Morgunblaðið - 03.05.2001, Síða 51

Morgunblaðið - 03.05.2001, Síða 51
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 51 DAGLEGA birtast tilkynningar um nýjar uppgötvanir í heimi vís- indanna. Milljarður eftir milljarð er lagður í pott- inn. Ljóst er að yfir stendur mikilvæg leit eftir lækningu á alnæmi, krabbameini, alzheimer, MS, parkinson og o.fl. Ekkert nema gott um það að segja. Sjúkrahús eru byggð, meðferðar- stofnanir opnaðar og sérhæft húsnæði fyrir aldraða og börn reist. Frábært starf er unnið. Og eiga allir sem að þessu starfa þakkir skildar. En að láta þetta nægja væri eins og að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í. Það vakna hjá manni óteljandi spurningar um af hverju er- um við að veikjast af þessum sjúk- dómum? Af hverju þjást margir af einsemd? Af hverju er þessi ham- ingjusama þjóð ekki ánægð og heilsu- betri? Af hverju eykst lyfja- og vímu- efnanotkun? Af hverju er ekki tekið af festu á neyslu ungs fólks á „löglegu“ vímugjöfunum áfengi og tóbaki? Auk- inn innflutningur vímuefna bendir líka ótvírætt til þess að harðari dóp- neysla fari vaxandi! Meðferðarstofn- anir hafa ekki undan að sinna veiku fólki. Yngra og yngra fólk þarf á með- ferð að halda. Hvar eru alvöru úrræð- in? Hvernig kennum við og styðjum fólk til að breyta um lífsmynstur? Hagsmunagæsla og óeðlileg áhrif sterkra þrystihópa hefur ásamt al- gjörum skorti á heildaryfirsýn stjórn- valda kæft margar góðar hugmyndir í fæðingu. Og um leið getið af sér ótelj- andi hugmyndir, sem hafa leitt okkur inn í sameiningarfár, fákeppni og samþjöppun valds. Sofandaháttur og þolinmæði íslenskra neytenda eru lygileg. Að sjálfsögðu er samráð milli aðila á markaðinum og það ekki bara í paprikusölunni. Dettur einhverjum eitthvað annað í hug? Og verndartoll- ar til að vernda framleiðendur á kostnað neytenda eru fásinna. Eink- um þegar um er að ræða hluti eins og grænmeti sem tengist því að vilja en geta ekki með eðlilegum hætti gætt heilsu sinnar vegna áhrifa hins opin- bera. Hvernig væri að lækka t.d. raf- magnskostnað gróðurhúsabænda? En landbúnaðarráðherra vill ekkert gera „út í loftið og rugla kerfið“! Vilj- um við hafa þetta svona? Stöndum upp, mótmælum og segj- um hingað en ekki lengra! Margt er betra en það var, það er ljóst. En í góðærinu eyddum við langt um efni fram, fórum á kortafyllirí. Erlendar skuldir vaxa og við gleymdum að sameiginlegar tekjur ríkisins „okkar“ eiga að skiptast milli allra þegna þessa lands. Enn er erfitt að ná sér í öruggt hús- næði og fyrir marga ómögulegt. Enn er maturinn vægast sagt sérkenni- lega skattlagður. Við trúum því að sameining fyrirtækja og stofnana leiði eins og kraftaverk af sér betri af- komu! En þrátt fyrir allar breytingar er sumarlokað á sjúkrahúsum, fólk liggur á göngunum, biðraðir lengjast og fyrirtæki gangi misvel eftir sem áður. Hvað þarf þessi vitleysa að ganga langt til að við segjum stopp? Nú er nóg komið. Það er sameiginleg skylda okkar kjósenda, að breyta þessu. Bera virð- ingu fyrir rétti okkar til að kjósa okk- ur stjórnendur, hafa skoðun og krefj- ast breytinga. Setja rétt hvers einstaklings til mannsæmandi lífs á oddinn. Það á að vera frjálst val hvers og eins hvernig hann kýs að búa og hvað hann borðar. Það opinbera á ekki að reka fólk inn í bása með þröngri og ranglátri stýringu lánveitinga og skatta. Og allra síst þegar stefna stjórnvalda er í áttina að s.k. ruslmat og vanmáttugum leigumarkaði. Lög- leiðing kannabis og frelsi í sölu áfengis mun reynast dýrkeypt ef af verður. En hverjir þora að segja nei, þora að vera gamaldags, taka ábyrgð og segja nei? Það á að endurskoða og einfalda alla tolla og skatta á matvörur. Skattar á matvörur eru algjör frumskógur reglugerða og nú er magntollur nýjasta af- rekið. Það er ekki einu sinni sama hvaða mjólkurafurð er keypt, allt er á sitt hvoru skattþrepinu. Og það sem er hollast er oftast dýrast. Paprikumálið er bara eitt dæmið um hvert samþjöppun valds, sameining fyrirtækja getur leitt okkur. Sameining er gott mál út af fyrir sig. En hún ein og sér má aldr- ei vera megintilgangur hins opinbera með að sameina fyrirtæki. Það þarf að vera hagstætt fyrir þjóðarbúið í heild, fyrir okkur. Ekki bara vera fallegar umbúðir utan um hégómann einan. Nýir stórbankar, risaútgerðarfélög og stærri sjukrahús sýna ekki með af- gerandi hætti að sameining hafi verið „lausnin“. Hvorki fyrir fyrirtækin, stofnanirnar né þjóðarbúið. Allt er ein heild og verður að skoð- ast í víðara samhengi. Hvar er kjark- urinn til að stokka upp, leggja til hlið- ar gamlar leiðir og byrja upp á nýtt? Hvar er hugsjónafólkið? Með stóru draumana sem það vill sjá rætast? Forvarnarstarfsemi er nánast ekk- ert í daglegri umræðu. Hún birtist þó stundum í skötulíki. Fjármagn sem lagt er í forvarnir er hverfandi, nán- ast ekkert, ef miðað er við hver kostn- aðurinn er á endastöðinni. Þar er ver- ið að byggja og reka sjúkrahús og allt sett í að rannsaka okkur og leysa vandann þegar skaðinn er orðinn að veruleika. En öllum til mikillar furðu birtist vandinn aftur og aftur, sjúklingum heldur áfram að fjölga og aldraðir og öryrkjar kvarta og við horfum bláeyg og saklaus á þetta. Hvað skyldi vera að? Lausnin er kannski ekki þessi „daginn eftir pilla“. Þarf hugsanlega jafnhliða því að leysa þegar orðinn vanda, að byggja upp þétta og virka forvarnarstarfsemi? Vera með sterk- an áróður fyrir heilbrigðu líferni? Tala um hvað felst í því að lifa inni- haldsríku lífi í sátt við sjálfan sig og aðra? Og grunnurinn að þessu er í hendi ríkisstjórnarinnar! Þetta kost- ar umsnúning í viðhorfum og peninga. Allt forvarnarstarf kostar peninga og þolinmæði og af hvorugu getum við átt von frá núverandi ríkisstjórn. Lagasetningar, lyf og daginn eftir pilla er ágætt, en ef þau taka aðeins á afleiðingunum leysum við ekki vand- ann nema að hluta til. Því ekki fækkar nýjum tilfellum. Allt rúllar áfram og vefur svo upp á sig og vandinn bara stækkar. Þetta er eilífðarverkefni ef ekki er unnið að heildarlausn og ástæður vandans teknar fyrir í stað þess að vera með rörasýn á afleiðing- arnar. Við búum í góðu landi og höfum átt nokkur góð ár. Hagsæld hefur ríkt en það hefur ekki ríkt jafnrétti og skiln- ingur milli manna. Það hefur verið vitlaust gefið í þessu spili og of margir misst af lestinni! Er ekki kominn tími til að hugleiða að skipta um stjórn- endur og kjósa rétt í næstu þingkosn- ingum. Látum ekki lífið fara framhjá – tökum virkan þátt í því Percy B. Stefánsson Lífskjör Í góðærinu eyddum við langt um efni fram, seg- ir Percy Stefánsson, við fórum á kortafyllirí. Höfundur er ráðgjafi. Bleikt, bleikt, bleikt...... og sumarlegt Strandgötu 32, s. 555 2615 fimmtudag og föstudag Bankastræti 8, s. 551 3140 fimmtudag, föstudag og laugardag Glæsilegu vor- og sumarlitirnir eru loksins komnir og verða kynntir ásamt ýmsum frábærum nýjung- um. Einstaklega veglegir og glæsilegir kaupaukar fyrir viðskiptavini okkar. w w w .la nc om e. co m

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.