Morgunblaðið - 08.06.2001, Side 24
VIÐSKIPTI
24 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SIGURÐUR Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi,
fagnar framkomnum hugmyndum um uppbygg-
ingu þekkingarseturs í landi Lundar við Ný-
býlaveg í Kópavogi. Hann sagði í setningar-
ræðu á ráðstefnu, sem haldin var í gær um
virkjun þekkingar sem upsprettu verðmæta, að
hann mundi eftir fremsta megni greiða götu
hugmynda sem Þróunarfélagið Lundur hefur
unnið að útfærslu á. Hugmyndirnar gera ráð
fyrir uppbyggingu ríflega 50 þúsund fermetra
atvinnu- og íbúðarhúsnæðis fyrir þekkingariðn-
aðinn. Sigurður sagðist vona að Þróunarfélag-
inu mundi takast að koma hugmyndunum í höfn
og að mannvirkin risu á umræddu svæði í fullri
sátt við umhverfið.
Mats Wisk, framkvæmdastjóri markaðsmála
hjá finnska stórfyrirtækinu Nokia, flutti erindi
á ráðstefnunni þar sem hann sagði frá helstu
áföngum í 130 ára sögu fyrirtækisins og mikl-
um vexti þess á síðastliðnum árum. Fram kom í
máli hans að velgengni Nokia í harðri sam-
keppni á alþjóðamarkaði stafaði einna helst af
skýrum markmiðum og því að fyrirtækinu hefði
tekist það ætlunarverk að skapa sér sérstöðu á
fjarskiptamarkaði.
Per Morten Vigtel, stjórnarformaður IT
Fornebu og formaður Samtaka norskra fjár-
festa, sagði á ráðstefnunni frá uppbyggingu að-
stöðu fyrir þekkingariðnaðinn á Fornebu flug-
velli í Ósló, sem lagður hefur verið af. Hann
sagði að uppbyggingin væri stór í sniðum til að
hún vekti athygli erlendis, því þekkingarsetur
væru að rísa víða um heim og samkeppnin í
þeim efnum væri mikil.
Skýr markmið og sérstakar
starfsaðferðir hjá Nokia
Matt Wisk sagði að Nokia, sem áður hefði
helst verið þekkt fyrir framleiðslu á stígvélum,
hefði starfað á ýmsum sviðum er líða tók á tutt-
ugustu öldina, eftir samruna við fjölmörg fyr-
irtæki. Um miðjan síðasta áratug hefði hins
vegar verið tekin ákvörðun um það hjá fyr-
irtækinu, að það myndi sérhæfa sig á sviði fjar-
skiptatækni. Eftir það hefði velgengnin byrjað
fyrir alvöru. Hann lagði sérstaka áherslu á að
skýr markmið og sérstakar starfsaðferðir fyr-
irtækisins hefðu mikið að segja um velgengni
þess. Áhersla væri til að mynda lögð á að koma
vel fram jafnt við starfsfólk sem viðskiptavini
og að læra af mistökunum, sem hann sagði
töluvert um í þeirri starfsemi sem fyrirtækið
fæst við.
20 þúsund starfsmenn
í þekkingarsetri á Fornebu
Í Skandinavíu er hraðasta uppbygging í
þekkingariðnaðinum í heiminum í dag að sögn
Per Morten Vigtel. Hann sagði að stefnt væri
að samvinnu Norðurlandanna með uppbygg-
ingu þekkingarsetursins á Fornebu flugvelli.
Fjárfestar hafi tekið höndum saman um 60
milljarða króna fjárfestingu, sem ætlað sé að
tryggja alþjóðlega samkeppnishæfni norsks
hugbúnaðar- og þekkingariðnaðar. Gert sé ráð
fyrir að þegar uppbyggingu svæðisins verði að
fullu lokið á árinu 2008 muni um 20 þúsund
manns starfa á svæðinu. Markmiðið sé að
stuðla að samvinnu milli rannsókna, menntunar
og viðskipta. Hann sagði að norska símafélagið
Telenor væri stærsti einstaki fjárfestirinn í IT
Fornebu. Aðrir fjárfestar væru einstaklingar,
fyrirtæki, rannsóknar- og menntastofnanir,
samtök úr atvinnulífinu og norska ríkið.
Þörf á meira samstarfi
íslenskra fyrirtækja
Frosti Bergsson, stjórnarformaður Opinna
kerfa hf., sagði á ráðstefnunni í gær að til að ná
árangri í alþjóðlegri samkeppni í þekkingariðn-
aðinum þyrfti samstarf milli íslenskra fyrir-
tækja að vera mun meira en nú er, meðal ann-
ars vegar þess hvað markaðssetning erlendis
væri kostnaðarsöm. Þá sagði hann að hlut-
verkaskipting milli ríkisins og einkaaðila þyrfti
að vera skýrari. Einkaaðilar ættu að annast
fjármögnun, þróun og sölu en hlutverk ríkisins
ætti að vera að skapa rétt umhverfi. Í þeim efn-
um nefndi hann sérstaklega samkeppnishæft
skattaumhverfi og stöðugleika. Besta fjárfest-
ingin í tengslum við þekkingariðnaðinn liggur
að mati Frosta í öflugu menntakerfi.
Þekkingarsetur í Kópavogi rætt á ráðstefnu um virkjun þekkingar
Hugmyndunum vel
tekið af bæjaryfirvöldum
Morgunblaðið/Golli
Mats Wisk, framkvæmdastjóri markaðsmála hjá
Nokia, segir að skýr markmið og sérstaða á
markaði sé einn helsti grunnurinn að velgengni
fyrirtækisins.
STEFNT er að því að lækka
kostnað við uppbyggingu hins
sænska kerfis fyrir þriðju
kynslóð farsíma, svokallaðra
G3, um helming. Símafyrir-
tækin fjögur sem hrepptu
hnossið í umtöluðu útboði á
síðasta ári hafa ákveðið að
eiga samráð um uppbygg-
inguna sem mun að öllum lík-
indum lækka kostnaðinn úr
950 milljörðum ísl. kr. í 425
milljarða.
Fyrirtækin fjögur hyggjast
nýta sömu möstur, senda o.fl.
Samkvæmt reglum sænsku
símamálastofnunarinnar er
þeim leyfilegt að samnýta
70% en hvert um sig verður
að legga 30% til sjálft. Að
sögn Svenska dagbladet hafa
engar efasemdir verið látnar í
ljós um hvort fyrirtækjunum
tekst að koma kerfinu upp á
réttum tíma. Það á að vera
tilbúið í árslok 2003 en fyrstu
notendurnir eiga að geta
kveikt á símum sínum í janú-
ar nk. Það vakti gríðarlega
athygli á sínum tíma þegar
G3-farsímakerfið, eða UMTS,
var boðið út að Telia, sem er
að stærstum hluta í eigu
sænska ríkisins, skyldi ekki
hljóta leyfi. Mun minni fyr-
irtæki; Europolitan, Hi3G,
Orange og Tele2, skiptu
fengnum með sér. Gerðu þau
ráð fyrir að kostnaðurinn yrði
upp undir 1.000 milljarðar,
mestur hjá tveimur fyrst-
nefndu; 250 og 350 milljarðar,
180 milljarðar hjá Orange og
160 milljarðar hjá Tele2. Nú
hafa Hi3G, Europolitan og
Orange stofnað dreifingarfyr-
irtæki, Infrastructure Serv-
ices AB sem setja mun upp
kerfi sem nær til um 70% íbú-
anna. Þá hefur Tele2 tekið
upp samstarf við Telia sem
hyggst bjóða viðskiptavinum
sínum upp á UMTS þjónustu
þrátt fyrir að fyrirtækið reki
ekki eigið kerfi. Segir Henrik
Ringmar, framkvæmdastjóri
Svenska UMTS Nät AB, fyr-
irtækis Tele2 og Telia, að
sparnaðurinn nemi líklega um
helmingi.
Samstarf
um UMTS
sparar
helming
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
FORSTJÓRI Telenor, Tormod Her-
mansen, hefur staðfest að markmið
fyrirtækisins sé að komast inn á
sænska farsímaþjónustumarkaðinn,
hugsanlega með samstarfi við Tele2
eða Europolitan. Þetta gæti kostað
fyrirtækið allt að 30 milljörðum
norskra króna, að því er fram kemur
í Dagens Næringsliv.
Hugleiðingar Hermansen um fjár-
festingar í Svíþjóð fá ekki góðan
hljómgrunn hjá forsvarsmönnum
fyrirtækjanna tveggja. Forstjóri
Tele2, Lars-Johan Jarnheimer, seg-
ist ekki áhugasamur um samruna
eða samstarf við annað símafélag.
Forstjóri Europolitan vill ekki tjá
sig um málið og bendir á eigendur
fyrirtækisins, en meirihlutaeigandi
er breska símafélagið Vodafone.
Í grein Dagens Næringsliv kemur
fram að Hermansen trúir ekki á þrí-
hliða samruna Telia, Tele Danmark
og Sonera og finnst Telenor ekki
sitja hjá þegar talað er um stofnun
norræns símarisa.
Í fyrradag var tilkynnt um stöðu-
hækkun framkvæmdastjóra hjá
Telenor, Jon Fredrik Baksaas, en
hann mun nú gegna stöðu staðgeng-
ils forstjóra. Hermansen segist ekki
vera að láta af störfum, heldur sé
hann einungis að minnka álagið.
Vill á sænska farsímamarkaðinn