Morgunblaðið - 08.06.2001, Blaðsíða 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 23
NEMENDUR við grunnskólann á
Blönduósi fá eins og svo margir nem-
endur víða um land afhent tré úr
Yrkjusjóði Vigdísar Finnbogadóttur
fyrrverandi forseta Íslands. Verk-
efni þetta kalla nemendurnir á
Blönduósi „Brekkutré“ og felst í því
að planta um það bil 6 trjáplönum
fyrir nemanda ár hvert.
Verkefni þetta hófst á Blönduósi
haustið 1997 og voru það nemendur í
þriðja bekk sem plöntuðu fyrsta
trénu. Því fór vel á því að þessir
sömu nemendur sem nú eru í 6. bekk
skyldu planta 3.000. trénu í verkefn-
inu í svokallaðri Vetrarklauf norð-
austan við bæinn. Allir nemendur
skólans koma að þessu verkefni ár
hvert og einstöku sinnum fá leik-
skólabörnin að vera með.
Páll Ingþór Kristinsson hefur haft
umsjón með þessu verkefni frá upp-
hafi og hefur hann jafnvel haft með
sér þúfur inn í skólabekkina til að
sýna krökkunum handtökin við gróð-
ursetninguna. Til að vekja áhuga
barnanna fyrir skógrækt, því sum-
um þykir langur tími líða þar til
hrísla verður að tré, hefur Páll greint
krökkunum frá því hvar hæstu tré er
að finna bæði í heimahéraði og á
landinu.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Krakkarnir í 6. bekk gróðursettu 3.000. tréð í verkefninu „Brekkutré“. Hér eru þau með leiðbeinendum sínum
þeim Þórhöllu Guðbjartsdóttur og Páli Ingþóri Kristinssyni.
Hafa plantað
3.000 trjám
Blönduós
MEÐ sumarkomunni stendur allt
nýtt líf í blóma. Ekki þarf að minna á
lömbin, folöldin, ungana og annað
ungviði sem sér í fyrsta skipti dags-
ljósið um þær mundir. Kanínuungar
Marteins Óla og Ævars Þorgeirs Að-
alsteinssona í Klausturseli eru part-
ur af undrum vorsins þegar allt um
kring eru að gerast lítil kraftaverk
þar sem ungviðið lítur dagsins ljós
eftir veru í móðurkviði eða eggi.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Sumar-
koman
tími nýs
lífs
Norður-Hérað
Hrein
sum
viðar-, rimla-,
strimla-, plíseruð-
og sólargluggatjöld.
Hlíðarhjalla 26, s. 897 3634.