Morgunblaðið - 09.03.2001, Qupperneq 72
72 FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SAMTÖK plötuútgefenda í Banda-
ríkjunum og Styrktarsjóður lista-
manna hafa nú valið lög síðastliðinn-
ar aldar. Alls komu til greina 1100
lög og voru þau vandlega valin úr öll-
um tónlistarstefnum; jafnt popptón-
list, rokki, djass, sveitasöngvum og
þjóðlagatónlist.
Í fyrsta sæti heildarlistans sem
hefur að geyma 365 lög varð lagið
„Over the Rainbow“, lag sem Judy
Garland gerði frægt árið 1939 í kvik-
myndinni Galdrakarlinn frá Oz. Fast
á hæla óðsins til regnbogans fylgdu
lögin „White Christmas“ með Bing
Crosby, „This is Your Land“ eftir
Woody Guthrie, „Respect“ með
Aretha Franklin og „American Pie“
eftir Don McLean. Þrátt fyrir að
mikil áhersla hafi verið lögð á að list-
inn yrði sem fjölbreyttastur vekur
athygli að hæsta rapplagið á lista,
„Rappers Delight“ með Sugar Hill
Gang, náði einungis 162. sæti. List-
inn er byggður á atkvæðaseðlum um
200 tónlistarmanna, gagnrýnenda,
starfsfólks í tónlistarbransanum og
valinna tónlistaráhugamanna.
Áformað er að lögin 365 sem komust
á listann verði notuð í kennslu í
grunnskólum vestra og verða þau
send netleiðis fyrir næsta skólaár til
allra skóla í Bandaríkjunum.
Undanfarið hafa verið teknir sam-
an margir listar yfir merkustu lög
20. aldar. „Yesterday“ með Bítlunum
lenti t.a.m. í efsta sæti tveggja lista,
sameiginlegum lista Rolling Stone
tímaritsins og MTV sjónvarpsstöðv-
arinnar annars vegar, og Radio 2 út-
varpsstöðvar BBC. Sjónvarpsstöðin
VH1 taldi hinsvegar „(I Can’t Get
No) Satisfaction“ með Rolling Ston-
es lag aldarinnar. Á nýjasta listanum
eru „Yesterday“ hinsvegar í 56. sæti
og „Satisfaction“ í 16. sæti.
„Over The Rainbow“
lag 20. aldar
Regnbogaóðurinn frægi, eftir þá Arlen/Harburg, úr Galdrakarlinum í
Oz er lag aldarinnar.
KATRÍN Johnson frumsýndi sl. laug-
ardagskvöld ásamt félögum sínum í
Íslenska dansflokknum verkin Kraak
eftir Jo Strömgren og Ocean Pocket
eftir Rui Horta. „Þetta er að mörgu
leyti öðruvísi en það sem við höfum
verið að gera, aðallega Kraak, því
þetta er í fyrsta skipti sem við
vinnum með Strömgren. Hann er
mjög sniðugur strákur,“ segir Katrín
sem dansar aðalhlutverkið í Kraak.
„Það eru reyndar engar rullur, en lín-
an í gegnum verkið er sambandið
milli mín og eins stráksins,“ segir
Katrín sem er á leið með félögunum
til Norður-Ameríku þar sem verkin
verða sýnd auk tveggja íslenskra:
Maðurinn er alltaf einn eftir Ólöfu Ing-
ólfsdóttur og NPK eftir Katrínu Hall.
Hvernig hefur þú það í dag?
Ég hef það bara prýðilegt.
Hvað ertu með í vösunum í augna-
blikinu?
Ég er ekkert með í vösunum. Ég er
alltaf með tösku.
Ef þú værir ekki dansari hvað vild-
irðu þá helst vera?
Lögfræðingur eða trúarbragðafræð-
ingur.
Bítlarnir eða Rolling Stones?
Bítlarnir, ekki spurning!
Hverjir voru fyrstu tónleikarnir sem
þú fórst á?
Ég hef áreiðanlega farið á einhverja
tónleika í Laugardalshöllinni, en þeir
sem ég man mest eftir eru tónleikar
sem ég fór á með Lenny Kravitz í
Stokkhólmi 1995.
Hvaða hlut myndir þú fyrst bjarga úr
eldsvoða?
Hlut? Ég hugsaði strax – kötturinn
minn. Ha, ha! Annars bara einhver
föt.
Hver er þinn helsti veikleiki?
Ég er löt að taka til og svolítið frek
líka.
Hefurðu tárast í bíó?
Já. Ég bara fer að gráta yfir öllu sem
er sorglegt, bæði í bíó og leikhúsi.
Finndu fimm orð sem lýsa persónu-
leika þínum vel.
Lífsglöð, opin, svolítið sjálfselsk en
líka heiðarleg. Sniðug.
Hvaða lag kveikir blossann?
Fever. Madonna er ein þeirra sem
hafa sungið það, en það er ekki flott-
ast með henni.
Hvert er þitt mesta prakkara-
strik?
Ég man ekki eftir neinu
einu. En ég fór t.d oft í
hárgreiðsluleik með vin-
konum mínum og þá
var það ég sem sá um
að klippa, sem vakti
ekki mikla lukku hjá for-
eldrum.
Hver er furðulegasti
matur sem þú hefur
bragðað?
Ég er ekki dugleg að
smakka furðulegan mat.
Ég hef prófað snigla, en ég
borða ekki svið, hákarl,
punga eða eitthvað svoleið-
is. Það eru því sniglarnir.
Hvaða plötu keyptirðu síðast?
Barry White – Ultimate
Collection.
Hvaða leikari fer mest í
taugarnar á þér?
Woody Allen. Mér finnst
hann alveg pirrandi. Og
Laura Dern líka.
Hverju sérðu mest eftir í
lífinu?
Það er ekkert stórkostlegt
sem ég sé eftir, enda er ég
bara 23 ára og er að gera
það sem ég hef stefnt að
síðan ég var lítil. Ég hefði
kannski átt að ryksuga svolítið
meira fyrir mömmu.
Trúir þú á líf eftir dauðann?
Að sjálfsögðu. Ég trúi á alls konar
líf. Það getur bara ekki verið
þetta. Sálin fer á annað stig og
þroskast þar. Svo heldur maður
áfram og
kemur aft-
ur.
Hefði átt að
ryksuga meira
SOS
SPURT & SVARAÐ
Katrín Johnson
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 10. Vit nr. 191
Sýnd kl. 3.45.
Ísl tal. Vit nr. 183.
ANTHONY HOPKINS JULIANNE MOORE
Snilligáfa hans
ÓUMDEILANLEG
Illska hans
ÓLÝSANLEG
Nafn hans...
MYND EFTIR RIDLEY SCOTT
www.sambioin.is
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16. Vit nr. 203.Sýnd kl. 3.45, 6.15, 8, 10.35 og 12. B. i. 14. Vit nr. 209.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit nr. 210.
Kvikmyndir.is
H.K. DV
Sýnd kl. 4, 6, 8 og
10. Vit nr. 197.
Sýnd kl. 4 og 6. Vit nr. 204.
Spennandi
ævintýramynd
fyrir börn
á öllum aldri
EDDIE GRIFFIN
ORLANDO JONES
Frumsýning
Frumsýning
Sýnd kl. 3.50 og 5.55. Ísl. tal.
Vit nr. 194
Sýnd kl. 8 og 10.15..
Vit nr. 166.
Aðeins sameinaðir
gátu þeir sigrað!
Miðnætu
r-
sýning kl
. 12
DV
Rás 2
1/2
ÓFE.Sýn
1/2
Kvikmyndir.is
Bylgjan
HK DV
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 og 10.15.
Tilnefnd til 2 óskarsverðlauna: Besta handrit byggt
á áður útkomnu efni og besta kvikmyndataka.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 8
Rás 2
1/2 MBL
1/2 Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
HELEN HUNT FARRAH FAWCETT LAURA DERN SHELLEY LONG LIV TYLER
m y n d e f t i r R O B E R T A L T M A N
h ö f u n d S h o r t c u t s o g T h e P l a y e r
RICHARD GERE
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 5.30, 8, 10.30 og 12. B. i. 14.
Frumsýning
Miðnætu
r-
sýning kl
. 12
Billy Elliot er tilnefnd til
BAFTA verðlauna og Óskarsverðlauna
12
3ja
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
GSE DV
HL Mbl
ÓHT Rás 2
ÓFE Sýn
Sýnd kl. 5.45.