Morgunblaðið - 09.03.2001, Qupperneq 55
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 55
✝ Svava Árnadótt-ir fæddist í
Keflavík hinn 11.
júní 1913. Foreldr-
ar hennar voru
Árni Vigfús Magn-
ússon bátasmiður í
Veghúsum í Kefla-
vík, f. 27. júlí 1884
á Minna-Knarrar-
nesi, Vatnsleysu-
strandarhreppi, d.
7. maí 1959 í Kefla-
vík, og kona hans
Bjarnhildur Helga
Halldórsdóttir, f.
25. ágúst 1885 á
Vatnsnesi í Keflavík, d. 29. mars
1950 í Keflavík.
Systkini Svövu eru: Sigríður,
f. 19.1. 1907, d. 18.5. 1929, maki
Jóhann Bergmann, f. 18.11.
16.12. 1986; Páll, f. 31.5. 1924, d.
4.5. 1999, maki Dóróthea Frið-
riksdóttir, f. 15.12. 1921, og Guð-
mundur, f. 23.10. 1927, d. 30.11.
sama ár. Systkinin hafa öll verið
búsett í Keflavík nema Pálína,
sem bjó í Hafnarfirði.
Svava giftist hinn 29. júní
1935 Sigurbirni Líndal Guðna-
syni, bifreiðarstjóra í Keflavík.
Foreldrar Sigurbjörns voru
Guðni Jónsson vegagerðarmaður
í Keflavík og kona hans, Sig-
urbjörg Jónsdóttir. Sigurbjörn
var fæddur í Keflavík hinn 6.
okt. 1913 og lést 1. des. 1976.
Svava og Sigurbjörn bjuggu all-
an sinn búskap í Keflavík, lengst
af á Faxabraut 9.
Börn þeirra eru Sigríður Þor-
björg, f. 23. júlí 1934, d. 17. nóv.
1958, og Guðni, f. 29. júlí 1948,
rafvirki í Keflavík. Svava lést á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
hinn 27. febrúar síðastliðinn.
Útför hennar verður gerð frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst
klukkan 14.00.
1906, d. 4.2. 1996;
Pálína Þorbjörg, f.
20.1. 1910, d. 5.9.
1972, maki Pétur
Hallbergur Péturs-
son, f. 19.11. 1908, d.
24.2. 1960, þau
bjuggu í Hafnarfirði;
Halldóra, f. 13.10.
1914, maki Jóhann
Bergmann, sem áður
var kvæntur elstu
systurinni, Sigríði;
Magnea, f. 4.11.
1917, d. 18.2. 1997,
maki Davíð Gíslason,
f. 6.7. 1911, d. 18.9.
1978, Árni Bjarnmundur, f. 4.5.
1919, d. 11.1. 1972, maki Þuríður
Halldórsdóttir, f. 29.5. 1920;
Guðrún, f. 5.10. 1922, maki Lár-
us Eiðsson, f. 29.8. 1918, d.
Elsku Svava mín, nú hefur þú
kvatt þennan heim og ert komin á
annað tilverustig þar sem ég
treysti að tekið hafi verið vel á
móti þér þar sem Jesú Kristur leið-
ir börn sín í sólarljós hins eilífa
morguns og sameinar ástvini.
Fyrsta minningin sem kemur
upp í hugann þegar ég hugsa um
þig er sú stund þegar við hittumst í
kaupfélaginu á Faxabrautinni þar
sem ég var lítil telpa að versla inn
og þú í sömu erindagjörðum og
með ánægju bauðst ég til að bera
pokana fyrir þig heim og alltaf
gafstu mér aur fyrir, svona fyrir
pínunammi eða til að komast í bíó.
Það var alltaf ánægjulegt að
koma í heimsókn til þín og svo var
það bónus þegar Guðni sonur þinn
var heima. Við ræddum um heima
og geima og alltaf varstu vel með
nótunum hvað var að gerast í
kringum mig og töluðum við mikið
um fjölskylduna, vinkonur mínar
og íþróttir.
Við áttum það sameiginlegt að
vera mjög smávaxnar og fannst
mér frábært hvernig þú leystir þau
vandamál sem hvíla á smávöxnu
fólki t.d. hvernig þú notaðir prik til
að opna eldhúsgluggann sem var
hátt uppi og ná í ýmsa hluti úr efri
skápum. Þetta mun nýtast mér í
framtíðinni.
Alltaf áttir þú kók og með því og
stundirnar sem að maður dvaldi
hjá þér og Guðna voru alltaf
ánægjulegar. En núna ertu farin
Svava mín og með þessu litla ljóði
og söknuði kveð ég þig og þakka
þér fyrir allar ánægjulegu stund-
irnar, ég votta elsku Guðna og
systrum þínum og mágkonum mína
dýpstu samúðarkveðju.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Þín frænka,
Árný Hildur.
Á fyrstu áratugum tuttugustu
aldar er Keflavík lítið þorp um 500
sálna, þar sem byggðin dreifist um
svæði sem nú afmarkast af Tjarn-
argötu, Vesturgötu og Kirkjuvegi,
er þá hét Templarastígur. Byggðin
er skorin í tvennt af svonefndu
Norðfjörðstúni. Íbúar fást mest við
störf tengd fiskveiðum en jafn-
framt er Keflavík öflugur versl-
unarstaður. Hús hafa ekki götu-
númer en bera nöfn, gjarnan
kennd við eigendur eða ábúendur,
sum þó kennd til örnefna eða starf-
semi s.s. Hótelið, Eldhúsið eða
Smiðjan.
Þetta er hefðbundið íslenskt
smásamfélag þar sem hver gengur
að sínu með þrautseigju og þol-
inmæði, allir þekkja alla og fólk
lætur sig nágrannann varða á ann-
an hátt en tíðkast í hraða nú-
tímans.
Úr þessum jarðvegi var hún
Svava frænka sprottin, sú þriðja í
röð níu systkina sem gjarnan eru
kennd við Veghús, lítið vinalegt
hús sem faðir þeirra og afi reistu
árið 1907, þá í suðurenda byggð-
arinnar og heitir nú Suðurgata 9.
Það getur nærri að þröngt hefur
verið um þrjár kynslóðir eftir þvi
sem börnunum fjölgaði í húsnæði
sem að stærð jafnast á við góða
tveggja herbergja íbúð nú. Þetta
var friðsælt heimili, gott og gest-
risið og þar ríkti umhyggja, sam-
viskusemi og mikil vinnusemi bæði
innanhúss og utan.
Þetta reyndist gott veganesti
þeim systkinum enda samheldni
þeirra viðbrugðið þó flutt væri úr
foreldrahúsum og öll ílentust þau í
Keflavík nema Pálína sem var alin
upp hjá móðurforeldrum í Hafn-
arfirði. Ætíð reyndist tími til að
hittast og spjalla og fylgjast með
hvert öðru og afkomendum þeirra.
Svava vex upp og mótast í þessu
umhverfi, leikur sér, passar yngri
systkini, vinnur í fiski og gerist af-
greiðsludama í búðinni hjá Eyjólfi
kaupmanni á Klapparstígnum.
Eiginmaður Svövu, Sigurbjörn
Guðnason er einnig Keflvíkingur
og jafnaldri hennar, fæddur og
uppalinn á einum af Melbæjunum.
Þau giftast 29. júní 1935. Þau
reistu sér snoturt timburhús að
Hafnargötu 56 en byggja sér síðar
veglegt steinhús á þeirra tíma
mælikvarða að Faxabraut 9 og þar
bjó Svava í nær hálfa öld uns hún
fluttist á hjúkrunarheimilið Garð-
vang fyrir rúmu ári.
Á fyrstu búskaparárum þeirra er
Keflavík í nokkrum vexti en á
fimmta og sjötta áratugnum tekur
bærinn vaxtarkipp er framkvæmd-
ir hefjast við Keflavíkurflugvöll. Þá
gerist mikil gósentíð fyrir áræðna
menn og margir fjárfesta í atvinnu-
tækjum. Sigurbjörn er einn þeirra
er hefja vörubílaakstur á þessum
tíma á eigin bíl og stundaði þá at-
vinnugrein uns hann lést um aldur
fram þann 1. des. 1976.
Svövu og Bjössa varð tveggja
barna auðið. Þau eru Sigríður Þor-
björg, f. 23. júlí 1934, d. 17. nóv.
1958 og Guðni, f. 29. júlí 1948, raf-
virki í Keflavík. Það brá þungum
skugga yfir þegar í ljós kom að
frumburðurinn, Sigríður, var fjöl-
fötluð frá fæðingu og breytti það
lífi og framtíð fjölskyldunnar var-
anlega. Svava tók að sér umönnun
hennar heima fyrir með dyggum
stuðningi eiginmannsins og var öll-
um stundum vakin og sofin yfir
velferð hennar. Þar hefur hún not-
ið veganestis úr heimahúsum þar
sem viðburðum lífsins var tekið
eftir því að bar og með æðruleysi
þess sem veit sig gera sitt besta.
Sá þröngi hringur sem uppeldi og
umhverfi markaði fékk því aldrei
tækifæri til að stækka. En í litlum
hring má koma fyrir ótrúlega
miklu af kærleika og hlýju og þess
hafa aðrir notið. Mér er sagt, því
það var fyrir mitt minni, að í fyrsta
skipti er ég lagðist í ferðalag á eig-
in spýtur þá þriggja ára þá hafi ég
fundist hjá Svövu frænku svo þar
hefur barnið skynjað að væri gott
að vera.
Þó ekki væri víða farið var Svava
ótrúlega glögg á menn og málefni
og fylgdist ætíð vel með sínu fólki
og öðrum. Ekki af forvitni heldur
af sannri umhyggju. Hún las mikið
og síðar er henni tók að daprast
sjón hlustaði hún á hljóðbækur og
einnig mikið á útvarp. Eftir að Sig-
urbjörn lést hélt hún heimili með
Guðna syni sínum og milli þeirra
mæðgina lágu sterk bönd. Þegar
ég flutti aftur til Keflavíkur 1976
og hóf að byggja mér hús, þá leigði
ég íbúð á neðri hæð hjá Svövu og
Guðna en Sigurbjörn var þá nýlát-
inn. Það voru ófáar kvöldstundirn-
ar sem varið var við eldhúsborðið
hjá þeim mæðginum, oft með öðr-
um ættingjum því þangað var ætíð
gott að koma. Ávallt var stutt í
góða skapið og hrundu þar mörg
skemmtileg tilsvör.
Síðustu æviárin var heilsunni
farið að hraka, einkum var það
sjónin sem gaf sig. Með aðstoð
Guðna bjó hún svo lengi sem hún
gat á Faxabrautinni og var aðdá-
unarvert af hve mikilli alúð og
natni hann annaðist móður sína í
hvívetna. Síðasta æviárið bjó hún
síðan á hjúkrunarheimilinu Garð-
vangi og þó heilsan væri farin að
bila þá hélt hún andlegu þreki til
hins síðasta.
Hún lést á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja í Keflavík þriðjudaginn
27, febrúar síðastliðinn eftir
skamma legu. Góðrar konu er sárt
saknað og vil ég fyrir hönd okkar,
sona Halldóru og fjölskyldna
þeirra, votta Guðna okkar dýpstu
samúð.
Starfsfólki Garðvangs og Heil-
brigðisstofnunar Suðurnesja eru
færðar innilegustu þakkir fyrir
góða hjúkrun og umönnun í veik-
indum hennar.
Jóhann Bergmann.
SVAVA
ÁRNADÓTTIR
Að kveðja móður sína
og þakka fyrir öll hin
ljúfu æviár er nokkuð
sem maður heldur og
vonar að gerist seint á
ævinni. En þó að árin
hennar mömmu hafi nú
ekki orðið nema 59 eru minningarnar
um hana svo ótal margar. Þó að Borg-
arnesið hafi átt stóran sess í hjarta
hennar voru Reynimelurinn og
Stapaselið okkar heimahagar. Þar
stóðu öllum opnar dyr, bæði mönnum
og dýrum en sérstaklega barnabörn-
unum. Við vorum nú bara tvær syst-
urnar en það kom ekki í ljós fyrr en
við vorum háttaðar og allur skarinn
var farinn heim til sinna húsa, sem
annaðhvort mamma hafði boðið inn
eða pabbi komið með heim af æfingu.
Alltaf fóru allir heim saddir og sælir,
þannig var hún. Börnunum í hverfinu
þótti stundum nóg um og spurðu
hvort við þyrftum nú ekki að kaupa
stærra hús fyrir allt þetta fólk. Nú
ERLA
SIGURJÓNSDÓTTIR
✝ Erla Sigurjóns-dóttir fæddist í
Borgarnesi 16. jan-
úar 1942. Hún lést á
heimili sínu 10.
febrúar síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Seljakirkju
22. febrúar.
stöndum við hér og vit-
um aðeins það að algóð-
ur guð gefur okkur
styrk til að halda áfram
í minningu þinni.
Við kveðjum þig
elsku mamma mín með
sorg og gleði í hjarta.
Þó sorg með sínar dökku hlið-
ar berji
á dyr hjá mér og mínum þessa
stund
er eins og einhver æðri við mig
sverji
að aftur munum eiga endur-
fund.
Að lýsa móðurmissi er mér um megin
og þakka fyrir öll þau ljúfu ár
því eftir situr hjá mér bitur treginn
óteljandi bundin sorgartár.
Í lífi mínu varstu stoð og stytta
og hlutverkin sem lékst þú voru stór
en mesta gleðin þín var þó að hitta
Tómas, Elínu og Guðmund Þór.
En öllu lífi ætlað er að enda
ég ætla því að kveðja mamma mín
og ástkærar og hlýjar kveðjur senda
ég veit að núna sólin við þér skín.
(JGG.)
Þín dóttir,
Jóna Guðrún.
-
%
.
%
!
.
+
'
(2 -
(2 -
!4 ")
/) *:
#
)#&8;
()4 #'&,
$+ &% %< * *+'& %%,
.=
2
8>?
% # !
"
) *
/
+
(
!
0
(
( ((
:-) %) ,
.
2=.
*)%
%
6
! "
1 "
2 322 $
!
/""
. %)
=) . ' @$"+&.! %)
&5). ' :" !: %)
* *+'&* * *+,
/
1/
1
* A
/(
" " +
,
4! "
2 322
(
" & 2& =' %) ,
&
'
./B
1. 2
=)+
7# &( # !
5
4! "
, 322
$"+&# '
(' %) ,