Morgunblaðið - 03.05.2001, Síða 20
LANDIÐ
20 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skógum - Sameiginleg guðsþjón-
usta Eyfellinga og Mýrdælinga var
haldin sunnudaginn 29. apríl sl. í
Skógakirkju. Á eftir kom fólkið
saman í gamla barnaskólanum frá
Litla-Hvammi, þar sem oddviti
Austur-Eyjafjallahrepps tilkynnti
kjör Þórðar Tómassonar sem heið-
ursborgara hreppsins.
Í tilefni af afmæli Þórðar Tóm-
assonar, safnvarðar í Skógum, 28.
aprílhöfðu kirkjukórar Eyfellinga
og Skeiðflatarkirkju í Mýrdal undir
forystu organistanna Þorgerðar
Jónu Guðmundsdóttur og Kristínar
Björnsdóttur frumkvæði að því að
haldin var sameiginleg guðsþjón-
usta í Skógakirkju sl. sunnudag.
Þórður ávarpaði í upphafi kirkju-
gesti í þétt setinni kirkjunni.
Sr. Halldór Gunnarsson í Holti
þjónaði fyrir altari, en sr. Haraldur
M. Kristjánsson í Vík prédikaði. Í
lok guðsþjónustunnar afhenti sr.
Halldór gjöf Eyvindarhólasafnaðar
til kirkjunnar í tilefni afmælisins,
silfurbikar og patínu, og sagði, að
frá vígslu kirkjunnar 14. júní 1998
hefðu hana sótt um áttatíu þúsund
manns þar sem kirkjan og Þórður
flyttu saman sína prédikun og síð-
an væri lofgjörð flutt í söng við
undirleik Þórðar.
Á eftir buðu kirkjukórarnir og
Byggðasafnið til kaffidrykkju með
pönnukökum í gamla barnaskóla-
húsinu frá Litla-Hvammi, sem
nýbúið er að reisa við Byggðasafn-
ið vestan við kirkjuna. Þar færði
Þorgerður Jóna fyrir hönd kór-
anna systkinunum Guðrúnu og
Þórði blóm í tilefni afmæla þeirra.
Verk sem hafa aukið
hróður sveitarinnar
Þá kvaddi Ólafur Tryggvason á
Raufarfelli, oddviti Austur-Ey-
fellinga, sér hljóðs og tilkynnti ein-
róma kjör Þórðar Tómassonar sem
heiðursborgara sveitarinnar af
sveitarstjórn. Ólafur sagði m.a.:
„Það er einróma mat okkar að þú
hafir með störfum þínum í þágu
sveitarfélagsins og raunar allrar
þjóðarinnar sýnt okkur með ein-
staklega ljósum hætti í uppbygg-
ingu Byggðasafnsins í Skógum inn
í þá fortíð, sem lýsir kjörum feðra
okkar og mæðra þannig að vart
verður betur gert. Á öllum tímum
koma fram einstaklingar sem skara
fram úr á ýmsum sviðum, þú í okk-
ar samtíð með verkum þínum, sem
hafa aukið hróður sveitarinnar og
munu gera það um langa framtíð.
Því er við hæfi á þessum tíma-
mótum að færa þér þakkir með
þeim hætti sem við höfum nú
ákveðið... Það er einlæg ósk okkar
til þín, að þér endist líf og heilsa til
að vinna að hugðarefnum þínum
lengi enn, til gagns og gleði fyrir
nútíð og framtíð.“
Á eftir sungu kórarnir með
kirkjugestum ættjarðarlög og var
það samróma álit viðstaddra að
gamla barnaskólahúsið endur-
ómaði af ættjarðarlögunum með
sérstökum hætti, þannig að líkja
mætti við „hús“ fiðlunnar.
Morgunblaðið/Halldór
Þorgerður Jóna Guðmundsdóttir ávarpar Þórð og Guðrúnu Tómasarbörn eftir að hafa fært þeim blómvendi.
Ólafur Tryggvason oddviti ósk-
ar Þórði Tómassyni til hamingju
með heiðursborgaranafnbótina.
Þórður heiðursborgari
Austur-Eyjafjallahrepps
Skagaströnd - Þeir voru hressir
feðgarnir á Dagrún ST þegar þeir
komu með þrjá stóra hákarla í sama
róðrinum um helgina ásamt tveimur
tonnum af fallegum þorski. Hákarl-
ana fengu þeir vestur við Strandir á
hákarlalóð sem þeir lögðu þar og
beittu með hnísu og feitri síðu af
hrossi.
Lýður Hallbertsson og Eiríkur
sonur hans hafa róið á Dagrúnu með
þorskanet í vetur og gengið sæmi-
lega. Nýlega lögðu þeir 17 króka há-
karlalóð að gamni sínu „til að fá há-
karl í kjaftinn á sér“, eins og Lýður
orðaði það. Hafa þeir fengið fimm
hákarla á lóðina, nú síðast þrjá í einu.
Að sögn Lýðs hafa verið vandræði
með að fá beitu og þess vegna hafa
þeir ekki getað lagt lóðina. Þeir hafa
helst beitt hnísu þegar þeir hafa
fengið hana í netin. Í síðustu viku
komust þeir félagar yfir spikfeitar
hrossasíður og prufuðu að beita
þeim. „Eftir að við fórum að bjóða
honum hrossafituna lítur hann ekki
við hnísunni. Þessir þrír núna komu
allir á króka sem voru beittir með
hrossafitu en enginn á hnísuna,“
sagði Lýður.
Þeir feðgar verka hákarlinn sjálfir
og hugsa sér gott til glóðarinnar á
þorranum á næsta ári.
Morgunblaðið/Ólafur B.
Þeir feðgar Lýður og Eiríkur voru að vonum ánægðir með daginn enda ekki oft að þeim tekst að ná í þrjá há-
karla sama daginn. Þeir skera innan úr þeim út á sjó og taka hausinn af til að létta þá og gera þá meðfærilegri.
Þrír hákarlar í róðri
Selfossi - Leikskólinn Árbær á Sel-
fossi kynnti nýlega nýja námskrá
fyrir foreldrum en vinna við hana
hefur staðið yfir frá því í október á
síðasta ári. Námskráin tekur mið af
aðalnámskrá leikskóla og er sveigj-
anlegur rammi um starfið í skólan-
um. Með námskránni fylgir starfs-
mannahandbók sem auðveldar
nýliðum að komast inn í starf skól-
ans. Leikskólinn Árbær á Selfossi er
sameign Ölfuss, Gaulverjabæjar og
Villingaholtshrepps.
Aðalmarkmið leikskólans Árbæj-
ar er að efla félagslega færni ein-
staklingsins. „Barn sem öðlast
félagslega færni mun standa sig vel í
námi og starfi á lífsleiðinni,“ sagði
Rannveig Guðjónsdóttir leikskóla-
stjóri er hún kynnti nýju námskrána.
Hún vitnaði í grein eftir Guðmund
Finnbogason skólafrömuð og sagði:
„Enginn getur orðið að manni nema í
samfélagi annarra manna. Þaðan
höfum vér allt sem skilur oss frá dýr-
um. Menntun er samstofna maður og
að menntast ætti því að þýða að
verða að manni, verða þannig að all-
ar eigindir mannsins nái hæfilegum
þroska. Við sem vinnum hér í Árbæ
munum gera okkar besta til að vinna
að þessu markmiði.“
Í lokaorðum námskrárinnar er að
finna eftirfarandi setningar: „Börn
eru frábærir einstaklingar sem eiga
skilið allt það besta sem hægt er að
veita þeim. Það er á valdi okkar
hinna fullorðnu að þau fái það. Það
má líkja börnum við blóm. Ef við
vökvum þau ekki með virðingu,
ástúð, hlýju og samkennd visna þau
og gleðin í augum þeirra dofnar.“
Við kynningu á námskránni færðu
foreldrar skólanum bækur að gjöf
með hvatningarorðum til starfsfólks-
ins.
Morgunblaðið/Sig. Jónss.
Frá kynningu nýrrar námskrár í Árbæ á Selfossi.
Ný námskrá í leik-
skólanum Árbæ