Morgunblaðið - 27.03.2001, Page 40
UMRÆÐAN
40 ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ALLT frá því að
umhverfisráðherra af
framsýni og skörungs-
skap hvað upp úr-
skurð sinn um að dæla
mætti kísilgúr úr
Syðriflóa Mývatns og
hafði þar með að engu
hræðsluáróður sjálf-
skipaðra náttúru-
verndarsinna úr must-
eri mammons sem að
eigin áliti vita og
skilja allt allra manna
best hafa þessir
mammonsriddarar
hver á fætur öðrum
riðið fram á ritvöllinn
og ritað hverja grein-
ina á fætur annarri til að níða niður
ákvörðun umhverfisráðherrans.
Ekki hefur undirritaður haft geð í
sér til að svara þeim fjölmörgu
greinum sem birtar hafa verið um
málefnið enda fæstar svara verðar
og bændur, búalið og landsbyggð-
arfólk almennt uppteknara en svo
við hið daglega brauðstrit að tími
gefist til mikilla skrifa. Það vekur á
hinn bóginn athygli að prófessorar,
lektorar og hvers kyns „fræði-
menn“ virðast hafa mjög rúman
tíma til skrifa um hugðarefni sín.
Þó kastaði tólfunum þegar Guð-
mundur Páll Ólafsson náttúrufræð-
ingur ritaði grein í Morgunblaðið
hinn 14. mars og ræðst með af-
skaplega ósmekklegum hætti að
Halldóri Blöndal forseta Alþingis.
Úr ræðustól á Alþingi gagnrýndi
Halldór meðal annars Náttúru-
rannsóknarstöðina við Mývatn.
Þessi gagnrýni virðist hafa farið af-
skaplega fyrir brjóstið á náttúru-
fræðingnum. Sannleikur málsins er
þessi: Þegar Náttúrurannsóknar-
stöðin var sett á laggirnar voru
bundnar við hana mjög miklar
væntingar hér í Mývatnssveit og
það var álit margra að með tíð og
tíma myndi við stöðina skapast vís-
indasamfélag nokkurra vísinda-
manna sem hefðu búsetu í sveit-
arfélaginu og stunduðu hér
rannsóknir. Þannig er hægt að
vitna til bókana í fundargerðum
sveitarstjórnar Skútustaðahrepps
frá þessum tíma þar sem oddvita
var falið að knýja á um efndir og
einnig í seinni tíð hafa sveitar-
stjórnir Skútustaðahrepps reynt
með ýmsum ráðum að taka upp að
nýju umræður um
rannsóknarsetur í Mý-
vatnssveit. Því miður
hefur reyndin orðið
önnur. Allt frá stofnun
stöðvarinnar hefur
hún verið rekin þannig
að starfsmaður hennar
hefur verið búsettur í
Reykjavík og aðeins
haft aðsetur í sveitinni
á sumrin. Nú berast
fréttir af því að for-
maður stöðvarinnar
hafi látið hafa það eft-
ir sér að starfsmenn
stöðvarinnar séu þrír
og búi á Akureyri,
Húsavík og einn sé
um það bil að flytja í Mývatnssveit.
Sem stjórnarmanni í Náttúrurann-
sóknarstöðinni finnst undirrituðum
þessi yfirlýsing afar fróðleg en
hefði heldur viljað heyra tíðindin á
stjórnarfundi en í fjölmiðlum. Engu
að síður ber að fagna þeirri stefnu-
breytingu sem þarna virðist gæta.
Þess ber þó að geta að stjórn
stöðvarinnar hefur í gegnum tíðina
verið ákaflega hamlandi á hver-
skyns framkvæmdir í sveitinni og
besta dæmið um stöðu skipulags
mála hér er að nú hefur tekið rúm
þrjú ár að fá leyfi fyrir byggingu
íbúðarhúss við Mývatn. Ekki leikur
lengur neinn vafi á því að trún-
aðarbrestur hefur orðið nú í seinni
tíð á milli sveitarstjórnar Skútu-
staðahrepps og meirihluta stjórnar
rannsóknarstöðvarinnar sem veld-
ur því að stöðin hefur glatað trú-
verðugleika sínum og er engan
veginn fær um það lengur að sinna
lögskipuðu hlutverki sínu.
Það kann vel að vera skoðun
náttúrufræðingsins að eingöngu
þurfi að stunda rannsóknir á sumr-
in á lífríkinu og ekki sé ástæða til
að hafa fasta búsetu á staðnum.
Það er þó allavega ljóst að við bú-
setu á staðnum sjá menn gjarnan
hlutina í öðru ljósi og þekking
þeirra á lífríkinu og umhverfinu
hlýtur að verða meiri við aukna ná-
lægð. Ef til vill er það skoðun
fræðimannsins að heppilegast sé að
forræði náttúruverndarmála sé
best fyrir komið í höndum embætt-
ismanna í Reykjavík og heppilegast
sé að safna allri þekkingunni sam-
an á einum stað. Við bændur og
búalið norður í landi sem lifum við
nálægð náttúrunnar allt árið og
byggjum tilveru okkar á því að
misbjóða henni ekki teljum svo
ekki vera og eftir nær þriggja ára-
tuga forræði ríkisins og embættis-
manna á þeirra vegum í náttúr-
verndarmálum Mývatns er nú svo
komið að margir helstu ferða-
mannastaðir og náttúruperlur
svæðisins líða sárlega fyrir það að
litlu sem engu fjármagni hefur ver-
ið varið til uppbyggingar aðstöðu á
þessum stöðum og merkingar til
upplýsingar eru víðast takmarkað-
ar. Við teljum að forræði náttúru-
verndarmála sé best fyrir komið í
heimabyggð og eðlilegt sé að leita
álits og umsagnar „sérfræðinga“ að
sunnan í einstökum tilvikum. Því er
það skoðun okkar að löngu sé tíma-
bært að taka til endurskoðunar lög-
in um verndun Mývatns og Laxár
frá 1974 enda mikið vatn til sjávar
runnið í þeim málaflokki frá því
þau voru sett.
Við sem lifum á náttúrunni telj-
um okkur ekki minni náttúruvernd-
arsinna en þá sem hafa alla sína
þekkingu um náttúruvernd af bók.
Það er líka hægur vandi að hlutast
til um málefni sem eru manni víðs
fjarri og hafa engin áhrif á tilvist
manns sjálfs.
Þá eru ótrúlegar skoðanir nátt-
úrufræðingsins um áhrif kísilgúr-
náms úr Ytriflóa. Ekki verður séð
af skrifum hans um það efni að
hann hafi haft fyrir því að kynna
sér það mál gaumgæfilega. Stað-
reyndin er sú að áður en hafin var
dæling kísilgúrs úr flóanum var
vart fært um hann á árabát, svo
grunnur var hann orðinn. Silungs-
veiði í flóanum var hverfandi og
fugli hafði fækkað svo mjög að t.d.
í Slútnesi þar sem áður höfðu verið
mörg þúsund andahreiður var varla
eitt einasta hreiður að finna á vor-
in. Nú er svo komið eftir þriggja
áratuga dælingu kísilgúrs úr Ytri-
flóa að gott varp er aftur orðið í
Slútnesi og einnig í eyjum og hólm-
um fram af Vogum og einnig hefur
veiði í Ytriflóa verið mjög góð nú
hin síðari ár. Þá má nefna að fjölg-
un flórgoðans var um 80% á Ytri-
flóa á milli áranna 1998 og 1999.
Fleira mætti nefna til sögunnar,
s.s. framvindu gróðurs á dýpkuðu
svæðunum sem er miklu meiri en
álitið hefur verið og einnig hefur
komið í ljós að þéttleiki botndýra
er meiri þar en í Syðriflóa. Að end-
ingu hefur lífríki Laxár nú um
a.m.k. þriggja ára skeið verið það
albesta sem bændur í Laxárdal
muna. Dæmi svo hver fyrir sig um
skaðsemi kísilgúrdælingar úr Mý-
vatni.
Það er nefnilega alls ekki svo að
við sem ennþá þreyjum þorrann og
góuna úti á landsbyggðinni höfum
verið dugleg við að skemma nátt-
úruarfinn þó ykkur finnist það
e.t.v. fræðimönnunum í höfuðborg-
inni. Tilvera okkar og framtíð
byggist á því að við göngum vel um
náttúruna og skemmum ekki nátt-
úruarfinn. Í náttúruvernd erum við
engir eftirbátar ykkar þegar allt
kemur til alls.
Náttúruvernd
við Mývatn
Leifur
Hallgrímsson
Umhverfismál
Því er það skoðun okk-
ar, segir Leifur Hall-
grímsson, að löngu sé
tímabært að taka til
endurskoðunar lögin um
verndun Mývatns og
Laxár frá 1974.
Höfundur býr á Hraunborg
í Mývatnssveit.
Mörkinni 3, sími 588 0640G
læ
si
le
ga
r
gj
af
av
ör
ur
Tannstönglabox
kr. 2.140
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-14.
Fermingarmyndatökur
Erling Ó. Aðalsteinsson
Ljósmyndastofa
Laugavegi 24, sími 552 0624
Pantanir í síma 552 0624
frá kl. 13-18