Morgunblaðið - 27.03.2001, Síða 44

Morgunblaðið - 27.03.2001, Síða 44
MINNINGAR 44 ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ásta DagmarJónasdóttir fæddist á Vestdals- eyri við Seyðisfjörð 7. september 1924. Hún lést á heimili sínu, Boðahlein 8 í Garðabæ, 17. mars síðastliðinn. For- eldrar Ástu voru Jónas Magnússon, rafvirkjameistari og síðar kaupmaður í versluninni Ljós og hiti í Reykjavík, f. 29.8. 1895, d. 12.11. 1972, og kona hans Oddný Petrea Eiríksdóttir, f. 20.7. 1900, d. 11.1. 1986. Systkini Ástu eru: Björg Magnea, f. 17.12. 1920, fyrrverandi verslunarmað- ur, hún var gift Aðalsteini Guð- jónssyni, en þau slitu samvistir; Eiríkur rafvirkjameistari, f. 22.2. 1923, sambýliskona hans er Elín Guðbjörnsdóttir; Ólafur raf- virkjameistari, f. 5.5. 1928, kvæntur Fríðu Ingvarsdóttur, og Stefán húsasmíðameistari, f. 12.11. 1929, hann var kvæntur Huldu Lárusdóttur, sem er látin. Árið 1943, hinn 17. apríl, giftist Ásta fyrri eiginmanni sínum, Steingrími Þórissyni kaupmanni frá Reykholti í Borgarfirði, en hann fæddist 15.7. 1923. Foreldr- ar hans voru Þórir Steinþórsson skólastjóri og kona hans Þuríður Friðbjarnardóttir. Börn Ástu og verkstæðiseigandi, f. 30.1. 1964, kvæntur Sonju Haraldsdóttur og eiga þau eitt barn, en misstu ný- fætt barn sitt árið 1993. Sem barn var Ásta um tíma hjá afa sínum og ömmu á Eskifirði, en síðan fluttust foreldrar hennar til Siglufjarðar og bjuggu þar um tíma. Þaðan lá leiðin til Akraness og svo til Reykjavíkur þar sem Ásta átti sín unglingsár. Hún starfaði sem ung stúlka m.a. í Sundhöll Reykjavíkur, á barna- heimilum í Reykjavík og í Reyk- holti í Borgarfirði, við afgreiðslu í verslun föður síns í Ljósi & hita og við hótelrekstur í Reykholti. Eftir að Ásta og Steingrímur skildu var hún tvö sumur þerna á strandferðaskipinu Esju, en árið 1957 lá leið hennar norður á Strandir. Það vor flyst hún í Veiðileysu ásamt þremur af börn- um sínum, en elsta dóttirin fylgdi föður sínum í Reykholt. Árið 1958 hóf hún hjúskap með seinni eig- inmanni sínum, Guðbrandi Þor- lákssyni í Djúpuvík. Hann var þar m.a. símstöðvarstjóri, en stundaði jafnframt búskap og sjómennsku. Þau bjuggu þar til ársins 1966, en fluttust þá til Hafnarfjarðar og bjuggu lengst af á Öldugötu 2 þar í bæ. Eftir langan starfsferil við heimilisstörf og barnauppeldi hóf Ásta störf að nýju utan heimilis, var ráðskona í Álverinu í Straumsvík á árunum 1967 til 1972, en söðlaði þá um og gerðist vökukona á St. Jósefsspítala, síð- an á Sólvangi, á Kópavogshæli og síðast á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför Ástu fer fram frá Víði- staðakirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. Steingríms eru: Þur- íður Anna verslunar- maður, f. 28.7. 1943, gift Óla H. Þórðar- syni, þau eiga fjögur börn og tólf barna- börn; Guðrún Björg matráðskona, f. 28.9. 1944, gift Ármanni Hallbertssyni, börn þeirra eru sex, barna- börnin fjórtán og barnabarnabarn eitt; Þórir tæknimaður, f. 2.2. 1947, kvæntur Margréti Ó. Svein- björnsdóttur, þau eiga þrjú börn og sex barnabörn; Stefán sölumaður, f. 15.3. 1950, kona hans er Margrét Hreinsdótt- ir. Hún á einn son og Stefán tvö börn frá fyrra hjónabandi. Þá fæddist þeim Ástu og Steingrími stúlkubarn, fætt 13.12. 1951, en það lést 27.1. 1952. Ásta og Stein- grímur slitu samvistir árið 1955. Seinni eiginmaður Ástu var Guð- brandur Sveinn Þorláksson, bóndi og sjómaður frá Veiðileysu í Strandasýslu, f. 23.6. 1921, d. 16.5. 1992. Foreldrar hans voru Þorlákur Guðbrandsson, bóndi í Veiðileysu, og kona hans Ólöf Sveinsdóttir. Ásta og Guðbrandur giftu sig 6. september 1959. Börn þeirra eru: Ólöf, aðstoðarmaður í leikskóla, f. 24.6. 1959, gift Jóni Benedikt Jónssyni, þau eiga tvö börn og eitt barnabarn; Þorlákur Ég man ekki hver myndin var, eða hvort hún var í Bæjarbíói eða Hafn- arfjarðarbíói, en það var komið hlé. Ég fór einn í bíó þetta kvöld, myndin var aukaatriði. Árið var 1960. Veðrið var gott, vor í hjarta. Ég hafði aldrei séð þessa konu og var dálítið tauga- óstyrkur. Hún kom með Þurý fram í anddyrið og ég hélt mig til hlés. Enda var hlé. Þær hlógu mæðgurn- ar með einhverri þriðju sem ég minnist ekki nú hver var. Skrambi var hún myndarleg þessi kona. Það hlaut líka að vera, það var búið að segja mér að Þurý væri svo lík henni, væri eiginlega spegilmynd mömmu sinnar sem hreif strákana í Borgarfirðinum upp úr skónum í byrjun fimmta áratugarins. Ég heilsaði ekki heiðurskonunni Ástu Jónasdóttur þetta kvöld, var alltof feiminn til þess. Ég hlýt að hafa horft á seinni hluta myndarinn- ar og það eina sem er klárt og hlýtur að vera klárt er að upp stóð ég þegar „The End“ birtist á tjaldinu hvíta. Þessi Endir var hluti af byrjuninni hjá feimnum strák í bænum og það er táknrænt að allt þetta gerðist í bíói í Hafnarfirði, bænum sem átti eftir að verða þungamiðja tengda- fjölskyldu minnar, heimili tengda- mömmu nokkrum árum síðar. Alllangur tími leið frá bíóferðinni í Fjörðinn þar til tilvonandi tengda- móðir mín kom til okkar í íbúðina litlu á Snorrabrautinni, ásamt hon- um Guðbrandi sínum, og eftir það varð aldrei neitt hlé á samskiptum okkar og vináttu. Ég held meira að segja að henni hafi þótt nokkuð vænt um þennan strákgaur sem rændi hana dótturinni elstu og væntum- þykjan var gagnkvæm. En nú er kominn Endir (The End) á mynd- skeið duglegrar konu, konu sem ekkert aumt mátti sjá og kom hvar- vetna með sínar smágerðu líknandi hendur, hvort heldur á Ströndum norður, í Hafnarfirði eða hvar sem hún mátti hjúkra og hjálpa. Hún var svo sem ekkert allra hún Ásta mín blessuð, en bak við grímu sem stundum tók á sig dálítinn hrjúfleika föðurarfleifðarinnar sló hjartað heitt allt til laugardagsmorguns 17. mars. Stelpan sæta sem ég hafði svo oft heyrt talað um í Borgarfirðinum á árum áður var öll. Eftir sitjum við og munum. Minning elskulegrar tengdamóður er blessuð. Þurý getur ekki lengur notað ávarpið hugljúfa, „mamma mín“. Svona er lífið. Dag einn mun ég halda á Boðahlein og ná í inniskóna mína, þar er þeirra ekki þörf lengur. En þá verður þar engin Ásta sem býður kaffi og með því. Amma í Hafnarfirði er farin. Óli H. Þórðarson. Elsku amma mín. Aldrei datt mér í hug að ég ætti eftir að kveðja þig svona fjótt. Þegar ég skrifa þessi orð er ég búin að kveðja þig í síðasta sinn. Ég vil ekki trúa því að ég fái aldrei aftur ljúft faðmlag og mjúkan koss frá þér í þessu lífi, en ég veit að þú og afi fylgist með okkur öllum og passið okkur. Þessa síðustu daga hafa rifjast upp margar minningar um ykkur afa á Öldugötunni. Alltaf þótti mér svo spennandi að fá að fara með þér niður í kjallara eða fá að leika mér uppi á lofti. Oft fórum við krakkarnir út í garð að leika og þá var svo spennandi að gá hvort jarðarberin væru orðin þroskuð eða við lékum okkur í álfahúsinu, sem þá var ekki svo lítið. Og þegar við komum við hjá ykkur afa 17. júní, en við vorum svo heppin að alltaf fór skrúðgangan framhjá Öldugötunni. Þegar ég og mamma komum til þín og sögðum þér frá langalangömmubarninu sem var í vændum varstu ekkert að messa yfir mér, 17 ára barninu, heldur varst svo stolt. Ég geymi mynd af þér í hjarta mínu. Elsku amma mín, ég sakna þín svo sárt, ég sé þig aftur seinna. Elsku amma, afi, mamma og fjöl- skylda, megi Guð lýsa veginn og styrkja okkur í sorginni. Þín Kristjana Ósk, Hrafn og Elva Rós. Elsku amma mín. Það er svo stutt síðan við sátum við eldhúsborðið hjá þér og töluðum saman og þú sast á gólfinu og lékst þér við stelpurnar mína. Svo þakkaðir þú okkur fyrir að bjarga deginum. Nokkrum dög- um síðar ert þú farin og ég á aldrei eftir að geta skroppið í kaffi til þín aftur eða faðmað þig, en ég hef fullt af góðum minningum sem ég mun rifja upp þegar ég hugsa til þín. Ég held að þú sért komin á góðan stað þar sem þér líður vel og afi hefur tekið vel á móti þér. Það er svo mikið sem ég gæti skrifað en læt þetta duga í bili. Við kveðjum þig nú, elsku amma mín. Hafdís, Kiddi, Perla María og Embla Líf. Elsku amma mín, það er svo erfitt að sætta sig við að þú sért farin frá okkur. Síðast þegar við komum í heimsókn til þín varstu svo hress og glöð, við spiluðum tíu og Olsen Ol- sen. Þú talaðir mikið um ferðalagið sem við ætluðum í í sumar, þú varst alveg ákveðin í að koma með okkur til Siglufjarðar á æskuslóðir þínar. Í haust ætluðum við svo í berjamó í Veiðileysu, þar sem þú og afi áttuð einu sinni heima. En nú ertu komin til afa og Bóel systur, þá veit ég að þér líður vel, elsku amma mín. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Þín, Linda Rós. Elsku amma mín. Nú hefur þú ákveðið að yfirgefa þennan heim. Þinn tími er greinilega kominn. Hér sitjum við eftir í sorginni, með frá- bærar minningar og spyrjum hvert annað: af hverju núna? Þú sem varst búin að vera svo hress og kát. Og ég átti eftir að segja þér svo margt. En hérna sit ég og skrifa þér smákveðju og minning- arnar hrannast upp í huga mínum. Það eru ótal minningar sem ég á um þig. Ég man svo vel eftir því þegar ég var að æfa fimleika í Lækjarskóla þá gat ég alltaf farið til þín og afa og fengið mér að drekka hjá ykkur. Og þú sýndir mér að þú gast enn farið í splitt og það er reyndar mjög stutt frá því að þú sýndir mér og krökk- unum það þegar við komum í heim- sókn og þeim fannst það auðvitað al- veg rosalega flott að amma kæmist í splitt. Eða þegar við komum í heim- sókn á Boðahlein og það var alveg sama hversu veik þú varst, þú gast alltaf hellt upp á kaffi og áttir alltaf kökur fyrir okkur. Og sast þá yfir- leitt á gólfinu og lékst við krakkana og spjallaðir í leiðinni. Elsku amma, við söknum þín öll alveg rosalega mikið og vitum að núna líður þér vel ÁSTA DAGMAR JÓNASDÓTTIR -    .    0 +  00# 0?80 ) -@ AB  3<     / .      !" #      ,   '    (0   1 12     *   !* ; !*"  #6<3()  23 #6    6#.#6  <3() #6 C $  .           4 + 0   ) D ! "  / .    3     ()   5 $- 4  +4   6.%!3*  54   ,!! !" !2*4   *!4   6 !"  *!!4   ,!! !  )-- 3) !)-- 3)  !!)-- 3) .            0 C +  00480 & -*!:       (   #  +  *+.E.   6C !  C !  *   =   4!!*    @(,!-   # $  3 3) .            50  80 %!! 3  B F G0( 2$         4       5     '       '     (0    ) 22 6           %     %    '  #  .  $  '"        / .   '   7    ' .    .   8  2 ((5) %!3  *  $ %.5    -  22    5  C  6*",  ; 2! 5  *!&  -   3 3) . &"  +   #*#     +         /00# 0?  =!  ) - , !*-!$ * A> *' (2$ . C $ @#6   -   2 #6  * !     #6  4   +6!$    C (,&()       $ 4  .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.