Morgunblaðið - 03.05.2001, Side 61
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 61
Þór mágur minn og
kær vinur okkar
hjóna er látinn. Eftir
erfitt sjúkdómsstríð
kom kunnugum ekki
mjög á óvart að Þór
ætti ekki langt eftir og þegar
læknavísindin geta ekki lengur lin-
að þrautir er dauðinn líkn og
lausn.
Þór og Lilla yngsta systir mín
byrjuðu sinn búskap mjög ung að
árum, fyrst á Blönduósi en síðan í
fjöldamörg ár ásamt okkur á Sauð-
árkróki. Þar stækkuðu fjölskyldur
okkar og samgangur milli heim-
ilanna var mikill og börnin hinir
bestu félagar, enda á svipuðum
aldri.
Þór varð fljótlega orðlagður
smiður, eftir að hann lauk
húsasmíðanámi bætti hann við sig
meistararéttindum í múrverki.
Hann var orðlagður smekkmaður
og afköstum hans við verk var við-
brugðið og sérstaklega var hann
eftirsóttur í vandasöm verk svo
sem flísalögn, þar sem handbragð-
ið var listrænt að allra dómi.
Frá unga aldri hafði Þór hann-
yrðir sem tómstundaiðju. Móðir
hans, Ragnheiður Brynjólfsdóttir,
var hannyrðakennari og munu þau
áhrif frá henni komin. Það er mjög
sérstakt að jafn eftirsóttur og upp-
ÞÓR
ÞORVALDSSON
✝ Þór Þorvaldssonfæddist á
Blönduósi 2. apríl
1937. Hann lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 8. apríl
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Digraneskirkju 17.
apríl.
tekinn maður í vinnu
skyldi geta gefið sér
tíma til svo mikillar
og sérstæðrar list-
sköpunar á þessu
sviði. Ég vil sérstak-
lega nefna einn falleg-
asta klukkustreng
sem ég hefi séð, sem
hann saumaði og þau
hjónin gáfu mér á sjö-
tugsafmæli mínu.
Eftir að sjúkdómur
Þórs hafði greinst
fluttu þau hjónin til
Reykjavíkur, en Þór
þurfti á spítalavist að
halda tímunum saman. Hann var
mikið hraustmenni og þegar heils-
an lagaðist lítið eitt var hann strax
farinn að vinna og aðstoða vini og
vandamenn.
Lilla systir mín hefur lengst af
tekið mikinn þátt í félagsmálum.
Ég þekki enga manneskju jafn
boðna og búna til að semja og
flytja skemmtidagskrá, sem hún
gerði með ágætum, enda einstak-
lega vinsæl og vinmörg.
Sorgin hefur drepið á dyr hjá
þeim hjónum. Sveinn Hlynur, elsti
sonur þeirra, drukknaði af fiskibát
frá Ólafsvík, sem fórst í róðri, þeg-
ar hann var aðeins 29 ára, og nú
missir Lilla eiginmann sinn 64 ára
gamlan. Gæfa hennar er að eiga
eftir fimm börn, vel menntað
ágætisfólk, sem allt hefur stofnað
heimili og á marga afkomendur og
er nú hennar mesta gleði í lífinu.
Elsku Lilla mín, við Marteinn
sendum þér og allri þinni stóru
fjölskyldu okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Þín systir,
Ragnheiður (Radda).
Hann Þór er dáinn eftir langa
baráttu við þann sjúkdóm er loks
lagði hann að velli.
Ég man er ég var 10–12 ára og
dvaldi oft sumarlangt á Sauðár-
króki og var oft í mat hjá Lillu og
Þór. Þar var gaman og mikið líf í
tuskunum. Þór og Lilla höfðu aga
þótt frjálst væri borðhaldið.
Þór var smiður og múrari,
meistari í hvoru tveggja og hann
saumaði út í frístundum og var
gaman að sjá hann handleika
nálina með stóru fingrunum sín-
um.
Það má segja að ég kynntist Þór
aftur fyrir tæpum tveim árum, er
hann hjálpaði okkur við smíðar í
húsinu okkar. Maðurinn minn og
hann náðu vel saman og var unun
að horfa á hann handleika flísar
eða við, allt lék í höndum hans.
Hann talaði ekki af sér, en þegar
talið barst að fjölskyldunni, börn-
um eða barnabörnum gat hann
spjallað og ljómaði hann er hann
sagði sögur af þeim.
Lilla og Þór voru mjög samrýnd
og var sérlega ánægjulegt er þau
sóttu okkur heim um jólin. Þá fann
maður hvað þau voru samtaka. Er
annað sagði sögu bætti hitt við
svona án truflana svo sögumenn
voru í raun tveir.
Vinátta, virðing, ljúfleiki, og
skilningur ríkti á milli þeirra hjóna
og mátti mikið læra af þeim. Þessu
hafa þau skilað til barna sinna sem
eru öll tengd þeim sterkum bönd-
um og svo hafa veikindin þjappað
fjölskyldunni enn meira saman.
Þau hjónin eignuðust sex börn.
Elsti sonur þeirra, Sveinn,
drukknaði fyrir nokkrum árum.
Var mikil eftirsjá að honum. Hann
var sjómaður og gerði út frá Ólafs-
vík.
Ég vil votta Lillu og fjölskyldu
hennar alla mína samúð og vona
að góður guð verði með þeim í
sorginni.
Guðrún Vignisdóttir.
Elsku amma mín,
mikið rosalega er erf-
itt að sjá þig fara
svona frá mér og öll-
um. Ég reyndi mikið
að undirbúa mig fyrir
þessa stund en samt eru engin orð
til yfir það sem ég finn til í hjarta
mínu núna. Það vita allir að þú ert
á langbesta staðnum sem til er,
hjá Guði og englunum uppi á
himnum. Ég var að átta mig á því
að ég mun ekki geta haldið í
mjúku og heitu höndina þína aftur
og ég mun ekki geta fengið stóra
faðmlagið sem þú lofaðir mér. En
SIGRÍÐUR ÞÓRA
ÞORVALDSDÓTTIR
✝ Sigríður ÞóraÞorvaldsdóttir
fæddist í Reykjavík
24. janúar 1927. Hún
lést á Landakoti 9.
apríl síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Fossvogs-
kirkju 18. apríl.
þegar ég verð orðin
gömul kona og kem til
Guðs og englanna
mun ég fá þetta eina
sanna ömmu-faðmlag
frá þér. En í millitíð-
inni verð ég að bíða
og sjá þig í draumum
mínum. Ég bið til
Guðs að hann passi
þig og geymi þig vel
og alltaf. Ég elska þig
mikið og mun elska
þig alltaf.
Ó, Jesú bróðir besti
og barna vinur mesti,
æ, breið þú blessun þína
á barnæskuna mína.
Mér gott barn gef að vera
og góðan ávöxt bera,
en forðast allt hið illa,
svo ei mér nái að spilla.
(P. Jónsson.)
Guð blessi þig.
Ragnheiður.
!) 0 % %% 0 1 2
1
%
%
%
356:6( 6(! '(6
6
5)
. /
/)
63
I5)
/)
6+3
/) :)
+ 3
/) . / ! 3
5)
&3
+ 53
/)
./
=3 . # %
0 %%% 2 1
1
%
"#$%6-!" '(6
#;
+I
3 0 % ,% ) 1 ! - ;*
1 55 .
1 55 -
5
- ./
/) 2
%
0 -
2
1%21
%
%
%
&58+6 #:!+6 '(6
;,,
" /
/)
:)
&4
3
&4
/) -)
/&/
/)
65)
.
/)
7 * ,
,
%
+"96.=%6 !::"
#
4N
3)* %3
&85 % %
6 1 1
- 0-,
1 %
% 0 % ,% %
% /% 5 %-
%
1 %
:
2 #34#
! /)
#
/) .) +-
! 2.#
/)
& / #
/) 12& 12
& &#
")
/)
3
#
/) & /)&
//
%
0 -
2
1%2.
1
%
*
,
%
%
%
-' :"( 5!&6(( '(6
*)
3 0 *
,% 1)
1%
),% -
,
1)
9- 1 :-
&2/
.2
/)
- -
/) .<
5)
-
2+
/)
# / <12
& -
# . 2/ 5)
/)
& /) 51
"%
%
,
,
%
#$%+$(65&6! !::"
O
&
)
! ) )
%&''(
-)
&4 /4
.-)
+' :
/)
+4 -)
/) -) 3
6 -)
/) I#
"12+0 -)
/)
&4 /4-)
+0 5)#
/)
1121112
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: Í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. Í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna skilafrests.
Skilafrestur
minning-
argreina