Morgunblaðið - 03.05.2001, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.05.2001, Blaðsíða 12
FRÉTTIR 12 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ STARFSHÓPUR um framleiðslu- og markaðsmál gróðurhúsa og garð- ávaxta, grænmetisnefndin svokall- aða, hefur skilað áfangatillögum í sex liðum til Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra og fela þær í sér aðgerðir til lækkunar á græn- metisverði til neytenda. Ráðherra er ætlað að skila áliti um áfangatillög- urnar fyrir næsta fund nefndarinnar sem áætlaður er í næstu viku. Morgunblaðið hefur tillögurnar undir höndum en sú fyrsta er í þá átt að fella niður 30% verðtolla á græn- metistegundir sem ekki eru fram- leiddar hér á landi. Í flestum til- vikum er um sjaldgæfar afurðir að ræða en þær algengustu eru laukur og spergill, eða ferskur aspargus. Þannig eru um 1.200 tonn af lauk flutt inn árlega. Af öðrum tegundum má nefna ísbergsalat, kúrbít, eggaldin og chili-pipar. Í grein- argerð með tillögunum er talað um enn sjaldgæfari tegund, „jarðar- tískokku“, sem mun vera stilkmat- jurt í ætt við spergil, eftir því sem Morgunblaðið kemst næst. Það er mat nefndarinnar að þess- ar tegundir séu ekki í samkeppni við innlenda framleiðslu um markað og því þjóni tollar eingöngu því hlut- verki að vera fjáröflun í ríkissjóð. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins hafa þessar tegundir gefið um 30 til 50 milljónir króna í rík- issjóð á ári af um 150 milljóna króna tollgreiðslum af innfluttu grænmeti á ári. Nefndin leggur einnig til að heim- ilt verði að leyfa fjórðungslækkanir á verðtolli og magntolli hvorum fyrir sig. Fela á ráðgjafarnefnd, sem starfar samkvæmt lögum um fram- leiðslu, verðlagningu og sölu á bú- vörum að fjalla um og meta þá breyt- ingu er kann að verða af afnámi tollanna. Í því sambandi verði nefnd- inni falið að gera drög að lagafrum- varpi í samræmi við tillögugerðina. Alþýðusamband Íslands, sem á full- trúa í nefndinni, leggur ríka áherslu á að fyrrnefndum tillögum verði hrint í framkvæmd sem allra fyrst og fyrir þinglok. Einnig leggur ASÍ áherslu á að önnur tillaga komi til framkvæmda þegar í stað, þ.e. að samkeppni á mörkuðum verði efld með verðkönnunum og virkari upp- lýsingagjöf en verið hefur. Telur nefndin að slíkar aðgerðir geti spornað gegn hringamyndun og samráði í vörudreifingu og margvís- legri þjónustu. Greiðslur til framleiðenda Af öðrum tillögum nefndarinnar skal fyrst nefna að hún kanni mögu- leika á og taki afstöðu til þess að taka upp greiðslur til framleiðenda. Greiðslurnar myndu þá renna til framleiðenda vegna rekstrarfanga, framleiðslueininga, afurðaeininga, framlaga til rannsókna og þróunar og vegna byggðastyrkja. Vegna þessarar tillögu hefur utanríkisráðu- neytið bent nefndinni á, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, að op- inberir styrkir til landbúnaðar séu í hámarki nú þegar samkvæmt al- þjóðlegum skuldbindingum og ef styrkja eigi grænmetisframleiðend- ur þurfi að taka af einhverjum öðr- um á móti. Ein af áfangatillögunum snýr að því að nefndin vinni greiningu á verðmyndun afurða garð- og gróð- urhúsa á framleiðslustigi, heildsölu- stigi og smásölustigi. Eftir því sem unnt er verði gerður samanburður á þessum kostnaði milli Íslands og tveggja Norðurlanda, þ.e. Danmerk- ur og Noregs. Þá leggur grænmetisnefndin til að möguleikar verði kannaðir á að draga úr skattlagningu á framleiðslu og/eða afurðir til að ná fram lækkun á verði til neytenda. Tollaþörfin verði metin Loks leggur nefndin til að lagt verði mat á hver þörfin fyrir tollum á innflutt grænmeti sé. Þar þurfi að taka tillit til nokkurra atriða þannig að tryggja megi framleiðslumögu- leika á afurðum garð- og gróður- húsa. Jafnframt verði metin sam- keppnisstaða garðyrkju í saman- burði við aðra matvælaframleiðslu og möguleikar skoðaðir á að leita leiða til að gera verðmyndunina gegnsærri hverju sinni. Þannig verði til leið að hóflegri verðmyndun og lægra verði til neytenda, svo vitnað sé beint í greinargerð er fylgdi til- lögunum til ráðherra. Grænmetisnefndin samþykkti fyrrnefndar tillögur á fundi sínum sl. mánudag. Að mati nefndarinnar gefst með þessu fyrirkomulagi svig- rúm til að vinna þau verkefni sem nauðsynleg eru til úrvinnslu sam- kvæmt fyrirmælum landbúnaðar- ráðherra. Nefndarmenn segjast í bréfi til ráðherra ætla að hraða störfum sínum eins og kostur sé og skila lokatillögum í haust. Áfangatillögur grænmetisnefndarinnar eru komnar til landbúnaðarráðherra Tollar á afurðir, sem ekki eru framleiddar hér, verði felldir niður Samkeppni á mörkuðum verði efld með verð- könnunum og virkri upplýs- ingagjöf UNDIRSKRIFTUM var safnað víða í Skagafirði til að mótmæla þeirri ákvörðun sýslumanns að hækka aldurstakmark úr 16 í 18 ár á dansleikjum í félagsheimilum fjarð- arins. Á þetta bann að taka gildi til reynslu um miðjan þennan mánuð, eða um það leyti sem sveitaböllin svonefndu fara að hefjast fyrir al- vöru. Aðstandendur mótmælanna af- hentu sýslumanni, Ríkarði Mássyni, undirskriftalista í gær með nöfnum ríflega 1 þúsund einstaklinga, en í sveitarfélaginu Skagafirði búa ríf- lega 4 þúsund manns þannig að segja má að um fjórðungur Skagfirðinga hafi skrifað undir mótmælin. Að- standendur mótmælanna íhuga að afhenda dómsmálaráðherra einnig afrit af undirskriftalistunum. Við afhendingu mótmælanna í gær sagðist sýslumaður ætla að standa við þessa breytingu. Það ætti síðan eftir að koma í ljós hvað félags- heimilin gerðu en samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins er talið líklegt að forráðamenn félagsheim- ilisins Miðgarðs í Skagafirði muni kæra þessa ákvörðun sýslumanns til dómsmálaráðuneytisins. Markmið sýslumanns með þessum breytingum á aldurstakmarki er m.a. að draga úr áfengisnotkun ung- linga en aðstandendur mótmælanna telja að áhrifin verði þveröfug. Ald- urstakmark á almenna dansleiki er 16 ár víðast hvar annars staðar á landinu. Undirskriftalistar höfðu legið frammi í verslunum og víðar í tæpa viku. Á listunum er sýslumaður hvattur til að draga til baka tillögur sínar um dansleikjahald í Skagafirði. Þrír ungir menn í Skagafirði á aldrinum 18–20 ára stóðu að undir- skriftasöfnuninni. Einn þeirra, Ingi Björn Árnason, sagði við Morgun- blaðið að viðbrögðin hefðu verið langtum meiri og betri en þeir höfðu þorað að vona. Fólk á öllum aldri hefði ritað nafn sitt, fullorðið fólk þó í meirihluta og sá elsti væri á 82. ald- ursári. „Við teljum það enga forvörn að banna 16–18 ára krökkum að fara á dansleiki. Þetta mun auka vandann ef eitthvað er og færa skemmtun unga fólksins í heimahús eða á göt- urnar. Það er skárra að hafa þetta í einhverju félagsheimili undir gæslu dyravarða og lögreglu. Gæsla í stærsta félagsheimilinu, Miðgarði í Varmahlíð, hefur verið til fyrir- myndar og við teljum að hana ætti frekar að efla,“ sagði Ingi Björn. Ljósmynd/Sveinn Anton Jensson Vilhjálmur Árnason, Ingi Björn Árnason og Helgi Rafn Viggósson afhentu Ríkarði Mássyni, sýslumanni í Skaga- firði, undirskriftir sem safnað var til að mótmæla ákvörðun sýslumanns um hækkun aldurstakmarks á dansleiki. Hækkun á aldurstakmarki á dansleiki í Skagafirði Ríflega þúsund manns skrifuðu undir mótmæli TILLÖGU borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins um að framlög til einkaskóla yrðu reiknuð á sama grundvelli og til annarra skóla var vísað frá á síðasta fundi borgarráðs. Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti sjálfstæðismanna, segir að tillagan verði lögð aftur fram á fundi borg- arstjórnar í dag, 3. maí. Hún segir það sanngirnismál að einkaskólar fái sömu framlög frá borginni og aðrir grunnskólar. Nú fá einkaskólar framlag á hvern nemanda frá Reykjavíkurborg sem nemur u.þ.b. 2/3 þess sem hver nem- andi í almennum grunnskólum kost- ar. Inga Jóna sagði sjálfstæðismenn vilja að sú viðmiðunarregla sem stuðst væri við yrði endurskoðuð og skólarnir fengju sama framlag hvort sem borgin eða einkaaðilar sæu um rekstur skólanna. Hún sagði að þessi tillaga væri forsenda fyrir raunverulegu sjálf- stæði skóla, sem fulltrúar R-listans hefðu stundum látið í veðri vaka að þeir styddu. Inga Jóna sagði að sú regla sem nú væri stuðst við byggð- ist á jaðartilvikum, en miðaðist ekki við raunverulegan kostnað. Framlög til einkaskóla hækka um 50% á þremur árum Sigrún Magnúsdóttir, formaður fræðsluráðs, sagði að í ágúst á síð- asta ári hefði verið samþykkt sam- hljóða í fræðsluráði að greiða sömu upphæð til einkaskóla og Samband íslenskra sveitarfélaga miðar við þegar sveitarfélög greiða fyrir nem- endur sem stunda nám í öðrum sveit- arfélögum, þ.e. fyrir nemanda í Reykjavík sem stundar nám í Garða- bæ eða Kópavogi svo dæmi væri tek- ið. Hún sagði að ekki væri óeðlilegt að sveitarfélög greiddu lægri fram- lög til einkaskóla en almennra grunnskóla þar sem einkaskólar væru að hluta til reknir fyrir framlög frá foreldrum. Hún sagðist ekki vera fylgjandi því að einkaskólar fengju það sama og almennir grunnskólar sem ekki nytu framlaga frá foreldr- um. Sigrún sagði að á síðustu þremur árum hefðu framlög Reykjavíkur- borgar til einkaskóla hækkað um 50% og myndu væntanlega hækka enn á næstunni þegar Samband ís- lenskra sveitarfélaga gæfi út nýjar viðmiðunarupphæðir. Tillaga sjálfstæðismanna í borgarráði Einkaskólar fái það sama og al- mennir skólar Í DAG mun dr. Ari Kristinn Jóns- son, sérfræðingur í gervigreind og vísindamaður hjá Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, halda fyrir- lestur fyrir almenning um gervi- greind og hvernig hún kemur við sögu við undirbúning ferða ómann- aðra geimfara um sólkerfið. Fyrir- lesturinn hefst í Háskólanum í Reykjavík kl. 17:15. Í fyrirlestrinum verður gefið yf- irlit yfir þá gervigreindartækni sem verið er að þróa í Ames-rannsókn- arstöð NASA og hvernig sú tækni hefur verið og verður notuð í geim- ferðum. Sérstaklega verður fjallað um nýlega tilraun þar sem geimfari var í fyrsta skipti stýrt með gervi- greindarkerfi, atburði sem lýst hefur verið sem þáttaskilum í þróun gervi- greindartækni. Umræðurnar munu m.a. snúast um framtíðarferðir út í geiminn, m.a. til að kanna hugsan- legt líf á Mars og á tunglinu Evrópu. Ari Kristinn hefur undanfarin 4 ár starfað sem vísindamaður hjá NASA við þróun nýrra aðferða fyrir sjálf- virka áætlanagerð fyrir ómannaðar geimferðir. Hann lauk BS-prófi í stærðfræði frá Háskóla Íslands árið 1990 og BS prófi í tölvunarfræði frá sama skóla ári síðar, með hæstu einkunn frá stofnun námsbrautar- innar. Hann lauk MS-prófi í tölvun- arfræði frá Stanford University 1995 og doktorsprófi 1997. Íslenskur starfsmaður NASA Fyrirlestur um gervi- greind
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.