Morgunblaðið - 08.06.2001, Síða 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Menning og opið hús í Biskupstungum
Bjartir dagar
BJARTIR dagarheitir menningar-dagskrá sem sveit-
arstjórn Biskupstungn-
ahrepps stendur fyrir
dagana 9. og 10. júní, í
samvinnu við íbúa hrepps-
ins sem margir hverjir
opna almenningi hús sín
þessa daga. Ragnar Sær
Ragnarsson er sveitar-
stjóri í Biskupstungum.
Hann var spurður um
markmið þessara að-
gerða?
„Þetta er kannski hvað
mest gert til þess að
kynna sveitina og þá þjón-
ustu og menningarstarf
sem þar er rekið.“
– Hvað gefst fólki tæki-
færi til þess að gera og sjá
þessa daga?
„Af mörgu er að taka. Í Skál-
holti verða gönguferðir báða dag-
ana á söguslóðir undir leiðsögn
séra Guðmundar Óla Ólafssonar.
Árni Þ. Árnason verður með er-
indi um veraldarvafstur Skál-
holtsbiskupa kl. 16. á laugardag.
Tónleikar verða haldnir í Skál-
holtsdómkirkju, Hilmar Örn Agn-
arsson leikur á orgel, Jóhann
Stefánsson á trompet og Eyrún
Jóhannesdóttir syngur einsöng
kl. 17 á laugardag. Þar verða
fluttar nokkrar af helstu perlum
kirkjutónlistarinnar. Á sunnudag
á sama tíma syngur Gréta Jóns-
dóttir einsöng, Douglas Brotchie
leikar á orgel. Tíðagjörð verður í
kirkjunni báða dagana kl. 18.
Miðaldahlaðborð verður á boð-
stólum á laugardagskvöld og 17.
aldar kvöldverður á sunnudags-
kvöldið ef þátttaka verður næg.
Fyrra kvöldið mun Sigurður Sig-
urðarson vígslubiskup ræða um
Þorlák biskup helga og síðara
kvöldið mun dr. Pétur Pétursson
rektor ræða um Þórð Þorláksson
Skálholtsbiskup, einnig verða
tónlistaratriði. Í Hótel Brattholti
á laugardag kl 15 mun Arnór
Karlsson segja sögur af Sigríði
Tómasdóttur, verndara Gullfoss.
Þar eru líka myndlistarsýningar.
Gyða L. Jónsdóttir leirlistakona
sýnir verk sín og Elín Rebekka
myndlistarkona sýnir sín verk.
Íþróttamót hestamannafélag-
anna Loga, Smára og Trausta
verður haldið í Hrísholti og hefst
kl. 10 árdegis á sunnudag.“
– Hvað með opnu húsin?
„Opið hús verður í félagsheim-
ilinu Aratungu í Reykholti í Bisk-
upstungum. Þar verður harmon-
ikutónlist og leika þeir Garðar
Olgeirsson og Bjarni Sigurðsson.
Barnakór Biskupstungna kemur
og syngur á laugardag og Skál-
holtskórinn syngur á sunnudag.
Þá verður Jón Adolf trélistamað-
ur með handverkshorn. Hann
mun tálga út á staðnum en Ragn-
hildur Magnúsdóttir mun einnig
sýna verk sín og fleiri. Kaffiveit-
ingar verða á staðnum.“
– Verða heimili opin fyrir heim-
sóknir almennings?
„Ekki beint inn í stofu heldur
verða vinnustaðir fólksins opnir
fyrir heimsóknum. Sem dæmi má
nefna Espiflöt sem selur afskorin
blóm, Akur sem er með
lífrænt ræktað græn-
meti, Furubrún sem er
er með trjáplöntur og
Ekru sem selur sumar-
blóm. Síðan er hægt að
heimsækja húsdýra-
garðinn Slakka í Laugarási, þar
sem m .a. má finna öll íslensku
húsdýrin. Kaffi Klettur er með
markaðstjald og veitingar og þar
getur yngsta kynslóðin fengið að
fara á hestbak. Frítt verður í
sund bæði í Reykholti og upp við
Geysi. Með þessu framtaki verum
við hér í Biskupstungum að bjóða
fólki að koma og njóta þessa besta
sem við eigum upp á að bjóða og
jafnframt að sýna fram á hina
fjölbreyttu afþreyingarmögu-
leika sem bjóðast í þessari sveit.“
– Eru margir íbúar í Biskups-
tungnahreppi?
„Þeir telja í dag um 550 manns.
Helstu atvinnugreinar eru garð-
yrkja, hefðbundinn búskapur og
ferðaþjónusta.“
– Hafið þið áður staðið fyrir
svona fjölbreyttri menningarviku
og opnu húsi?
„Já, við héldum svona dag 1999
og þá rigndi svolítið og dagarnir
fengu viðurnefnið: Bjartir – nei
blautir, dagar. Nú ætlum við að
lofa skemmtilegri stund eins og
raunin varð á fyrrnefndum degi.“
– Hvernig er veðurspáin?
„Hún er góð, það á að verða
milt og gott veður og við væntum
því fjölda fólks í heimsókn. Um
þúsund manns komu í sveitina á
samskonar uppákomu 1999 og þá
hefðum við varla getað tekið við
fleirum, nú eru aðgerðir á fleiri
stöðum svo við getum tekið við
fleira fólki.“
– Hvernig er atvinnuástand í
þessari sveit?
„Það er gott. Mikið er byggt í
sveitinni og íbúum fjölgaði í fyrra
um 8%.“
– Hverjar eru helstu fram-
kvæmdir sem nú standa yfir?
„Það er helst frá því að segja að
við erum að leggja nýja vatns-
veitu um sveitina og
nýlega var byggt
íþróttahús til þess að
þjóna hér æskufólki.
Hérna eru byggð ár-
lega um 50 sumarhús
og nú eru orðin um 550
sumarhús alls í hreppnum. Þetta
hefur skapað mikla atvinnu fyrir
iðnaðarmenn og styrkt mjög
verslun og þjónustu. Sundlaugin
okkar í Reykholti er mjög vinsæl.
Um tuttugu þúsund manns koma
þangað árlega. Vaxandi áhugi er
hér í sveitinni á skógrækt og hafa
sumir bændur hafið nytjaskóg-
rækt.“
Ragnar Sær Ragnarsson
Ragnar Sær Ragnarsson
fæddist 3. ágúst 1961 í Reykja-
vík. Hann lauk stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskóla Suðurnesja, eft-
ir það lauk hann námi sem leik-
skólakennari frá Fósturskóla Ís-
lands 1986. Hann hefur einnig
lokið námi í hótelstjórnun frá
Viðskiptaskólanum 1990, prófi
frá Endurmenntunarstofnun HÍ í
rekstrar- og viðskiptafræði 1997
og námi í opinberri stjórnsýslu
og stjórnun frá sömu stofnun.
Hann vann við hótelstjórn um
tíma, var við dagskrárgerð hjá
RÚV og rak skóladagheimilið
Höfn í Reykjavík frá 1988 til
1998 er hann gerðist sveit-
arstjóri Biskupstungnahrepps.
Ragnar er kvæntur Unni Ágústu
Sigurjónsdóttur hjúkrunarfræð-
ingi og eiga þau tíu ára dóttur.
Ætlum að lofa
skemmtilegri
stund á Björt-
um dögum
Þú verður bara að leggja þessa stofnun niður, Davíð.