Morgunblaðið - 03.05.2001, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LJÓSMYNDASÝNINGIN World
Press Photo 2001, sem er þekktasta
samkeppni í heiminum á sviði
fréttaljósmyndunar, var opnuð í
Kringlunni í gær. Á sýningunni er
að finna fjölda ljósmynda sem unnu
til verðlauna í ólíkum flokkum en
fréttaljósmynd ársins er eftir amer-
íska ljósmyndarann Lara Jo Regan.
Myndin var tekin fyrir tímaritið
Life og sýnir móður mexíkóskrar
innflytjendafjölskyldu sem berst í
bökkum við að sjá sér og börnum
sínum farborða í Texas í Bandaríkj-
unum.
Sýningin hefur verið haldin ár-
lega síðan 1955 en að sögn for-
manns dómnefndar má greina
áherslu á mannlega þætti og hvers-
daglíf á henni.
Samhliða sýningunni verður ljós-
myndasýning Morgunblaðsins sem
ber heitið Andlit manns og lands. Á
sýningunni er úrval ljósmynda
fréttaritara og ljósmyndara blaðs-
ins á landsbyggðinni. Sýningin er
liður í samkeppni um bestu ljós-
mynd fréttaritara frá árunum
1999–2000.
Sýningunni lýkur 14. maí næst-
komandi og er hún opin á opnunar-
tímum Kringlunnar: Frá 10 – 18:30
frá mánudagi til miðvikudags, 10 –
21 á fimmtudögum, 10 – 19 á föstu-
dögum, 10 – 18 á laugardögum og
13 – 17 á sunnudögum.
Morgunblaðið/Þorkell
Frá ljósmyndasýningunni World Press Photo í Kringlunni.
World Press Photo
opnuð í Kringlunni
SÓLVEIG Pétursdóttir, dóms-
málaráðherra, segir að full ástæða
sé til að hafa áhyggjur af þróun
síðustu ára í kynferðisafbrotamál-
um. Ráðherra segir að þótt veru-
lega hafi áunnist síðastliðinn ára-
tug sé brýn þörf á að halda áfram
að bæta stuðnings- og meðferð-
arúrræði fórnarlamba kynferðisaf-
brota og auðvelda þurfi þolendum
kæru- og dómsferilinn eins og
kostur er.
Þetta kom m.a. fram í heimsókn
Sólveigar á Neyðarmóttöku vegna
nauðgana á slysa- og bráðadeild
Landspítalans í gær. Tilgangur
heimsóknarinnar var að fræðast
um starfsemina og fara yfir stöðu
og úrræði í kynferðisafbrotamálum
og þróun þeirra mála hér á landi
að undanförnu. Með ráðherra voru
fulltrúar frá embættum ríkissak-
sóknara, ríkislögreglustjóra, lög-
reglustjórans í Reykjavík, dóms-
málaráðuneytisins og dómstóla-
ráðs, auk formanna tveggja nefnda
sem ráðherra hefur skipað í mála-
flokknum.
Kærum vegna nauðgana hefur
fækkað á síðustu árum
Í máli Guðrúnar Agnarsdóttur,
yfirlæknis Neyðarmóttökunnar, og
Eyrúnar B. Jónsdóttur, umsjónar-
hjúkrunarfræðings, kom m.a. fram
að nauðganamálum hefði fækkað á
síðustu þremur árum. Árið 1999
komu upp 103 mál og þar af voru
45 þeirra kærð, eða í 44% tilvika. Í
10 þessara mála var um hópnauðg-
anir að ræða og í 30 málum kom
áfengisdauði fórnarlambs við sögu.
Á síðasta ári komu 97 nauðg-
anamál til kasta Neyðarmóttök-
unnar og 30 þeirra voru kærð til
lögreglu, eða í 31% tilvika. Eyrún
sagði erfitt að skýra þessa fækkun
og þar kæmi margt til. Umræðan í
þjóðfélaginu hefði þar mikið að
segja og þau alvarlegu nauðgana-
mál sem hefðu komið upp. Þá
saknaði Eyrún þess að umræða um
alnæmi virtist liggja niðri og brýn
þörf væri á rækilegri fræðsluher-
ferð sem flestra aðila sem að mála-
flokknum kæmu.
Guðrún sagði að á fyrstu fimm
starfsárum Neyðarmóttökunnar
hefðu 211 mál verið kærð. Af þeim
hefðu 78 verið dæmd í héraðsdómi,
þar af endaði 51 mál með sakfell-
ingu eða í 65% tilvika. Af þeim 15
málum sem gengu til hæstaréttar
var sakfellt í 10 málum. Guðrún
benti á að þótt kærum hefði fækk-
að væri fjöldi þeirra mun meiri hér
á landi en á Norðurlöndunum.
Skýringin á því væri eflaust sú að
úrræði eins og Neyðarmóttaka
vegna nauðgana stæði nær almenn-
ingi hér en víða annars staðar.
Dómsmálaráðherra sagði að í
ljósi upplýsinga frá starfsmönnum
móttökunnar væri full ástæða til að
hafa áhyggjur af þeirri þróun sem
átt hefði sér stað síðastliðin ár.
„Ungur aldur og mikil áfengis-
neysla virðist einkenna þær að-
stæður þar sem kynferðisafbrot
eru framin, enda er viðnám brota-
þola þá lítið eða ekkert. Það gladdi
mig hins vegar að heyra að sam-
starf Neyðarmóttökunnar og lög-
reglunnar hefur verið með ágætum
og er á skipulegum grunni,“ sagði
Sólveig.
Hún sagði ennfremur að þynging
refsidóma í kynferðisafbrotamálum
mætti ekki eiga sér stað í stökkum
heldur ætti slíkt að þróast í fram-
kvæmd dóma. Eðlilegt væri að líta
svo á að dómarar hefðu svigrúm til
að meta refsingar innan ákveðins
ramma. Æskilegt væri því að varð-
veita sem kostur væri sjálfstætt
mat dómstóla í þessum efnum.
„Skapist hins vegar verulegt
misræmi milli refsiákvarðana dóm-
stóla í þessum og öðrum brota-
flokkum annars vegar og almennr-
ar réttarvitundar og siðmats fólks
hins vegar, svo og ef brotum á
þessu sviði fjölgar verulega, þá
þarf að bregðast við því,“ sagði
Sólveig og benti á að refsirammi
nauðgana væri hár hér á landi, eða
allt að 16 ára fangelsi. Sambæri-
legur refsirammi í Danmörku væri
10 ára fangelsi.
Sakfelling fyrir Hæstarétti í
86% tilvikum nauðgana
Fram kom hjá Sólveigu að á ár-
unum 1950 til 1998 voru 57 ein-
staklingar ákærðir fyrir nauðgun
hér á landi. Þar af voru 49 sak-
felldir, eða í 86% tilvika, en 8 sýkn-
aðir, eða í 14% tilvika. Hjá héraðs-
dómstólum voru 59 einstaklingar
ákærðir fyrir nauðgun á árunum
1993–2000. Mál 56 þeirra gengu til
dóms en 3 voru afturkölluð eða vís-
að frá. Af þessum 56 málum var
sakfellt í 37, eða 66%, en sýknað í
19 málum, eða í 34% tilvika. Sól-
veig benti einnig á að á árunum
1998–2000 komu 58 nauðganamál
til meðferðar hjá embætti ríkissak-
sóknara. Af þeim voru 45 mál felld
niður þar sem þau þóttu ekki líkleg
til sakfellingar.
Sólveig sagðist í máli sínu vilja
leggja áherslu á að af hálfu yf-
irvalda væri kostað kapps um að
gera þessi mál sem best úr garði
svo að vel mætti við una og auð-
velda þyrfti þolendum slíkra brota
kæru- og dómsferilinn eins og
kostur væri.
Telur þróun síðustu
ára vera áhyggjuefni
Ráðherra skoðar Neyðarmóttöku vegna nauðgana
Morgunblaðið/Kristinn
Dómsmálaráðherra skoðar bráðamóttöku fyrir fórnarlömb nauðgana.
GRUNNSKÓLAR í Reykjavík
munu hefja kennslu þann 24. ágúst
nk. eða viku fyrr en undanfarin ár.
Ellert Borgar Þorvaldsson, formað-
ur Skólastjórafélags Reykjavíkur og
skólastjóri Ártúnsskóla, sagði að
skólastjórar í borginni hefðu komist
að þessari niðurstöðu á fundum sem
haldnir hefðu verið undanfarið.
Samkvæmt síðustu kjarasamning-
um kennara verður skólaárið nú 180
nemendadagar í stað 170 áður og
getur hver skóli ákveðið hvenær
hann hefur kennslu og hvenær hann
gefur nemendum frí yfir veturinn.
Ellert Borgar sagði að ákveðið
hefði verið að láta alla skóla borg-
arinnar hefja kennslu sama dag, ekki
síst til þess að valda ekki ruglingi á
meðal foreldra og forráðamanna
barna. Þá sagði hann að tilmæli
hefðu komið frá Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur um að skólar á sömu
svæðum samræmdu sín skóladaga-
töl, þannig að t.d. ef skólar ákvæðu
að veita vetrarfrí yrði það gert á
sama tíma.
Kennsla
hefst
24. ágúst í
grunnskólum
Reykjavík
Lögreglan segir að 9–10 manns
hafi verið á staðnum þegar atburð-
urinn átti sér stað og tengjast mál-
inu.
Ljóst þykir að tveir hópar hafi
verið að gera upp einhverjar sakir en
samkvæmt upplýsingum lögreglu er
óvíst að það tengist fíkniefnum eins
og talið var í fyrstu.
Lögreglan sagði málið á frumstigi
og ekki hægt að gefa frekari upplýs-
ingar að svo stöddu.
LÖGREGLAN í Reykjavík fékk á
þriðjudag þriðja manninn úrskurð-
aðan í gæsluvarðhald vegna skot-
árásarinnar við íþróttasvæði ÍR í
Breiðholti á sunnudagskvöld. Lög-
reglan lagði síðan fram gæsluvarð-
haldskröfu yfir fjórða manninum í
gær vegna málsins og tók dómari sér
frest til dagsins í dag, fimmtudags,
til að taka afstöðu til kröfunnar.
Gæsluvarðhald mannanna þriggja
var ákveðið til 7. maí og í öllum til-
vikum lágu rannsóknarhagsmunir til
grundvallar gæsluvarðhaldskröfum
lögreglu.
Margir yfirheyrðir
Lögreglan segir að margir hafi
verið yfirheyrðir vegna málsins og
ekki væri útilokað að fleiri verði
handteknir. Í gær fékkst upplýst hjá
lögreglu að skotvopnið sem lagt hef-
ur verið hald á er 22 kalíbera
skammbyssa.
Gæsluvarðhaldskrafa lögð
fram yfir fjórða manninum
Rannsókn skotárásarinnar í Breiðholti á sunnudag
KARLMAÐUR á fertugsaldri var á
mánudag dæmdur í Héraðsdómi
Norðurlands eystra í þriggja mán-
aða skilorðsbundið fangelsi fyrir að
veitast með ofbeldi að konu á sam-
eiginlegri snyrtingu í svefnskála
starfsmanna við Kröfluvirkjun, taka
hana föstum tökum og þannig hindr-
að að hún kæmist leiðar sinnar.
Hlaut konan eymsli og væga bólgu
á enni hægra megin, áverka á upp-
handlegg og marblett og eymsli á
úlnlið. Maðurinn viðurkenndi brot
sitt fyrir dómi.
Dæmdur
fyrir árás á
konu