Morgunblaðið - 03.05.2001, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.05.2001, Blaðsíða 32
ERLENT 32 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ANFINN Kallsberg, lögmaður Færeyja, reynir nú enn að fá Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráð- herra Danmerkur, til að fallast á nýjar viðræður um sjálfstæðisáætl- anir landstjórnarinnar en þingkosn- ingar verða í Færeyjum ekki síðar en í apríl að ári. Í bréfi til Rasmussens leggur Kallsberg til, að viðræður verði hafnar síðar í þessum mánuði um þær tillögur, sem færeyska lögþing- ið samþykkti nýlega. Vill Kallsberg, að þá verði rætt um þá málaflokka, sem Færeyingar geti tekið við úr höndum Dana, og um danska styrk- inn, sem er upp undir 16 milljarðar íslenskra króna á ári. Til þessa hefur verið samið um hann til þriggja ára í senn og rennur núverandi samning- ur út í árslok. Danski styrkurinn lækki strax á næsta ári Í nýjum sjálfstæðistillögum land- stjórnarinnar segir, að þegar á næsta ári verði danski styrkurinn skorinn niður um allt að fimm millj- arða ísl. kr. og hefur það verið harð- lega gagnrýnt af stjórnarandstöð- unni, Jafnaðarflokknum og Sam- bandsflokknum. Auk þess vill land- stjórnin, að allir málaflokkar, sem nú eru í höndum Dana, verði komnir í hendur Færeyinga í síðasta lagi ár- ið 2012. Í því efni vill hún, að fær- eyska kirkjan og skólamálin hafi for- gang. Í bréfi sínu til Rasmussens setur Kallsberg fram þá ósk, að velvilji og gagnkvæm virðing einkenni væntan- legar viðræður ólíkt því, sem var í viðræðunum á síðasta ári. Vísar hann í því sambandi til fyrirrennara Rasmussens, Pouls Schlüters, og samningsins, sem hann gerði við Færeyinga um landgrunnsréttindin. „Samningurinn sá er gott dæmi um hvernig finna má einfaldar lausnir á flóknum, lögfræðilegum álitaefnum. Þær fólust í pólitískum velvilja og geta orðið okkur fordæmi þegar við förum að ræða um yfir- töku ýmissa málaflokka,“ segir Kallsberg í bréfinu til Rasmussens. Bíða spenntir eftir afstöðu Rasmussens Rasmussen hefur fátt sagt enn um nýju sjálfstæðisáætlunina en með henni var einnig ákveðið að aflýsa fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæðismálin en hún átti að fara fram seint í maí. Var áætlunin samþykkt í lögþinginu í síðustu viku og þar er því lýst yfir, að Færeying- ar hafi fullan ákvörðunarrétt yfir sínu eigin landi. Ætlaði Rasmussen að skýra afstöðu sína til áætlunar- innar á fundi í Færeyjanefnd danska þjóðþingsins í dag og ennfremur til samningsins um landgrunnsréttind- in en samkvæmt honum eiga þau að færast í hendur Færeyinga 9. maí næstkomandi. Í Færeyjum er þess beðið með einna mestri eftirvæntingu hvort Rasmussen telur, að yfirlýsingin um „færeyskt sjálfstæði“ jafngildi fær- eysku fullveldi. Geri hann það, mun hann vafalaust ítreka fyrri yfirlýs- ingar um, að danski styrkurinn falli þá niður á fjórum árum. Skoðana- kannanir í Færeyjum sýna hins veg- ar, að meira en 60% landsmanna vilja ekki fullveldi ef það þýddi, að danski styrkurinn hyrfi á svo skömmum tíma. Eru hagfræðingar sammála um, að það myndi hafa al- varlegar afleiðingar í för með sér fyrir færeyskt efnahagslíf. Versnandi sambúð á stjórnarheimilinu Nýja sjálfstæðisáætlunin er ekki jafn afgerandi og sú gamla, til dæm- is er ekki nefnt hvenær efna skuli til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið, en svo virðist sem landstjórnin, sam- steypustjórn þriggja flokka, sé sam- mála um, að markmiðið sé fullt sjálf- stæði. Það er líka það eina, sem flokkarnir eru sammála um. Samstarfið milli flokkanna, Þjóð- arflokksins, Sjálfstjórnarflokksins og Þjóðveldisflokksins, hefur aldrei gengið verr en nú. Allt frá því Kalls- berg, sem er í Þjóðarflokknum, blés af þjóðaratkvæðagreiðsluna hefur andað mjög köldu milli hans og Høgna Hoydals, sem er í Þjóðveld- isflokknum og fer með sjálfstæðis- málin í landstjórninni. Þá hefur Þjóðarflokkurinn, sem er til hægri í stjórnmálunum, gagnrýnt harðlega þjóðveldisflokksmanninn Karsten Hansen, sem fer með fjármálin í landstjórninni, fyrir samninga hans við opinbera starfsmenn en þeir kveða á um 12,5% launahækkun á rúmum tveimur árum. Þjóðveldis- flokkurinn hefur síðan vakið gremju innan Þjóðarflokksins með bréfi, sem hann hefur sent formönnum samstarfsflokkanna, en þar eru þeir áminntir um að vera ekki með flokkspólitískar yfirlýsingar í fjöl- miðlum. Kosningabarátta í heilt ár? Við þetta bætist síðan, að Þjóð- arflokkur Kallsbergs snerist á sveif með stjórnarandstöðunni og greiddi atkvæði með lægri skatti á bensín og í framhaldi af öllu þessu lagði Hel- ena Dam í Sjálfstjórnarflokknum til, að efnt yrði til kosninga sem fyrst. Sagði hún, að kosningabaráttan væri í raun hafin þótt ár væri eftir af kjör- tímabilinu og rétt að hlífa lands- mönnum við því stappi í svo langan tíma. Var Helena sökuð um að hafa haft hagsmuni sína og síns flokks í huga er hún lagði þetta til og síðan hefur hún tekið tillöguna aftur. Anfinn Kallsberg lögmaður segir, að kosningum verði ekki flýtt þótt á ýmsu gangi í landstjórninni og þá aðallega vegna þess, að mikilvægt sé að ganga endanlega frá áætluninni um sjálfstæði Færeyja og fram- kvæmd hennar. Anfinn Kallsberg, lögmaður Færeyja, fer fram á viðræður við Dani um sjálfstæðistillögurnar Morgunblaðið/Auðunn Arnórsson Séð yfir Þórshöfn í Færeyjum með Nólsoy í baksýn. Deilt um flest nema sjálf- stæðismálin í landstjórninni Þórshöfn. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.