Morgunblaðið - 03.05.2001, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 69
DAGBÓK
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 3.
maí, verður sjötugur Óskar
Bjarnason, fyrrverandi sjó-
maður og netagerðarmað-
ur, Barðastöðum 9, Reykja-
vík. Eiginkona hans er
Anna Bjarnadóttir, fyrrv.
stöðvarstjóri. Þau verða að
heiman á afmælisdaginn.
50 ÁRA afmæli. Nk.föstudag 4. maí verð-
ur fimmtugur Árni Bene-
diktsson verslunarmaður,
Dælengi 9, Selfossi. Hann
og eiginkona hans, Elsa
Jónsdóttir, taka á móti ætt-
ingjum og vinum í Oddfell-
owhúsinu, Vallholti 19, Sel-
fossi, á afmælisdaginn frá kl.
19.30-22.
90 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 3.
maí, verður níræð Margrét
Pétursdóttir frá Varmadal í
Vestmannaeyjum. Hún tek-
ur á móti vinum og ættingj-
um í Akogeshúsinu laugar-
daginn 5. maí kl. 15.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
LJÓÐABROT
REYKJAVÍK
Þjóðminningardaginn 1897
Þar fornar súlur flutu á land
við fjarðarsund og eyjaband,
þeir reistu Reykjavík.
Hún óx um tíu alda bil,
naut alls, sem þjóðin hafði til,
varð landsins högum lík. –
Og þó vor höfn sé opin enn
og enn þá vanti knerri og menn,
við vonum fast hún vaxi senn
og verði stór og rík.
En þó við flóann byggðist borg
með breiða vegi og fögur torg
og gnægð af öllum auð, –
ef þjóðin gleymdi sjálfri sér
og svip þeim týndi, er hún ber,
er betra að vanta brauð.
– Þeir segja, að hér sé hættan mest
og hérna þróist frónskan verst
og útlend tízka temjist flest
og tungan sé í nauð.
– – –
Einar Benediktsson
Regnfatadagar
Kvenregnkápur
Fóðraðar með 100% bómull.
Þrír litir, stærðir S-XL.
Verð kr. 5.900.
Regngallar st. 80-120 cm
Litir: Bláir og rauðir.
Tilboðsverð: Jakki kr. 2.200, buxur kr. 2.220.
Hlífðarsett
Stærðir 110-160 cm.
Jakki og buxur, tilboðsverð kr. 4.500.
Kringlunni — s. 568 1822
Mercedes Bens S 1994
Til sölu Mercedes Bens 280
S-body árg. 1994. Innfluttur
af Ræsi. Ekinn 56 þús.
Verð 2.600.000.
Upplýsingar í síma 864 3700
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
NAUT
Þú ert gefinn fyrir gátur og
ert með það á hreinu að al-
heimurinn geymir fleira en
við vitum um.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er einhver óróleiki yfir
þér sem gerir þér illkleift að
festa hugann við starfið. Þú
verður að sigrast á þessu
flögri og taka vinnuna föstum
tökum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert að ganga í gegnum
mikið tilfinningaskeið nú um
stundir sem slær þig eilítið út
af laginu. Reyndu að afgreiða
þessi mál sem fyrst.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vertu óhræddur við að sýna
öðrum árangur starfs þíns því
þú mátt vera stoltur af því
sem þú hefur fengið áorkað.
Mundu bara að ofmetnast
ekki því dramb er falli næst.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft að verða þér úti um
einhver grið frá hinni daglegu
streitu og mættir þess vegna
nota þann tíma bæði til að
mennta þig og bæta.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert svo nákvæmur og ferð
því ítarlega í hlutina sem
kemur starfsfélögum þínum á
óvart og jafnvel sjálfum þér.
Öðrum þýðir ekki að rökræða
við þig.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Taktu umhverfi þitt til gagn-
gerar endurskoðunar og
drífðu svo í þeim breytingum
sem þér finnast nauðsynleg-
ar. Slíkar breytingar þurfa
hreint ekki að vera kostnað-
arsamar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er ekki amalegt útlitið
hjá þér í dag. Ef þú misstígur
þig hvergi muntu uppskera
ánægjuleg laun erfiðis þíns í
aðdáun vinnufélaga þinna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þér finnst eins og úr þér sé
allur máttur. Farðu þér því
hægt á meðan þú endurnýjar
þig og hafðu sérstakan vara á
stjórnsömum einstaklingum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú þarft að hugsa meira um
„við“ en „ég“ því nú er tími
samstarfsins og þú kemst
ekkert áfram án þess að gefa
þig í það af fullum heilindum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Farðu þér hægt í því að fitja
upp á nýjum hlutum í dag og
gakktu heldur frá öllum laus-
um endum. Vertu viðbúinn að
svara spurningum annarra
um fyrirætlanir þínar.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það má margt læra af sam-
ferðamönnum sínum hvort
sem þeir standa manni nær
eða fjær. Reynsla þeirra er
bæði hvatning og viðvörun
eftir efnum og ástæðum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Í viðskiptum geta margir flet-
ir verið upp á teningnum.
Farðu þér því hægt og gaum-
gæfðu hvern þann möguleika
sem býðst í stöðunni áður en
þú afræður nokkuð.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Hannes Hlífar Stefánsson
(2570) var ótvírætt skákmað-
ur síðasta árs enda voru sigr-
ar hans sérlega glæsilegir.
Það er óskandi að þetta ár
verði álíka gjöfult en ekkert
virðist vera því til fyrirstöðu.
Fyrir skömmu lauk opnu al-
þjóðlegu móti í Tanta í
Egyptalandi þar sem Hann-
es varð annar af sigurvegur-
um mótsins. Í stöðunni hafði
hann hvítt gegn heimamanni
að nafni Esam Ahmed
(2362). 36.Kc5! Svarti hrók-
urinn er dauðans matur eftir
þetta. Framhaldið
varð: 36...Rxf4
37.Kd6 He6+
38.Bxe6 Rxe6
39.Hd7 g5 40.Hxb7
g4 41.Hb6 h5
42.Hxa6 c5 43.b4
cxb4 44.cxb4 Rd4
45.Kd5 Rf3 46.e6
og svartur gafst
upp. Skákin tefld-
ist í heild sinni: 1.e4
c5 2.Rf3 e6 3.d4
cxd4 4.Rxd4 a6
5.Bd3 Rc6 6.Rxc6
dxc6 7.O-O e5
8.Rd2 Dc7 9.a4 Rf6
10.a5 Bb4 11.Rc4
Be6 12.Df3 Bxc4
13.Bxc4 O-O 14.Bg5 Re8
15.Hfd1 Rd6 16.Bb3 Bc5
17.Hd3 Kh8 18.Be3 Bxe3
19.Dxe3 Had8 20.Had1 Rb5
21.Dc5 Hfe8 22.Db6 Hxd3
23.Hxd3 De7 24.c3 h6 25.g3
Rd6 26.Db4 Rb5 27.Dxe7
Hxe7 28.Hd8+ Kh7 29.Kf1
g6 30.Ke2 Kg7 31.Ke3 Rc7
32.f4 exf4+ 33.gxf4 Re8
34.Kd4 Rf6 35.e5 Rh5 o.s.frv.
Hvítur á leik.
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
SKÁK
ÍTALIRNIR Bocchi og
Duboin spila fárveikt grand
á hagstæðum hættum – 9-12
HP, en það getur verið erfitt
að eiga við þá sögn með
millisterk spil. Í síðustu viku
skoðuðum við spil frá Nat-
ions Cup, sem er sýningar-
keppni fjögurra þjóða í hol-
lenska mótinu Forbo-
Krommenie, en spil dagsins
er frá aðalkeppninni, sem
Ítalir unnu. Hér er þeirra
besta par – Bocchi og Dub-
oin – í vörn gegn þremur
gröndum Ísraelans David
Birmans. Fyrst skulum við
setja okkur í spor Birmans:
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ K10
♥ D63
♦ KD1095
♣ D52
Suður
♠ ÁG65
♥ ÁG8
♦ G842
♣ G10
Vestur Norður Austur Suður
Bocchi Zeligman Duboin Birman
-- -- 1 grand * Pass
2 tíglar ** Dobl 2 hjörtu 3 grönd
Pass Pass Pass
* 9-12 HP!
**Yfirfærsla í hjarta (hugsanlega á fjórlit).
Zeligman og Birman eru
reyndasta par Ísraela og
sigruðu í sagnbaráttunni
með því að komast í þrjú
grönd, þrátt fyrir veika
grandopnun Duboins. Í raun
stendur sagnhafi vel að vígi
að vita svo mikið um spil
varnarinnar – punktastyrk
austurs og hjartalit vesturs.
Útspilið var lítið lauf og
Birman fékk slaginn heima
á tíuna. Hann sótti tígulás-
inn (sem var í austur) og
vörnin tók nú þrjá slagi á
lauf (vestur hafði byrjað
með kóng fjórða). Duboin í
austur var inni á síðasta
laufinu og spilaði hlutlaust
tígli. Hvernig myndi lesand-
inn spila í sporum Birmans?
Norður
♠ K10
♥ D63
♦ KD1095
♣ D52
Vestur Austur
♠ 873 ♠ D942
♥ K1095 ♥ 742
♦ 73 ♦ Á6
♣ K643 ♣ Á987
Suður
♠ ÁG65
♥ ÁG8
♦ G842
♣ G10
Þetta er afar lúmskt spil.
Austur hefur sýnt tvo ása og
getur því ekki átt bæði
hjartakóng og spaðadrottn-
ingu, en hlýtur að eiga ann-
að spilið. Hvers vegna spil-
aði Duboin ekki hjarta
þegar hann var inni á fjórða
laufinu? Birman spurði sig
þeirrar spurningar og svar-
aði henni eins og flestir
hefðu gert – hann á hjarta-
kóng. Þess vegna reyndi
Birman við níuna slaginn
með því að svína hjartagosa
og fór einn niður.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla
OLÍS og Ungmennafélagið Fjölnir í
Grafarvogi undirrituðu nýjan sam-
starfssamning í íþróttamiðstöðinni
við Dalhús á þriðjudaginn. Samning-
urinn felur í sér að foreldrar iðkenda
hjá íþróttafélaginu og iðkendurnir
sjálfir geta með því að versla hjá Olís
sparað sér hluta af æfingagjöldum.
Tekið hefur verið í notkun svokall-
að Gullpunktakort Olís og Fjölnis
fyrir alla félagsmenn, en kortið er í
eðli sínu safnkort. Með notkun korts-
ins safna félagsmenn punktum, sem
jafngilda greiðslu upp í æfingagjöld
hjá Fjölni. Samkvæmt fréttatilkynn-
ingu frá Fjölni má ætla að notkun
kortsins geti sparað fólki allt að 30 til
40% af æfingagjöldum á ársgrund-
velli.
Undirritun samningsins fór fram í
lok hlaups Olís og UMFF, þar sem
u.þ.b. 300 þátttakendur kepptu með
sér í gamni og alvöru, eins og gert
hefur verið síðustu 12 ár.
Morgunblaðið/Jim Smart
Snorri Hjaltason, form. Ungmennafélagsins Fjölnis (t.v.), og Tómas
Möller, framkvæmdastjóri Olís, við undirritun nýs samstarfssamnings.
Olís og Fjölnir í samstarf
MÁLBJÖRG, félag um stam, heldur
ráðstefnu fyrir kennara, foreldra
barna sem stama og aðra, sem um-
gangast börn og unglinga sem
stama. Ráðstefnan er einnig ætluð
öllum sem stama, börnum, ungling-
um og fullorðnum.
Ráðstefnan fer fram að Sólheim-
um í Grímsnesi laugardaginn 5. maí.
Jón Kristjánsson heilbrigðismála-
ráðherra setur ráðstefnuna klukkan
13. Ráðstefnuslit verða klukkan 19.
Þátttökugjald er 1.000 fyrir félags-
menn og 2.000 fyrir aðra. Hver fjöl-
skylda greiðir aðeins eitt gjald.
Tvær dagskrár verða í gangi sam-
tímis, önnur fyrir börn og unglinga
sem stama og hin fyrir fullorðna. Jó-
hanna Einarsdóttir talmeinafræð-
ingur ræðir um nýjustu fréttir af
rannsóknum og samband barna sem
stama og uppalenda.
Gylfi Jón Gylfason sálfræðingur
ræðir um stríðni og einelti. Hvað er
til ráða? Gylfi Jón ræðir fyrst við
börnin og síðan fullorðna. Eftir
hvort erindi verða umræður/vinnu-
hópar þar sem tækifæri gefst á að
ræða við fagfólkið, stjórnarmenn og
aðra þátttakendur.
Nánari upplýsingar eru á heima-
síðu Málbjargar, www.stam.is.
Hægt er að skrá sig með tölvu-
pósti til malbjorg@visir.is.
Ráðstefna um stam
barna og unglinga
FRÉTTIR