Morgunblaðið - 08.06.2001, Side 29
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 29
að þingið, þar sem umbótasinnar eru
í meirihluta, gæti ekki aflétt fjöl-
miðlabanni sem sett hefur verið á yfir
40 dagblöð, og varð þetta alvarlegt
áfall fyrir umbótastefnu Khatamis
forseta.
Þegar Khamenei er ekki sjálfur í
sviðsljósinu lætur hið valdamikla
Verndararáð til sín taka og notar
neitunarvald sitt til að stöðva fram-
gang lagafrumvarpa sem þingið hef-
ur samþykkt. Dómstólar, sem einnig
eru í höndum íhaldssinna, hafa und-
anfarið hneppt fjölda stuðnings-
manna forsetans í varðhald, blaða-
nautur Khatamis er Ahmad Tavakoli,
fyrrverandi atvinnumálaráðherra, en
hann samkvæmt skoðanakönnunum
er fylgi hans mun minna en forset-
ans, eða aðeins um 11%.
Khatami vann óvæntan sigur á
frambjóðanda ráðandi íhaldsafla í Ír-
an í kosningunum 1997, og hlaut 20
milljónir atkvæða. Nú eru um 42,1
milljón á kjörskrá, og hljóti Khatami
fleiri atkvæði nú en fyrir fjórum ár-
um myndi það veita honum gífurleg-
an styrk og auka þrýsting á að and-
stæðingar hans fari bil beggja.
Þrátt fyrir vinsældir Khatamis
hafa íhaldsmenn tögl og hagldir í
réttarkerfinu í Íran, hernum, fjöl-
miðlum, pólitískum eftirlitsráðum og
öflugum stofnunum sem svo að segja
stjórna efnahagslífinu
Þótt Khatami muni tryggja sér
setu á forsetastóli í fjögur ár til við-
bótar eru Íranir nú að kjósa „næst-
æðsta mann“ stjórnkerfisins, eins og
ríkisfjölmiðlar hafa minnt kjósendur
á undanfarið. Völd æðsta leiðtoga
landins, Ayatollah Alis Khameneis,
eru margfalt meiri en völd forsetans,
og hefur Khamenei ekki hikað við að
beita sér til þess að hafa hömlur á
áætlunum forsetans um félagslegar
og pólitískar umbætur.
Khamenei sá sjálfur til þess í fyrra
HELSTU stuðningsmenn Mohamm-
ads Khatamis Íransforseta spá því að
hann muni vinna annan stórsigur í
forsetakosningunum er fram fara í
dag, og fá endurnýjað umboð til að
halda áfram umbótaáætlunum sín-
um.
„Við teljum að atkvæðin verði fleiri
en síðast – bæði hlutfallslega og í
kjörsókn,“ sagði Mohsen Mirdamadi,
þingmaður Íslömsku þátttökuhreyf-
ingarinnar, flokks sem hlynntur er
Khatami.
Sagði hann ennfremur að væntan-
legur stórsigur Khatamis á níu öðr-
um frambjóðendum, íhaldssinnum og
óháðum, myndi neyða íslamska harð-
línumenn er gegni háum, opinberum
embættum án þess að hafa verið
kjörnir til þeirra, til að hætta að
hindra umbætur.
„Ef Khatami fær fleiri atkvæði
þrátt fyrir öll vandamál undanfar-
inna tveggja eða þriggja ára þýðir
það að fólk vill fylgja honum. Þrýst-
ingur frá almenningi og öflugur
stuðningur hans getur leitt til breyt-
inga á næsta hálfa ári,“ sagði Mirda-
madi.
Í skoðanakönnun er gerð var í síð-
ustu viku fyrir sjónvarpið í Abu
Dhabi var Khatami spáð öruggum
sigri með 75% atkvæða. Helsti keppi-
menn, stúdentaleiðtoga og
andspyrnumenn.
Khatami forseti hefur sjálfur
barmað sér yfir því hversu lítil völd
hann hafi, þótt margir utanaðkom-
andi stjórnmálaskýrendur hafi haldið
því fram að umbótastefna forsetans
muni á endanum verða ofan á. „Ég
held að við munum sjá umtalsverðar
breytingar á næstu tveim til þrem ár-
um,“ sagði asískur stjórnarerindreki
við fréttamann AFP-fréttastofunnar.
„Íhaldsmenn einfaldlega geta ekki
haldið uppteknum hætti.“
Útlit fyrir stórsigur Khatamis í forsetakosningum í Íran í dag
Reuters
Íranskar konur sitja í skugganum af bíl sem er alsettur myndum af Khatami forseta.
Íhaldsmenn hafa þó enn
tögl og hagldir í landinu
Teheran. Reuters.
LÍK ÞÚSUNDA barna voru
flutt til Bandaríkjanna frá
Hong Kong, Ástrarlíu, Bret-
landi, Kanada og Suður-Am-
eríku og þau notuð í leynileg-
um kjarnorkutilraunum.
Þetta kemur fram í gögnum
frá bandaríska orkumálaráðu-
neytinu sem nýlega voru gerð
opinber.
Byrjað var á tilraunaverk-
efninu, sem hlaut leyninafnið
„sólskynsverkefnið“, að undir-
lagi Nóbelsverðlaunahafans
Willards Libby. Meðal
gagnanna sem birt voru er af-
rit samtals þar sem eftirfar-
andi er haft eftir Libby: „Við
báðum mjög dýra lögfræði-
stofu um að athuga lög um lík-
amsþjófnaði. Þau eru ekki
mjög uppörvandi“. Samt sem
áður hvatti hann samstarfs-
menn sína til finna leiðir til að
útvega mannslíkami í trássi við
lögin.
Barnslíkum stolið
Í gögnunum segir að mörg
barnslíkanna hafi verið tekin
án þess að samráð hafi verið
haft við foreldra eða aðstand-
endur þeirra. Jean Prichard
sagði frá því í samtali við
breska blaðið Observer að
lappir dóttur hennar hefðu
verið fjarlægðar að henni for-
spurðri. Til að koma í veg fyrir
að hún kæmist að hinu sanna
var henni bannað að klæða lík
barnsins fyrir útförina. Fætur
barnsins voru notaðir af bresk-
um vísindamönnum sem stund-
uðu svipaðar rannsóknir og
bandaríkjamennirnir.
Ásakanirnar rannsakaðar
Yfirvöld í Hong Kong og
Ástralíu eru að rannsaka hvort
fullyrðingar um að lík þúsunda
barna hafi verið flutt frá ríkj-
unum tveimur til Bandaríkj-
anna eigi við rök að styðjast.
Ástralska geislavarnar- og
kjarnorkuöryggis stofnunin
viðurkennir að hún hafi notað
barnslík við rannsóknir á
geislavirkni nokkurra efna en
neitar að áströlsk barnslík hafi
verið flutt til bandaríkjanna.
Larry Arbeiter frá Chicagohá-
skóla staðfestir hins vegar að
lík ástralskra barna hafi verið
notuð við tilraunir í Bandaríkj-
unum frá árinu 1955.
Sólskinsverkefninu lauk
seint á áttunda áratugnum.
Lík barna
notuð við
kjarnorku-
tilraunir
London, Hong Kong, Sydney. AFP, The
Daily Telegraph.
KVIÐDÓMUR í Los Angeles í
Bandaríkjunum hefur dæmt tóbaks-
framleiðandann Philip Morris til að
greiða hæstu skaðabætur til einstak-
lings, sem tóbaksfyrirtæki hefur
verið gert að greiða, eða ríflega 300
milljarða króna.
Richard Boeken, 56 ára gömlum
Bandaríkjamanni voru dæmdar bæt-
urnar. Boeken var greindur með
lungnakrabbamein af völdum reyk-
inga árið 1991. Hann hafði þá reykt
tvo pakka af sígarettum á dag frá 13
ára aldri.
„Að kviðdómurinn dæmi svo háar
skaðabætur er ekki aðeins óraun-
hæft og órökrétt heldur gerir hann
einnig dómskerfi okkar að aðhláturs-
efni,“ sagði William Ohlemeyer,
varaforseti Philip Morris, eftir að
dómshaldinu lauk. Forsvarsmenn
fyrirtækisins, sem er stærsti tóbaks-
framleiðandi í Bandaríkjunum,
munu áfrýja dómnum.
Greiði 300 milljarða
Washington Post.