Morgunblaðið - 03.05.2001, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 03.05.2001, Blaðsíða 35
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 35 KÓR Hafnarfjarðarkirkju hreppti silfurverðlaun í alþjóðlegri kóra- keppni sem haldin var í Grado á Ítalíu 18.–22. apríl sl. Stjórnandi kórsins er Natalía Chow. Keppnin, sem heitir „Isola del sole“, er skipulögð af Mus- ica-Mundi og var þetta í þriðja skiptið sem hún er haldin. 35 kórar frá 15 þjóðlöndum tóku þátt í keppninni og voru kórarnir m.a. frá Kína, Ísrael, Póllandi, Lettlandi, Rússlandi, Finn- landi og Noregi. Keppt var í 5 flokk- um og var Kór Hafnarfjarðarkirkju í flokki kammerkóra, ásamt fimm öðr- um kórum. Kór Hafnarfjarðarkirkju fékk silfur en það var pólskur kór sem fékk gullið. Auk þátttökunnar í keppninni söng kórinn á tónleikum í Santa Eufemia-kirkjunni í Grado og flutti þar fimm kirkjuleg verk, einnig sungu þar kórar frá Kína og Ung- verjalandi. Að sögn kórstjórans, Nat- alíu Chow, var keppnin vel heppnuð og mótshöldurum til sóma að öllu leyti og vel tekið á móti þeim í Grado. Komust ekki á Ólympíuleikana „Forsaga þess að við tókum þátt í keppninni er sú að í fyrra hugðumst við taka þátt í Ólympíuleikum kóra sem nú eru haldnir á hverju ári. Áður en að því kom var orðið ljóst að við höfðum unnið í lottói sem tengt er keppninni og fól vinningurinn í sér frítt húsnæði og fæði í fjóra daga. Það varð þó ekkert úr því að við kæmumst á Ólympíuleikana vegna þess að ég var að fæða barn á þessum tíma. Í sárabætur fyrir það að geta ekki nýtt okkur lottóvinninginn og tekið þátt í Ólympíuleikunum var okkur boðið að taka þátt í þessari keppni en það eru sömu aðilar, Musica Mundi, sem skipuleggja hvort tveggja. Undirbún- ingur fyrir keppnina var mikill, ekki síst að afla fjár til að komast. Það var skylda að syngja eitt ítalskt endur- reisnarlag frá því fyrir 1600 en annað gátum við valið sjálf og vorum með ís- lensk kórlög, m.a. Heyr himna smiður eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Graf- skrift eftir Hjálmar H. Ragnarsson og Maístjörnuna eftir Jón Ásgeirs- son. Sem skylduverk völdum við madrigal eftir Ruggiero Giovannelli.“ Erfið byrjun en fall er fararheill Að sögn Natalíu bjóst hún alls ekki við að vinna til verðlauna í keppninni. Ferðalagið var langt og strangt og eftir flug til Frankfurt tók við löng rútuferð til Grado og kórinn var ekki kominn á hótelið sitt fyrr en milli kl. 2 og 3 um nótt. „Strax næsta morgun kl. 9 áttum við svo að syngja í því sem kallast Consultation Round 1, en þar gafst kórunum tækifæri til að syngja fyrir dómarana fimm og fá leiðbeiningar um hvað betur mætti fara. Þarna vor- um við svefnlaus og dauðþreytt eftir ferðina og sungum frekar illa. Hins vegar lærðum við mikið af þeim leið- beiningum sem við fengum og æfðum stíft þar til að keppninni sjálfri kom. Þar gerðum við auðvitað okkar besta en bjuggumst ekki við þessum ár- angri. Við verðlaunaafhendinguna voru allir kórstjórarnir kallaðir upp á svið og þá kom í ljós að við höfðum hreppt annað sæti eða silfurverðlaun- in.“ Natalía Chow kveðst hafa lært mikið af því að fylgjast með kórunum í keppninni. Einn dómaranna benti henni sérstaklega á að fylgjast með pólska kórnum, sem hreppti gullið, ekki síst hvernig verkefni hann var með. Það þótti draga kínverska kór- inn niður að vera nánast eingöngu með kínversk verk og Natalía telur að kórinn hennar hefði einnig þurft að vera með fjölbreyttara lagaval. Lærdómsrík þátttaka „Ég veit betur núna hvernig maður setur saman efnisskrá fyrir svona keppni.“ Eftir keppnina sjálfa var boðið upp á Consultation Round 2, en þar tók einn dómaranna kórinn í „masterclass“, og var þá eingöngu farið yfir ítalska lagið sem kórinn söng. „Þessi dómari er sérfræðingur í ítalskri kórtónlist frá endurreisnar- tímanum og þó að keppninni sjálfri væri lokið var þetta mjög lærdóms- ríkt fyrir okkur því hann fór í alls kon- ar smáatriði sem skipta máli í ítalskri söngtónlist frá þessum tíma.“ Ólympíuleikar kóra verða haldnir í Kóreu í haust en Natalía Chow telur að Kór Hafnarfjarðarkirkju hafi ekki fjárhagslega burði til að sækja þá eft- ir þetta ævintýri. „Hins vegar hitti ég kínverskan kórstjóra í Grado og við töluðum um að kórinn okkar færi ein- hvern tíma í heimsókn til Kína og tæki þátt í kórakeppni þar.“ Kór Hafnarfjarðarkirkju hreppti silfur í alþjóðlegri kórakeppni Bjuggumst alls ekki við þessu Kór Hafnarfjarðarkirkju, ásamt stjórnandanum Natalíu Chow, í Grado á Ítalíu. Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is lím og fúguefni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.