Morgunblaðið - 09.03.2001, Side 63

Morgunblaðið - 09.03.2001, Side 63
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 63 NÚNA! Í KASTLJÓSI ríkissjónvarpsins 28. febr. sl. mættu Sólveig Pétursd. dómsmálaráðhr. og Lúðvík Berg- sveinsson alþingism. þar sem fjallað var um yfirvinnubann fíkniefna- deildar lögr. Ráðhr. hefur ítrekað á Alþingi og í umræddum þætti sífellt verið að minna á hvað ríkisstjórnin og sérstaklega Sjálfstæðisfl. hafi stutt vel fjárhagslega við fíkniefna- deildina og árangur hennar við upp- ljóstrun mála megi að miklu leyti þakka djúpstæðum skilingi hennar á þörfum deildarinnar. Framsóknarfl. lofaði einum milljarði til þessa málafl. fyrir síðustu alþingiskosning- ar. Ríkisstjórnarfl. hafa fyrst og síð- ast reynt að nýta sér þessi mál með pólitískum áróðri í stað þess að stór- efla fíkniefnarannsóknir í landinu, m.a. með að tvöfalda mannafla fíkni- efnadeilarinnar og gera henni þann- ig kleift að skipuleggja betur daglegt eftirlit, upplýsingakerfi og langtíma- rannsóknir. Málefni fíkniefnamála eiga að vera hafin yfir pólitískt þras og Alþingi reyni ávallt að leita sam- stöðu þingsins að bestu úrlausnum á víðtækum grundvelli í samráði við þá sem starfa og skipuleggja verkefnin með faglegum hætti. Að vera á at- kvæðaveiðum á þessum vettvangi á löggjafarþingi þjóðarinnar er dapur- legt hlutskipti dómsmálaráðhr. og annarra sem tileinka sér slíkt ábyrgðar- og dómgreindarleysi er ekki vænlegt til árangurs.Umræður um yfirvinnubann og mikla yfirvinnu fíkniefnadeilar lögreglunnar er þess- um málum ekki til framdráttar. Væri lögreglumönnum t.d. fjölgað um helming myndi óhæfileg yfirvinna á hvern einstakling lækka. Yfirvinna fíkinefnalögreglunnar ákvarðast af brýnum rannsóknar- hagsmunum hverju sinni, sem verða oftast ekki séðir fyrir og því ekki mögulegt að áætla hana í fjárhags- áætlun viðkomandi embættis. Það verður að treysta á yfirmann við- komandi rannsóknardeildar í þess- um efnum og því séu ávallt opnar greiðsluheimildir til staðar í fjár- málaráðuneytinu til að sinna þessum verkefnum. Yfirvinnubann á lög- reglumenn við fíkniefnarannsóknir er jafnfráleitt eins og þeirra sem annast sjúkarflutinga v/slysa og að- gerða á vettvangi. Hér er um að ræða verkefni sem ekki verða séð fyrir og eiga því ekki að falla undir fasta liði fjárhagsáætlana viðkom- andi embætta. Við skulum vera þakklát þeim öll- um sem leggja á sig erfiða, áhættu- sama og langa vinnudaga í þágu samfélagsins eins og þessir aðilar gera í ríkum mæli. Ég vona að lög- reglumenn þurfi ekki í framtíðinni að boða til frekari mótmælafunda vegna ósæmilegrar framkomu dóms- málaráðhr. og fylgifiska hennar- .Greinarhöfundur óskar lögreglunni góðs gengis, þjóðin á að standa fast að baki hennar og aðstoða í hvívetna. Kær kveðja til lögreglunnar. KRISTJÁN PÉTURSSON, fyrrv. deildarstj. Dómsmálaráðherra á villigötum Frá Kristjáni Péturssyni: ÉG vil byrja á því að þakka Ríkisút- varpinu Sjónvarpi fyrir að gefa landsmönnum tækifæri til þess að sjá þessa þriggja tíma leiksýningu sem sýnd var sunnudaginn 18. febrúar úr Ráðhúsi Reykjavíkur. Leikstjórinn, Stefán Jón Hafstein, stjórnaði sýningunni af röggsemi og var trúr höfundinum í uppfærsl- unni. Aðalleikarinn og höfundurinn, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borg- arstjóri og oddviti R-listans í Reykjavík, sýndi áhorfendum svo ekki verður um villst að þessi at- kvæðagreiðsla, sem fram á að fara 17. mars nk., er ekkert annað en sýndarmennska og pólitískur skrípaleikur. Atriði sýningarinnar þar sem leikstjórinn atti þeim sam- an ráðherranum og borgarstjóran- um var væntanlega sett upp til þess að sýna okkur hvað borgarstjórinn hefði mikla yfirburði í þessu máli. Þar förlaðist honum því þar sýndi borgarstjórinn okkur að ekki er hægt að treysta henni, hún segir eitt í dag og annað á morgun. Held- ur borgarstjórinn virklega að stjórnendur Reykjavíkurborgar ár- ið 2016 geri eitthvað með þetta sjónarspil hennar og niðurstöður þessarar atkvæðagreiðslu? Þeir sem léku aukahlutverkin í sýningunni stóðu sig nokkuð vel. Bæjarstjórinn á Akureyri flaug suður og lét ljós sitt skína í málinu og var margt athyglisvert í mál- flutningi hans, hann virðist skilja skyldur höfðuborgarinnar betur en sjálfur borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Trausti Valsson er alltaf jafn skemmtilegur og hugmyndir hans, sem hann hefur verið að þróa gegn- um árin um flugvöllinn, eru áhuga- verðar. Flugmálastjórinn var sá að- ili sem talaði af þekkingu og reynslu. Fulltrúi frá samtökunum 102 Reykjavík virðist ekki hafa mikla þekkingu á málinu. Hollvinir Reykjavíkurflugvallar áttu sinn fulltrúa á leiksviðinu og komst hann vel frá sínu hlutverki, var málefna- legur og um leið gerði hann létt grín að þessu öllu. Fulltrúi betri byggðar virðist ekki vera í neinum tengslum við raunveruleikann. Ingibjörg Sólrún er að búa til nýtt kosningamál fyrir R-listann vegna þess að fulltrúar hans eru komnir í þrot. Öll kosningaloforðin frá 1998 eru gleymd og grafin og nú skal af stað farið með eitt stórt lof- orð og það skal vera Reykjavíkur- flugvöllur burt úr Vatnsmýrinni hvað sem það kostar. STEFANÍA SIGURÐARDÓTTIR, Viðarási 53, Reykjavík. Pólitískur skrípaleik- ur Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur Frá Stefaníu Sigurðardóttur: Bridsfélag Akureyrar Tveggja kvölda Góutvímenningi félagsins er lokið en eftir spennandi lokabaráttu varð lokastaðan þessi: Pétur Guðjónsson – Sveinn Pálsson – Jónas Róbertsson 62,7 Frímann Stefánss. – Guðm. Halldórss. 60,9 Ævar Ármannson – Hilmar Jakobsson 54,4 Haraldur Sigurjónsson – Grétar og Örlygur Örlygssynir 53,6 Ragnheiður Haraldsd. – Stefán Sveinbj. 53,3 Næsta mót er Halldórsmótið í sveitakeppni sem spilað er með Board-a-match fyrirkomulagi. Spilakvöld Bridsfélags Akureyrar eru á sunnudögum þar sem spilaðir eru eins kvölds tvímenningar og á þriðjudögum þar sem eru lengri mót. Spilað er í félagsheimili Þórs og hefst spilamennska kl. 19.30 og eru allir velkomnir. Aðstoðað er við myndun para og sveita. BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n Bridsfélag Hafnarfjarðar Mánudaginn fimmta mars var fyrsta spilakvöldið í þriggja kvölda vorbarometer hjá félaginu. Úrslit urðu þannig: Dröfn Guðmundsd. - Ásgeir Ásbjörnss. 43 Halldór Þórólfss. - Hulda Hjálmarsd. 16 Halldór Einarss. - Trausti Harðars. 10 Friðþj. Einarss. - Guðbr. Sigurbergss. 9 Jónas Ágústss. - Helgi Sigurðss. 8 Keppnin heldur áfram mánudag- inn 12. mars. Ef einhverjir hafa áhuga á að koma inn fyrir yfirsetu- par eru þeir hinir sömu beðnir að láta vita í síma 555 3046 (Halldór). Gullsmárabrids Fimmta mars var spilað á 10 borð- um og urðu úrslit þessi: Norður-Suður: Guðm. Pálss. – Kristinn Guðmundss. 192 Karl Gunnarss. – Ernst Backman 186 Ari Þórðars. – Diana Kristjánsd. 174 Austur - Vestur: Helga Helgad. – Þórhildur Magnúsd. 204 Kristján Guðm. – Sigurður Jóhannss. 194 Hólmfríður Guðm. – Arndís Magnúsd. 186 Meðalskor 168. Mörkinni 3, sími 588 0640G læ si le ga r gj af av ör ur Bjórglös kr. 1.550 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-14. Skólavörðustíg ● 21sími 551 4050 ● Reikjavík Sængurverasett úr egypskri bómull m eð satínáferð Póstsendum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.