Morgunblaðið - 03.05.2001, Page 62

Morgunblaðið - 03.05.2001, Page 62
FRÉTTIR 62 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ TANNLÆKNAFÉLAG Íslands opnaði á mánudag stéttarfélagstal sitt á Netinu um leið og Margréti Hallgrímsdóttur þjóðminjaverði var afhentur styrkur að upphæð ein milljón króna í tilefni þess að Nes- stofusafn hefur tekið við minjasafni félagsins til eignar, skráningar og geymslu. Fyrirhugað er að safnið verði í Nesstofu þegar húsnæðismál safnsins komast í viðunandi horf. Bolli R. Valgarðsson, fram- kvæmdastjóri Tannlæknafélagsins, telur að þetta sé í fyrsta skipti sem stéttarfélagstal er birt í heild sinni á Netinu en það byggist á bókinni Tannlæknatal 1854–1997. Tannlæknatalið má nálgast á vef Tannlæknafélagsins, www.tannsi.- is. Morgunblaðið/Árni Sæberg Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður tók við styrknum. Hún stend- ur á milli Bolla R. Valgarðssonar, framkvæmdastjóra Tannlæknafélags Íslands (t.v.), og Þórarins Jónssonar formanns. Tannlæknar gefa eina milljón til Nesstofu Opnuðu stéttar- félagstal á Netinu TEKINN hefur verið í notkun bar á Hótel Geysi, svonefnd koníaksstofa. Fækkað var hótelherbergjum á ann- arri hæð í vesturenda hússins og þeim breytt í bar sem getur tekið rúmlega 30 manns í sæti. Þá verður í sumar bætt við fjórum gistihúsum en hvert þeirra er eins konar tvíbýli þar sem þrír geta gist í hvorum hluta. Fyrir eru fjögur slík hús. Jónas Sveinn Hauksson, yfirþjónn hótelsins, segir að slíkan bar hafi eiginlega vantað og því sé nú betri aðstaða til að bjóða gestum fordrykk eða að setjast í koníaksstofuna að loknum málsverði. Már Sigurðsson, eigandi hótelsins, og Jónas eru sammála um að mikil umferð hafi verið við Geysi á liðnum vetri. Megi þakka það bæði góðri tíð og færð og ekki síður hinu að erlend- um ferðamönnum að vetrarlagi sé sí- fellt að fjölga. Nýlega var opnuð sýn- ing í Geysisstofu um Ara fróða Þorgilsson. Er þar í myndum og máli á ensku og íslensku fjallað um helstu áfanga í ævi hans og samtíma hans. Segir Már ætlunina að setja upp slíkar sýningar sem standi kannski yfir sumarið. Hann segir jafnvel í ráði að taka hluta af núverandi versl- unarrými undir slíkt sýningarhald og verði þá reist nýtt húsnæði fyrir ferðamannaverslunina. Í lokin má nefna nýjustu hugmynd Más sem hann vildi þó ekki tjá sig nánar um en það er að reisa útsýn- ishús á Bjarnarfelli. Til að bjóða fólki auðveldan aðgang þangað er hug- mynd hans að ferja menn með kláfi yfir Helludal en Már segir þetta allt á byrjunarstigi og raunverulega skoðun á hugmyndinni rétt að byrja. Ný gistihús við Geysi í smíðum Morgunblaðið/jt Jónas Sveinn Hauksson yfirþjónn í nýja barnum á Hótel Geysi. Þjóðmálavefurinn KREML.IS stendur fyrir spjallfundi næstkom- andi föstudagskvöld (4. maí) á Grand Rokk með yfirskriftinni „Alþjóðavæðingin – Hvert stefn- ir?“. Frummælendur verða Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Bryndís Hlöðversdóttir þing- flokksformaður Samfylkingarinn- ar, Jón Kristjánsson heilbrigðis- ráðherra, Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstrigrænna og Tryggvi Þór Herbertsson forstöðu- maður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands. Þjóðmálafundir KREML.IS á föstudögum eru jafnan með af- slöppuðu yfirbragði, segir í frétta- tilkynningu, og verður fundur þessi haldinn á veitingahúsinu Grand Rokk við Smiðjustíg í Reykjavík. Dagskrá mun standa yfir milli klukkan 20:30 og 23:00. Allir áhugamenn um pólitík eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðgangseyrir er enginn. Kremlarkvöld á Grand Rokk Rætt um al- þjóðavæðingu HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi nýlega bílstjóra vöruflutn- ingabifreiðar til að greiða 65.000 krónur í sekt fyrir að brjóta gegn reglum um hvíldartíma öku- manna. Bílstjórinn ók bílnum í sólarhring en lengsta samfellda hvíld hans á þeim tíma var rúm- lega þrjár klukkustundir. Lögregla stöðvaði akstur bif- reiðarinnar á Vesturlandsvegi við Seleyri í janúar í fyrra. Athugun á sjálfvirkum ökurita varð til þess að lagt var hald á gögn í bílnum. Rannsókn leiddi í ljós að maður- inn hafði á einum sólarhring ekið bílnum í 12 klukkustundir og 46 mínútur milli tveggja sólarhring- shvílda og ekki tekið sér átta klukkustunda órofið hlé frá akstri. Þetta varðar við reglugerð um aksturs- og hvíldartíma öku- manna o.fl í innanlandsflutning- um og við flutning innan Evr- ópska efnahagssvæðisins. Öku- maðurinn játaði á sig sök. Auk sektargreiðslunnar var hann dæmdur til að greiða helm- ing sakarkostnaðar auk máls- varnarlauna verjanda síns, 50.000 krónur. Héraðsdómur féllst ekki á kröfu ákæruvaldsins um að öku- maðurinn yrði sviptur ökurétti. Sama dag var annar ökumaður vöruflutningabíls sýknaður af samskonar ákæru. Ökurita- skýrsla sem lögreglu- og vegaeft- irlitsmaður lagði hald á í bíl bar með sér að hann hefði ekið bíln- um í sólarhring en lengsta hvíld hans var tæplega fjórar klukku- stundir. Ökumaðurinn sagðist hafa hafið akstur að morgni en síðdegis hafi annar ökumaður tekið við bílnum. Gleymst hefði að skrifa athugasemdir um þetta á ökuritaskýrslu. Mikið hefði verið að gera hjá fyrirtækinu þennan dag og hann nýbyrjaður að starfa við þetta. Hann neitaði að hafa ekið bíln- um frá klukkan 18 til klukkan 2 um nóttina. Um þetta báru einnig tvö vitni. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að ákæruvaldið hefði ekki hnekkt þessum fram- burði vitnanna. Þá segir í dómn- um að skýrsla lögreglu um yfir- heyrslur yfir manninum sé stutt og óglögg. Pétur Guðgeirsson héraðsdóm- ari kvað upp dómana. Tók sér ekki næga hvíld frá akstri Vöruflutningabílstjóri dæmdur til að greiða 65.000 krónur í sekt SJÓBIRTINGSVEIÐI ársins 2001 hófst 1. apríl síðastliðinn og silungs- veiði í sumum stöðuvötnum er hafin. Senn líður að því að nýtt laxveiði- tímabil hefjist í ám landsins. Þótt síðasta veiðitímabil heyri sögunni til eru ýmsir sem áhuga hafa á niður- stöðutölum veiðinnar á liðnu ári. Við úrvinnslu veiðiskýrslna fyrir lax- og silungsveiðina 2000 komu fram eft- irfarandi niðurstöður. Sumarið 2000 voru skráðir alls 27.296 laxar veiddir á stöng og 4.158 laxar veiddust í net í ám. Alls eru þetta 31.454 laxar og heildarþungi þeirra var 82,9 tonn sem skiptist þannig að 70,3 tonn veiddust á stöng, 12,6 tonn í net. Stangveiði á laxi var 4.151 laxi minni (13,2%) en hún var 1999 og 22,6% minni en meðalveiði áranna 1974–1999. Af þeim 27.287 löxum sem skráðir voru í veiðibækur var 2.918 sleppt aftur (veitt og sleppt) sem er um 10,7% af veiðinni og heildarafli laxa var því 24.432. Í stangveiðinni voru 20.681 (75,8%) laxar sem verið höfðu eitt ár í sjó og 3.751 (24,2%) tvö ár í sjó. Af ein- stökum ám var veiðin mest í Rang- ánum 3.744 laxar, í öðru sæti var Norðurá með 1.650 laxa og í þriðja sæti var Selá í Vopnafirði með 1.360 laxa. Í stangveiði voru skráðir alls 74.655 silungar, 39.822 urriðar og 34.833 bleikjur en samanlagður sil- ungsafli var um 70 tonn. Flestir urr- iðar veiddust í Veiðivötnum 12.205, í Laxá í Þingeyjarsýslu ofan Brúa, 6.522, og í Fremri Laxá á Ásum 2.980. Af bleikju veiddust flestar í Víðidalsá og Fitjá 3.138, 2.900 veidd- ust í Hlíðarvatni og 2.712 veiddust í Vatnsdalsá. Frá árinu 1998 hefur netaveiði á laxi eingöngu verið stunduð í fersku vatni eftir að gengið var frá upp- kaupum á netaveiðirétti á laxi í sjó. Nokkuð er einnig um að þeir sem stangveiðirétt hafa borgi fyrir það að netaveiðiréttur sé ekki nýttur og auka með því laxgengd og stang- veiði. Þannig háttar t.d. til í Hvítá og hliðarám hennar í Borgarfirði. Neta- veiði á laxi sumarið 2000 var um 37% minni en hún var 1999 en um 71% undir meðalveiði áranna 1974–1999. Netaveiði er nú stunduð á Suður- landi í Ölfusá, Hvítá og Þjórsá en netaveiði er lítil í öðrum landshlut- um. Hafbeit á laxi var stunduð í all- miklum mæli hér á landi, einkum á árunum 1988–1996, en hún hefur far- ið minnkandi á síðustu þremur árum. Sumarið 2000 endurheimtust ein- ungis 375 laxar, sem vógu um 2 tonn, í hafbeit en löxum til hafbeitar var síðast sleppt vorið 1998. Ársfundur Veiðimálastofnunar 2001 var haldinn föstudaginn 27. apríl sl. Þar voru m.a. afhent verð- laun fyrir merkjaskil í happdrætti Veiðimálastofnunar. Lax- og sil- ungsveiðin 2000 ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ TOURETTE-samtökin halda fræðslufund í kvöld, fimmtudag kl. 20 að Hátúni 10, 9. hæð. Málfríður Lorange, sálfræðingur, heldur er- indi um helstu einkenni, orsakir og meðferð við áráttu- og þráhyggju- röskun hjá einstaklingum með Tour- ette-heilkenni. Fræðslufundur REYKJAVÍKURDEILD RKÍ gengst fyrir námskeiði í almennri skyndihjálp sem hefst fimmtudaginn 3. maí. Kennt verður frá kl. 19-23. Einnig verður kennt 7. og 9. maí. Námskeiðið telst vera 16 kennslu- stundir. Einnig verður haldið endur- menntunarnámskeið dagana 14. og 15. maí. Að loknum þessum námskeiðum fá nemendur skírteini sem hægt er að fá metin í ýmsum skólum og við sum störf. Námskeið í skyndihjálp

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.