Morgunblaðið - 03.05.2001, Síða 63

Morgunblaðið - 03.05.2001, Síða 63
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 63 Laugavegi 80 sími 561 1330 Helena Rubinstein kynnir vörur með þremur gerðum C vítamína* sem vinna gegn þreytu. Húðliturinn verður geislandi og húðin fallegri. NÝTT: Gel fyrir normal/- blandaða húð. *Ferskt c vítamín, magnesíum phosphate c vítamín, glucosylated c vítamín. KYNNING Glæsilegir kaupaukar og prufur. Vertu velkomin. Orkugjöf - fallegri húð ÖFLUGUR KRAFTUR ÞRIGGJA C VÍTAMÍNA FORCE C PREMIUM fimmtudag til laugardags. Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands og Landssími Íslands halda á næstu vikum opin fjarkennslunám- skeið í samstarfi við evrópska há- skóla. Þetta er liður í verkefninu Universal sem styrkt er af Evrópu- sambandinu og er markmiðið með því að koma upp öflugum samstarfs- vettvangi evrópskra háskóla og end- urmenntunarstofnana. Skipst verð- ur á námskeiðum og fræðslu og verður þremur námskeiðum miðlað til Íslands í fjarfundarbúnaði með kennslu í húsakynnum Endur- menntunarstofnunar á Dunhaga 7. Háskólinn í Aþenu ríður á vaðið 3. maí og sendir út námskeið um einka- væðingu evrópskra símafyrirtækja (Liberalisation and re-regulation in the telecommunication sector : Theory and empirical evidence). Kennt er á ensku – á fimmtudögum frá 3. maí til 5. júní kl. 12-14. Hagfræðiháskólinn í Vín býður fram námskeið um rafræn viðskipti og rafræna miðla (Electronic Com- merce and New Media) og verður það kennt á mánudögum frá 7. maí til 18. júní kl. 16.30-18.00. Kennt er á ensku og þýsku. Þriðja námskeiðið sem er í boði er ætlað kennurum sem vilja læra að koma námsefni á framfæri í fjar- kennslu (language and behaviour). Því er varpað frá INT tækniháskól- anum í París og er kennt á ensku. Sjá vefslóðina: http://rannsoknir.sim- net.is/Verkefnin/Universal/Nam- skeid.htm Fjarkennslunámskeiðin eru öllum opin án endurgjalds og eru áhuga- samir beðnir um að skrá sig hjá End- urmenntunarstofnun HÍ, eða á vef- setri stofnunarinnar, www.endur- menntun.is. Evrópsk námskeið í fjarfundar- búnaði – án endurgjalds FRESTUR fyrir skólafólk, 17 ára og eldra, til að sækja um sum- arstörf á vegum Reykjavíkurborg- ar, rennur út 31. maí en ekki 30. apríl eins og áður hefur verið aug- lýst. Eins hafa þær breytingar ver- ið gerðar að skólafólk með lög- heimili utan Reykjavíkur má nú einnig sækja um störf hjá Vinnu- miðluninni. Hingað til hefur það einungis verið skólafólk með lög- heimili í Reykjavík sem hefur get- að nýtt sér þjónustu vinnumiðlun- arinnar. Tekið er á móti umsóknum hjá Vinnumiðlun skólafólks í Hinu Húsinu, Aðalstræti 2. Afgreiðslu- tími 9:00-17:00. Hægt er að sækja um á þar til gerðum eyðublöðum og eins á netinu http://storf.hitt- husid.is. Þegar skóla er lokið og umsækjendur eru tilbúnir til vinnu, verða þeir að staðfesta umsókn sína, annars fellur hún úr gildi. Flest sumarstörf hjá Reykjavík- urborg eru á vegum Garðyrkju- deildar, Íþrótta- og tómstundaráðs, Gatnamálastjóra og Veitustofnana. Störfin hefjast að jafnaði um mán- aðamótin maí/júní. Vinnumiðlun skólafólks Breytingar á umsóknar- fresti FRÁ og með árinu 1995 hafa þeir vagnstjórar hjá SVR sem ekki hafa valdið tjóni í akstri á heilu ári fengið viðurkenningu. Árið 1999 var fimmta árið sem það var gert og þá fengu 6 vagnstjórar ennfremur sér- stakar viðurkenningar fyrir tjón- lausan akstur í samfelld 5 ár. Ár frá ári hefur þeim vagnstjórum farið fjölgandi sem aka samfellt án þess að valda nokkru sinni tjóni. Í fyrsta sinn sem viðurkenning var veitt fengu 27 vagnstjórar hana en árið 2000 var fjöldi þeirra kominn í 64. Nú hlutu átta vagnstjórar viður- kenningu fyrir tjónlausan akstur í samfelld 5 ár, þar af höfðu fimm ek- ið tjónlaust frá því byrjað var að veita viðurkenningar. Alls er vögnum SVR ekið tæpar 6 milljónir km árlega. Áætlað er að vagnstjóri í fullu starfi aki um 40 þús. km á ári. Umferð á götum Reykjavíkur fer sífellt vaxandi og er oft nokkuð hröð og óvægin. Sé tekið tillit til þess og það haft í huga að allur akstur strætisvagna er á um- ferðargötum borgarinnar er þessi góða frammistaða sérstaklega ánægjuleg, segir í fréttatilkynningu. Þessir vagnstjórar SVR voru verðlaunaðir fyrir tjónlausan akstur 1996–2000. Talið f.v.: Haraldur Gunnarsson, Einar Magnússon, Kristinn Bergsson, Hörður Tómasson, Hreinn Benediktsson, Ingólfur Ólafsson og Björgvin Ottósson. Á myndina vantar Steingrím Matthíasson. Vagnstjórar SVR fá viðurkenningu LOKIÐ er athugun Skipulagsstofn- unar á mati á umhverfisáhrifum vegna endurvinnslu og förgunar úr- gangs á Patreksfirði fyrir Vestur- byggð og fellst stofnunin á flokkun, brennslu og urðun úrgangs á Pat- reksfirði með ákveðnum skilyrðum. Framkvæmdin var formlega tekin til athugunar hjá Skipulagsstofnun í desember 2000 og var auglýst og kynnt með tilkynningu. Úrskurður- inn liggur frammi hjá Skipulagsstofn- un, Laugavegi 166, og hann er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofn- unar, http://www.skipulag.is. Kæra má úrskurð Skipulagsstofn- unar til umhverfisráðherra og er- kærufrestur er til 4. maí 2001. Endurvinnsla og förgun á Patreksfirði Skipulagsstofn- un fellst á fyrir- komulagið Í KJÖLFAR velgengni Borgarholts- skóla í spurningakeppni framhalds- skólanna, Gettu betur, ætlar Borgar- holtsskóli að efna til spurningakeppni milli grunnskóla í Grafarvogi og Mos- fellsbæ. Markmið keppninnar er að efla tengsl milli þessara skólastiga, að gefa keppendum skólans tækifæri til að skipuleggja spurningakeppni og ekki síst að skemmta sér saman eina kvöldstund. Nafn keppninnar er „Borgó getur betur“ og fer hún fram fimmtudaginn 3. maí milli kl. 20:00 og 22:30 í Borgar- holtsskóla. Grunnskólarnir í þessum hverfum eru sex og ef allir senda lið verður fyrirkomulagið með eftirfar- andi hætti: Sex viðureignir: 1. Þrjú lið vinna í fyrstu lotu. Þau lið halda áfram ásamt stigahæsta tapliðinu. 2. Undanúrslit. 3. Úrslit. Spurningalið Borgarholtsskóla sér um að semja spurningarnar, spyrja, dæma og telja stigin. Bjarni Jóhannsson íþróttakennari verður kynnir. Allir þátttakendur fá boli fyrir þátttökuna. Sigurliðið fær farandbikar sem smíðaður er af nem- endum Borgarholtsskóla. Nemendur Borgarholtsskóla sjá um skemmtiat- riði í hléi og allir gestir fá veitingar í boði Borgarholtsskóla. U.þ.b. 50 manna stuðningslið getur verið frá hverjum skóla og besta klappliðið fær einnig verðlaun. Spurningakeppni grunnskóla í Grafarvogi og Mosfellsbæ ♦ ♦ ♦ EFTIRFARANDI ályktun var ein- róma samþykkt á 1. maífundi stétt- arfélaganna á Akranesi: „Baráttu- og hátíðarfundur stétt- arfélaganna á Akranesi sendir sjó- mönnum baráttukveðjur og lýsir yfir fullum stuðningi við réttmætar kröf- ur þeirra. Jafnframt skorar fundur- inn á viðsemjendur þeirra að ganga nú þegar til samninga, þannig að hjól atvinnulífsins í sjávarbyggðum landsins fari að snúast á ný.“ Baráttukveðjur til sjómanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.