Hann sagði að þeir sem skiluðu á Netinu yrðu spurðir að því hvort þeir vildu fá sent heim skriflegt skattframtal að ári. Indriði sagðist vilja hvetja sem flesta til að afþakka pappírsgögn fyrir næsta ár. Indriði sagðist einnig vilja hvetja sem flesta til að skila skattframtali á Netinu. Af því væri margvíslegt hagræði fyrir framteljendur ekki síður en skattyfirvöld. Mun minni líkur væru á mistökum. Öll sam- lagning gerðist sjálfkrafa. Ef fram- teljandi gerði mistök fengi hann strax að vita um það og með því að ýta á sérstakan villuhnapp væri hægt að kalla fram ábendingar um reiti sem viðkomandi ætti að skoða sérstaklega áður en hann sendi framtalið. Fram kom á blaða- mannafundinum að á síðasta ári hefðu skattafyrirvöld þurft að leið- rétta nokkur þúsund framtöl vegna þess að framteljendur gleymdu að fylla út reit um frádrátt vegna líf- eyrisiðgjalds. Slík mistök er ekki hægt að gera á Netinu. Ísland er í fremstu röð í rafrænum skattskilum Um 204 milljarða tekjur forskráðar á framtalið ' ( )*$ +) ( )*$         !  ()* ' *$ +) ( )*$   ' *$ +) ( )*$   ' *$ +) ( )*$(   '*$ +* ,- '*$ ,(- **,(). %/0 110 / 0 $0  ' -(*.,(*,/ * /0 */, ,( 1,/*22" 3( )/*/  *,*0,   & ' $!  / ' *$ +) ( )*$   ' *$ +) ( )*$   ' *$ +) ( )*$(   '*$+* ,- ' ( )*$ ,(- ** 0 . $'0 $0 %10 %0 ' -(* 04 5*.6 -/ (    2         ! (  * (45    3 Frestur til að skila skattframtali rennur út 26. mars, en þeir sem skila á Netinu hafa frest til 2. apríl. Ríkisskatt- stjóri vonast eftir að helmingi af öllum fram- tölum verði skilað rafrænt í ár. Morgunblaðið/Jim Smart Indriði H. Þorláksson ríkis- skattstjóri (t.v.) kynnti fram- talið á blaðamannafundi. Með honum á myndinni er Harald- ur Hansson. sömu takmarkanir um aðgang að gögn- varða mikilvæga fjárhags- og viðskipta- muni fyrirtækja og annarra lögaðila og gnum um einka- eða fjárhagsmálefni ein- nga, sbr. 5. gr. upplýsingalaga nr. 50/ ð vísan til framanritaðs munu félögin verða við kröfum um framlagningu um- ra ársreikninga, nema að undangengn- skurði.“ hálfu ákærðu er á það bent að BM Vallá a fyrirtæki sinnar tegundar hér á landi, yrirtæki með samsetta starfsemi frá því ra hefðbundin steypustöð yfir í mjög um- mikla og þróaða framleiðslu á öðrum m í steinefnaiðnaði, s.s. á steinum, m, þakskífum, einingum o.s.frv. Keppi- rnir hafi sóst mjög eftir því að reyna að ig á innri tekjuskiptinu félagsins, hvað i til hefðbundinni framleiðslu og hvað ri nýju, sérstöku vöruþróun og það hafi iljað verja. Hafi þeir litið svo á að þetta a einkahlutafélag væri þess eðlis að þeir lögvarða einkaréttarhagsmuni að verja hefðu þeir neitað að afhenda ársreikn- a. Þá halda ákærðu því fram að reglu- r þær sem ákæruvaldið byggir á í málinu ærðar eru í ákærunni hafi ekki stoð í lög- Niðurstaða g um ársreikninga nr. 144,1994 taka til a ákærðu, sbr. 1. gr. laganna. Í VIII. þeirra eru allítarleg ákvæði um „félaga- Samkvæmt 1. mgr. 69. gr. laganna er um sem lögin taka til gert skylt að senda askrá“ ársreikninga ásamt skýrslu ar, áritun endurskoðanda eða skoðunar- a og upplýsingum um það hvenær árs- ngurinn var samþykktur. Í 2. mgr. 1. gr. na er „félagaskrá“ skilgreind sem hver ofnun sem „með lögum“ er fengið það erk að skrásetja félög og afla og geyma um stofnun félaga og starfsemi þeirra. er í 1. mgr. 89. gr. laganna sagt að ráð- geti sett reglugerð um framkvæmd lag- þar á meðal um uppsetningu ársreikn- og samstæðureikninga, óstyttra og ndreginna, svo og um skil á þeim og birt- þeirra. thugasemdum við lagafrumvarpið segir vo: „Samkvæmt 4. tilskipun [Ráðs Evr- andalaganna] skal í hverju ríki vera un sem taka skal við ársreikningum a og hafa með höndum eftirlit með því að ði laganna um gerð og birtingu ársreikn- éu virt. Hér á landi er starfrækt hluta- askrá samkvæmt hlutafélagalögum og nnufélagaskrá samkvæmt samvinnu- alögum. Hlutverk þeirra hefur einkum að safna saman og geyma upplýsingar ofnun félaga og starfsemi þeirra, svo og ka við ársreikningum stærri félaga og geyma þá. Sambærilegar stofnanir, sem taka til landsins alls, eru ekki til vegna annarra félagaforma. Önnur félög skulu tilkynna um stofnun og starfsemi sína til firmaskrár sem skal vera í öllum lögsagnarumdæmum lands- ins og skulu sýslumenn halda slíkar skrár. Þeim félögum er að gildandi lögum óskylt að leggja fram ársreikninga sína en samkvæmt þessu frumvarpi, sem m.a. byggist á ákvæðum 4. tilskipunar, verða þau skyld til að leggja árs- reikningana fram. Að áliti nefndarinnar er heppilegra að allt eftirlit með ársreikningum verði á hendi sömu stofnunar, m.a. til að sam- ræmis verði gætt. Þetta kann að kalla á breyt- ingar á löggjöf um félagaskrár.“ Lög um ársreikninga tóku gildi 1. janúar 1995 en sérstök stofnun með það hlutverk að skrásetja félög og afla og geyma gögn um stofnun þeirra og starfsemi var ekki sett á laggirnar og ekki voru sett lög um það hvaða stofnun skyldi hafa það hlutverk að skrásetja félög og afla og geyma gögn um stofnun félaga og starfsemi þeirra. Í reglugerð frá 1. mars, nr. 134,1996 um skil og birtingu ársreikninga sem byggð er á lögum um ársreikninga segir í 1. gr. að á árunum 1996 og 1997 skuli Rík- isskattstjóri annast þau störf félagaskrár sem „varða móttöku, geymslu og birtingu ársreikn- inga“ og í 3. og 8. gr. reglugerðarinnar segir að ársreikning ásamt skýrslu stjórnar, áritun endurskoðanda eða skoðunarmanna og upp- lýsingum um það hvenær ársreikningurinn var samþykktur skuli senda Ríkisskattstjóra. Í 13. gr. segir að brot gegn ákvæðum reglu- gerðarinnar skuli varða sektum samkvæmt 83. gr. laganna um ársreikninga. Loks segir í reglugerð frá 18. desember, nr. 801,1998 um skil og birtingu ársreikninga sem byggð er á lögum um ársreikninga segir í 1. gr. að á ár- unum 1996 og 1997 skuli „ársreikningaskrá“ annast þau störf félagaskrár sem „varða mót- töku, geymslu og birtingu ársreikninga“ og í 3. og 8. gr. reglugerðarinnar segir að ársreikning ásamt skýrslu stjórnar, áritun endurskoðanda eða skoðunarmanna og upplýsingum um það hvenær ársreikningurinn var samþykktur skuli senda ársreikningaskrá. Í 13. gr. segir að brot gegn ákvæðum reglugerðarinnar skuli varða sektum samkvæmt 83. gr. laganna um ársreikninga. Dómurinn álítur að í þeim athugasemdum með lagafrumvarpinu sem vitnað var til komi fram sú ætlun löggjafans að sérstök félaga- skrá, sem hefði með höndum allt eftirlit með ársreikningum félaga í landinu, yrði sett á fót með lögum sem Alþingi setti. Verður og að skilja orðasambandið „með lögum“ í 2. mgr. 1. gr. laganna þannig. Í 1. mgr. 84. gr. laga um ársreikninga segir ennfremur skýrum orðum að stjórnarmenn eða framkvæmdastjóri félags skv. 1. gr. laganna gerist sekir um refsivert brot gegn lögunum ef þeir brjóti í bága við fyr- irmæli VIII. kafla laganna og er það sú refsi- heimild sem hér skiptir máli. Félagaskrá í skilningi 1. gr. og þessa kafla laganna var ekki sett á stofn með lögum og það er álit dómsins að þrátt fyrir heimild ráðherra í 89. gr. laganna til þess að setja reglugerð um framkvæmd þeirra nái sú heimild ekki til þess að skipa þessu atriði með reglugerð, eins og gert var með reglugerðunum frá 1996 og 1998. Gat því ekki orðið um neitt brot af hálfu ákærðu að ræða þótt þeir skiluðu ekki ársreikningunum og skýrslum stjórnar, áritunum endurskoð- enda ásamt upplýsingum um hvenær árs- reikningar voru samþykktir. Samkvæmt því ber að sýkna ákærðu af ákærunni í málinu og leggja allan sakarkostnað á ríkissjóð, þar með talin málsvarnarlaun til Jóns Finnssonar hrl., 75.000 krónur. Dómsorð Ákærðu, Guðmundur Benediktsson, Magn- ús Benediktsson, Víglundur Þorsteinsson, B.M. Vallá ehf., og Vikurvörur ehf., eru sýknir af ákærunni í máli þessu. Sakarkostnaður allur, þar með talin mál- svarnarlaun til Jóns Finnssonar hrl., 75.000 krónur, greiðist úr ríkissjóði. Pétur Guðgeirsson.“ sreikningum B.M. Vallár og Vikurvara kki að reikn- m ahlutafélaga var ekki r og var forráðamönn- reikningum hafði verið höfðu ekki sætt að- . asemdum með frumvarpi um lög um kninga frá 1994 komi fram sú ætlan fans að sérstök félagaskrá, sem hefði öndum allt eftirlit með ársreikningum í landinu, skuli sett á fót með lögum þingi setji. Slík félagaskrá hafi ekki ett á stofn með lögum. „Fjármála- ra hafði því ekki lagaheimild til að st þessara upplýsinga,“ segir Víg- lundur. „Við töldum að með því að krefjast þessara upplýsinga væri verið að skerða rétt okkar sem einstaklinga og vildum láta á það reyna hvort við yrðum að þola slík afskipti.“ Snýst um túlkun á heimild stjórnvalda Jón Finnsson, hæstaréttarlögmaður og verj- andi ákærðu í málinu, sagði það álit dómsins lykilatriði að þrátt fyrir heimild ráðherra til að setja reglugerð um framkvæmd við félagaskrá næði hún ekki til þess að skipa þessum atriðum með reglugerð. „Ársreikningaskrá, sem þeir fóru að kalla svo, er ekki lögbundin og það er ekki lögbundin skylda hjá ríkisskattstjóra að taka við ársreikningum eins og ákveðið var með reglugerðunum,“ segir Jón. „Niðurstaðan varð sú hjá dómnum að ekkert saknæmt atferli hefði verið framið. Málið snýst að nokkru leyti um túlkanir á heimild stjórnvalda, að þau fari ekki út fyrir embættismörk sín.“ dómsniðurstöðuna erið að t okkar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.