Morgunblaðið - 08.06.2001, Page 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2001 31
Gullsmiðir
„STÓRT, einfalt og sterkt“ voru
þau orð sem einn gesta Fen-
eyjatvíæringsins lét falla um verk-
ið „Diabolus“ eftir Finnboga Pét-
ursson í gær, en Finnbogi er
fulltrúi Íslendinga í ár á þessari
miklu alþjóðlegu myndlistarhátíð,
sem haldin er á tveggja ára fresti.
Sýning hans verður opnuð form-
lega í Feneyjum í dag og mikill
straumur af fólki hefur verið við
skálann þar sem verkið er til húsa.
Fjölmiðlafólk og fyrstu gestir
komu á sýningarsvæðið í fyrradag
en þjóðirnar eru nú hver af ann-
arri að opna sýningar sínar.
Verkið „Diabolus“ er hannað
þannig að það myndar göng sem
mjókka inn í sýningarskálann, en í
gegnum þau óma tveir tónar sem
saman mynda „díabolus in mu-
sica“, tónbil sem bannað var af
kirkjunni fyrr á öldum.
Hrafnhildur Schram, sem sér
um sýninguna fyrir Íslands hönd,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að vel hefði gengið að koma
verki Finnboga upp. „Enda vaskir
menn að verki sem eru búnir að
vera í rúma viku við smíðar,“
sagði hún, og vísaði þar til þeirra
Þórs Vigfússonar og Daníels
Magnússonar sem listamaðurinn
hafði sér til fulltingis. „En auðvit-
að njótum við þess fyrst og fremst
að hér er um að ræða afar gott
verk frumlegs listamanns. Skálinn
er einnig mjög vel staðsettur, al-
veg við hliðina á ítalska sýning-
arskálanum. Það er því mikil um-
ferð hér framhjá, svo flestir gefa
okkur gaum. Verkið sjálft gengur
töluvert út úr hinu eiginlega sýn-
ingarrými og segja má að það sæki
fólkið og leiði það inn í skálann.“
Full bjartsýni
Hrafnhildur sagðist vera afar
ánægð nú þegar að opnunin væri í
sjónmáli. „Ég er full bjartsýni
enda gefst hér gott tækifæri til að
koma Finnboga Péturssyni af stað
út í heim. Verkið, sem má skil-
greina sem umhverfisverk, er
ákaflega virkt. Það grípur út í
rými áhorfandans – inn í það rými
sem við erum sjálf að hrærast í.
Sömuleiðis fellur það vel inn heild-
armynd tvíæringsins í ár og þó ég
vilji hreint ekki lýsa neinni andúð
á málverkinu held ég að það hefði
t.d. orðið erfitt fyrir málverk að
gera sig í því samhengi sem hér er
ráðandi.“
Finnbogi Pétursson var að von-
um þreyttur eftir vinnutörn síð-
ustu viku en jafnframt ánægður
með útkomuna. „Það er oft þannig
með mína myndlist að reynslan af
fullunnu verki felur miklu meira í
sér heldur en ég hafði gert mér í
hugarlund þegar ég fékk hug-
myndina,“ sagði hann, er Morg-
unblaðið náði tali af honum þegar
verið var að leggja síðustu hönd á
uppsetninguna. „Og þannig hefur
það einnig verið hér í Feneyjum
nú. Göngin, sem eru byggð eins og
lúður, virka nefnilega í báðar átt-
ir. Þau bæði dreifa hljóðinu sem
kemur að innan og safna saman
hljóði sem kemur að utan. Reynsla
áhorfandans er því margþættari
en ég hafði gert ráð fyrir – hið
gamla og nýja tvinnast saman af
meiri styrk en ég hafði gert mér
vonir um.“
Opnun íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum
Stórt, einfalt og sterkt
Morgunblaðið/Fríða Björk
Við íslenska skálann: Guðný Magnúsdóttir, Edda Jónsdóttir, Finnbogi
Pétursson, Hrafnhildur Schram, Þór Vigfússon og Daníel Magnússon.
Feneyjum. Morgunblaðið.
TÓNLEIKAR í Garðabæ er nafn
á tónleikaröð og hafa þegar verið
haldnir fernir tónleikar og m.a Jazz-
dagar. Sl. miðvikudag voru söng-
tónleikar, þar sem Ingibjörg Guð-
jónsdóttir og Peter Màté fluttu
ljóðasönva eftir Grieg, Brahms og
Rachmaninov og nýstofnaður
Kvennakór Garðabæjar, undir
stjórn Ingibjargar, kom fram í
fyrsta sinn. Á hausti komanda verða
tónleikar sem vel má huga að, því 8.
september munu Christiane Oelze
og Rudolf Jansen halda ljóðatón-
leika, 11. og 12. október kemur svo
Vínardrengjakórinn í heimsókn og
1. desember leikur Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands í Garðabæ.
Ingibjörg Guðjónsdóttir og Peter
Màté hófu tónleikana í Kirkjuhvoli
sl. miðvikudagskvöld með fimm
söngvum eftir Edward Grieg, To
brune Øjne, Det første møde, God
morgen, Et Håb og En Drøm, sem
Ingbjörg söng fallega en í heild var
flutningurinn við daufari mörkin og
lék píanóleikarinn Peter Màté allt
of veikt undir. Þetta var sérlega
áberandi í þremur ljóðum eftir
Brahms, sérstaklega í Von ewiger
Liebe og Vergebliches Ständchen,
sem bæði eru samleiksverk, ekki
einsöngslög með undirleik. Flutn-
ingur í Der Jäger var fallega mót-
aður, bæði af söngvara og píanóleik-
ara. Fjögur lög, Í þögn
leyndardómslegrar nætur, þær
svöruðu, Syngdu ekki, fagra og Vor-
leysingar, öll eftir Rachmaninov,
voru fallega flutt en þó án þess
rússneska og víðfeðma þunga, sem
Rússar eru frægir fyrir. Af þeim
lögum sem sérstaklega má nefna
fyrir góðan flutning var En Drøm
eftir Grieg. Der Jäger eftir Brahms
og Syngdu ekki, fagra, sem er eitt
af frægari sönglögunum eftir
Rachmaninov. Ingibjörg er góð
söngkona en flutningur hennar var í
daufara lagi, sérstaklega í Brahms.
Kvennakór Garðabæjar var stofn-
aður sl. haust og á þessum stutta
tíma hefur Ingibjörgu tekist að æfa
upp þokkalegasta kór, þó enn eigi
konurnar eftir að þroska söngtækni
sína, sem tekur nokkurn tíma og
mikla vinnu. Kórinn var vel æfður
og söng af þokka íslenska þjóðlagið
Hættu að gráta hringaná, danska
þjóðlagið I skovens dybe stille ro,
Senn kemur vor eftir Kabalevsky
og fjóra móraviska dúetta op. 32,
eftir Dvorák, sem eru léttir og
elskulegir dúettar. Þessir dúettar
eru alls 26, voru sumir þeirra það
fyrsta sem Brahms sá eftir Dvorák
og kom á framfæri við úgefandann
Simrock og markar samvinna upp-
haf vinsælda þeirra sem Dvorák síð-
ar naut. Þetta eru sérlega fallegir
dúettar og þrátt fyrir að sumir
þeirra séu ákaflega einfaldir, og
hvað texta snertir léttvægir, mis-
tekst Dvorák aldrei að gera þá að
áhugaverðri tónlist.
Madrigalarnir eftir Morley og
Dowland voru viðfangsefni sem út-
heimta þjálfaða sönggetu og t.d.
Now is the month of Maying, sem
er upprunalega samið fyrir fimm-
radda blandaðan kór, var sönglega
of erfitt sem upphafsviðfangsefni.
Kvartett söng Come again eftir
Dowland og Though Pihillomela lost
her love eftir Morley og þar vantaði
meiri tónfyllingu í raddhljóminn til
að lögin næðu að hljóma sannfær-
andi.
Litlu amerísku þjóðlögin, sem
voru síðast á efnisskránni eru ákaf-
lega sakleysisleg viðfangsefni, en
þau eru úr safnriti Old American
Songs (tvö hefti), sem Copland gaf
út 1952 og 53. Hann (og reyndar
fleiri) útsetti sum laganna fyrir
hljómsveit 1958 og Britten mun
hafa sótt sér efni í þetta safn, t.d.
með því að útsetja I bought me a
cat, sem Peter Pears mun hafa
sungið í Aldeburgh 1950. Þessi litlu
en leikandi þjóðlög voru fallega
sungin, þótt það vantaði snerpuna
sérstaklega í það síðasta Ching-a-
ring Chaw, sem er ekta barnarím-
leikur. Þrátt fyrir að byrjendabrag-
ur væri á söng Kvennakórs Garða-
bæjar er það tíminn og vinnan, sem
skera úr um það hvort kórinn nær
að þroskast sem samstæður söng-
hópur, en það er mikil vinna sem
liggur í því að kenna fólki að syngja.
Að kenna fólki
að syngja
TÓNLIST
K i r k j u h v o l l
Ingibjörg Guðjónsdóttir,
Peter Màté fluttu ljóðasöngva
eftir Grieg, Brahms og Rachm-
aninov, Kvennakór Garðabæjar,
undir stjórn Ingibjargar Guðjóns-
dóttur, flutti íslensk og erlend kór-
lög fyrir kvennakór. Miðvikudag-
urinn 6. júní, 2001.
SÖNGTÓNLEIKAR
Jón Ásgeirsson
KAMMERKÓR Hafnarfjarðar
heldur tónleika í Stafkirkjunni í
Vestmannaeyjum á morgun, laug-
ardag, kl. 13. Vorið og sumarið
eru umfjöllunarefni tónleikanna.
Flutt verður íslensk tónlist ásamt
tónlist frá Færeyjum, Danmörku,
Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Öll
tónlistin er um vor- og sum-
arstemmningu, þar sem fjallað er
um landslag, sumarástina, nátt-
úruskrúðið og heimahagatregann.
Kammerkór Hafnarfjarðar var
stofnaður í byrjun árs 1998 og eru
þetta tíundu tónleikar hans.
Stjórnandi frá upphafi er Helgi
Bragason.
Aðgangur er ókeypis, en gest-
um er gefinn kostur á frjálsum
framlögum, sem renna óskipt til
líknarmála á vegum Sjómanna-
dagsráðs í Vestmannaeyjum.
Félagar í Kammerkór Hafnarfjarðar á æfingu.
Kammerkór Hafnar-
fjarðar í Stafkirkjunni
TEA Jaaskelainen opnar myndlist-
arsýningu í Gula húsinu, á horni
Frakkastígs og Lindargötu, á morg-
un, laugardag, kl. 16.
Trans-list, nefnist sýningin sem
samanstendur af handmáluðum og
hekluðum mandölum (yantras).
Tea kemur frá Finnlandi og kallar
sig trans-listamann.
Sýningin verður opin nú um
helgina, og næstu helgi frá fimmtud.
til sunnudags frá kl. 12–18.
Finnsk list í
Gula húsinu
ORÐ og tunga er komið út í
fimmta sinn. Markmiðið með tíma-
ritinu er að ýta undir umræður um
orðabókarfræði og orðfræði og
rannsóknir á þeim sviðum. Orða-
bókarfræði er vaxandi fræðigrein í
nágrannalöndum en hefur lítið ver-
ið sinnt hér. Að þessu sinni eru í
ritinu tíu greinar. Þær eru af ólík-
um toga en eru allar á sviði orð-
fræða eða orðabókarfræða. Þrjár
þeirra fjalla um einstök orð, þrjár
um orðabækur eða verkefni á sviði
orðabókagerðar sem þegar hefur
verið lokið við. Tvær greinar
tengjast vekefnum Orðabókar Há-
skólans og að lokum er í ritinu
grein um stofngerð íslenskra orða.
Útgefandi er Orðabók Háskól-
ans, en Háskólaútgáfan sér um
dreifingu. Ritið er 165 bls. og kost-
ar 1.990 kr.
Tímarit
MARGRÉT Magnúsdóttir opnar
sýningu í Listhúsi Ófeigs við Skóla-
vörðustíg 5 á morgun kl. 15. Sýn-
ingin samanstendur af málverkum
og þrívíðum hlutum.
Margrét útskrifaðist frá skúlptúr-
deild MHÍ 1987 og árið 1993 lauk
hún MA frá Listaháskólanum í Berl-
ín. Þetta er fjórða einkasýning henn-
ar. Sýningin stendur til 23. júní og er
opin á verslunartíma.
Þrívíð verk
hjá Ófeigi
UMSÓKNARFRESTUR um styrk
úr hinum nýstofnaða Menningar-
borgarsjóði rann út 22. maí sl.
Rúmlega 200 umsóknir bárust frá
öllum landshlutum til fjölbreyti-
legra verkefna. Gert er ráð fyrir að
sjóðurinn úthluti 25 milljónum
króna í ár.
Tilkynnt verður á blaðamanna-
fundi næstkomandi þriðjudag, 12.
júní, hvaða verkefni hljóta styrki
árið 2001.
Að sögn Þórunnar Sigurðardótt-
ur, formanns úthlutunarnefndar,
fór fjöldi umsókna langt fram úr
björtustu vonum og segir hún
greinilegt að þörf sé fyrir sjóðinn á
þessum vettvangi.
200 umsóknir
í Menningar-
borgarsjóð
♦ ♦ ♦