Morgunblaðið - 08.06.2001, Blaðsíða 30
LISTIR
30 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÖLL þrjú skiptin sem ég brá mér á
sýninguna, Ár poppsins, í Pompidou
menningarmiðstöðinni sem var opnuð
15. mars en lýkur 18. júní, var þétt-
pakkað í sölunum. Raunar svo mjög
að í þriðja skiptið var mér nóg boðið
og hrökklaðist fljótlega frá, gerði sos-
um minna til þar sem svo margt kom
mér meira en kunnuglega fyrir sjónir.
Hin mjög svo tæmandi sýning er
seint á ferð og enn eitt lýsandi dæmi
um klerkavaldið í París. Alræði sem
ekki tekur svo glatt við núlista-
stefnum að utan, frekar að listhúsin
streitist í lengstu lög á móti um leið og
þau reyna allt hvað tekur að mark-
aðssetja eigin list og listheimspeki.
Hafa svo í nær hálfa öld orðið að
kyngja mörgum beiskum bitanum, er
hlutirnir þróuðust ekki samkvæmt
óskhyggju þeirra og mynstri. En
þetta ætti að segja einhverjum, að
listinni verður trauðla fjarstýrt til
lengdar og öll einsýn miðstýring
þannig af hinu illa, ennfremur að hún
lifir eigin lífi og verður ekki sett í
bönd, frekar en vindáttirnar.
Framkvæmdin mikla París-Berlín
markaði hér afdrifarík spor og ekki
síður sýningin á Vínarskólanum, sem
gerði allt vitlaust í borginni. Í fyrra
fallinu höfðu engir verið iðnari en þeir
í Frans, við að bólusetja evrópubúa
gegn þýskri myndlist fyrir hráa og
grófa framsetningu og Vínarmálara
fyrir skreytikennd og væmni. Þó lík-
ast til öllu eðlilegra að popplistin
kæmi til muna verr við þá, meður því
að hún rak fleyg inn í viðteknar hug-
myndir um málverkið og hafði hausa-
víxl á listhugtakinu sem háleitum
miðli einvörðungu. Þrengdi hvunn-
deginum, neyslusamfélaginu og af-
þreyingariðnaðinum í sviðsljósið, öll-
um hliðum fyrirbæranna. Markaði
afdrifaríkari breytingar en nokkur
önnur stílhvörf á síðustu öld, hrær-
ingarnar og uppstokkanirnar sem í
kjölfarið fylgdu meiri, altækari og af-
drifaríkari en í annan tíma. Hafi
abstraktlistin stokkað upp spilin svo
um munaði fyrir og eftir miðbik ald-
arinnar má kannski orða það svo, að
popplistin hafi þeytt þeim í allar áttir
svo víðtæk áhrif sem hún hafði og
rækilega umturnað öllum fyrri gild-
um á einn veg líkt og impressjónist-
arnir hundrað árum áður. Bein og
sýnileg áhrif hennar voru mikil, hin
óbeinu enn meiri, sem var að hræra
upp í viðhorfum listamanna um víða
veröld til skapandi athafna. Og eins
og aðrar listastefnur átti hún nær-
tækan aðdraganda, sem var hin mikla
umbylting á öllum upplýsingamiðlum
í múgsamfélaginu og framsókn
neyslu-, afþreyingar- og velferðar-
þjóðfélagsins. Þróun sem hafði á sér
margar hliðar, sumar raunar mjög
umdeilanlegar. Þetta voru líka tímar
gerviefna sem ruddu sér til rúms sem
aldrei fyrr, listin kjörin vettvangur til
að sannprófa þau og markaðssetja.
Þannig næsta eðlilegt að hér yrðu
Ameríkumenn fyrstir að taka við sér
en Parísarskólinn síðastur, allt galop-
ið í nýja heiminum en flest niður-
njörvað og í föstum skorðum í þeim
gamla.
Iðnjöfrar höfðu snemma uppgötv-
að hagnýti þess að virkja hugarflug
framsækinna myndlistarmanna varð-
andi fjölbreytni og styrkleika nýrri
efna, að þeir væru færari að leysa ým-
is vandamál með skynfærunum en
efnafræðingarnir með þekkingunni
og prófgráðunum, yfirburðir þeirra
um formræna mótun svo ótvíræðir.
Það var svo engin tilviljun að auglýs-
ingahönnuðir með listræna æð skyldu
verða brautryðjendur og stjörnur
poppsins í New York. Þeir höfðu að-
gang að öllum sjónrænum hjálpar-
tækjum til fjölföldunar ásamt mennt-
un og kunnáttu til að hagnýta sér þau,
þarmeð betur í stakk búnir til að taka
forustuna en málararnir með pent-
skúfinn einan að vopni.
Blómaskeið popplistarinnar telst
hafa varað frá 1956–1968, en sú árátta
að hagnýta sér fjöltæknimiðlana er
enn í fullum gangi. En hún á sér til
muna lengri sögu í fortíðinni, en þá
sem einangraðra fyrirbæri og helst í
frumdada og súrrealisma, í millitíð-
inni höfðu svo bógar eins og Eduardo
Paolozzi, Francis Bacon og John
Heartfield farið að nota eitt og annað
úr fjöltækninni í þágu sköpunarferlis
mynda sinna og margir aðrir minni
spámenn. Ekki má hér gleyma hug-
myndasmiðnum fjölhæfa Man Ray,
en list hans átti erfitt uppdráttar í
París á árum áður eða allt fram á síð-
ari ár er stjarna hans varð stöðugt
greinilegri á himnafestingunni. Hug-
myndaferli popplistarinnar ruddi svo
brautina fyrir fleiri afbrigði núlista
svo sem nýdada, fluxus og nýraunsæi
ásamt því sem hefur verið sett undir
einn hatt á seinni tímum undir sam-
heitinu fjöltækni, þannig eru sumir
poplistamenn einnig orðaðir við fleiri
en einn geira núlista.
Þó svo popplistin í upprunalegri
mynd sé ekki lengur mál málanna
vinna brautryðjendurnir enn á fullu í
stílbrögðunum, ekki síður en brim-
brjótar annarra listastefna, hvort
heldur strangflatamálarar sem iðk-
endur óformlega málverksins. Ein-
faldlega vegna þess að þótt blóma-
skeið stílbragða líði undir lok
minnkar það ekki vægi þeirra í hönd-
um skapenda sinna, en þau eru ein-
faldlega ekki alltyfirgnæfandi tísku-
fyrirbæri lengur.
Á framkvæmdinni í París hefur
áherslan verið lögð á sögu, þróun og
breidd poppsins, einkum víxlverkanir
og áhrif til margra átta, svo sem
hönnun, akitektúr, tónlist og fata-
tísku. Þau eru svo langtum meiri en
margan grunar hér á norðurslóðum
sem greinilega kemur fram á sýning-
unni og kom jafnvel skrifara nokkuð á
óvart, en gerir hana um leið tætings-
legri, sem þó má allteins vera mark-
miðið. Auðséð var að sýningargest-
irnir, sem voru í yngri kantinum í
heildina, voru með á nótunum og lifðu
sig inn í þennan um margt skondna
heim enda líkast til í fyrsta skipti sem
poppið er sýnt í jafnvíðtæku sam-
hengi í Parísarborg.
Guðmundur Erró, sem nú má telja
svar Parísarskólans við engilsax-
neska poppinu, er kynntur með tveim
myndum, önnur þeirra er Matar-
landslagið frá Núlistasafninu í Stokk-
hólmi, og vekur sem jafnan mikla at-
hygli. Hún var gerð einhvern tíma á
árunum 1962–64 í miðjum uppgangi
poppsins. Myndheimur Errós er þó
allteins og jafnvel frekar kenndur við
nýraunsæi líkt og sitthvað sem Claes
Oldenburg og Robert Rauschenberg
gera er einnig kennt við Fluxus.
Þannig skarast stílbrögðin sitt á hvað
en poppið gerði núið sýnilegra, allar
hliðar þess.
Poppið var fyrst fyrir alvöru sýni-
legt í Evrópu 1968 en þá í Þýskalandi,
svo það hefur tekið nokkuð langan
tíma til að ná til Parísarborgar, þótt
ýmis fyribæri þess hafi verið gott bet-
ur en sýnileg. Í þessari mynd er um
núliðna fortíð að ræða þótt sumt hafi
verið furðu lífseigt og er stöðugt að
endurtaka sig í verkum hinna ungu
enda kennslugrein í fjöltæknideildum
skóla.
Skiljanlega dálítið undarlegt fyrir
pistilhöfund að skoða sýninguna og
þessi stílbrögð sem sígilda fortíð því
ekki laust við að list sjálfs hafi skarað
þau rækilega á tímabili. Það er önnur
saga en þessvegna var honum svo um
að bera framkvæmdina augum að það
héldu honum engin bönd …
Táknræn fyrirbæri í hönnun og notkun gerviefna; Hanski, lampi, stóll,
höfundar: Jonathan de Pas/ Superstudio-hópurinn/Jonathan de Pas,
Donato D’Urbino, Paolo Lomazzi og Carla Scolari.
Gerhard Richter; Partý, 1962, blönduð tækni.
Popp í París
Líkast til mun engin listsýning vormánaðanna hafa notið viðlíka
athygli og aðsóknar og Ár poppsins, les années pop, í
Pompidou-listamiðstöðinni í París, sem nú er að ljúka. Hún
bregður upp raunsannri mynd af fjölbreytni listastefnunnar sem
olli svo miklum og afdrifaríkum umskiptum á sjöunda
áratugnum. Bragi Ásgeirsson var á vettvangi.
Í þessu verki Martial Raysse, sem nú getur að líta í Pompidou-lista-
miðstöðinni, Málverk háþenslu, 1965, 165x97,5 sm, renna á táknrænan
hátt saman ýmis tæknibrögð poppsins, ljósmynd, málverk og flúorljós.