Morgunblaðið - 09.03.2001, Qupperneq 76

Morgunblaðið - 09.03.2001, Qupperneq 76
Baltasar Kormákur vestur um haf Leikstýrir bíómynd í Bandaríkjunum BALTASAR Kormákur hefur verið fenginn til að leikstýra bíómynd vestanhafs í sumar er nefnist A Little Trip to Heaven. Það var kvik- myndafyrirtækið Paloma Pictures, sem er í eigu Sigurjóns Sighvats- sonar, sem réð Baltasar til verksins. Myndin er byggð á handriti Baltas- ars og er með spennuívafi. Unnið er að ráðningu þekktra bandarískra eða enskumælandi kvikmynda- stjarna í aðalhlutverk myndarinnar. Baltasar segir við Bíóblað Morg-  Spennumynd/D1 unblaðsins í dag að kveikja sög- unnar sé að hluta til íslenskt saka- mál um tryggingasvindl þar sem málsaðilar sviðsettu m.a. bílslys í Hvalfirði fyrir nokkrum árum og brutu á sér fæturna til að svíkja fé út úr tryggingum. Að sögn Baltas- ars standa vonir til að Karl Júlíus- son verði leikmyndahönnuður myndarinnar en annað starfsfólk verði bandarískt eða kanadískt. MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 9. MARS 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. Borgar túni 37 Sími 569 7700 Reiknaðu með Fjármögnun ERLENDIR fjölmiðlar hafa sýnt mikinn áhuga á fyrirhuguðum til- raunaveiðum á álftum, sem embætti yfirdýralæknis hefur sótt um til um- hverfisráðherra og nefndar um veiðar villtra dýra, vegna mögu- legrar hættu á að gin- og klaufaveiki berist til Íslands frá Bretlandseyj- um. Halldór Runólfsson yfirdýra- læknir sagði við Morgunblaðið að svo virtist sem rangar upplýsingar hefðu borist fjölmiðlunum þar sem hann hefði verið spurður hvort til stæði að drepa alla farfugla sem kæmu til landsins. Fréttastofa útvarpsstöðvar á veg- um breska ríkisútvarpsins, BBC, hefur átt viðtal við Halldór vegna þessa og þýskir fjölmiðlar hafa einn- ig fjallað um málið. Þannig barst yf- irdýralækni fyrirspurn frá sendiráði Íslands í Þýskalandi vegna frétta- flutnings þarlendra fjölmiðla. Rangur fréttaflutningur „Af einhverjum ástæðum virðist rangur fréttaflutningur af málinu hafa komist á kreik ytra. Ég hef að minnsta kosti fengið mjög einkenni- legar spurningar og meðal annars hvenær við byrjum að skjóta alla farfugla niður. Að sjálfsögðu hef ég leiðrétt þetta ranghermi og vonandi hefur það komist til skila,“ sagði Halldór. Af fyrirhuguðum fuglaveiðum í rannsóknarskyni er það helst að fregna að nefnd um veiðar villtra dýra hefur óskað eftir frekari gögn- um frá yfirdýralækni áður en af- staða verður tekin til undanþágu- beiðni embættisins. Gekk beiðnin út á að fá að skjóta tíu álftir til að kanna hvort þær bæru með sér sjúkdóma á borð við gin- og klaufa- veiki. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er ágreiningur innan nefndarinnar um þessa beiðni. Erlendir fjölmiðlar spyrja yfirdýralækni um fyrirhugaðar tilraunaveiðar á álftum Hvenær verða far- fuglarnir skotnir? Ákærðu var gefið að sök að hafa ekki staðið ríkisskattstjóra skil á ársreikningi til opinberrar birting- ar, svo og skýrslu stjórnar, áritun endurskoðenda og upplýsingum um hvenær ársreikningur var sam- þykktur fyrir einkahlutafélagið B.M. Vallá rekstrarárin 1995–1997 og ekki til Ársreikningaskrár fyrir árið 1998. Á sama hátt var þeim gefið að sök að hafa ekki skilað sömu gögnum til ríkisskattstjóra eða Ársreikningaskrár fyrir árin 1997–1999. Ákærðu viðurkenndu að hafa ekki skilað umræddum gögnum en skilað ársreikningum til skattayfir- valda og hafi þeir ekki sætt að- finnslum þeirra. Rökstuddu þeir ákvörðun sína um að afhenda ekki gögnin með því að benda m.a. á að B.M. Vallá væri eina fyrirtæki sinn- ar tegundar í landinu með mjög fjölbreytta starfsemi. Keppinautar hefðu sóst eftir að átta sig á innri tekjuskiptingu félagsins, hvað heyrði til hefðbundinni framleiðslu og hvað nýrri vöruþróun. Þetta hefðu forráðamenn þess viljað verja, fyrirtækið væri lokað einka- hlutafélag. Einnig bentu ákærðu á í rökstuðningi sínum að reglugerðir sem ákæruvaldið byggði á ættu sér ekki stoð í lögum. Niðurstaða Héraðsdóms Reykja- víkur var sú að sýkna forráðamenn fyrirtækjanna af kröfum ákæru- valdsins. Var sakarkostnaður lagð- ur á ríkissjóð, þar með talin 75 þús- und króna málsvarnarlaun Jóns Finnssonar hæstaréttarlögmanns. Pétur Guðgeirsson héraðsdómari kvað upp dóminn. Forráðamenn B.M. Vallár og Vikurvara sýknaðir Ekki skylt að af- henda ársreikninga  Ekki brot/38 FORRÁÐAMENN einkahlutafélaganna B.M. Vallár og Vikurvara voru sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær af kröfu ákæruvalds- ins um að þeim væri skylt að afhenda stjórnvöldum ársreikninga og fleiri gögn um starfsemi félaganna. Telur dómurinn ekki heimild fyrir því í lögum um ársreikninga að setja reglugerðir þar sem þessara upp- lýsinga er krafist. Fram hafi komið í athugasemdum með lagafrum- varpinu að félagaskrá, sem hefði með höndum eftirlit með ársreikn- ingum félaga í landinu, verði aðeins komið á með lögum frá Alþingi. GRAFA varð sundur á hluta Lækj- argötu í Reykjavík í gærmorgun þegar leiðsla með köldu vatni gaf sig. Starfsmenn Orkuveitunnar voru snarir í snúningum til að kom- ast fyrir lekann. Vatnið er því ham- ið áfram í leiðslum sínum en ekki í opnum læk eins og áður var. Morgunblaðið/Ómar Leki í Lækjargötu Ársuppgjör SPRON Yfir 900 milljóna gengishagnaður HAGNAÐUR af rekstri Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis í fyrra nam 813,4 milljónum eftir skatt og jókst um 512 milljónir á milli ára. SPRON færði helming af hluta- bréfaeign sinni í Kaupþingi til mark- aðsvirðis í veltubók og nam gengis- hagnaður vegna þessa liðlega 900 milljónum króna en óinnleystur gengishagnaður af bréfum í Kaup- þingi er þá væntanlega jafnmikill. Guðmundur Hauksson, bankastjóri SPRON, segir að hann hafi fengið heimild stjórnar til þess að selja hugsanlega þann helming bréfa í Kaupþingi sem færður var í veltu- bók, þ.e.a.s. ef viðunandi tilboð fæst en SPRON á alls 20,1% hlut í Kaup- þingi. Guðmundur segir að SPRON hafi, eins og aðrir, fengið á sig skell vegna hækkandi vaxta á skuldabréf- um og lækkandi hlutabréfaverðs sem rýri talsvert gengishagnaðinn af bréfunum í Kaupþingi.  Mikil aukning /24 UM 204 milljarða tekjur verða for- skráðar að þessu sinni á skattframtöl landsmanna sem er umtalsverð aukning frá síðasta ári. Þá voru færðar inn bætur og lífeyrir frá um 67 þúsund framteljendum, samtals um 42 milljarðar. Forskráning launatekna á 2001 framtalinu nemur 64% af álagningu síðasta árs, sem var 321 milljarður króna. Á framtal- inu verða einnig forskráðar upplýs- ingar um 108 þúsund fasteignir að verðmæti 777 milljarðar króna, auk námslánaskulda 30 þúsund lánþega og upplýsingar um 115 þúsund öku- tæki en framteljendur verða sjálfir að skrá verðmæti þeirra. Skattayfirvöld munu halda áfram að auka forskráningu upplýsinga á skattframtöl og eru næstu skref að fá fleiri launagreiðendur til að skila upplýsingum til skattayfirvalda. Íslendingar í fremstu röð í rafrænum skattskilum Að sögn Indriða H. Þorlákssonar ríkisskattstjóra eru Íslendingar í fremstu röð í rafrænum skattskilum og standa vonir til þess að yfir 50% framtala skili sér á Netinu í ár, eða yfir 100 þúsund framteljendur. Indriði segir einn ávinninginn af raf- rænum skattskilum vera talsvert minni pappírsnotkun. Þeir sem skila á Netinu verða spurðir að því hvort þeir vilji fá skrif- legt skattframtal að ári og segist Indriði vilja hvetja sem flesta til að afþakka pappírsgögn fyrir næsta ár. Þá segir Indriði margvíslegt hag- ræði fylgja því fyrir framteljendur að skila á Netinu og að mun minni líkur séu á mistökum. Aukin for- skráning á skatt- framtölum  Um 204 milljarða/39
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.