Morgunblaðið - 03.05.2001, Qupperneq 66
66 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÍSLANDSGLÍMAN, elsta og sögu-
frægasta íþróttamót Íslandssögunn-
ar, fer fram í 91. sinn laugardaginn 5.
maí næstkomandi í Íþróttamiðstöð-
inni í Grafarvogi
og hefst keppni
kl. 13:00. Til leiks
munu mæta 7 af
bestu glímu-
mönnum landsins
og keppa þeir um
hver verður
glímukóngur Ís-
lands árið 2001.
Keppt er um hinn
eftirsótta verð-
launagrip Grett-
isbeltið. Fyrst var keppt um Grett-
isbeltið árið 1906 og hefur verið
keppt um beltið á hverju ári síðan að
undanskildum fimm árum í kringum
fyrra stríð.
Grettisbeltið er merkasti og sögu-
frægasti gripur í gjörvallri íþrótta-
sögu Íslands og einnig sá elsti. Hefur
það verið farandgripur allt frá upp-
hafi og vinnst aldrei til eignar. Sama
ólin fylgir beltinu og var á því upp-
haflega. Grettisbeltið var smíðað í
Reykjavík af Erlendi gullsmiði
Magnússyni. Það er úr silfri og er
mynstur þess mjög skrautlegt. Að
framan er á því kringlóttur skjöldur
með andlitsmynd er á að tákna Gretti
fornkappa Ásmundarson er var
fangbragðakappi mikill eftir því sem
saga hans segir. Umhverfis skjöldinn
er letrað höfðaletri: „Glímuverðlaun
Íslands, Grettir.“ Í hvert sinn og
keppt er um skjöldinn er gerður silf-
urskjöldur með dagsetningu keppn-
innar og nafni sigurvegarans og er
skjöldurinn festur á beltið.
Alls hefur 30 glímumönnum tekist
að sigra í Íslandsglímunni. Ármann
J. Lárusson hefur oftast unnið Grett-
isbeltið eða alls 15 sinnum og þar af
14 ár í röð. Næstur kemur Sigurður
Thorarensen en hann vann beltið 6
sinnum. Fimm einstaklingar hafa
unnið beltið 5 sinnum. Þeir eru Sig-
urður Greipsson, Guðmundur
Ágústsson, Pétur Yngvason, Ólafur
Haukur Ólafsson og Ingibergur Sig-
urðsson. Ingibergur getur unnið
beltið í 6. sinn ef hann sigrar nk.
laugardag en hann er glímukóngur
Íslands síðastliðin fimm ár.
Steingrímur Hermannsson fyrrv.
forsætisráðherra verður heiðurs-
gestur mótsins og mun afhenda sig-
urvegaranum Grettisbeltið. Er það
vel við hæfi því í ár eru liðin 80 ár síð-
an faðir hans, Hermann Jónasson,
varð glímukóngur Íslands. Hermann
var afar snarpur og fimur glímumað-
ur. Hann samdi og gaf út ritið Glímur
árið 1922 þar sem hann gagnrýndi
glímulög og dómgæslu glímunnar og
lagði fram tillögur til úrbóta af íhygli
og yfirvegun. Er rit hans með því
merkara sem skrásett hefur verið í
þá veru.
Sjö glímumenn eru skráðir til leiks
á laugardaginn, þeir eru: Ingibergur
Sigurðsson, UV, Ólafur H. Kristjáns-
son, UV, Pétur Eyþórsson, UV, Sig-
urður Nikulásson, UV, Arngeir Frið-
riksson, HSÞ, Ólafur Sigurðsson,
HSK, og Lárus Kjartansson, HSK. Í
fæstum orðum eru keppendur svo
jafnir að enginn getur bókað sigur
gegn öðrum og engin leið að segja
hver sigurstranglegastur er. Allir
geta sigrað og allir eru þess verðir að
bera titil glímukóngsins. Það er
sjaldgæft að hægt sé að segja það um
jafn stóran hóp og alla keppendur í
Íslandsglímu en þetta er nú stað-
reyndin árið 2001. Að Ingibergi frá-
töldum hefur enginn keppandi verið
skrýddur Grettisbeltinu og nái ein-
hver andstæðinga hans að sigra
verður hann 31. glímukóngur Ís-
lands.
Að lokum hvet ég alla til að mæta í
Íþróttamiðstöðina í Grafarvogi nk.
laugardag kl. 13:00 og fylgjast með
spennandi keppni. Fróðlegt verður
að fylgjast með hvort Ingibergi tekst
að vinna beltið í sjötta sinn eða hvort
nýr glímukóngur verður krýndur.
JÓN M. ÍVARSSON,
starfsmaður Íþrótta- og
Ólympíusambands Íslands.
Hver verður
glímukóngur? Ís-
landsglíman 2001
Frá Jóni M. Ívarssyni:
Jón M.
Ívarsson
ÞAR sem ferðamannastraumur á
eftir að aukast jafnt og þétt, þar sem
velmegun á jörðinni fer vaxandi
finnst mér að það ætti að leggja
meira upp úr því að gera þetta land
að fögru og heilsteyptu landi, enda
er ekki það langt á milli staða á þess-
ari eyju okkar, til dæmis er minja-
gripasala og önnur ferðmannaþjón-
usta á uppleið. Hér gætu verið
glerblástursstofur víða um land og
víkingskip með mótor yrðu fljót að
borga sig upp og ekki sakar að sveit-
arfélögin tækju þátt í þess háttar
uppbyggingu en við eigum mikið af
fallegum sjávarþorpum sem þó
mættu hafa meira fé á milli hand-
anna. Þótt landið sé fagurt þá er allt-
af mjög eftirsóknarvert að koma við
á fallegum stöðum sem eru litlir en
þó sérstakir, og til að tryggja stöðu
þeirra þorpa, ætti að mínu mati: að
setja á byggðakvóta þar sem hver
staður hefur leyfi til að leigja út 300
tonn ca til dæmis, til báta innan síns
sveitarfélags.
JÓN P. KRISTJÁNSSON,
Kirkjustræti 2,
Reykjavík.
Hagnaður
til framtíðar
Frá Jóni P. Kristjánssyni: