Morgunblaðið - 08.06.2001, Page 2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isÞórður hefur ekki gagnrýnt liðið
og leikmennina /C3
Akureyrarliðin á toppi
1. deildar/C2
4 SÍÐUR
Morgunblaðinu í dag
fylgir blað frá Sjó-
mannadagsráði
„Sjómanna-
dagsblaðið“.
Blaðinu verður
dreift um allt landið.
8 SÍÐUR
Sérblöð í dag
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hjátrú og hindurvitni.... 2
Ofvirkni.......................... 4
Á FÖSTUDÖGUM
Lyfin breyttu lífi ...............6
Auðlesið efni ....................8
ÞROSKAÞJÁLFAR fylltu áhorf-
endapallana í Ráðhúsi Reykjavíkur á
borgarstjórnarfundi í gær, þegar
verkfall þeirra sem nú hefur staðið í
þrjár vikur var til umfjöllunar. „Við
viljum gera allt hvað við getum til að
þrýsta á að okkur takist að ná laun-
um sem við getum lifað á,“ sagði
Guðný Stefánsdóttir þroskaþjálfi.
Ólafur F. Magnússon, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks, spurði
borgarstjóra hvernig á því stæði að
enn hefðu ekki náðst samningar við
þroskaþjálfa sem starfa fyrir borg-
ina, en samningar þroskaþjálfa hafa
verið lausir í sjö mánuði. Þroska-
þjálfar hjá öðrum sveitarfélögum en
Reykjavíkurborg gengu frá samn-
ingi sl. föstudag og mun atkvæða-
greiðsla um hann liggja fyrir á morg-
un. Ólafur sagði verkfallið koma illa
niður á skjólstæðingum þroskaþjálfa
og sagðist óttast flótta úr stéttinni
sem Guðný sagði í samtali við Morg-
unblaðið að væri þegar hafinn þar
sem þroskaþjálfar hefðu ákveðið að
þeir ætluðu ekki að vinna áfram fyrir
þau laun sem borgin hefur boðið.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri sagði að kostnaðarauki
borgarsjóðs á árinu 2001 vegna
kjarasamninga sem borgin hefur
gert við umönnunar-, heilbrigðis- og
kennslustéttir næmi 1.830 millj. kr.
meðan tekjuaukning borgarsjóðs
væri ekki nema 998 milljónir. Hún
sagði að samninganefnd borgarinnar
hefði gert þroskaþjálfum tilboð sem
formaður nefndarinnar teldi að fæli í
sér mun meiri hækkun launa án
fórnar á móti en samið hefði verið
um við nokkurn annan hóp starfs-
manna til margra ára.
Hún sagði það mat samninga-
nefndarinnar að ætti að ganga að því
tilboði sem þroskaþjálfar hafa sett
fram fæli það í sér 47% upphafs-
hækkun og 70% heildarhækkun á
samningstímanum. Samningur við
launanefndina kostaði um 35,6%
upphafshækkun og 55% hækkun á
samningstímanum. Ingibjörg Sólrún
sagði að samninganefnd borgarinnar
færi með samningsumboðið og að
hún ætlaði ekki að taka það af þeim
og semja um kjör þroskaþjálfa í
borgarstjórn Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Golli
Þroskaþjálfar fjölmenntu á áhorfendapalla í Ráðhúsinu í gær í upphafi borgarstjórnarfundar. Nánast allir þeir
þroskaþjálfar sem eru í verkfalli munu hafa verið á pöllunum.
Þroskaþjálfar þrýsta
á um lausn kjaradeilu SAMKVÆMT bráðabirgðatölum
sem fjármálaráðuneytið hefur látið
vinna dróst heildarvöruinnflutning-
ur í maí saman um 13% frá sama
mánuði í fyrra. Að teknu tilliti til
þess að gengi krónunnar hefur á
sama tíma lækkað um 21% svarar
þetta til tæplega þriðjungs sam-
dráttar að raungildi.
Þetta kemur fram í vefriti fjár-
málaráðuneytisins, fjr.is. Þar segir
að almennur innflutningur, þ.e. án
skipa og flugvéla, hafi einnig dregist
verulega saman að raungildi í maí,
eða um tæplega 16%.
Fyrstu fimm mánuði ársins jókst
heildarvöruinnflutningur um 13½% í
krónum talið miðað við sama tíma í
fyrra, en að teknu tilliti til nálægt
13% lækkunar gengis krónunnar
svarar þetta til 1½% samdráttar að
raungildi. Innflutningur án skipa og
flugvéla minnkaði enn meira, eða um
3% að raungildi.
Fjármálaráðuneytið segir að nán-
ari greining á þessu tölum sýni að
innflutningur neysluvöru haldi
áfram að dragast saman. Sérstaka
athygli veki að bílainnflutningur hafi
dregist saman um hartnær 40% að
raungildi fyrstu fimm mánuði ársins,
en annar innflutningur neysluvöru
hafi einnig dregist nokkuð saman.
Ennfremur sé verulegur samdráttur
í innflutningi almennrar fjárfesting-
arvöru, einkum flutningatækja. Hins
vegar hafi innflutningur rekstrar-
vöru til atvinnulífs aukist.
Fjármálaráðuneytið segir að þess-
ar tölur gefi ótvíræða vísbendingu
um að áfram dragi úr innlendri eft-
irspurn.
Enn samdráttur
í innflutningi
TAP Olíuverslunar Íslands hf. var
um 320 milljónir króna á fyrstu fjór-
um mánuðum ársins eða sem nemur
4,40 krónum á hvern seldan elds-
neytislítra á tímabilinu. Niðurstaðan
er langt undir áætlun félagsins, segir
í tilkynningu. Ástæður þessa mikla
taps eru fyrst og fremst raktar til
verulegs gengisfalls íslensku krón-
unnar en samkvæmt óendurskoðuðu
uppgjöri fyrstu fjögurra mánaða árs-
ins, nam gengistap félagsins á tíma-
bilinu 390 milljónum króna. Auk þess
hefur verkfall sjómanna og stöðvun
fiskiskipaflotans haft töluverð áhrif á
rekstur þess.
Vegna áframhaldandi falls ís-
lensku krónunnar í maímánuði og
sjómannaverkfalls fram í miðjan
mánuðinn er ljóst að verulegt tap
hefur einnig orðið á rekstri félagsins
í maímánuði. Nemur gengistap
félagsins í mánuðinum um 440 millj-
ónum króna.
„Hátt eldsneytisverð á heims-
markaði er ekki aðeins íþyngjandi
fyrir viðskiptavini félagsins, heldur
veldur það félaginu verulegum við-
bótarkostnaði vegna aukningar á
verðmæti birgða og hækkun á úti-
standandi kröfum. Hefur það í för
með sér tilheyrandi fjármagnskostn-
að og gengisáhættu, þar sem félagið
þarf að fjármagna rekstur sinn að
mestu með erlendu lánsfjármagni,“
segir í tilkynningu frá Olís.
Í henni kemur fram að sjálfsaf-
greiðsluverð fyrir 95 oktana bensín á
hefðbundnum bensínstöðvum hér-
lendis er nú á bilinu 104-106 krónur
fyrir hvern lítra. Til samanburðar er
sambærilegt verð í Noregi og Bret-
landi um 114 krónur fyrir hvern lítra,
og í Danmörku 105 krónur á lítra.
Gengistap Olís
440 milljónir í maí
ÁÆTLAÐ er að 144 leikskólakenn-
ara vanti í ágúst nk. til starfa við
Leikskóla Reykjavíkur. Þar af þarf
að ráða í 30 stöður deildarstjóra.
Þetta kom fram á borgarstjórnar-
fundi í gær.
Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálf-
stæðisflokki, sagði að biðlistar eftir
leikskólaplássi hefðu lengst jafnt og
þétt og að alls hefðu verið 2.893 börn
á biðlista í janúar sl. Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, borgarstjóri, sagði
að sú þensla sem hefði ríkt í efna-
hagsmálum hérlendis hefði komið
illa við starfsemina þar sem starfs-
fólk hefði sótt í betur launuð störf.
Ingibjörg sagði að borgaryfirvöld
hefðu lagt kapp á að mæta vaxandi
þörf og eftirspurn. Ör uppbygging
kallaði á aukinn fjölda starfsfólks og
bundnar væru vonir við að nýr kjara-
samningur leikskólakennara og efl-
ing innra starfs leikskólanna mundi
skila sér í auknum áhuga á starfinu.
Foreldrar barna í Austurborg
hafa sent borgarstjórn áskorun um
bættan aðbúnað barna og starfs-
manna í leikskólum borgarinnar.
Ingibjörg sagði að jafnræði hefði
verið haft að leiðarljósi við að
tryggja sem flestum börnum pláss
og sagðist undrast þegar áskoranir
bærust um að draga úr innritun á
leikskólana. Hún sagðist telja það
bera vott um sérhyggju að vilja loka
dyrunum á þá foreldra sem eru að
banka upp á og hafa ekki leikskóla-
pláss fyrir börn sín.
140 leikskólakenn-
ara vantar í haust
VESTNORRÆNA kaupstefnan
hófst í Perlunni í gær og lýkur á
morgun, laugardag. Þar kynnir
fjöldi fyrirtækja frá Færeyjum og
Grænlandi vörur sínar og þjónustu.
Kaupstefnan er opin almenningi en
við setningu hennar í gær voru m.a.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, og Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra.
Hér eru ráðherrarnir ásamt Jóni
Ásbergssyni, framkvæmdastjóra
Útflutningsráðs, á tali við kaup-
stefnugesti.
Vestnor-
ræna kaup-
stefnan haf-
in í Perlunni
Morgunblaðið/Arnaldur