Morgunblaðið - 03.05.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.05.2001, Blaðsíða 16
AKUREYRI 16 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ LEIKHÚSKÓRINN frumsýnir óperettuna Sígaunabaróninn eftir Jóhann Strauss II í Samkomuhús- inu á Akureyri í kvöld, fimmtudag- inn 3. maí. Sýningin er samstarfs- verkefni Leikhússkórsins á Akureyri og Leikfélags Akureyrar. Alls taka þátt í sýningunni 20 manna kór, níu einsöngvarar og fjörurra manna hljómsveit. Leikhúskórinn er sjálfstætt starf- andi kór áhugamana um leik- hústónlist og er nú á sínu sjöunda starfsári. Kórinn hefur staðið fyrir konsert-uppsetningum á söng- leikjum og óperum og tónleikum með blandaðri söngleikjadagskrá. Roar Kvam hefur stjórnað kórnum frá upphafi, annast tónlistar- stjórnun auk þess sem hann sér um allar útsendingar bæði fyrir kór og hljómsveit. Leikstjóri er Skúli Gautason en í aðalhlutverkum eru Alda Ingi- bergsdóttir, Haukur Steinbergsson, Sigríður Elliðadóttir, Sveinn Ár- mann Sæmundsson, Hildur Tryggvadóttir, Þórhildur Örvars- dóttir, Ari Jóhann Sigurðsson, Baldvin Kr. Baldvinsson og Stein- þór Þráinsson. Undirleikarar eru Aladar Rácz píanó, Jaan Alavere fiðla, Björn Leifsson klarinett og Pétur Ingólfsson kontrabassi. Sýningar verða í Samkomuhús- inu á Akureyri á fimmtudögum og sunnudögum út maí. Leikhúskór- inn frumsýn- ir Sígauna- baróninn Þórhildur Örvarsdóttir og Ari Jóhann Sigurðsson í hlutverkum Saffi og Barinkáy. Morgunblaðið/Margrét Þóra „Herkúles getur þetta með léttum leik“ FÉLAGARNIR Magnús og Arnar Þór voru víga- legir þegar þeir bisuðu við að færa til steinhnull- ung í Aðalstræti á Akureyri nýverið. Þeir sögð- sagði Magnús þegar hvorki gekk né rak og Arn- ar Þór bætti við að ef þeim tækist að fá svona tuttugu menn til liðs við sig myndi verkið ganga. ust hafa verið að í þrjá tíma en eflaust hefur tímaskynið eitthvað verið á reiki hjá þeim vin- um. „Herkúles getur þetta með léttum leik,“ BJARGRÆÐISKVARTETTINN heldur tónleika í Deiglunni á Akur- eyri í kvöld, og hefjast þeir kl. 21.30. Þá verða tónleikar á Gamla Bauk á Húsavík á föstudagskvöld, 4. maí og hefjast þeir kl. 21. Kvartettinn mun flytja sína vin- sælu dagskrá með textum Ómars Ragnarssonar við lög hinna ýmsu höfunda. Lögin eru flest vel þekkt en fá hér nýjan hljóm í sérstæðum Bjargræðis-útsetningum. Ómar Ragnarsson er afkastamik- ill textahöfundur og fjölmargir ís- lenskir flytjendur hafa leitað í texta- smiðju hans enda er úr mörgu að velja þar sem hugðarefni Ómars eru mörg og margvísleg. Bjargræðiskvartettinn hefur sömu kynjaskipan og ABBA forðum, eða tvennt af hvoru kyni, allir syngja og allir spila á allskonar hljóðfæri. Kvartettinn skipa: Reykvíkingurinn Anna Sigríður Helgadóttir, Patreks- firðingurinn Gísli Magnason, Hafn- firðingurinn Örn Arnarson og Hús- víkingurinn Aðalheiður Þorsteins- dóttir. Bjargræðis- kvartett með tónleika SÝNING á verkum Elínar Kjartans- dóttur verður opnuð í Handverks- miðstöðinni Punktinum á Akureyri í dag, fimmtudag. Hún stendur til maíloka og er opin frá kl. 13 til 17 alla virka daga en einnig frá kl. 19 til 22 á mánudags- og miðvikudagskvöldum. Á sýningunni eru ofnar mottur úr leðri og mokkaskinni. Elín starfar á vinnustofu sinni í Aðaldal en þar hef- ur hún innréttað gamalt fjós til þeirra nota og kallar Tóverið Tumsu. Elín sankar að sér náttúrulegu hráefni, svo sem dýrahári af öllu tagi, leðri, mokkaskinni, trjágrein- um og beinum. Einnig aflóga flíkum, tuskum, rúllubaggaplasti, dagblöð- um, glerbrotum og ryðguðum gaddavír en úr þessu býr hún til mottur, kort, gluggatjöld eða lampa- skerma svo dæmi séu tekin. Elín sýnir öðruvísi vefnað ♦ ♦ ♦ VINSTRI hreyfingin – grænt fram- boð nýtur stuðnings 15,5% Akur- eyringa samkvæmt könnun sem Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri gerði dagana 7. til 11. apríl síðstliðinn. Hringt var í rúm- lega 500 manns og var svörun 67,3%. Fram kemur í könnuninni að Ak- ureyringar eru óvissir í afstöðu sinni til þeirra flokka og framboða sem hugsanlega bjóða fram til bæj- arstjórnar, en aðeins helmingur svarenda lýsti stuðningi við tiltek- inn flokk eða framboð. Fylgi Framsóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks er svipað og mældist í síðustu könnun Rannsóknarstofn- unar fyrir um ári. Framsóknar- flokkur fengi 25,9% atkvæða og héldi sínum þremur mönnum í bæj- arstjórn, Sjálfstæðisflokkur 44,8% og fimm menn kjörna líkt og þeir hafa nú. Listi fólksins og Akureyrarlisti tapa mönnum yfir til VG Listi fólksins sem bauð fram í síðustu bæjarstjórnarkosningum nýtur fylgis 5,7% svarenda, en hann fékk 11,5% í síðustu kosningum og einn mann kjörinn í bæjarstjórn. Samkvæmt könunninni myndi list- inn tapa honum. Hið sama er uppi á teningnum varðandi Akureyrarlist- ann, sem Alþýðubandalagið, Al- þýðuflokkurinn og Kvennalistinn buðu fram sameiginlega í síðustu kosningum. Fylgi við hann hefur hrapað úr 22,8% í síðustu kosning- unum í 8% nú samkvæmt könn- uninni. Akureyrarlistinn fékk tvo menn kjörna, en missir annan sam- kvæmt könnuninni. Vinstri-Grænir njóta samkvæmt könnuninni fylgis 15,5% bæjarbúar og myndu fá tvo menn kjörna í bæjarstjórn. Fleiri ánægðir með störf meirihlutans Í könnuninni var einnig spurt um afstöðu til meirihlutans í bæjar- stjórn Akureyrar. Ánægja með störf meirihlutans hefur aukist lít- illega miðað við sambærilega könn- un á síðasta ári, en 41,7% svarenda voru mjög eða frekar ánægð á móti 38,3% í fyrra. Alls voru 22,2% svar- enda frekar eða mjög óánægð með störf meirihlutans sem er svipaður hópur og tjáði sig á þann hátt í síð- ustu könnun. Langflestir eða 38,2% voru hvorki ánægðir né óánægðir með meirihlutann. Eins og kannski nærri má geta voru fylgismenn meirihlutaflokk- anna í bæjarstjórn ánægðastir með störf þeirra. Þannig sögðust 75,6% kjósenda Sjálfstæðisflokks vera ánægð með meirihlutann og 64,3% kjósenda Akureyrarlistans, en þess- ir flokkar mynda meirihlutann í bæjarstjórn. Þá má geta þess að nær 38% kjósenda Framsóknar- flokks eru ánægð með meirihlut- ann, 30% fylgismanna Lista fólksins og um 23% þeirra sem kjósa Vinstri græna. Þjóðmálakönnun Rannsóknarstofnunar HA VG fengi tvo menn í bæjarstjórn Akureyrar                  !" !!#      ! $!!#! !%            !                  " STRAX, matvöruverslun Matbæjar ehf. í verslun- armiðstöðinni Sunnuhlíð á Akureyri, verður lokað í þessum mánuði og var öllu starfsfólki, 6 manns, sagt upp störfum fyrir skömmu. Að sögn Sigmund- ar Ófeigssonar framkvæmdastjóra Matbæjar munu einhverjir starfsmenn flytjast til innan félagsins. Hann sagði að verslunin í Sunnuhlíð hefði ávallt verið erfið í rekstri og verið rekin með tapi nánast frá upphafi. „Húsið hefur aldrei fengið næga traffík af fólki og það var illa í sveit sett í upphafi. Þarna átti aldrei að verða verslunarmiðstöð en staðsetningin hefur þó heldur skánað með tilkomu Borgarbrautar. Við höf- um reynt ýmislegt, m.a. rekið apótek við hliðina á búðinni en það breytti engu og reyndist útilokað að reka apótekið. Það var reynt að lækka vöruverð en það þýddi bara enn verri afkomu í versluninni. Sigmundur sagði að þróunin hefði verið sú að litlum verslunum hafi verið að fækka jafnt og þétt víða um land, enda rekstrargrundvöllurinn að verða sífellt erfiðari. Velta verslunarinnar í Sunnuhlíð nam um 90 milljónum króna á síðasta ári en Sig- mundur sagði að verslun sem velti undir 100 millj- ónum króna á ári bæri sig ekki í dag. Húsnæðið leigt eða selt Húsnæðið í Sunnuhlíð er í eigu Kletta ehf., sem er fasteignafélag Kaupfélags Eyfirðinga, og að sögn Sigmundar verður húsnæðið væntanlega leigt eða selt í kjölfarið. Um síðustu áramót hætti Mat- bær rekstri Strax-verslana í Hrísey og Grímsey og tóku einkaaðilar yfir verslunarrekstur í eyjunum. Eftir lokun í Sunnuhlíð rekur Matbær þrjár versl- anir undir merkjum Nettó, sex verslanir undir merkjum Strax, þrjár verslanir undir merkjum Úr- vals og kostasölu. Mikil breyting til hins betra varð á rekstri Mat- bæjar á síðasta ári. Velta félagsins nam tæpum 5 milljörðum króna og var rekstur félagsins jákvæð- ur um liðlega 10 milljónir króna. Eins og fram kom í máli Eiríks S. Jóhannssonar kaupfélagsstjóra á að- alfundi KEA um síðustu helgi, má rekja afkomu- bata KEA-samstæðunnar að miklum hluta til Mat- bæjar en þar hefur framlegð hækkað um rúm 4 prósentustig á milli ára. Matvöruversluninni í Sunnuhlíð lokað LÍFEYRISSJÓÐUR Norðurlands hefur keypt 14,9% hlut í Íslenskum verðbréfum hf. Hlutafé Íslenskra verðbréfa hf. hefur verið aukið sem nemur hinum nýja hlut en fyrri hlut- hafar féllu frá forkaupsrétti sínum. Þetta kemur fram á heimasíðu Lífeyrissjóðsins en frá þessu var gengið þann 30. apríl með samhljóða samþykki allra hluthafa Íslenskra verðbréfa hf. Samhliða þessum kaupum munu Lífeyrissjóður Norð- urlands og Íslensk verðbréf hf. hefja samstarf, einkum á sviði eignastýr- ingar fyrir sjóðinn og verður það nánar útfært af samningsaðilum á næstu mánuðum. Lífeyrissjóð- ur Norður- lands kaupir hlut í ÍV ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.