Morgunblaðið - 27.03.2001, Síða 38

Morgunblaðið - 27.03.2001, Síða 38
UMRÆÐAN 38 ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ JÓN Steinar Gunn- laugsson hrl. heldur áfram að gera mér upp skoðanir og af- vegaleiða umræðu okkar. Hann ýmist misskilur, snýr út úr eða svarar ekki máli mínu. Ég ætla að leið- rétta nokkrar villur hans og árétta orð mín, en sé varla frek- ari ástæðu til að halda þessari ritdeilu áfram á meðan ég fæ ekki málefnaleg svör frá honum. Ég hef gagnrýnt óvægna aðför Jóns Steinars að trúverðugleika stúlk- unnar í dómsmálinu án þess að fara út í flókna málavexti, sem gert hefur verið á öðrum vett- vangi. Ef þolendur kynferðisbrota eiga yfir höfði svo óvægnar aðfarir er miklu síður að þeir leiti réttar síns fyrir dómstólum, en nýlegar tölur frá Stígamótum benda ein- mitt til þess að slíkt hafi gerst. Það er grafalvarlegt mál hvort dómstólaleiðin er fær í svona mál- um. Kynferðisbrotum getur hver fjölskylda í landinu skyndilega staðið frammi fyrir. Því segi ég það að Jón Steinar er ekki öfunds- verður af ábyrgð sinni á því að fæla þolendur frá því að geta leit- að dómstólaleiðarinnar. Ég hef aldrei sagt það, sem Jón Steinar gerir mér upp, að dómstóll hafi heimild til að dæma menn fyr- ir annað en það sem þeir eru ákærðir fyrir eða talið að dómstóll eigi að fá slíka heimild. Ég er heldur ekki að deila á dómstólinn, heldur að svara rakalausum fullyrðingum Jóns Steinars. Ég held að menn séu sammála um það að dómstólar eigi að dæma um ákæruatriði. Ég legg þó áherslu á það að fjölskyldumál sem hér um ræðir eru alveg sérstaks eðlis. Þau þarfnast öðruvísi málsmeðferðar heldur en önnur mál. Þau eru miklu flóknari og djúpstæðari heldur en löðrungadæmið hans Jóns Steinars. Gagnrýnin sem fram kom eftir að dómur féll snerist ekki aðallega um sönnun heldur um það hvort verjendur ákærða hafi villt um fyrir réttinum og brotið siðareglur gagnvart stúlkunni. Við gagnrýn- inni brást Jón Steinar með út- úrsnúningum og alvarlegum ásök- unum á fólk, sem hann hefur haldið til streitu síðan. Hann kall- aði á rök gegn fullyrðingum sínum í grein sinni í Mbl. 10. mars sl. og hefur nú fengið þau. Það stendur nú upp á hann að svara með efnis- legum rökum, án útúrsnúninga. Ég gaf dæmi um það hvernig stúlkan varð fyrir misrétti í mála- ferlunum þegar miklu fleiri athug- anir voru gerðar á henni heldur en ákærða. Jón Steinar hirðir ekki um að svara þessu þó að þetta varði hina mikilvægu jafnræðis- reglu fyrir rétti. Jón Steinar hefur ekki enn fært rök fyrir þeirri fullyrðingu sinni að málsvarar stúlkunnar vilji sakfella saklausa menn. Á meðan hann gerir það ekki lít ég á þau ummæli sem dauð og ómerk. Sömuleiðis telst allt tal hans um að fólk geri árásir á dómstóla og skipi dómstól götunnar marklaust. Jón Steinar svarar því að hann beri ábyrgð á aðför sinni með því að fara að verja starf sitt á fullu. Hann villist á óskiljanlegan hátt í vörnum sínum alla leið inn í spænska rannsóknarréttarfarið. Mér sýnist helst að hann sé farinn að berjast við vindmyllur. Hann sér sjálfan sig fyrir sér „í einu þýðingarmesta hlutverkinu við meðferð sakamála í réttarríkjum“ sem sé bæði göfugt og gjöfult. Hvergi hef ég sett út á það að Jón Steinar gerist verjandi sak- borninga, eins og hann ímyndar sér. Auðvitað þurfa sakborningar sína lögmenn, kynferðisbrotamenn eins og aðrir, um það er ekki deilt. En er réttur þolendanna þýðing- arminni í huga Jóns Steinars en það að verja gerendurna? Sjálfur hef ég hjálpað mörgum kynferðisbrotamönnum bæði á Ís- landi og í Bandaríkjunum fyrst og fremst til þess að hætta að skaða aðra, auk þess að bæta líf sitt og samskipti við aðra. Það er því langsótt og ómaklegt af Jóni Steinari að væna mig um að ætla að fótumtroða mannréttindi þeirra. Ég hef líka haft mörg fórnar- lömb kynferðisbrota til meðferðar, börn og fullorðna af báðum kynj- um. Ég hef því oft orðið vitni að djúpstæðum og langvarandi þján- ingarfullum afleiðingum kynferð- isbrota. Ég myndi aldrei taka þátt í því með kynferðisbrotamönnum að gera á nokkurn hátt aðför að fórnarlömbum þeirra og ég ræð öllum öðrum frá því að gera slíkt Sumir lögmenn sem taka að sér kynferðisbrotamál ráðleggja sak- borningum að neita sakargiftum jafnvel þó að þeir séu sekir. Þetta vekur margar siðferðilegar spurn- ingar. Þessir lögmenn nýta sér kunnáttu sína á lögum, og það að dómstólar eru bundnir af réttar- reglum sem vernda ýmis mann- úðar- og mannréttindasjónarmið, ekki í þágu réttvísi heldur til þess að fá sakborning sýknaðan. Þá er tilgangurinn látinn helga meðalið. Í kynferðisbrotamálum og sér- staklega í sifjaspellsmálum verður þetta oft til þess að auka stórlega harm og þjáningar fólks. Fjöl- skyldur eru þá oft verr settar eftir að dómsmálum lýkur heldur en þær voru fyrir það. Stundum hrós- ar lögmaður sakbornings einn sigri, aðrir lenda í því að raða brotunum saman. Dæmi hver fyrir sig um það hversu göfugt og gjöf- ult það hlutverk hans er. Jón Steinar hefur sakað þá sem hafa önnur sjónarmið en hans um það að hafa ekki nægilegt vit á sönnunarfærslum. Með því gerir hann lítið úr þekkingu þeirra dóm- ara sem greiddu atkvæði til sak- fellingar ákærða. Ég tel aftur á móti trúlegt að þeir dómarar hafi ekki síðri þekkingu á sönnunar- færslum heldur en hinir sem greiddu atkvæði til sýknunar. Er Jón Steinar talsmaður þess að svo lengi sem kynferðisbrota- maður neitar sök þá teljist hann saklaus? Vill hann gefa þau skila- boð til brotamanna að þeir þurfi ekkert að óttast því þeir muni fá vernd í réttarkerfinu svo lengi sem þeir gæti þess að misnota aðeins eitt fórnarlamb í einu þegar eng- inn sér til og að neita sök sinni? Hvaða hugmyndir gerir lögmað- urinn sér um rétt barna í svona málum? Ég hef aldrei verið málsvari þess, sem Jón Steinar reynir að gera mér upp, að gera eigi mis- munandi kröfur til sönnunar á af- broti. Það skiptir að sjálfsögðu miklu máli fyrir dómstóla að reyna að hafa skýr viðmið á því hvað telst sönnun. Það er þó varla fram- kvæmanlegt í raun að ein og sama krafa til sönnunar á afbroti gildi í öllum tilfellum eins og Jón Steinar gefur í skyn. Það er m.a. vegna þess að engin tvö sakamál eru ná- kvæmlega eins og vegna þess að sönnunargögn í málum eru mjög mismunandi. Á endanum hafa dómarar það vandasama og ábyrðgarfulla hlutverk að meta gögnin og skera úr um sekt eða sýknun. Tilgangurinn helg- ar ekki meðalið Gunnar Hrafn Birgisson Dómur Gagnrýnin sem fram kom eftir að dómur féll snerist ekki aðallega um sönnun, segir Gunnar Hrafn Birgisson, heldur um það hvort verjendur ákærða hafi villt um fyrir réttinum og brotið siðareglur gagnvart stúlkunni. Höfundur er sérfræðingur í klínískri sálfræði. ÉG var einn af þeim, sem tók þá af- stöðu í flugvallarkosn- ingunni að kjósa ekki. Ég tók alvarlega þá yfirlýsingu borgar- stjórans og samþykkt borgarstjórnar Reykjavíkur, að til þess að kosningin yrði bindandi, þyrftu 75% kjósenda að greiða at- kvæði. Þá skipti það einnig máli í mínum huga, að oddviti Sjálf- stæðismanna í borgar- stjórn, frú Inga Jóna Þórðardóttir, kvaðst ekki myndu taka þátt í þessari kosningu, því að kosningin væri skrípaleikur. Ég veit um fjölda fólks, sem tók sömu afstöðu og ég. Og það er allavega ljóst, að einungis 37,2% kjósenda tóku þátt í þessum kosningum, en vanalega kjósa u.þ.b. 88–90% kjós- enda í venjulegum sveitarstjórnar- og alþingiskosningum. Borgar- stjórinn í Reykjavík tapaði þessum kosningum. Það er deginum ljósara, að ef sett eru skilyrði um lágmarksþátt- töku í kosningum, til þess að hún hafi gildi (sé bindandi), hefur kjós- andinn þann augljósa kost að kjósa ekki. Þar með kemur hann í veg fyrir, að tekin sé ákvörðun um málið. Þetta er alþekkt að- ferð. Á háskólaárum mínum tíðkaðist að halda almenna stúd- entafundi, og voru þeir ályktunarhæfir, ef 10% stúdenta tóku þátt í atkvæðagreiðsl- unni. Þeir, sem voru í minnihluta á fundum, beittu gjarna því bragði að skunda af fundinum, þegar greiða átti atkvæði, og þar með varð fund- urinn of fámennur og engin álykt- un gerð. Oftast hundsuðu þó stúd- entar fundina með öllu og þótti kraftaverk að ná saman 10% stúd- enta. Sama gerðist nú um helgina. Yf- irgnæfandi meirihluti Reykvíkinga ákvað að mæta ekki. Þeir hund- suðu kosninguna – og það er ekki hægt að túlka úrslitin öðru vísi en svo, að kjósendur hafi ekki viljað taka ákvörðun um þetta mál á þeim forsendum, sem borgarstjór- inn vildi láta gera. Meirihluti Reykvíkinga fór að dæmi leiðtoga Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og hundsaði kosninguna. Minnihlutinn tölti á kjörstað, en skiptist nánast til helminga og sjónarmið borg- arstjórans fengu ekki 50% at- kvæða. Það má nefnilega ekki gleymast, að þeir, sem skiluðu auðu, voru annaðhvort að lýsa því yfir að þeir vildu hvorugan kostinn eða segja að þeim væri sama. Og þessi atkvæði verður að telja með. Það er því ekki hægt að komast öllu lengra í útúrsnúningum en borgarstjóranum hefur tekizt að gera nú eftir kosningarnar, þegar hún segir, að Reykvíkingar hafi kosið að láta flugvöllinn fara. Svo er annað mál. Kjósendur fengu að kjósa í tölvu. Gallinn var hins vegar sá, að þeir, sem kusu í tölvunni, höfðu ekki sömu möguleika til að kjósa og þeir, sem kusu með seðli. Sig- urmar K. Albertsson hrl. benti mér á, að það hefði vantað fjórða möguleikann hjá þeim, sem kusu í tölvunni. Þeir sem kusu í tölvu gátu kosið með og á móti, og síðan skilað auðu. En Sigurmar bendir réttilega á, að með þessu er fólk svipt þeim eðlilega rétti að gera ógilt. Og þann rétt verður að vernda. Í öllum kosningum koma fram ógildir seðlar, – ógildir vegna þess, að fólk vill gera þá ógilda. Það skrifar skilaboð á seðilinn, – yrkir vísur eða gerir athugasemdir við einstaka frambjóðendur og flokka. Og þetta er afstaða, sem fólk má taka. Þetta er hluti af lýðræðinu. Þetta fólk er varnarlaust, þegar það kýs í tölvu. Það getur ekki notað atkvæðisrétt sinn að eigin vild. Þetta eru ekki margir ein- staklingar, en á kjördag er það fólkið sem ræður, en ekki stjórn- málamenn eða embættismenn. Og það er hlutverk kjörstjórnarinnar að sjá um, að allt fari löglega fram. Ég vara eindregið við því, að farið verði að kjósa í tölvum. Ég trúi því ekki, að svo sé hægt að búa um hnútana, að ekki megi fylgjast með tölvukosningum. Það er hægur vandinn að forrita tölvu þannig, að hún skrái hjá sér, hvernig hver einstakur kjósandi kaus. Og ef það er hægt, þá verður það gert. Þá er einnig til þess að taka, að sama kosningaaðferð verður að gilda um allt land. Það er einfald- lega út í hött að kosið sé með seðl- um í Grímsey, Flateyri og Vest- mannaeyjum, en með rafurmagni í Reykjavík. Og svo má ekki gleyma því, að gamaldags kosningum og talningu atkvæða fylgir viss sjarmi. Ómerkilegt viðhorf Haraldur Blöndal Flugvallarkosning Þeir, sem skiluðu auðu, voru annaðhvort að lýsa því yfir að þeir vildu hvorugan kostinn eða segja að þeim væri sama. Haraldur Blöndal segir að þessi atkvæði verði að telja með. Höfundur er í yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis suðurs.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.