Morgunblaðið - 03.05.2001, Page 37
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 37
!"
!" # $% "& "' ( $ )& ( *
+ '() # ", ( -- + " $
() "" .! "/
!" ($& $.! " # ,, ' ( *
"" 0 )&1 2"" &2&" %" ("
.",
ÞAÐ er ekki óalgengt að gallerí
taki málara upp á arma sína og
sjái með öllu um þeirra mál eins
og að geyma málverk, koma þeim
á sýningar og annað í þeim dúr.
Lögfræðingar dánarbús breska
málarans Francis Bacon álíta hins
vegar að Valer-
ie Beston gall-
eríeigandi, sem
sá um öll við-
skipti málarans,
hafi ekki staðið
eðlilega í skil-
um við hann.
Um þessar
mundir standa
því yfir réttar-
höld yfir galler-
íi Beston,
Marlborugh Fine Art, sem bæði er
starfandi í London og Liechten-
stein.
Lögfræðingar dánarbúsins
krefjast bóta, sem gætu numið um
hundrað milljónum punda, 1,2
milljörðum íslenskra króna, fyrir
að bregðast skilaskyldu við Bacon
og fyrir að hafa haft óeðlileg áhrif
á hann. Þar sem ærið margt um
málarann og starfshætti hans
kemur fram í réttarhöldunum er
fylgst með þeim af áhuga af bresk-
um yfirvöldum. Búist er við dómi
snemma á næsta ári, en galleríið
hefur krafist tafarlausra mála-
lykta.
Sérstakt
samband
Samband þeirra Beston og Bac-
on var ærið náið og stóð allt frá
því að hann var bláfátækur lista-
maður árið 1958 og þar til hann
lést 1992 sem vel metinn og um
leið einn af tekjuhæstu listamönn-
um Breta. Í réttarhöldunum hefur
komið fram að Valerie Beston sá
ekki aðeins um að taka við lista-
verkum Bacons nánast um leið og
málningin var þornuð heldur
skipulagði hún í raun einnig líf
hans. Bacon lifði fremur óreglu-
sömu og sukksömu lífi, oft ekki
langt frá göturæsinu, og var fastur
gestur í spilavítum á milli þess
sem hann málaði eins og óður.
Hann var fæddur 1909 á Írlandi
en átti enska foreldra. Æska hans
var rótlaus, hann þjáðist af astma
og samdi illa við föður sinn sem
var hrossatamningamaður. Hann
stakk af til Englands sextán ára,
fékkst við eitt og annað, bjó um
tíma í Frakklandi og heillaðist af
Picasso. Hann fór sjálfur að mála
og hanna húsgögn og fleira, en það
var ekki fyrr en 1944, eftir stríðið,
að hann fór að mála af alvöru, eftir
að hafa eyðilagt flest eldri verk sín
og við það ártal miðast fæðing
hans sem málara.
Á sjötta áratugnum fór hróður
Bacon vaxandi, bæði heima og er-
lendis, og Beston sá um að skipu-
leggja sýningahald hans, selja
myndir hans og hjálpa honum við
tíða flutninga, en hann bjó lengst
af í Chelsea. Flutti þar úr einni
vinnustofu í aðra og bjó venjulega
í vinnustofunni.
Bacon var samkynhneigður og
1964 kynntist hann Georg Dyer,
sem varð lagsmaður hans næstu
árin og algengt myndefni í verkum
Bacon. Dyer kynntist Bacon í krá-
arlífinu, var ómenntaður, hafði
ekkert með listir að gera og mátti
iðulega þola fyrirlitningu vina Bac-
on úr hópi lista- og menntamanna.
Sambandið var stormasamt og
Dyer framdi sjálfsmorð 1971 í Par-
ís, en þar var hann með Bacon,
sem var að opna stóra sýningu
daginn sem Dyer fyrirfór sér.
Dauðdagi Dyer varð Bacon gíf-
urlegt áfall og eina myndin sem
Bacon sagðist hafa málað af raun-
verulegum atburði er af Dyer sitj-
andi á klósetti, en þannig fannst
hann látinn. Síðan kynntist Bacon
John Edwards, sem varð lagsmað-
ur hans og lifði Bacon. Edwards
var eins og Dyer ómenntaður og
kom úr fátækrahverfum Austur-
London. Bacon arfleiddi hann að
tíu milljónum punda og Edwards,
sem nú er 51 árs, býr í Taílandi.
Óreiða og stopult
bókhald
Lögfræðingar dánarbúsins hafa
verið ærinn tíma að plægja í gegn-
um eignir málarans og fá yfirlit yf-
ir verk Bacon og viðskiptin við
gallerí Beston.
Fyrir dómi hefur Geoffrey Vos,
sem rekur málið fyrir hönd dán-
arbúsins, sagt að í þessu máli sé
allt mjög einstakt enda hafi við-
skipti þeirra Bacon og Beston ver-
ið allt öðru vísi en gerist í venju-
legum viðskiptasamböndum því að
hún hafi ekki aðeins séð um mál-
verk hans heldur svo fjölmargt
annað í lífi listamannsins. Frá
árinu 1958 hafði galleríið einkaum-
boð á verkum Bacon.
Dánarbúið ásakar galleríið um
að hafa skipt söluhagnaði af verk-
um Bacon listamanninum mjög í
óhag og iðulega ekki borgað hon-
um nema 30 prósent af andvirði
listaverkanna en sjálft haldið 70
prósentum eftir. Eðlilegt hefði
verið að þessu hefði verið öfugt
farið. Galleríið er einnig sakað um
að hafa ekki greitt fyrir allar
myndirnar, sem það fékk frá Bac-
on, og því hlunnfarið hann gróf-
lega. Meðal annars hafi galleríið
fengið í sölu litógrafíuseríur frá
Bacon en aldrei greitt fyrir þær.
Ljóst er að áhugamenn um Bacon
og listir munu fylgjast náið með
réttarhöldunum enda mun margt
koma þar fram um ævi og störf
þessa fyrrum svo umdeilda og nú
svo dáða listamanns.
Deilt um dánarbú
Francis Bacon
Málaferli um dánarbú málarans Francis Bacon snúast um háar upphæðir,
segir Sigrún Davíðsdóttir, samband óreglusams málara og galleríeiganda
sem skipulagði líf hans, og veita innsýn í líf málarans.
Francis Bacon
DAVÍÐ Þór Jónsson píanóleik-
ari leikur á tónleikum Múlans í
kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 22, í
Húsi Málarans, Bankastræti 7.
Með honum í för eru þeir Valdi-
mar Kolbeinn Sigurjónsson á
kontrabassa, Helgi Svavar
Helgason á trommur og Jóel
Pálsson á saxófóna. Kvartettinn
mun aðallega leika tónlist eftir
Davíð ásamt efni sem hann hef-
ur fengið að láni annarsstaðar.
Á nýloknum burtfararprófs-
tónleikum frá FÍH flutti Davíð
þessa tónlist sína fyrsta sinn.
Hann hlaut hæstu einkunn á
burtfararprófi sem skólinn hef-
ur veitt.
Aðgangseyrir er 1.200 en kr.
600 fyrir nema og eldri borgara.
Frumsamin tón-
list á Múlanum
Davíð Þór Jónsson